Morgunblaðið - 14.06.1989, Side 31

Morgunblaðið - 14.06.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989 Kveðjuorð: Kristrún Baldurs- dóttir ljósmóðir Fædd 8. nóvember 1938 Dáin 5. maí 1989 Föstudaginn 12. maí var til mold- ar borin elskuleg mágkona mín og vinkona, Kristrún Baldursdóttir, Lillý, eins og hún var jafnan kölluð af vinum sínum og fjölskyldu. Hún hafði átt við að stríða langvinnan og erfiðan sjúkdóm sem hún bar með einstöku æðruleysi. Ég minnist ávallt okkar fyrstu kynna þegar Lillý trúði mér fyrir því hve heitt hún unni bróður mínum og sú ást hefur fylgt Birgi og bömunum gegnum lífíð. Þótt ég byggi fjarri Lillý á þriðja áratug vissum við vel hvor af ann- arri og héldum góðu sambandi. Og þótt hún kæmi aðeins einu sinni til Irlands urðu mínir vinir hennar eft- ir stutt kynni. Þannig var viðmót hennar — þar fór saman hjarta- hlýja, hógværð og tryggð. Slíkir eiginleikar hljóta að laða að. Vinir okkar á írlandi minntust hennar með því að láta syngja messu í minningu hennar daginn sem hún var jarðsett. Mig langar til þess að rekja ævi- feril mágkonu minnar örfáum orð- um. Hún fæddist 8. nóvember 1938, dóttir hjónanna Margrétar Jakobs- dóttur og Baldurs Jónssonar. Hún var elst í hópi átta systkina. Lillý lauk prófi frá Ljósmæðraskóla ís- lands árið 1962. Hún starfaði sem ljósmóðir í Þórshafnarhéraði í tvö ár. Þar kynntust þau, hún og Birg- ir, og bundust tryggðum. Frá Þórs- höfn fluttust þau til Vestmannaeyja og þaðan til Akureyrar þar sem þau bjuggu æ síðan, fýrst í Norðurgötu, síðan í Skarðshlíð, þá í Hvammshlíð og loks I Stórholti 9 í Glerárhverfi. Lillý og Birgir eiguðust fjögur börn en auk þeirra átti Birgir dóttur frá fyrra hjónabandi, Halldóru, fædda 4. desember 1961, sem tengidst Lillý sterkum böndum. Börn þeirra voru: Baldur f. 2. maí 1965, Börk- ur, f. 24. ágúst 1966, sambýliskona hans er Hrafnhildur Óladóttir og eiga þau dótturina Bryndísi Björk, Hlynur, f. 22. janúar 1968, sambýl- iskona hans er Inga Pálsdóttir, og Kristjana f. 13. mars 1973. Þann 13. september 1972 urðu þau fýrir því þunga áfalli að missa elsta son- inn, Baldur, í bílslysi. Sorg og myrk- ur hvíldi yfir heimilinu en sameigin- Iega yfirstigu þau þessa raun að því marki sem það er hægt. Á Akureyri vann Lillý við mæðraeftir- litið, síðan á Kristnesspítala og loks á Dvalarheimilinu Hlíð. í öllum þessum störfum sem og annars staðar komu vel fram lyndisein- kunnir hennar, hógværð og hlýja, enda ávann hún sér traust hvar- vetna. Það sýndu m.a. fjölmargar kveðjur er bárust við útför hennar frá sjúklingum og samstarfsfólki. Ég minnist nú á þessari stundu þegar ég kom alkomin heim til ís- lands þann 7. október 1987 hve mjög ég hlakkaði til endurfunda við vini og fjölskyldu. Um svipað leyti kom úrskurður um að Lillý væri haldin ólæknandi sjúkdómi — gleðin yfír heimkomunni varð galli bland- in. En þannig er mannlífið — stund- um ljúft, stundum miskunnarlaust. Systumar gleði og sorg haldast oftast í hendur. Ég minnist einnig samfunda við bróður og mágkonu á heimili þeirra. Heimilið bar smekkvísi hennar og listfengi fagurt vitni. Hún vann öll heimilisstörf svo hljóðlega og áreynslulaust að maður gat ekki haldið annað en verkin gerðu sig Maðurinn minn, ALFRED KR.OLESEN, Nökkvavogi 10, er látinn. Helga Halldórsdóttir Olesen. Faðir okkar, GUÐLAUGUR STEFÁNSSON fyrrv. yfirverkstjóri, áður til heimilis i Sólheimum 27, léstá hjúkrunardeild Hrafnistu, Laugarási, mánudaginn 12.júní. Sólveig Guðlaugsdóttir, Hilmar Leósson. Föðursystir okkar, DAGMAR HLÍF SIGURÐARDÓTTIR frá Borgartúni, Efstasundi 97, lést í Landspítalanum að kvöldi 12. júní. Kristrún Sigurðardóttir, Sigurjón Sigurðsson. Móðir okkar, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Bræðratungu 15, Kópavogi, andaðist í Borgarspítalanum þriðjudagin 13. júní. Magnús Óskarsson, Einar Óskarsson, Guðmundur Óskarsson. Ástkær móðir okkar, JÓNAG. HJÖRLEIFSDÓTTIR, Sogavegi 131, sem andaðist að morgni 6. júní í Vífilsstaðaspítala, verður jarðs- ungin frá Fossvogskirkju fimtudaginn 15. júní kl. 13.30. Börn hinnar látnu. sjálf. Hið sama varð uppi á teningn- um hvað varðaði fegmn heimilisins, það var ótrúlegt hvað hún gat gert úr munum sem hjá öðrum hefðu sennilega hafnað í glatkistunni. Hjá henni fengu þeir nýtt hlutverk, hlut- verk sem allir sáu að þeir gegndu með sóma — en engum öðrum hafði hugkvæmst að gefa þeim kost á. Nú þegar leiðir skiljast leita ótal minningar á hugann en mér er efst í huga þakklæti fyrir hugljúf kynni og fyrir alla þá ást og umhyggju sem hún auðsýndi bróður mínum, bömum þeirra og fjölskyldunni allri. Ég sendi þeim, móður hennar, Margréti, svo og systkinum og öðr- um aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. Minnumst þess í sorginni að: Bænin má aldrei bresta þig, búin er freisting ýmislig, þá líf og sál er lúð og þjáð lykill er hún að Drottins náð. (Hallgr. Pétursson) Fari mín kæra vinkona í friði og hafi þökk fyrir allt og allt. Valborg Antonsdóttir t Útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa, EGGERTS JÓHANNESSONAR Skeiðarvogi 87, fer fram fimmtudaginn 15. júní kl. 15.00 frá Langholtskirkju. Sigurborg Sigurðardóttir, Sigriður Björg Eggertsdóttir.Guðmundur Geir Jónsson, Jón Eggert Guðmundsson, Jóhannes Geir Guðmundsson, Björgvin Guðmundsson. t Eiginkona mfn, móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEFANÍA SIGFÚSDÓTTIR frá Bóndastöðum, Hvannavöllum 2, Akureyri, sem lést föstudaginn 9. júní, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju mánudaginn 19. júní kl. 13.30. Erik Kondrup, Heiðar Viking Eiríksson, Ellen S. Svavarsdóttir, Sigmar Viðar Eiriksson, Hanna Fjóla Eiríksdóttir, Jón M. Brynleifsson, Sif Karla Eiríksdóttir, Sigurður Thorlacius, Gunnar Jón Eirfksson og barnabörn. t Þökkum aðstandendum og vinum hlýju og stuðning við andlát og jarðarför MAGNÚSAR V. STEFÁNSSONAR, Klöpp, Álftanesi. Sérstakar þakkir viljum við senda Lionsklúbbnum í Garðabæ. Gróa Guðbjörnsdóttir, Stefán Magnússon, Sigríður Magnúsdóttir, Björn Arnar Magnússon, Jóhanna Magnúsdóttir, Geir Magnússon, Ingunn Sveinsdóttir, Magnús Valdimarsson, Rannveig Sigurðardóttir, Fritz Hendrik Berndsen, Berglind Guðmundsdóttir, Elín, Ingibjörg, Bryndfs, Marta, Linda og Magnús. RÖNTGENTÆKNI MEINAI TÆKNII STUDENTAR ATHUGIÐ E E Oj I Heilbrigðisdeild Tækniskóla íslands býðst áhugavert nám á Umsóknarfrestur er til nasKoiastigi. Fjolbreytt stort eru í boði að námi loknu. Innritun fer fram í Tækniskóla íslands Höfðabakka 9, sími 91-84933. 15.JÚNÍ sjúkrahúsin tækniskóli íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.