Morgunblaðið - 14.06.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
fclk í
fréttum
NÚPSSKÓLI
Þrátíu ára árgangur hittist
að var glatt á hjalla í Átthaga-
sal Hótel Sögu fyrir nokkru
þegar gamlir nemendur Núpsskóla
komu saman til að minnast þess
að þijátíu ár eru liðin frá því að
þeir sátu í skólanum. Margir höfðu
ekki sést frá því að námi þeirra í
skólanum lauk. Veislugestir gerðu
sér ýmislegt til skemmtunar. Mikið
var sungið og rifjaðar upp minning-
ar frá liðinni tíð.
Morgunblaðið/Bjarni
Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi kennari við Núpsskóla, tekur
lagið.
BRÚÐKAUP
Auðurinn jaftiar
aldursmuninn
Bill Wyman, liðsmaður hljóm-
sveitarinnar Rolling Stones,
gekk í það heilaga fyrir nokkrum
dögum og heitir brúðurin hans
Mandy Smith, 19 ára að aldri. Að
athöfninni lokinni var efnt til mik-
illar veislu fyrir 400 manns og
mátti þar sjá margt stórmenni
rokktónlistarinnar, meðal annarra
Elton John, Eric Clapton, Tinu
Turner og þá rúllusteinana Keith
Richards og Charlie Watts. Nokkur
aldursmunur er með þeim hjónum
eða 33 ár því að Wyman hefur tvö
um fimmtugt og skildi við Díönu,
fyrri konuna, árið 1969, á sama
tíma og Mandy var að líta dagsins
Ijós. Þau Mandy hafa verið saman
meira eða minna í sex ár, síðan
hún var aðeins 13 ára gömul, og
olli samband þeirra á sínum tíma
mikilli hneykslan.Á myndinni er
Wyman að reka konunni sinni
rembingskoss eftir að kirkjan hafði
lagt blessun sína yfir hjúskapinn
en sjálf hjónavígslan var hins vegar
borgaraleg.
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTIÐ
+ 0
MEÐ SANDI,GRJOTI OG ABORÐI
m §§§
SANDUR SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Þú færð sand og atlskonar grjót hjá okkur
Viðmokum þessumefnuma bílaeða
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
eíningum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottið á bílnum þínum.
Afgreiðslan viö Elliöaár er opin:
mánud.-föstud: 7.30-18.00
lauqard:7.30-17.00
laugi
Ath. lókaö í hádeginu
Nú bjóöum við enn betur: Lífrænan og ólíf-
rænan áburð, hæ.nsnaskít, skeljakalk
og garðavikur. Öll þessi úrvals efni
eru sekkjuð í trausta plastpoka og
tilbúin til afgreiöslu.
BJORGUN HF.
S/EVARHÖFÐA 13
SÍMI:68 18 33
ytoK&mr'*
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGI