Morgunblaðið - 14.06.1989, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐK) IÞROTT1R MIÖVIRUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
KNATTSPYRNA
Alexander dæmdur í
tveggja leikja bann
Alexander Högnason — í tveggja
leikja bann og missir því af leikjum
ÍA gegn KA og ÍBK.
BIKARINN
Víðir til
Grinda-
víkur
Dregið var í 3. umferð bikar-
keppni KSÍ í gær. Búast
má við spennandi leikjum og
verður meðal annars forvitnilegt
að sjá hvemig Yíðismönnum
gengur í Grindavík en heima-
menn, sem eru í 3. deild, siógu
Breiðablik út úr bikamum um
síðustu helgi. Eftirtalin lið leika
saman í 3. umferðinni:
Augnablik - |BV
Grindavík - Víðir
Stjaman - Selfoss
Þróttur R. - Víkverji
Tindastóll - Völsungur
Leiknir F. - Huginn
Leikur Grindavíkur og Víðis
verður 20. júní og ieikur Þróttar
og Víkverja þann 19. júní. Hinir
fjórir leikimir verða 21. júní.
Leikimir heflast allir kl. 20:00.
Einnig hefur verið dregið í 8
liða úrslitum í bikarkeppni
kvenna. Eftirtalin lið drógust
saman:
Valur - KR
Dalvík/Þór - FH
KA - Stjaman
ÍA - UBK
Allir leikirnir í kvennaflokki
verða 10. júlí kl. 20:00.
Sex knattspyrnumenn voru
dæmdir í leikbann á fundi aga-
nefndar í gær. Tveir leikmenn fengu
tveggja lejkja bann, Alexander
Högnason, ÍA og Ómar Jóhannsson,
IK. Alexander fékk bannið fyrir
gróft brot á Erni Valdimarssyni í
leik Fylkis og ÍA á dögunum. Hann
missir af leik ÍA og KA á Akranesi
á föstudagskvöldið, og viðureign-
inni við ÍBK í Keflavík 25. júní.
Ómar fékk bann fyrir óviðeigandi
mótmæli gegn dómara í leik IK og
Leiknis á dögunum.
Tveir leikmenn í 4. deild fengu
eins leiks bann, þeir Þórir Eiríks-
son, Höfnum og Vignir Garðarsson,
KSH. Auk þess fengu tveir leik-
menn í 2. flokki eins leiks bann.
ÍÞRÚmR
FOLX
MMARCO van Basten, knatt-
spymumaður Evrópu 1988, mun
leika áfram með Evrópubikar-
meisturum AC Milanó, eftir því
sem talsmaður liðsins sagði á
þriðjudag. Van Basten, hvers nú-
verandi þriggja ára samningur við
AC Milanó rennur út í lok næsta
keppnistímabils, hafði verið orðaður
við spænska liðið Barcelona þar
sem landi hans Johann Cruyfif er
við stjórnvölinn.
■ AC Milanó hefur gert nýjan
samning við Mareo van Basten.
Samingurinn gildir til 1993 og fær
van Basten 3,5 milljón dollara í
sinn hlut. Að sögn talsmanns ítalska
liðsins er aðeins formsatriði að
ganga frá samningnum sem líkist
mjög þeim sem liðið gerði við Ruud
Gullit á dögunum. Forráðamenn
AC Milano eru mjög ánægðir með
að halda í van Basten sem þeir
segja að ásamt löndum sínum og
félögum Gullit og Frank Rijkaard
skipi sterkustu þrenningu í Evrópuí
dag.
■ GARY Lineker, landsliðsmið-
herji Englands, hefur ákveðið að
ganga til liðs við Tottenham, eins
og Morgunblaðið hefur skýrt frá.
Lineker segir aðalástæðu þess að
hann valdi Tottenham vera þá að
þar hafi hann besta aðstöðu til að
undirbúa sig fyrir þátttöku Eng-
lands í úrslitum heimsmeistara-
keppninnar Ítalíu á næsta ári.
KNATTSPYRNA /LANDSLIÐIÐ
Sigurður Jónsson og Guðmundur Torfason eiga hér í höggi við einn Sovétmannanna, Oleg Luzhny, í
leiknum í Moskvu á dögunum. Sigurður og Guðmundur verða báðir í byijunarliði íslands í kvöld.
Oþarfi að hræðast
Austurríkismenn
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu leikur sinn þýðingar-
mesta iandsleik í dag - er
leikið verður gegn Austurríki
á Laugardalsvellinum. Það er
mikið i húfi, því að aldrei hef-
ur ísland verið nálægt tindi
knattspyrnunnar, sem er
lokakeppni heimsmeistara-
keppninnar. Það er draumur
allra knattspyrnumanna
heims að taka þátt í loka-
keppni HM.
Það er ekkert launungarmál
að íslenskir knattspyrnu-
menn hafa einnig átt þennan
draum, þó að hann hafi hingað
til verið fjarlægur.
Fyrir rúmu ári
veltum við því fyrir
okkur - fyrir leik
jltuJL gegn Sovétmönn-
um á Laugardals-
vellinum, hvort
það væri raun-
hæfur möguleiki
að íslenska liðið
kæmist til Ítalíu
1990. Þá sögðum við að eftir flest-
um kokkabókum væru möguleik-
AE
INN'LENÐUM
VETTVANGI
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
ar íslands ekki miklir. Mikið vatn
hefur runnið til sjávar síðan þá
pg sú staða hefur komið upp að
ísland á eins góða möguleika og
aðrar þjóðir í riðlinum.
Við mættum óhræddir til leiks
gegn „sovéska birninum“ - í
Reykjavík og Moskvu og það ótrú-
lega gerðist; í bæði skiptin varð
jafntefli. Næstu mótheijar verða
Austurríkismenn, sem fram til
þessa hafa talið íslendinga auð-
velda bráð. Það verður því hlut-
verk íslensku leikmannanna að
sýna Austurríkismönnum að ís-
land er sýnd veiði en ekki gefín.
Það er óþarfí að hræðast Aust-
urríkismenn. Þeir eiga sterka leik-
menn, en það er þó ekkert lands-
lið sem getur lifað á fomri frægð
mörg ár; á því þegar Hansi Krankl
og félagar voru í sviðsljósinu í
HM í Argentínu 1978 og á Spáni
1982. Þeir leikmenn sem leika nú
með liðinu geta ekki litið niður á
íslenska knattspyrnumenn.
íslenska landsliðið er leikreynt
og leikmenn liðsins mæta til leiks
eins og svo oft áður - til að gera
sitt besta. Leikmennirnir em ekki
búnir að gleyma leiknum gegn
A-Þýskalandi 1987, þegar allt
átti að vera svo auðvelt og létt,
en þegar upp var staðið gengu
þeir af leikvelli með skell á bak-
inu, 0:6.
Það er enginn að fara fram á
að leikmenn íslenska liðsins rúlli
Austurríkismönnum upp, heldur
fara knattspymuunnendur fram á
að leikmenn íslenska liðsins mæti
til leiks með því hugarfari að gefa
allt sem þeir eiga í hinn þýðingar-
mikla leik. Leika skipulagða
knattspymu og sem liðsheild. Og
að sjálfsögðu að leika til sigurs.
Áhorfendur fjölmenna örugg-
lega á leikinn til að styðja við
bakið á leikmönnum íslands, sem
hefur gefíð þeim svo margar
ánægustundir á undanförnum
árum. Það vita allir hvað heima-
völlur hefur mikið að segja í erfiðri
baráttu. Öflugur stuðningur er á
við tvo leikmenn. íslenskir knatt-
spymuunnendur geta ekki alltaf
heimtað - þeir verða einnig að
gefa. Þeirra stund er nú runnin
upp!
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / LYFJANEYSLA
Steramaðkur í mysunni í Róm
Yfirheyrslumar yfir Ben Jo-
hnson leiddu í gær í Ijós að
spretthlauparinn neytti ólöglegra
stera um tveggja mánaða skeið
áður en hann setti heimsmetið í
Róm í ágúst árið 1987. Þá hljóp
Johnson 100 m á 9,83 sek. en gild-
andi heimsmet var 9,93 sek.; sett
af Calvin Smith, í Colorado Springs
í Bandaríkjunum árið 1983
Johnson sagði að hann hefði
fengið sterasprautur bæði í júní og
júlí fyrir heimsmeistaramótið sem
fram fór í ágúst.
„Það var samt ekki ég sem átti
framkvæðið að því að taka sterana
inn,“ sagði Johnson. „Ég var ekki
þjálfarinn; ég tók bara við fyrirskip-
unum, og ef þjálfarinn sagði mér
að taka eitthvað inn, gerði ég það.
Hann sagði mér líka að allir væru
á kafi í þessum lyfjum, og ef ég
vildi ná árangri yrði ég að taka
þessi lyf inn.“
Þrátt fyrir allar þessar játningar
Johnsons er heimsmet hans á leik-
unum í Róm síður en svo úr gildi
fallið. Til þess að ógilda það þarf
að breyta reglum Alþjóða fijáls-
íþróttasambandsins. Forsvarsmenn
þess hafa hins vegar látið í ljós þá
skoðun sína að það mál verði að
taka til endurskoðunnar, komi í ljós
að Johnson hafi neytt ólöglegra
lyfja fyrir hlaupið í Róm.
Það kom fram við yfirheyrslurnar
að kanadískir fijálsíþróttamenn
hafa tekið stera inn u.þ.b. þrisvar
á ári; á haustin áður en innan-
húskeppnin hefst, í mars til að
byggja sig upp íynr keppnistímabi-
lið úti, og í júní til að hnykkja á
fyrir stórmótin í Evrópu.
„Laug eftir Seoul“
Johnson viðurkenndi einnig í
gær, með tárin í augunum, að hann
hafði logið eftir leikana í Seoul í
haust er hann sagðist aldrei hafa
neytt ólöglegra svo hann vissi. „Ég
laug vegna þess að ég skammaðist
mín svo mikið — vegna fjölskyldu
minnar, vina og barna sem líta upp
til mín.“ Hann sagðist ekki hafa
vitað, árin 1981 og 1982, hvers
lags pillur það vora sem hann
neytti — en strax árið 1983 hefði
hann gert sér grein fyrir. því að um
ólögleg lyf var að ræða. Hann lýsti
því ennfremur yfir að honum hefði
aldrei verið tjáð hvaða hliðarverk-
anir neysla umræddra lyfja gæti
haft, en lyfin geta m.a. orsakað lifr-
arskemmdir hjarta- og æðasjúk-
dóma og draga úr kyngetu viðkom-
andi; og hefði hann vitað af því
hefði hann ekki samþykkt áfram-
haldandi neyslu.
Aðalfundur 6ERPLU
íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi heldur aðalfund
sinn 1989, þriðjudaginn 20. júní kl. 20 í húsi fé-
lagsins á Skemmuvegi 6.
Venjuleg aðalfundarstörf.
veidid
ur
unnar
Stjórnin.