Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.06.1989, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 142. tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Bjarnarcy Nordkap -Tromsö, Severomosk; Lofoten Morgunblaöið/ KG Eldur laus í sovéskum kjarn- orkukafbáti. Er nú í togi á leiðinni til Severomosk. Leiðtogafundur Evrópubandalagsins Herra Ólafur Skúlason var settur inn í embætti'biskups yfir íslandi við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík á sunnudaginn. Hér sést nýi biskupinn ásamt forvera sínum, herra Pétri Sigurgeirssyni, þar sem þeir ganga úr kirkjunni að athöfninni lokinni. sjá nánar á miðopnu. Fyrsta skrefið í átt til sameigin- legs peningakerfis Morgunblaðið/Einar Falur Biskupsinnsetning í Dómkirkjunni anir Thatcher væru ekki nógu miklar. Unnu embættismenn að því í gærkvöldi að komast að sam- komulagi um lokaályktun. Felipe Gonzales, forsætisráð- herra Spánar, sem er í forsæti á leiðtogafundinum, átti tillöguna um sérstakan ríkisstjórnafund EB-landanna til að ákveða næstu skref í átt til sameiginlegs pen- ingakerfis. Til slíks fundar var síðast efnt 1985, þegar ákvarðan- ir voru teknar um sameiginlegan innri markað bandalagsins, sem kemur til framkvæmda 1992. Sjá frétt af blaðamannafúndi Hennings Christophersens á bls. 49. FYRSTA skrefið í átt til sameiginlegs peningakerfís í Evrópu- bandalaginu (EB) var stigið á fundi þjóðaleiðtoga bandalagsins í Madrid í gær. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, sem hefur verið helsti andstæðingur þessa kerfis féllst á að gengið yrði til samstarfs um það en með ákveðnum skilyrðum, svo sem að verðbólga í Bretlandi minnki. Kom það fram hjá Henning Christophersen, varaforseta framkvæmdastjórnar EB, sem var staddur hér á landi í gær, að hér væri um mikilvægt samkomulag að ræða, sem væri að skapi framkvæmdastjórnarinnar. Er ráð- gert að á síðari hluta næsta árs verði eftit til ráðsteftiu ríkis- stjórna EB um framhaldið. Gífurleg öryggisgæsla var um- hverfis fund þjóðarleiðtoganna í Madrid, að sögn Jfeuters-frétta- stofunnar. Ottuðust spænsk stjórnvöld, að hryðjuverkamenn Baska kynnu að reyna að láta að sér kveða vegna fundarins. Þótt Thatcher hafi nú fallið frá andstöðu sinni við sameiginlegt peningakerfi EB, sem felur meðal annars í sér að sterlingspundið mun falla undir evrópska mynt- kerfið, EMS, sagði hún að Bretar myndu aldrei samþykkja sameig- inlegan gjaldmiðil fyrir aðildarrík- in. Telur hún að í því felist of mikið afsal á fullveldi Breta. Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, sagði á hinn bóginn að stefna bæri að_ sameiginlegum gjaldmiðli og Francois Mitterrand Frakklandsforseti taldi að tilslak- Þriðja sovéska sjóslysið við Noregsstrendur: Laskaður kafbátur (lreg-- iim til hafiiar Moskvu, Ósló og Bodo. Reuter og Daily Telegraph. SOVÉSKUR kjarnorkukaflbátur af gerðinni Echo-2 var i gær á leið til hafnar í Severomosk skammt frá Múrmansk eftir að annar af tveimur kjarnakljúfum hans bilaði illilega um 110 km norðnorðvestur af strönd Finnmerkur í Noregi. Sovétmenn skýrðu frá því síðdegis í gær að kafbáturinn bæri kjarnorkuvopn, en sögðu jafnframt að af þeim staf- aði engin hætta í bili. Sovésk stjórnvöld þvertaka fyrir að nokkur geisl- un hafi sloppið frá kjarnakljúfhum, þrátt fyrir að bilunin hafi orðið í honum. Að sögn talsmanna sovéska flotans brast pípa í ofhinum, en í framhaldi af því mun eldur hafa brotist út. Skipverjar eru sagðir hafa ráðið niðurlögum hans og munu allir vera á lífi. Kafbáturinn er nú í togi og er á fjögurra hnúta siglingu, en að sögn norskra embættismanna er þetta sami kafbáturinn og neyddist til þess að koma upp á yfirborðið ^kammt frá Gíbraltar fyrr í mánuðinum. Ferðin til Severomosk tekur um þijá daga, en í gærkvöldi sagði Vladímír Tsjernavín, yfirmaður Rauða flotans, „alvarlegan vanda“ steðja að ef veður versnaði. Mikinn reyk sást leggja frá kaf- bátnum nokkru eftir slysið, en sov- éskir embættismenn sögðu að ekki hefði verið um eld að ræða. Reykur- inn væri aðeins útblástur frá ljósavél- um kafbátsins, sem ræstar voru eft- ir að slökkt var á kjarnakljúfunum. Slysið átti sér stað á mánudags- nótt, en þetta er þriðja sovéska sjó- slysið undan Noregsströndum á jafn- mörgum mánuðum. Að sögn norskra stjórnvalda létu Sovétmenn ekki vita af slysinu fyrr en átta klukkustund- um eftir að það gerðist. Norskar orrustuvélar voru sendar á vettvang eftir að neyðarkall barst frá kafbátnum. Þegar norsk björgun- arþyrla kom hins vegar á slysstað skutu skipvetjar blysi í veg fyrir hana og gáfu þannig til kynna að þeir æsktu ekki aðstoðar. Dmítríj Jazov, vamarmálaráð- herra Sovétríkjanna, sagði að slysið hefði átt sér stað meðan kafbáturinn var í kafi og að vistkerfinu stafaði engin hætta af honum. „Geislunin er eðlileg og fólki er óhætt.“ Vestrænir sérfræðingar töldu á hinn bóginn að slysið gæti verið mjög alvarlegs eðlis og létu í Ijós mjög ákveðnar efasemdir um hæfni sov- ésku áhafnarinnar til þess að bregð- ast við því. I síðustu viku var birt bréf í sovésku tímariti frá yfirmanni á sovéskum kjamorkukafbáti og kvartaði hann undan lítilli og lélegri þjálfun áhafna á kjarnakljúfana. Echo-2 kafbátar eru meðal hinna elstu í þjónustu Rauða flotans, en á Kólaskaga alls eru 29 slíkir kafbátar enn í notk- un. Þeir hafa til þessa þótt öruggir. Þeir voru smíðaðir á árunum 1961-67, eru 6.200 tonn og áhöfnin er 90 manns. í þeim eru yfirleitt átta SS-N-12 kjarnorkueldflaugar og 20 tundurskeyti og eru sum þeirra einnig með kjamaoddi. Sjá einnig fréttir á síðu 22-3: „Eldsvoði í sovéskum . . .“ Reuter Sovéski kafbáturinn í togi á leið til Severomosk á Kólaskaga. A myndinni má greina reyk ft-á kafrátnum, en hólfin sýna hvar skotrennur kjarnaflauganna eru. Fang fær nor- ræn frelsis- verðlaun Stokkhólmi. Reuter. KÍNVERSKI andófsmaðurinn dr. Fang Lizhi, sem dvelst ásamt eiginkonu sinni í banda- ríska sendiráðinu í Peking, hefur fengið norræn frelsis- verðlaun, sem veitt eru af danska dagblaðinu Politiken og sænska blaðinu Dagens Nyheter. Verðlaunin nema 10.000 Bandaríkjadölum. „Frelsisverðlaun ársins 1989 eru veitt Fang Lizhi í viðurkénn- ingarskyni fyrir framlag hans til lýðræðishreyfingarinnar [í Kína] og sem tákn um stuðning okkar við markmið hreyfingar- innar,“ sagði Arne Ruth, menn- ingarritstjóri Dagens Nyheter. Þrátt fyrir að Fang kæmi opinberlega hvergi nærri lýð- ræðishreyfingunni, sem var brotin á bak aftur með ljölda- morðum kínverska alþýðuhers- ins á Torgi hins himneska friðar hinn 4. þessa mánaðar, leit kommúnistastjórnin á hann sem augljósan hvatamann hennar. Að sögn Dagens Nyheter hef- ur Fang verið greint frá verð- launaveitingunni og kvaðst hann taka við þeim með mikilli ánægju. Verðlaunaathöfnin mun fara fram í Kaupmannahöfn hinn 10. september. Verðlaunin voru fyrst veitt Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu í Póllandi árið 1982.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.