Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JUNÍ 1989
Lífríki í Mývatnssveit:
Líkur á litlu anda-
varpi vegna átubrests
Viðgerð á Mariane
tekur þriá mánuði
firindavík.
ÁSTAND lífríkisins í Mývatni og efri hluta Laxár í Laxárdal er
verra i sumar en í fyrra vegna átubrests, en siðastliðið sumar var
átubresturinn eingöngu bundinn við Mývatn. Samkvæmt upplýsing-
um Árna Einarssonar, starfsmanns Náttúrurannsóknarstöðvarinnar
við Mývatn, eru taldar litlar líkur á að andavarp verði mikið við
þessi skilyrði, og jafnframt muni silungsveiði varla glæðast fyrst
um sinn.
Samkvæmt upplýsingum Árna
Grindavík.
MARIANE Danielsen, danska skip-
ið sem var dregið út úr innsigling-
unni í Grindavíkurhöfii í apríl er
nú til viðgerða hjá NAUTA-skip-
asmíðastöðinni í Póllandi.
Guðlaugur R. Guðmundsson hjá
Lyngholti sf., sem á skipið, sagði í
viðtali við Morgunblaðið að viðgerðin
tæki lengri tíma en gert var ráð fyrir
í upphafi, eða um 3 mánuði í stað
tveggja. Botninn hafi litið verr út
þegar hann var skoðaður nánar úti’
í Póllandi. Siglingin út gekk mjög
vel að sögn Guðlaugs og tók aðeins
9 daga í góðu veðri, dælur skipsins
höfðu vel undan leka sem var í skip-
inu og áhöfnin átti náðuga daga.
Guðlaugur sagði að reynsla íslend-
inga af þessari skipasmíðastöð væri
góð, þama hefðu til dæmis verið
unnar breytingar á Japanstogurum
og áætlanir staðist vel. Aðspurður
hvort viðgerðin borgaði sig sagði
Guðlaugur að þrátt fyrir ófyrirséðar
tafir í Njarðvíkurhöfn og meiri við-
gerðarkostnað en gert var ráð fyrir
í byijun væru Lyngholtsmenn enn
„réttu megin við núllið." PÓ
benda niðurstöður árlegrar fugla-
talningar í Mývatnssveit og við
Laxá í Laxárdal til þess að fækkun
hafi orðið í stofnum flestra anda-
tegunda á þessum slóðum, en topp-
andarstofninn hafi þó tvöfaldast
undanfarin tvö ár í kjölfar mikillar
aukningar á homsíli, sem er aðal-
fæða toppandarinnar. Húsöndum
hafi hins vegar fækkað um helm-
ing í vor, og nokkuð hafí borið á
því að endurnar hafi fallið úr hor
undanfamar vikur, en flestar hafi
þær þó flutt sig niður í Aðaldal.
Hann segir engin dæmi vera um
að slíkt hafi gerst undanfarin 15
ár, en helsta ástæðan sé talin sú
að bitmý í Laxá hefur drepist í
stórum stíl í vor, en lirfur þess séu
ein helsta fæða húsandarinnar.
Frúmorsök þessa sé ókunn, en
Árni telur að ekki sé um að kenna
kaldri veðráttu í vor. Hann segir
mikla varglirfu hafa verið í Laxá
í vetur, sem lofað hafi góðu um
átuskilyrði þar, en ljóst sé að
bitmýið hafi misfarist áður en flug-
an náði að kvikna.
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa isiands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 27. JUNI
YFIRLIT í GÆR: Yftr Grænlandi er 1.018 mb hæð, en 990 mb
lægð um 800 km austnorðaustan af Langanesi hreyfist norðaust-
ur. Skammt suðvestur af Vestmannaeyjum er 1,002ja mb lægð sem
hreyfist lítið í bili en 1.005 mb lægð við Hvarf fer austur. Fremur
svalt verður áfram, þó verður þokkalega hlýtt um hádaginn suðvest-
anlands.
SPÁ: Fremur hæg suðaustlæg átt um mest allt land. Dálítil rigning
um sunnanvert landið en úrkomulítið og skýjað með köflum í öðrum
landshlutum. Hiti 6—11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austlæg eða norðaustlæg átt. Víðast
bjart veður vestantil á landinu en skýjað austanlands og líkiega
skúrir á Suðausturlandi.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðlæg átt. Skýjað norðanlands, líklega
bjart veður vestanlands og léttir til á Suðausturlandi.
Fremur svalt báða dagana , þó líklega 12—15 stiga hiti suðvestan-
lands að deginum.
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
j~7 Þrumuveður
Tfr * ði
f § W
> ¥
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hitl veður
Akureyri 5 alskýjað
Reykjavik 9 léttskýjað
Bergen 14 skúrir
Helsinki 23 hálfskýjað
Kaupmannah. 23 þokumóða
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk hátfskýjað
Ósló 21 skýjað
Stokkhólmur 25 heiðskírt
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Berlin 30 hálfskýjað
Chicago 22 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 27 léttskýjað
Glasgow 14 skýjað
Hamborg 28 hálfskýjað
Las Palmas vantar
London 22 skýjað
Los Angeles 16 heiðskirt
Lúxemborg 25 léttskýjað
Madrid 32 mistur ‘
Malaga 35 heiðskírt
Mallorca 30 hálfskýjað
Montreal 23 skýjað
New York 23 þokumóða
Orlando 24 léttskýjað
París vantar
Róm 26 léttskýjað
Vín 25 skýjað
Washington 26 þokumóða
Winnipeg vantar
Hrossaútflutningur
tilEB:
Ovíst hvort
reglugerð-
in eigi við
um reið-
hesta
NÆSTU daga fæst væntanlega
úr því skorið hvort reglugerð
Evrópubandalagsins um bann
við innflutningi fersks lq'öts og
lifandi dýra firá íslandi til landa
í EB, sem tók gildi um síðustu
mánaðamót, eigi við um reið-
hesta.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur ekki verið mótað að
fullu^hvernig að framkvæmd reglu-
gerðar Evrópubanijalagsins verður
staðið. Fari svo að hún verði látin
gilda um reiðhesta jafnt sem slátur-
hross sé þó ekki ólíklegt að undan-
þágur varðandi reiðhesta fáist,
verði um það sótt. Á þessu stigi
þykir þó allt benda til þess að hún
verði ekki látin ná til reiðhesta, en
úr því verði væntanlega skorið í
vikunni.
54 milljóna
gjaldþrot
Evrópu
Gjaldþrotaskiptum á búi veit-
ingahússins Evrópu, sem var til
húsa við Borgartún í Reykjavík,
lauk fyrir nokkru.
Ekki fengust greiðslur upp í lýst-
ar kröfur, sem námu tæpum 54
milljónum, auk vaxta og kostnaðar
eftir upphafsdag skipta. Búið var
tekið til gjaldþrotaskipta með úr-
skurði skiptaréttar Reykjavíkur
þann 30. september á síðasta ári.
Sigluggrður:
Gránaði niður
í miðjar hlíðar
Siglufirði.
Eftir nokkurn hlýindakafla
hafa veður skipazt í lofti hér í
Siglufírði. Á mánudagsmorgun
hafði gránað niður í miðjar
hlíðar og hríðarhraglandi var
á. Þykir okkur fullsnemmt að
farið sé að hausta eftir stutt sum-
ar og ekkert vor.
Ákaflega dauft er nú yfír öllu.
Stærstu fyrirtækin hafa lokað
vegna sumarfría og lítið er um
vinnu fyrir unglingana. Bátarnir
fiska lítið, en þó hefur verið kropp
í snurvoðina inni á Skagafirði.
Voðarbátarnir hafa fengið tvö tonn
og meira af kola, sem seldur er
suður á markað. Togararnir hafa
hins vegar verið í góðri veiði fyrir
austan. Tveir af togurum Þormóðs
ramma liggja við bryggju vegna
fríanna, en einn er á veiðum og
landar sennilega á markað fyrir
sunnan. Hvórt þetta ástand ræður
því að nú eru 30 til 40 íbúðir til
sölu hér í Siglufirði, skal ósagt
látið, en einhver áhrif kann það
að hafa. Matthías
Fimm veiði-
þjófar gripnir
við Elliðaár
Oryggisgæzlufyrirtækið Secu-
ritas hóf næturvörzlu við Elliða-
árnar síðastliðna helgi. Fyrstu
nóttina sem gæzla var við ánna
gripu öryggisverðir fimm menn
sem voru að renna fyrir lax í
heimildarleysi, fjóra unglinga og
einn útlending.
Að sögn Hannesar Guðmunds-
sonar hjá Securitas báru nætur-
veiðimennirnir allir við ókunnug-
leika og sögðust halda að það
mætti veiða ókeypis ofarlega í án-
um, þar sem þeir voru allir gripnir.
Þeir hefðu hins vegar verið á miklu
laxasvæði og vel búnir veiðitækj-
um.
*
Reykjavík:
109 teknir fyrir
hraðakstur um
helgina
LÖGREGLAN I Reykjavík tók
109 ökumenn fyrir of hráðan
akstur á tímabilinu frá fostu-
dagsmorgni til mánudagsmorg-
uns síðastliðins. Sá, sem hraðast
ók var bifhjólamaður á Suður-
landsvegi, sem var tekinn á 157
km hraða.
Ölvun við akstur var með minna
móti; sex voru teknir ölvaðir á bíl
um helgina, en þar að auki var
talið að ölvun hefði komið við sögu
í tveimur minniháttar umferðar-
slysum.
Mannflöldi veitt-
ist að lögreglu-
þjónum
NOKKUR mannQöIdi veittist að
lögregluþjónum í miðborg
Reykjavíkur aðfaranótt sunnu-
dagsins er þeir voru að reyna
að stilla ölvaðan mann, sem hafði
slasazt í slagsmálum. Fólkið
sparkaði í lögregluþjónana,
hrækti á þá og reyndi að skella
þeim í götuna. Lögreglunni tókst
að halda fólkinu frá unz aðstoð
barst. Þrir úr hópnum voru
handteknir.
Tildrög atviksins voru þau, að
lögregluþjónar sáu til ungs manns,
sem gekk um bæinn alblóðugur og
æstur og reyndi að slá til vegfar-
enda. Er lögregluþjónamir reyndu
að stilla hann og gera honum ljóst
að hann þyrfti á læknisaðstoð að
halda, brást hann hinn versti við.
Fljótlega dreif að fjölda unglinga,
sem vildu reyna að ná manninum
úr höndum lögregluþjónanna. Þrír
úr hópnum voru færðir á lögreglu-
stöðina og einn þeirra geymdur í
fangageymslu yfir nóttina. Sá blóð-
ugi reyndist með djúpan skurð í
andliti og nefbrotinn.