Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989
YFIRLÝSING
ÞANN 20. júní síðastliðinn var felldur í Sakadómi Reylgavikur dom-
ur yfir Halli Magnússyni blaðamanni, vegna skrifa hans um fram-
kvæmdir í Viðeyjarkirkjugarði. Dómurinn var kveðinn upp á grund-
velli 108. greinar hegningarlaga, sem virðist til þess eins fallin að
forða embættismönnum frá gagnrýni, réttri sem rangri. í tengslum
við umrætt mál hefur vararíkissaksóknari boðað að þessari grein
skuli nú í framtiðinni beitt í rikari mæli.
I tilefni af þessu viljum við undir-
ritaðir íslenskir rithöfundar lýsa því
yfir að við teljum þetta ákvæði
hegningarlaganna vera hin verstu
ólög, og alls ekki samrýmast nú-
tímakröfum um mannréttindi og
tjáningarfrelsi.
Jafnframt því sem við mótmæl-
um svo hættulegri atlögu að mál-
frelsi sem téður dómur er, skorum
við á Alþingismenn að sjá svo um
að þessi lagagrein verði felld úr
gildi.
Alfrún Gunnlaugsdóttir, Birgir
Sigurðsson, Elías Mar, Einar Bragi,
Einar Már Guðmundsson, Einar
Kárason, Fríða A. Sigurðardóttir,
Guðmundur Daníelsson, Guðmund-
ur Andri Thorsson, Gyrðir Elíasson,
Halldór Laxness, Hannes Sigfús-
son, Indriði G. Þorsteinsson, ísak
Harðarson, Jón úr Vör, Kristín
Ómarsdóttir, Kristján Árnason,
Kristján frá Djúpalæk, Ólafur
Gunnarsson, Sigfús Daðason, Sig-
urður Pálsson, Sigurður A. Magn-
ússon, Siguijón Birgir Sigurðsson
(Sjón), Stefán Hörður Grímsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Sveinbjörn
I. Baldvinsson, Thor Vilhjálmsson,
Vigdís Grímsdóttir, Þorsteinn frá
Hamri, Þórarinn Eldjárn.
Morgunblaðið/Emilía
Guðný Guðmundsdóttir, Petri Sakari, Helga Þórarinsdóttir og Gunn-
ar Kvaran á æfingu. Einar Jóhannsson klarinettleikari mun einnig
leika á tónleikunum annað kvöld.
Bústaðakirkj a:
Kammertónleikar til
styrktar tónlistarhúsi
Kammertónleikar verða í Bú-
staðakirkju annað kvöld klukkan
20.30. Þar mun strengjakvartett
skipaður Guðnýju Guðmundsdótt-
ur, Petri Sakari, Helgu Þórarins-
dóttur og Gunnari Kvaran, ásamt
Einari Jóhannssyni klarinettleik-
ara leika tvö verk. Allur ágóði
af tónleikunum rennur til bygg-
ingar tónlistarhúss.
Á efnisskrá eru tvö verk. Klari-
nettkéintett í h-moll op. 115 eftir
Brahms og strengjakvartett op. 59
nr. 2 eftir Beethoven. Tónleikarnir
annað kvöld eru fyrstu tónleikar
strengjakvartettsins en hljóðfæra-
leikararnir hafa æft saman frá því
í haust. Auk þess er þetta í fyrsta
skipti sem Petri Sakari, aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, kemur fram sem fiðluleikari
hér á landi.
William J. Crowe, yngri, formað-
ur bandaríska herráðsins.
Crowe
aðmíráll
heimsæk-
ir Island
FORMAÐUR bandaríska herráðs-
ins, William J. Crowe aðmíráll,
kemur til landsins í dag og mun
eiga viðræður við Jón Baldvin
Ilannibalsson, utanrikisráðherra,
sem og forsætisráðherra,
Steingrím Hermannsson.
Island er síðasti viðkomustaður
Crowes í Evróp áður en hann heldur
heim, en hann var í tíu daga langri
opinberri heimsókn í Sovétríkjunum.
Sú heimsókn var fyrsta heimsókn
formanns bandaríska herráðsins til
Sovétríkjanna, en með henni endurg-
alt Crowe heimsókn Sergejs
Akromejevs, fyrrverandi yfirmanns
sovéska herráðsins og vamarmála-
ráðherra, til Bandaríkjanna á síðasta
ári.
Crowe fæddist árið 1925 og lauk
liðsforingjaprófi frá herskóla flotans.
Auk þess er hann magister í kennslu-
fræði frá Stanford háskóla og dokt-
or í stjórnmálafræði frá Princeton.
Hann var skipaður í núverandi emb-
ætti árið 1985 af Ronald Reagan,'
fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Crowe er kvæntur og á þijú börn,
en kona hans, Shirley, kemur með
honum til íslands. Heimsóknin
stendur yfir í einn dag.
70 ÁRA AFMÆLI
Margt gert til
hátíðarbrigða
Vestmannaeyjum.
HÁTÍÐARHÖLD vegna 70 ára afinælis Vestmannaeyjabæjar hófiist sl.
laugardag. Hátíðarhöldin standa í eina viku og verður ýmislegt gert
til hátíðarbrigða.
Hátíðarhöldin hófust með leik
lúðrasveita á Stakkagerðistúni eftir
hádegi á_ laugardag. Síðan flutti
Ragnar Óskarsson, forseti bæjar-
stjórnar, ávarp og setti hátíðina
formlega.
Ragnar sagði í upphafði máls síns
frá því að næstu daga yrði hátíð í
Eyjum í tilefni þess að 70 ár væru
síðan Vestmannaeyjabær öðlaðist
kaupstaðarréttindi. „Við höldum
hátíð, komum saman, gerum okkur
dagamun og minnumst þess um leið
hvernig Vestmannaeyjabær á 70
árum breyttist úr litlu sjávarþorpi í
þann myndarbæ sem hann nú er.
Við minnumst þeirra fjölmörgu sem
með óbilandi trú og atorku skópu
það samfélag sem við lifum og hrær-
umst í í dag,“ sagði Ragnar.
Hann sagði síðan frá því að 1.
janúar 1919 hefðu tekið gildi lög um
bæjarstjórn Vestmannaeyja og með
Fréttir daglega
Vestmannaeyjum.
BLAÐIÐ Fréttir sem reglulega
er gefið út tvisvar í viku í Eyjum
verður í þessari viku gefið út
daglega.
Að sögn Gísla Valtýssonar, rit-
stjóra, er ástæða þess að ráðist er
í útgáfu dagblaðs nú að um þesar
migidir eru liðin 15 ár fyá því út-
gáfa Frétta hófst. Hann sagði að
þetta færi einnig vel saman með
hátíðarhöldunum sem stæðu nú yfir
vegna afmælis Vestmannaeyjabæj-
ar.
Fyrsta dagblað Frétta kom út í
gær og mun blaðið koma út dag-
lega alla þessa viku.
Grímur
þeim hafi Vestmannaeyjabær öðlast
kaupstaðarréttindi. Með kaupstaðar-
réttindunum hefði staða Vestmanna-
eyja breyst og mikil framfararsókn
hefði átt sér stað. Hann sagði að
Vestmanneyingar yrðu að læra af
fortíðinni og meta reynslu liðinna
kynslóða til þess að byggja upp
framtíðina. Það mætti aldrei sofna á
verðinum og ávallt yrði að nota
hveija stund til þess að vinna bæjar-
félaginu allt það gagn sem hægt
væri.
Ragnar las upp heillaóskir sem
bænum hefðu borist í tilefni af-
mælisins og tók við gjöfum sem
bænum voru færðar en sagði síðan
hátíðina setta.
Eftir setningu hátíðarinnar var
haldið í íþróttahúsið þar sem lúðra-
sveitamót Sambands íslenskra lúðra-
sveita fór fram.
Seinnipart laugardags voru síðan
opnaðar sýningar á sögu Vestmann-
eyjahafnar og póstsögu Vestmanna-
eyja, í Safnahúsinu.
Hilmar Rósmundsson, formaður
hafnarstjómar, opnaði sögusýningu
hafnarinnar. í ávarpi sem hann fjutti
við opnunina rakti hann í stuttu
máli þróun hafnarframkvæmda í
Eyjum og lýsti þeim mikla stórhug
sem ríkti er hafist var handa við
hafnarframkvæmdir í Eyjum.
Arnaldur Bjamason, bæjarstjóri,
opnaði póstsögusýninguna. I ávarpi
sem hann flutfy kom fram að allt það
safn póststimpía, kQrta og fl. sem á.
sýningunni væru, væru í eigu Guð-
mundar Ingimundarsonar sem væri
búinn að safna þessu saman á sl.
15 ámm. Þakkaði Arnaldur Guð-
mundi fyrir að lána safnið til sýning-
arinnar, og þann velvilja og áhuga
sem hann hefði sýnt Vestmannaeyj-
um með því að ná þessu safni saman.
Grímur
Harri Holkeri forsætisráðherra Finnlands:
Viljum alls ekki teíja
fyrir Mverslun með fisk
Helsinki, Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgrinblaðsins.
HARRI Holkeri, forsætisráð-
herra Finna, sem kom til íslands
í opinbera heimsókn í gær, sagði
í viðtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins rétt fyrir brottför frá
Finnlandi, að Finnar hefðu verið
fyrstir að viðurkenna nauðsyn
þess að koma á fríversiun með
fisk innan EFTA. Þær minni-
háttar undantekningar sem
varða verslun með Eystra-
saltssíld (strömming) og eldislax
beinast að hans sögn alls ekki
gegn Islendingum. Það eru aðal-
lega Svíar og Finnar sem veiða
Eystrasaltssíld, en hjá Finnum
hefur þessi fiskur einna helst
þá þýðingu að halda skerjagarð-
inum í byggð.
„Eg hef oft verið spurður hvað
það muni líða langur tími þar til
fríverslunin kemst í framkvæmd.
Svar mitt er að tíminn verður ör-
ugglega lengri en stór Eystra-
saltssíld en hann verður samt mun
stýttri en draumalaxinn minn,“
segir Holkeri og bætir svo við:
„Við Finnar skiljum vel hversu
mikið íslendíngar eiga undir fisk-
verslun og fiskveiðum."
Um samstarf landanna innan
EFTA í heild segist Holkeri vera
fullviss um að íslendingar kunni
að gæta hagsmuna Finna og ann-
arra EFTA-þjóða þegar íslending-
ar fara með formennsku í fríversl-
unarsamtökunum. Að hans sögn
hafa íslendingar skilið sjónarmið
Finna mjög vel. Hann hlær þegar
minnst er á vantraustið sem sagt
var að sumir embættisrnenn hefðu
borið í garð íslendinga varðandi
getu þeirra til að fara með for-
mennsku í EFTA.
„íslendingar hafa alltaf skilið
þarfir okkar Finna mjög vel enda
hefur samstarf landanna alltaf
gengið snurðulaust,“ segir Hol-
keri. Þótt þetta sé í fyrsta skipti
sem finnskur forsætisráðaherra
kemur í opinbera heimsókn til ís-
lands eru forsætisráðherrar þess-
ara þjóða engan veginn ókunnugir
hvor öðrum. Holkeri segist hafa
átt góðar viðræður við Steingrím
Hermannsson á Norðurlandaráðs-
þinginu í Stokkhólmi, á EFTA-
fundinum í Ósló og á sumarfundi
forsætisráðherra Norðurlanda sem
haldinn var í Imatra í Finnlandi
fyrir nokkrum vikum.
Holkeri lagði mikla áherslu á
það hversu vel Finnar og íslending-
ar skildu sjónarmið hvor annars.
Hvað þá um að Finnar kæmu ís-
lendingum til liðs í hvalamálinu?
„Við höfum skilið sjónarmið ís-
lendinga. Ef Finnland ásamt öðr-
um Norðurlöndum hefði ekki skilið
sjónarmið íslendinga hefði hval-
veiðum verið hætt fyrir löngu.
Áframhaldandi hvalveiðar ganga
þvert á það álit sem ríkir í heimin-
um í þessu máli. íslendingar skilja
sjálfir hvemig málum er háttað,"
ségir Holkeri.
Þorsteinn Pálsson fyrrum for-
sætisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkiráðherra
hafa meðal annars varpað fram
hugmyndum um að Norðurlöndin
væru ekki með sendiráð hvert hjá
öðru. Einnig bárust í vor fréttir
um að fáir hefðu viljað taka sendi-
herrastöðu Finna í Reykjavík. Hol-
keri finnst núverandi kerfi gegna
mikijvægu hlutverki:
„Ég get skilið sjónarmiðin sem
Þorsteinn vinur minn hefur varpað
fram út frá því áð ísland hefur
tiltölulega lítið bolmagn til að reka
sendiráð. Við emm alltaf tilbúnir
til að endurskoða samskiptaform
Norðurlanda," segir Holkeri en
bendir samt á að sendiráð Finn-
lands í Stokkhólmi sé meðal
Harri Holkeri forsætisráðherra Finnlands og eiginkona hans Lísa,
sem komu í opinbera heimsókn til íslands í gær.
stærstu sendiráða sem Finnar reka
og að varla sé unnt að loka því.
Þegar talið berst að áhugaleysi
manna á að taka við sendiherra-
starfi á Islandi vísar Holkeri öllum
þess konar fullyrðingum á bug.
Hann segist ekki vita fyrir víst
hvað biðröðin hafi verið löng í
anddyrinu hjá utanríkisráðherra
en honum hefði að minnsta kosti
fundist erfitt að ákveða hver væri
bestur, því nóg hefði verið af fram-
bjóðendum í starfið.
Holkeri sagðist hlakka til að
koma til íslands þar sem hann
ætti marga góða vini og þaðan
ætti hann márgar góðar minning-
ar. Undirbúningur fyrir heimsókn
hans hófst fyrir tveim ámm en í
fyrra kom Þorsteinn Pálsson fyrst-
ur íslenskra forsætisráðherra í
opinbera heimsókn til Finnlands.