Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989
---í iu—i—; : ■■ : >; i—-i i.r.’i.'m,
VESTMANNAEYJABÆJAR
Morgunblaðið/Grímur Gíslason.
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadótir, var meðal gesta.
Forsetimi meðal gesta
á aftnælishátíðinni
Vestmannaeyjum.
FORSETI íslands heimsótti Vestmannaeyjar á sunnudaginn í tilefhi 70
ára afmælis bæjarins. Forsetinn vígði gróðurreit í hlíðum Helgafells og
tók síðan þátt í ýmsum hátíðarhöldum vegna aftnælisins.
Eyjamar skörtuðu sínu fegursta í tak að koma upp þessum gróðurreit.
sumarblíðunni þegar vél flugmála-
stjómar renndi að flugstöðinni í
Vestmannaeyjum, laust eftir hádegi
á sunnudaginn, með forseta Islands
og fylgdarlið. Fjöldi fólks var á flug-
vellinum til þess að fagna komu for-
setans. Bæjarstjórn Vestmannaeyja
tók á móti forsetanum, en í fylgdar-
liði hennar voru forsetaritari og ut-
anríkisráðherra, Jón Baldvin Hannib-
alsson, og frú.
Frá flugvellinum var haldið að
gróðurreit í hlíðum Helgafells, sem
forsetinn vígði. Fjöldi barna, með
íslenska fánann í hönd, fagnaði for-
setanum er hann kom að gróðurreitn-
um. Andrés Sigmundsson, bæjarfull-
trúi, flutti þar stutt ávarp en síðan
gróðursetti forsetinn þrjár hríslur.
Fékk Vigdís bömin til að aðstoða sig
við gróðursetninguna. Eitt tréð var
fyrir stúlkurnar í hópnum, annað
fyrir drengina og það þriðja fyrir
komandi kynslóðir. Eftir að forsetinn
hafði lokið gróðursetningunni settu
bæjarfulltrúar Vestmanneyinga
síðan hver niður sína hrísluna.
Forsetinn flutti síðan stutt ávarp
þar sem hún óskaði Vestmanneying-
um til hamingju með afmælið. Hún
þakkaði Eyjamönnum fyrir það fram-
Hún talaði um þá landeyðingu sem
átt hefði sér stað á íslandi og hvatti
til þess að vel yrði hlúð að þeim trjám
sem gróðursett hefðu verið í reitnum
þennan dag. Það þyrfti að græða upp
landið og þessi litli reitur gæti orðið
upphafið að skógi sem risið gæti í
Vestmannaeyjum á komandi árum.
Eftir vígslu gróðurreitsins var
haldið í Safnahúsið þar sem forsetinn
skoðaði sögusýningu Vestmanna-
eyjahafnar og sýningu um póstsögu
Vestmannaeyja. Frá Safnahúsinu
var haldið í Akógeshúsið þar sem
opnuð var sýning á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur. Eftir að hafa skoðað
sýningu Júlíönu héldu forsetinn og
fylgdarlið á tónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands og Kirkjukórs Vest-
mannaeyja sem haldnir voru í Sam-
komuhúsinu.
Á sunnudagskvöldið bauð bæjar-
stjóm til veislu í Oddfellowhúsinu.
Þar voru auk forseta og fylgdarliðs
þingmenn Suðurlands og fyrrverandi
bæjarfulltrúar og bæjarstjórar í
Vestmannaeyjum. Heimsókn forset-
ans lauk laust fyrir miðnætti en þá
héldu hann og fylgdarlið hans heim
á leið.
Grímur
Sýning á verkum Júlí-
önu Sveinsdóttur
V estmannaeyju m.
SÝNING á verkuni Júliönu Sveinsdóttur var opnuð í Akógeshúsinu í
Eyjum sl. sunnudag. Sýningin er helguð aldaraftnæli listakonunnar en
31. júlí nk. er liðin öld frá fæðingu hennar.
Við opnun sýningarinnar
fluttí Hermann Einarsson
ávarp, en Hermann átti hug-
myndina áð sýningunni og
hefur borið hitann og þung-
ann af uppsetningu hennar.
Hann sagði að möguleikar
ungrar konu sem dreymdi um
að læra myndlist hafi ekki
verið miklir upp úr síðustu
aldamótum, því í sjávarplássi
eins og Vestmannaeyjum hafi
fiskur og fiskveiðar verið hin
sanna list. Júlíana hafi átt
þennan draum og hún hafi
ekkert látið aftra sér í því að
láta hann rætast. Hún hafi
haldið til náms í Reykjavík
og síðan erlendis. Hann sagði
að hróður listakonunnar hafí
átt langa leið heim því hann
hafi allur verið erlendis og þar
hafi hann risið hátt.
Hermann sagði að nú væri
hróður listakonunnar löngu
kominn heim og það alla leið
heim í litla sjávarþorpið. Her-
mann færði öllum þeim sem
veittu aðstoð við uppsetningu
sýningarinnar þakkir og sér-
stakar þakkir færði hann ætt-
ingjum Júlíönu, Listasafni Is-
lands og Útvegsbanka íslands
hf. sem hann sagði að hefði
veitt ómetanlegan stuðning
við að koma sýningu þessari
upp.
Hermann sagði frá því að
ættingjar Júlíönu hefðu
ákveðið að færa Listasafni
Vestmannaeyja að gjöf vef-
stól listakonunnar og skaut-
búning sem hún hannaði.
Að loknu ávarpi Hermanns
talaði Aðalsteinn Siguijóns-
son, bankastjóri Útvegsbankans í
Eyjum. Hann sagði að bankinn ætti
um þessar mundir 70 ára afmæli.
Þar sem þetta afmæli færi saman
með 70 ára afmæli Vestmannaeyja-
bæjar og aldarafmæli Júlíönu hefði
Frú Vigdís Finnbogadóttir Forseti Is-
lands við uppstillingu af skautbúningi sem
Júlíana Sveinsdóttir listmálari saumaði
fyrir Alþingishátíðina 1930, en búningur-
inn er á yfirlitssýningu í Akogeshúsinu í
Vestmannaeyjum í tilefni 100 ára afmælis
listakonunnar og 70 ára afmælis Vest-
mannaeyjabæjar. Júliana var fædd og
uppalin í Vestmannaeyjum. A sýningunni
eru 20 málverk, auk teikninga, mosaik-
mynda og vefnaðar. Skautbúninginn gáfú
systkynin frá Fögrubrekku í Eyjum
Byggðarsaftii Vestmannaeyja, en Júlíana
saumaði hann handa Laufeyju Sigurðar-
dóttur konu Arsæls á Fögrubrekku,
Sveinssonar, bróður Júlíönu. Systkinin
eru Lárus, Sveinn, Asta, Petronella, Leif-
ur og Arsæll, en þau gáfú Byggðarsafninu
einnig vefstól Iistakonunnar.
bankaráð Útvegsbankans ákveðið að
gefa listasafni Vestmannaeyja mál-
verkið Þrælaeiði, eftir Júlíönu, sem
verið hefur í eigu bankans.
Grímur
ISUZU GEMINI #
er stolt feðra sinna - hannaður
með tilliti til formfegurðar og
margra ára endingar. í margendur-
teknum rannsóknum hefur
GEMINI reynst einn sterkbyggðasti
og öruggasti smábíll gagnvart
slysum og hvers kyns óhöppum.
ISUZU GEMINI#
býður uppá meira innanrými og
þægindi en nokkur annar
sambærilegur bíll. Þægileg
framsæti með margvíslegum
stillfmöguleikum — aftursæti sem
má leggja niður til að auka
farangursrými og rúmgóðri
farangursgeymslu með víðri og
aðgengiiegri opnun.
ISUZU GEMINI#
er sannkallaður kostagripur - ekki
of lítill og ekkí of stór, búinn þeim
fylgihlutum sem fæstir sambæri-
legir bílar státa af, svo sem 5 gíra
eða sjálfskiptfngu, aflstýri, útvarpi
m/segulbandi, góðri hljóð-
einangrun og traustum undirvagni.
BD BiLVANGUR
Veldu þérGEMINI með framhjóladrifi,
3ja eða 4ra dyra, með 1.31 ítra eða 1.51 ítra vél
Heildarupphæð vinninga
24. júní 1989 var kr.
3.925.592,-.
1 hafði 5 rétta og fær
hann kr. 1.808.908,-.
Bónusvinninginn fengu 8
og fær hver kr. 39.244,-.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 4.792,-
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 366,-.
Sölustaðir loka 15 mínút-
um fyrir útdrátt í Sjón-
varpinu.
Sími 685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
VJterkur og
kD hagkvæmur
auglýsingamiðill!
flltftgiititMiifrffe