Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 22
4
22
MOKGUNBLAÐÍÐ I>MÐ,IUDAGUR 27. JÚNÍ 1989
Engar beinar útsendingar
Hið nýja sovéska þing tók aftur til starfa á mánudaginn eftir
nokkurra vikna hlé en nú var ekki sjónvarpað beint frá þinginu
eins og gert var fyrstu þijár vikurnar sem það starfaði. Útsending-
arnar voru ákaflega vinsælar hjá almenningi í landinu og kom því
á óvart þegar tilkynnt var á síðustu stundu að engar beinar út-
sendingar væru fyrirhugaðar, hvorki í útvarpi né sjónvarpi en
að sögn sovésku fréttastofunnar TASS verður allt áhugavert eftii
sýnt síðar.
Hneykslismál á Kúbu:
Háttsettur hersliöfðingi
játar fíkniefiiasmygl
Havana, Kubu. Reuter.
Vamarmálaráðherra Kúbu, Raúl Kastró, liefiir krafist þess að Am-
aldo Ochoa Sanchez, hershöfðingi, sem sakaður er um spillingu og
eiturlyQasmygl, verði dæmdur til refsingar sem gæti orðið öðmm viti
til vamaðar. Ochoa hefur nú játað á sig þær sakir sem bomar em á hann.
Sérstakur herdómstóll mun
ákveða formlega ákæru á hendur
hershöfðingjanum og skera úr um
hvort hann verði dreginn fyrir venju-
legan dómstól eða herdómstól. Talið
er að dauðarefsingar verði krafist
yfir Ochoa og einhveijum af sex vit-
orðsmönnum hans. Þeir eru sakaðir
um fjárdrátt, gjaldeyrisbrask og
samstarf við hinn illræmda Medellin
fíkniefnahring í Kólumbíu. Talið er
að frá árinu 1986 hafi sex tonn af
kókaíni farið um kúbanskar her-
stöðvar og verið smyglað þaðan til
Bandaríkjanna. Þetta er mesta
hneykslismál sem upp hefur komið
á Kúbu síðan þar var gerð bylting
árið 1959. Raúl Kastró, varnarmála-
ráðherra, var náinn vinur Ochoas.
Hann bar vitni á sunnudaginn og
sagði þá að Ochoa hefði á undan-
fömum mánuðum fært mörgum
embættismönnum gjafir, í þeim til-
gangi að eiga inni hjá þeim greiða
og til að auka álit sitt. „Spillingin
fylgdi honum, hvert sem hann fór,“
sagði Kastró. Nokkrir vestrænir
.stjórnarerindrekar töldu þessi um-
mæli benda til þess að Ochoa hefði
á einhvern hátt getað ógnað stöðu
Fídels Kastró og þess vegna hefði
verið nauðsynlegt að koma höggi á
hann.
Raúl Kastró sagði einnig að Ochoa
hefði oft verið áminntur og fram-
koma hans gagnrýnd en það hefði
ekki orðið til þess að hann hætti
braski né minnkað löngun hans til
að verða dæmigerður kapitalisti.
Hann sakaði Ochoa einnig um að
hafa brotið erlend lög með því að
smygla fílabeini og demöntum. I
síðustu viku var greint frá því opin-
berlega að Ochoa hefði geymt
200.000 Bandaríkjadali (11,8 millj.
ísl. kr.) á bankareikningi í Panama
sem var á nafni aðstoðarmanns hans
og að á heimili hans í Havana hefðu
fundist 25.000 dalir, sem svarar um
1470 þúsund ísl. krónum.
'tí'¥/°Æw
IUMFERÐAR
RÁÐ
ör uh
KLÚBBUR 17!
Er kveikt á perunni?
Klúbbur 17 óskar eftir hugmyndum að
merki fyrir samtökin og slagorð, sem nota má
í áróðri fyrir bættri umferðarmenningu. ,
Klúbbur 17 er samtök áhugafólks, 17-20 ára,
um bætta umferðarmenningu og fækkun
slysa meðal ökumanna.
Viðurkenningar verða veittar fyrir bestu hugmyndirnar.
Hugmyndum skal skila fyrir 15. júlí n.k., merktum dulnefni,
á skrifstofu RKÍ á Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 26722
Ungverski kommúnistaflokkurinn:
Róttækir umbótasinnar
taka völdin í flokknum
Búdapest. Reuter.
UNGVERSKIR kommúnistar hafa kosið eindregna umbótasinna til for-
ystu i flokknum og vísa á bug ásökunum harðlínumanna í forystusveit-
um nokkurra ríkja Varsjárbandalagsins um að hafin sé gagnbylting
gegn flokknum. A firndi miðstjórnar kommúnistaflokksins á fostudag
og laugardag var Rezso Nyers kjörinn flokksleiðtogi í stað Karolys
Grosz, sem var sakaður um að vera orðinn þröskuldur í vegi umbóta-
stefiiunnar er hann efijdi til á síðaasta ári. Imre Pozsgay, róttækur
umbótasinnis, var tilnefndur frambjóðandi í embætti forseta Ungveija-
lands en óljóst er enn hve valdamikið forsetaembættið verður.
í yfirlýsingu miðstjórnarinnar er
stefna harðlínumanna víða í Austur-
Evrópu óbeinlínis gagnrýnd, sagt að
Ungveijar geri skýran greinarmun á
því annars vegar að varðveita só-
síalísk gildi og hins vegar að
„ríghalda í völdin og víla ekki fyrir
sér að beita til þess valdi.“ Fyrir-
hugaðar efnahagsumbætur í Ung-
veijalandi munu hafa í för með sér
að markaðskerfi verður látið ráða
og miðstýrður áætlanabúskapur
lagður á hilluna. Á blaðamannafundi
sagði Pozsgay að náðst hefði mála-
miðlun á fundi miðstjórnarinnar.
„Við urðum ásatt um að þörf væri
á lýðræðislegum sósíalisma og þessu
markmiði yrði ekki náð með því að
lappa upp á gamla kerfið...Grundvall-
arbreyting er nauðsynleg." Sett hef-
ur verið á stofn forsætisnefnd fjög-
urra manna; Pozsgays, Nyers, Miklos
Nemeths forsætisráðherra og Grosz
sem heldur stöðu sinni sem aðalrit-
ari flokksins en völd þess embættis
verða stórlega skert. Fjögurra manna
nefndin á að fara með völd fram að
sérstakri flokksráðstefnu sem halda
á í október. Níu manna stjórnmála-
ráð var lagt niður en í staðinn kem-
ur framkvæmdanefnd með 21 félaga
undir forystu Nyers. Hann verður
forseti flokksins og er af stjórn-
málaskýrendum talinn gegna mestu
valdastöðunni þótt forsetaembættið
hafi fram til þessa verið tyllistaða.
Nyers sagði í blaðaviðtali í gær
að varpa yrði á brott „gömlum skil-
greiningum á sósíalisma" og Ung-
veijaland yrði fyrsta kommúnistarík-
ið sem viðurkenndi grundvallar-
mannréttindi í vestrænum skilningi
orðanna. „Auðvitað verðum við að
gera okkur ljóst að til eru kommún-
istar sem líta á umbætur sem brott-
hvarf frá raunverulegum sósíalisma,
sem hentistefnu og knéfall fyrir
borgaralegum háttum.“ Nyers sagð-
ist vona að breytingar á forystunni
yrðu til að styrkja eininguna í flokkn-
um en margir erlendir stjómarerind-
rekar töldu líklegt að félagamir í
forsætisnefndinni yrðu ekki ávallt
samstíga. \
Nyers er 66 ára gamall, var lengi
ráðherra og hafði mikil áhrif á efna-
Rezso Nyers. Imre Pozsgay.
hagsumbætur sem gerðar voru á sjö-
unda og áttunda áratugnum. 1975
var hann rekinn úr stjómmálaráðinu
vegna þess að Sovétmenn voru ósátt-
ir við stefnu hans. 1988 tók hann
aftur sæti í ráðinu er Grozs tók við
völdum af Janos Kadar. Nyers nýtur
álits langt inn í raðir miðju- og
harðlínumanna og virðist eiga að
reyna að sætta andstæðar fylkingar.
Nyers og Pozsgay voru uppruna-
lega félagar í flokki jafnaðarmanna,
sem þvingaður var til að sameinast
kommúnistaflokknum 1948, og hefur
Pozsgay, sem er 55 ára, átt mikinn
þátt í að hrinda úr vör þeim gífurleg-
um breytingum sem átt hafa sér stað
á stefnu kommmúnistaflokksins
síðustu ár. Hann lýsti þvi nýlega
yfir að fyrirhugaðar þingkosningar
á næsta ári yrðu fullkomlega fijálsar
og lýðræðislegar. Stjómvöld höfðu
þegar heitið því að fleiri flokkar en
kommúnistar fengju að bjóða fram.
ELDSVOÐI í SOVÉSKUM KJARNORKUKAFBÁT í NORÐURH
Rússar létu Norðmenn
ekki vita um óhappið
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morpmblaðsiiis.
NORÐMENN fengu engar viðvaranir frá Sovétmönnum um að eldur
væri laus í sovéskum kjarnorkukafbáti af Echo II-gerð undan Noregs-
ströndum í fyrrinótt, heldur urðu þeir að komast að því sjálfir. Norska
leyniþjónustan nam neyðarkall frá kafbátnum klukkan 4,15 í gærmorg-
un, klukkan 02,15 að íslenskum tíma, eða tveimur tímum eftir að kvikn-
aði í bátnum.
Björgunarmiðstöðin í Bodo í Norð-
ur-Noregi sendi fyrirspum til björg-
unarmiðstöðvarinnar í sovésku flota-
stöðinni í Múrmansk klukkan 6.50
um það hvort aðstoðar væri þörf.
Svar kom ekki fyrr en klukkan 8.10
og var á þá leið að báturinn þyrfti
enga hjálp.
Meðan beðið var svars sendi norski
herinn Oríon-flugvél, tvær þyrlur,
strandgæsluskip og fjóra tundur-
skeytabáta í átt til kafbátsins. Þegar
flugvélamar komu á vettvang gaus
mikill reykur upp af honum. Fjöldi
skipveija, sem alls munu vera um
90, stóð í tumi bátsins eða úti á
fordekkinu. Voru þeir klæddir björg-
unarvestum.
Thorvald Stoltenberg, utanríkis-
ráðherra, gagnrýndi Sovétmenn
harðlega fyrir að láta ekki vita um
slysið. „Framkoma þeirra er óþol-
andi. Það hlýtur að vera í þeirra eig-
in þágu að Norðmenn geti komið
fljótt til hjálpar á hættustundu,,,
sagði hann. Af hálfu norskra stjórn-
valda hefur verið unnið að uppkasti
að samningi um gagnkvæma tilkynn-
ingarskyldu Norðmanna og Sovét-
manna þegar óhöpp verða á hafi
úti. Verður uppkastið senn afhent
sovéskum yfirvöldum.
Norsk yfirvöld eru ónáægð með
þær upplýsingar sem Sovétmenn
hafa veitt um slysið í borð í hinum
rúmlega 20 ára gamla kafbáti. „Upp-
Upplýsinga krafist
af Sovétmönnum
Utanríkisráðuneytið í Reykjavík óskaði eftir því við Sovétmenn í
gær að þeir veittu allar upplýsingar um um eldsvsoðann i sovéska
kafbátnum í fyrrinótt.
Gunnar Pálsson í utanríkisráðu-
neytinu sagðist búast við að íslensk
yfirvöld færu líkt að og Norðmenn
og létu í ljós vonbrigði með að frum-
kvæði að því tilkynna um atburðinn
skyldi ekki koma frá Sovétmönnum
sjálfum.
Að sögn Gunnars var ekki talin
hætta á ferðum samkvæmt upplýs-
ingum ráðuneytisins þar sem kaf-
báturinn hefði verið á siglingu fyrir
eigin vélarafli. Hann hefði einnig
verið á hafssvæði þar sem straumar
væru allir inn á Barentshaf og
Hvítahaf.
íslenskum stjórnvöldum bárust
upplýsingar um eldsvoðan frá varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli
snemma í gærmorgun. Tilkynnti
það varnarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins um atburðinn og lét
skrifstofan utanríkisráðherra vita
svo og ráðuneytisstjóra dómsmála-
ráðuneytisins, sem tók að sér að
tilkynna yfirmönnum almanna-
varna um atburðinn.
lýsingarnar sem við höfum fengið
fyrir milligöngu norska sendiráðsins
í Moskvu eru ófullnægjandi og ósk-
illjanlegar. Samkvæmt þeim er úti-
lokað að ímynda sér hvað gerst hef-
ur. Aðeins að eitthvað hafi farið úr-
skeiðis í kjarnakljúfi kafbátsins,"
sagði Knut Gussgard, formaður opin-
berrar nefndar sem fjallar um kjam-
orkuslys á friðartímum og viðbrögð
við þeim.
Tekin voru vatns- og loftsýni á
þeim slóðum sem kviknaði í kaf-
bátnum til þess að kanna hvort út-
geislun hafi átt sér stað. Niðurstöður
koma ekki í ljós fyrr en eftir nokkra
daga. Samskonar rannsóknir voru
gerðar eftir að sovéskur kafbátur af
Mike-gerð sökk í Barentshafi 7.
apríl, en þá fórust 42 úr áhöfn hans.
Engin merki fundust um óeðlilega
geislamengun.
Eftir kafbátaslysið 7. apríl sendu
Norðmenn 10 spumingar til sovéskra
stjórnvalda viðvíkjandi hugsanlegri
mengunarhættu. I gær hafði svar
aðeins borist við tveimur spurning-
anna, að sögn Knuts Gussgards.
Samkvæmt upplýsingum frá varn-
armálaráðuneytinu er talið að Echo-
kafbáturinn hafi verið á heimleið úr
leiðangri er eldur varð laus um borð
um klukkan 02,15 að norskum tíma
(00,15 að ísl. tima) á aðfaranótt
mánudags. Var hann þá sladdur 110
kílómetra norðvestur af Suðureyju á
Finnmörk. Heimildarmenn innan
norska hersins segja að líklega séu
átta kjarnorkuflaugar af gerðinni
SS-N-12 um borð en þær draga 500
km. Tvcir kjarnakljúfar eru í Echo-
kafbátum og líklegt var talið að bilun
hefði átt sér stað í kælikerfi annars
þeirra. Flest benti til að slökkt hefði
verið á þeim báðum og kafbáturinn
hafi haldið áfram ferðinni til Múr-
mansk með hjálp varavélar, sem er
olíuknúin. Norsk herskip og flugvélar
fylgdust með bátnum þar til hann
sigldi inn í sovéska lögsögu.