Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 23

Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 23
MOKGUN'BLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUfi.27, fflyí 198,9 23 Grikkland: Papandreou efiiir til írekari viðræðna við kommúnista Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavik - Sími 91-680 780 AP __ Sovéski kafbáturinn á siglingn á Noregshafi í gær. Reykur stígur upp af skipinu aftan við turninn. Á fordekkinu og við turninn má sjá stóran hóp skipveija. Pólitísk irniræting geng- ur fyrir þjálfim sjóliða Segir höfuðsmaður í sovéska sjóhernum Moskvu. Reuter. V. OVTSJINNIKOV, kafteinn í sovéska sjóhernum, heldur því fram í bréfi sem birt var í nýjasta hefti tímarits sovésku verkalýðs- hreyfingarinnar, Smena, að illa sé staðið að þjálfun sjóliða á sovésk- um kjarnorkukafbátum og margir þeirra séu fákunnandi í öllum undirstöðuatriðum. Hann segir ennfremur að mun meiri áhersla sé lögð á pólitíska innrætingu, sem sjóliðum er skylt að gangast undir, en á tæknilega þjálfun þeirra. „Það kemur ykkur sennilega í Ovtsjinnikov sendi bréf sitt frá opna skjöldu er ég held því fram Murmansk, en þar eru bækistöðv- að þeir sem eru við tækin um borð í kjarnorkukafbátum okkar hafa litla eða enga þjálfun hlotið,“ skrif- aði Ovtsjinnikov. „En það hefur ekki aftrað okkur frá því að sigla. Þekking og hæfni sjóliða sem starfa við kjarnorkuknúinn véla- búnað kafbáta okkar nær aðeins til 30-40% þess sem þeir ættu að kunna og vera færir um að gera.“ ar norðurflota Sovétríkjanna. „Ástæður, [hinnar slöku þjálf- unar], er tilviljunarkenndur undir- búningur. En því er ekki að neita að einskær leti á hér líka hlut að máli,“ sagði Ovtsjinnikov. „Sjólið- ar eru látnir afskiptalausir þegar þeir ganga í sjóherinn. Það er engin undirbúningsáætlun í gangi, ekkert eftirlit eða markvisst skipu- lag. Sú er ekki raunin, þótt opin- berlega sé ef til vill kveðið á um það.“ Ovtsjinnikov sagði að gott fyrir- komulag væri haft á pólitískri inn- rætingu í sjóhernum. „Allir vita að pólitísk uppfræðsla situr í al- gjöru fyrirrúmi. Enginn vogar sér að meina sjóliða að sækja pólití- skar kennslustundir því sá hinn sami yrði að gera pólitískum for- ingja sínum grein fyrir þeirri ákvörðun. Það yrði stórt skref í framfaraátt ef sérfræðiþjálfun sjó- liða yrði sami sómi sýndur,“ sagði hann. Pólitískir foringjar í sovéska hernum hafa oft á tíðuin meiri völd en yfirmenn sjálfra heijanna. Óvilhöll skýrsla frá þeim getur hæglega skaðað eða bundið enda á feril sovéskra hermanna. S126 4ra manna Lengd: 2,6 m Breidd: 1,5 m Hleðsluþol: 400 kg Verðkr. 68.160,- S131 4ra manna Lengd: 3,1 m Bre.idd. 1,5 m Hle'ðsluþol: 400 kg Verð kr. 82.285,- S134 5 manna Lengd: 3,4 m Breidd: 1,68 m Hleðsluþol: 450 kg Verðkr. 103.143,- Fellst á uppstokkun í forystusveit sósíalistaflokksins Aþenu. Reuter. ANDREAS Papandreou, forsæt- isráðherra Grikklands, sem hef- ur verið á sjúkrahúsi frá því á fimmtudag vegfna lungnabólgu, hjarta- og nýrnaveiki, efhdi í gær til viðræðna við leiðtoga kommúnista um myndun sam- steypustjórnar vinstriflokka. Papandreou virtist vera á bata- vegi eftir að breskir læknar höfðu verið kvaddir til sjúkrahússins til að annast hann. Hann ræddi við Harilaos Florakis, leiðtoga komm- únista, í um 25 mínútur. Florakis hefur hingað til hafnað stjórnar- samstarfi við flokk Papandreous, Hellensku sósíalistahreyfinguna, PASOK, og sagt að forystumenn flokksins verði að segja af sér vegna hneykslismála í tengslum við banka og vopnafyrirtæki til að slíkt komi til greina. Grískir embættismenn sögðu að Pap- andreou hefði í gær gengið til móts við kommúnista og lagt fram tillögur um uppstokkun á forystu- liði flokksins vegna hneykslismál- anna. Ekki var vitað í gær hversu lengi umboð Papandreous til stjórnarmyndunar myndi gilda. Hann fékk umboðið á föstudag og talið var að það rynni út um há- degi í gær. Nokkrir stjórnmálaský- rendur töldu að Papandreou myndi halda umboðinu þar til Christos Sartzetakis, forseti Grikklands, kæmi aftur til landsins í dag, en hann hefur verið á fundi leiðtoga Evrópubandalagsríkja í Madrid. Talið er að hann veiti þá kommún- istum þriggja daga umboð til að mynda meirihlutastjórn. Takist Florakis ekki að mynda stjórn er talið að forsetinn myndi þjóðstjórn til bráðabrigða og boði til nýrra kosninga. Stuðningsmenn Papandreous safiiast hér saman fyrir utan sjúkrahús hans í Aþenu Reuter Stjórnarflokkurínn í Japan geldur afhroð í aukakosningum: Sosuke Uno biðst afsökunar á ástarsambandi við geishu 11 'AlriA II... i 4 Unll.T 'l'n I n n I. Tókíó. Reuter, Daily Telegraph. SOSUKE Uno, forsætisráðherra Japans, sagðist I gær hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með úrslit aukakosninganna í Niigata-kjördæmi, skammt fyrir norðan Tókló, á sunnudag. Frambjóðandi sósíalista, Kinuko Ofuchi, sem er kona, bar þar sigur úr býtum og er talið að fréttir sem birst hafa í japönskum fiölmiðlum undanfarnar tvær vikur um meint framhjáhald Unos hafi stuðlað að ósigri stjórnarflokksins í kosningunum. Baðst forsætisráðherrann opinberlega afsökunar á ástar- sambandi sínu við fyrrverandi geishu, er lýst hafði sambandi þeirra í sjónvarpsviðtali. Ofuchi bar sigurorð af frambjóð- anda stjórnarflokksins, Hideo Kimi, en hann er sonur fyrrum ríkisstjóra í Niigata og hafði honum verið spáð miklum frama í stjórnmálum. Hún fékk 560.270 atkvæði gegn 482.391 atkvæðum Kimis og náði kjöri til efri deildar japanska þingsins. Sósía- listaflokkurinn hefur nú 43 þingsæti í deildinni, en stjórnarflokkurinn, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, 142. Kosningar til efri deildarinnar verða OFUM: 23. júlí og talið er að einnig verði kosið til neðri deildar þingsins í haust. „Okkur óraði aldrei að við mynd- um tapa svo stórt,“ sagði Uno á blaðamannafundi eftir kosningarnar. „Við þurfum að taka þennan ósigur til vandlegrar athugunar og kanna hvernig slíkt getur gerst,“ sagði hann. Stjórnmálaskýrendur segja að Uno sé að hluta til ábyrgur fyrir óförum flokksins i aukakosningun- um. Japanskir íjölmiðlar hafa sakað hann um að hafa tekið þijár konur frillutaki. Ein þeirra, fyrrverandi geisha, kom fram í sjónvarpi á sunnudag og lýsti sambandi þeirra. Hún sagði að Uno væri hrokafullur og ætti ekki skilið að vera forsætis- ráðherra landsins. Er forsætisráð- herrann var spurður um ummæli konunar sagði hann að honum þætti leitt að samband þeirra skyldi hafa haft slæmar afleiðingar fyrir flokk sinn. Stjórnmálaskýrandinn Soichiro Tahara sagði að konur, sem væru óánægðar með einkalíf forsætisráð- herrans, hefðu átt stóran þátt í ósigri flokksins. Uno hefði gert frambjóð- anda Fijálslynda lýðræðisflokksins bjarnargreiða með því að leggja hon- um iið í kosningabaráttunni. „Konur munu einnig stuðla að ósigri Fijáls- lynda lýðræðisflokksins í kosningun- um til efri deildar þingsins 23. júlí,“ sagði Tahara. Félagar í Fijálslynda lýðræðis- flokknum, sögðu að flokksmenn ótt- uðust nú að flokkurinn tapaði meiri- hluta sínum á þingi, en hann hefur farið með völdin í landinu í 34 ár samfleitt. Samkvæmt skoðanakönn- un, sem birt var í gær, nýtur stjórn- in aðeins stuðnings 16% landsmanna og 35,5% þeirra treysta ekki forsæt- isráðherranum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.