Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR-27. JÚNÍ 1989
31
Flug
ísfírðingar vilja sam-
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson.
SAMSKIPTI 7- Þeir ræddu samskiptavandamál flugfélaganna Flugleiða og Ernis á ísafirði á dögun-
um, talið frá vinstri; Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri Bolungarvíkur, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Isa-
fjarðar, Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða, Pétur Eiríksson framkvæmdastjóri markaðssviðs,
Andri Hrólfsson forstöðumaður innanlandsflugs og Arnór Jónatansson svæðisstjóri Flugleiða á ísafirði.
Fjármál
Áhugi á auknu framboði
afáhættuljármagni
— var m.a. niðurstaða könnunar Iðn-
lánasjóðs meðal viðskiptamanna
í KÖNNUN sem Iðnlánasjóður lét framkvæma meðal viðskiptamanna
sinna kom fram að viðskiptavinir telja ekki nauðsyn á því að sjóður-
inn breikki núverandi starfssvið sitt frá því sem það er i dag. Þann-
ig töldu um 86% ekki ástæðu til breytinga á fyrirkomulagi lánasviða
sjóðsins. Hins vegar komu fram hugmyndir um að breyta þyrfti
áherslum varðandi einstaka lánaflokka og auka framboð á áhættufjár-
magni.
í könnuninni var spurt um fjöl-
mörg atriði sem tengjast starfsemi
sjóðsins, svo sem afgreiðslu á láns-
umsóknum, samkeppnishæfni og
viðhorf til tiltekinna þjónustuþátta.
Jafnframt voru aðilar beðnir að
greina frá því í stuttu máli, með
hvaða hætti Iðnlánasjóður gæti bet-
ur þjónað fyrirtæki þeirra í framtí-
ðinni.
Að sögn Braga Hannessonar,
framkvæmdastjóra Iðnlánasjóðs, er
það eitt af markmiðum sjóðsins, að
bjóða viðskiptavinum þjónustu í
samræmi við óskir og þarfir mark-
aðsins á hveijum tíma. Slíka þjón-
ustu þurfi að aðlaga breyttum að-
stæðum í þjóðfélaginu, og því hafi
Iðnlánasjóður fengið Hagvang hf.
til að framkvæma umrædda mark-
aðskönnun. Bragi segir að það hafi
ekki komið sér á óvart að athuga-
semdir varðandi vexti, lánshlutfall
og lánstíma hafi komið fram í könn-
unni því enginn íslenskur stjómandi
sé á móti ódým fjármagni. Niður-
stöður könnunarinnar bendi hins
vegar til þess að samkeppnishæfni
Iðnlánasjóðs, hvað þessi atriði varði,
séu síst talin lakari í samanburði
við aðrar lánastofnanir.
ísafirdi.
starfí fíugmálum
MIKIL harka virðist hafa verið undanfarið í flugsamgöngum við
ísafjörð. Hörð samkeppni milli Flugleiða og Ernis hefur leitt til þess
að sveitarsljómimar við Djúp sáu ástæðu til að kalla forráðamenn
Flugleiða vestur til viðræðna um flugmálin.
Eftir fundinn, sem haldinn var
fyrir nokkm, var haldinn blaða-
mannafundur á Hótel ísafirði þar
sem aðilar gerðu grein fyrir stöðu
mála. Þar kom meðal annars fram
að Flugleiðir höfðu haft þjónustu
fyrir Erni í Reykjavík um tíma, en
að sögn Flugleiðamanna höfðu Ern-
ir sig á brott þaðan án þess að
Samgöngur
NeAid skip-
uð vegna
samgöngu
og fíutninga
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
skipað nefiid til að vinna að gerð
samgöngu- og flutningaáætlunar
fyrir landið í heild. Er nefiidinni
ætlað að fjalla um framkvæmdir,
brúar-, jarðganga og flugvallar-
gerð ásamt hafhaframkvæmdum
með tilliti- til næstu 10-20 ára.
Einnig mun hún fjalla um fram-
kvæmdir við uppbyggingu Qar-
skiptamála.
Jafnframt verður lagt mat á flutn-
ingaþörf á fólki og vörum, breyting-
ar á flutningatækni á landi, í lofti
og á legi, svo og samræmingu og
hagræðingu flutninga ásamt aukinni
nýtingu flutningatækja.
Á fyrsta fundi nefndarinnar var
ákveðið að hefja starfið með því að
gera yfirlit yfir stöðu samgöngumála
og þróun þeirra síðasta áratug, en
gera í framhaldi af því úttekt á
framtíðaráformum og -spám innan
hverrar greinar samgöngugeirans.
Nefndina skipa: Olafur S. Valdi-
marsson ráðuneytisstjóri formaður,
Halldór S. Kristjánsson skrifstofu-
stjóri varaformaður, Bjami Einars-
son, aðstoðarforstjóri Byggðastofn-
unar Einar Helgason Flugleiðum,
Einar Hermannsson frkstj., Gunnar
Sveinsson frkvstj., Helgi Hallgríms-
son aðstoðarvegamálastjóri, Her-
mann Guðjónsson hafnarmálastjóri,
Kristinn V. Jóhannsson, Neskaup-
stað, Ólafur Tómasson póst- og síma-
málastjóri, Pétur Einarsson flugmál-
astj., Ragnar Ingimarsson próf. og
Stefán Pálsson frkvstj. Starfsmaður
nefndarinnar er Árni Þór Sigurðsson
hagfræðingur í samgönguráðuneyt-
kveðja á síðasta ári, og var þeirra
ekki saknað þar sem þeir reyndust
afar óáreiðanlegir, að sögn Flug-
leiðamanna. í framhaldi af þvi ák-
váðu Flugleiðamenn að þurrka
leiðakerfi Ernis út úr öllu auglýs-
ingaefni félagsins, en það eitt getur
haft afar afdrifarík áhrif á ferða-
þjónustu á Vestfjörðum þar sem
Ernir fljúga tengiflug daglega á
alla flugvellina milli Isafjarðar og
Patreksfjarðar.
Á fundinum komu fram áhyggjur
manna af svæðinu með þessa stöðu
mála, en Vestfirðingar eru nokkuð
einhuga um að styrkja Erni vegna
margháttaðra þjónustustarfa sem
félagið veitir innan fjórðungsins,
ekki síst í sjúkraflugi.
Menn töluðu tæpitungulaust á
fundinum og virtist að andrúmsloft-
ið hreinsaðist nokkuð og samþykktu
aðilar tillögu heimamanna um að
stefna til samráðsfunda undir for-
sæti sveitarstjórnarmanna þar sem
reynt yrði til þrautar að finna vett-
vang fyrir eðlileg samskipti fyrir
þessi mikilvægu þjónustufyrirtæki.
- Úlfar
VIÐURKENNING — Stjóm Félags matvörukaupmanna
afhenti Sápugerðinni Frigg viðurkenningu fyrir voruvöndun og góða
þjónustu við félagsmenn í tilefni af 60 ára afmæli Friggjar nýlega. A
myndinni sést Júlíus Jónsson formaður Félags matvörukaupmanna
(t.v.) afhenda Jóni Þorsteini Gunnarssyni framkvæmdastjóra hjá Frigg
viðurkenningarskjalið.
Fólk í atvinnulífinu
Skipulagsbreytingar
hjá KEA
BREYTINGAR á starfsskipulagi
Kaupfélags Eyfirðinga urðu I.
júní í kjölfar kaupfélagsstjóra-
skipta, sem urðu 1. febrúar sl.
Hentugt ótti að fresta breytnig-
um fram yfir aðalfúnd, þannig
að undirbúningur hans raskaðist
sem minnst.
Við starfi fjár-
málastjóra tók
Sigurður Jó-
hannesson aðal-
fulltrúi. Frá og
með sama tíma
hætti Sigurður að
sjá um launa- og
starfsmannamál,
en aðrar breyting-
ar verða eljki á
Sigurður
Árni
Verslun
Björn
starfi aðalfulltrúa. Aðalféhirðir er
áfram ísak 'Guðmann.
Árni Magnússon tók við stöðu
fuiltrúa á sviði skipulags- og hag-
mála, en hann gegndi áður stöðu
aðalendurskoðenda félagsins. Frá
og með sama tíma tók Björn Ingi-
marsson starfsmaður í hagdeild við
stöðu aðalendurskoðenda. Arni mun
sjá um skrifstofustjórnun og er yfir
bókhaldi, tölvudeild, vöruinnkaupa-
deild, launadeild, starfsmanna-
stjórn, hagdeild,
afurðadeild og
hefur yfirumsjón
með allri skrif-
stofuvinnu hjá fé-
laginu og upplýs-
ingakerfum.
Ólafúr
Traustason mun
taka við starfi
deildarstjóra
tölvudeildar KEA frá 16. júní nk.,
en Gunnlaug Ottesen hefur sagt
starfi-sínu lausu vegna búferlaflutn-
inga frá sama tíma.
Ólafúr
Nýr formaður íslensk-
ameríska verslunarráðsins
Á AÐALFUNDI íslensk-
ameríska verslunarráðsins sem
haldinn var nýverið var kjörinn
nýr formaður fyrir ráðið, þar sem
Tryggingar
Vátryggingarfélagið stofiiar
skoðunarmiðstöð
tjona
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands hf. hyggst setja á Iaggirnar tjóna-
skoðunarmiðstöð að Smiðjuvegi 2 í Kópavogi. Auk tjónaskoðunar
verður þar allt árið um kring vikulegt útboð á bílum og tækjum,
sem félagið leysir til sín úr umferðaróhöppum.
í fréttabréfi Vátryggingafélags
íslands hf. kemur fram að allur
nauðsynlegur búnaður til starfsem-
innar verður keyptur t.d. bílalyftur,
hjóla- og ljósastillingartæki, grinda-
mælingatæki og fleira. Þá verður
aðstaða til að skoða sérbúin tæki
svo sem jeppa, vörubíla, sendibíla
og tengi og festivagna. Kranar
verða sérskoðaðir áður en þeir verða
teknar í endurtryggingu.
Hjá stöðinni munu starfa sex
manns, þar af fjórir skoðunarmenn.
Forstöðumaður verður Kristján G.
Tryggvason, bifvélavirkjameistari
sem var framkvæmdastjóri Tjóna-
skoðunarmiðstöðvarinnar sf. til
síðustu mánaðamóta.
Magnús Gústavsson fram-
kvæmdastjóri, sem verið hefúr
formaður ráðsins frá stofnun árið
1983, baðst undan endurkosn-
ingu. í hans stað var Jón Sig.
Guðmundsson stjórnarfomaður
Northland Corp. í Louisville ráð-
inn formaður.
Á aðalfundinum, sem haldinn var
í New York, var einnig kjörinn ný
stjóm fyrir ráðið. í hinni nýju stjóm
sitja Jónas Haralz, Sigfús Erlings-
son, Ólafur Ólafsson, Jón Yard
Ámason, Hilmar Skagfield, Joanne
Young, Thor Thors og Magnús Frið-
geirsson.
íslensk-ameríska verslunarráðið
mun í lok september næstkomandi
gangast fyrir ráðstefnu í Washing-
ton D.C. um samskipti og viðskipti
íslands og Bandaríkjanna, og verð-
ur það í fjórða sinn sem félagið
gengst fyrir slíkri ráðstefnu.