Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 32

Morgunblaðið - 27.06.1989, Síða 32
< Viðurkenningar veittar úr Húsfriðunarsjóði: Zontaklúbbur Akureyrar fékk viðukenningu fyrir viðhald og varð- veizlu hússins númer 54 við Aðalstræti, Nonnahúss. A myndinni eru Zontakonurnar Kristín Tómasdóttir, Valgerður Valgarðsdóttir, Guðríður Eiríksdóttir, Ragnheiður Árnadóttir og Stefanía Ármanns- dóttir. Þorleifúr Jóhannsson og Olga Ellen Einarsdóttir fengu viðurkenn- ingu fyrir hús sitt á Spítalavegi 8. Með Þorleifi á myndinni er Ra- kel dóttir hans. hefur illa verið gengið um og verð- ur lesturinn þar hálfgert staut, mann rekur jafnvel í vörðurnar. Lesturinn getur einnig verið unaður þar sem fléttað er saman eins og í ljóði andstæðum hins gamla og nútímans — eldri hús eða bæjar- hlutar auðga umhverfi bæjar eða borgar, ljá því margbreytileik og opna augu lesandans fyrir mikil- vægi þess að koma menningarverð- mætum óbrengluðum til komandi kynsló'ða." I gömlum bæjarhlutum má skynja andblæ liðins tíma Húsin Spítalavegur 8 o g Aðalstræti 14 og 54 hlutu viðurkenningar VIÐURKENNINGAR til handa þeim er sérstakt átak hafa gert varðandi varðveizlu gamalla húsa voru afhentar í Laxdalshúsi í gær, mánudag. Viðurkenning- arnar voru veittar í fyrsta sinn nú, en það er Húsfriðunarsjóður sem þær veitir. Veittar voru þijár viðurkenningar í þetta sinn, í fyrsta lagi til framtaks einstaklinga við endurbyggingu húss, þar sem vel er að verki staðið, í öðru lagi til brautryðj- endastarfs félagasamtaka, sem með endurbyggingu húss vöktu snemma áhuga og athygli á hús- ftiðun, og í þriðja lagi til eigenda einstakrar byggingar, sem af þrautseigju og eljusemi hafa með stöðugu viðhaldi og góðri um- gengni varðveitt hús sitt og að- lagað að nútímanum á varfærinn hátt. Þeir sem viðurkenningu hlutu voru Þorleifur Jóhannsson og Olga Ellen Einarsdóttir fyrir hús sitt á Spítalavegi 8, Zontaklúbbur Akur- eyrar fyrir endurbætur og varð- veizlu Nonnahúss og Eiður Bald- vinsson og Jónína Jónsdóttir fyrir hús sitt í Aðalstræti 14, en það hefur gengið undir nafninu „Gud- mannsminde". í nefndinni sem valdi þessi hús sátu Jón Geir Ágústsson byggingarfulltrúi, Ingólfur Ár- mannsson menningarmálafulltrúi og Árni Ólafsson skipulagsstjóri. Gunnar Ragnars formaður menningarmálanefndar afhenti við- urkenningarnar auk peningagjafar Morgunbladið/Rúnar Þór Hjónin Eiður Baldvinsson og Jónína Jónsdóttir fengu viðurkenningu fyrir stöðugt viðhald og varðveizlu Aðalstrætis 14. Hér eru þau hjón- in í stofúnni. og sagði hann við það tækifæri að eflaust myndu peningamir koma sér vel í áframhaldandi uppbygg- ingu húsanna, sem væru til sóma fyrir Akureyrarbæ. Við athöfnina flutti Árni Ólafs- son skipulagsstjóri hugleiðingu um húsfriðun og sagði m.a. að friðun húsa og jafnvel heilla hverfa væri liður í að varðveita og nýta sameig- inlega menningararfleifð og skila henni til afkomenda okkar til af- nota og varðveizlu. Deiliskipulag Fjörunnar og Innbæjarins á Akur- eyri og varðveizlumat það, sem þar er lagt á byggðina og einstakar byggingar, sagði hann með mikil- vægustu verkefnum sem unnin hafi verið á þessu sviði hérlendis. í hugleiðingu sinni líkti Árni bænum við lestrarbók; kennslubók í sögu bæjar og þjóðar, atvinnu- hátta og búsetu. „I gömlum bæjar- hlutum má oft og tíðum skynja andblæ liðins tíma, gera sér í hugar- lund kjör og aðstæður þess fólks sem byggði húsin, bjó þar og starf- aði. Af húsunum lesum við einnig um umgengni og lífshætti þeirra, sem á eftir komu. Sums staðar Morgunblaðið/Rúnar Þór Fyrsta hringtorgið verður til Framkvæmdir við fyrsta hringtorgið á Akureyri hófust í gær og reiknaði Gunnar Jóhannesson deildarverkíræðingur á tæknideild Akureyrarbæjar með að fyrsta bifreiðin myndi aka eftir torginu eftir um það bil þijár vikur. Hringtorg þetta verður á mótum Undirhlíðar og Hörgárbrautar og sagði Gunnar að ökumenn gætu búist við nokkrum töfúm á umferð á meðan á framkvæmd- um stendur. Áætlaður kostnaður vegna torgsins er 5,4 milljónir króna og sagði Gunnar það um 20% ódýrari kost en að setja upp umferðarljós á gatnamótunum. „Fyrir þá sem ekki eru aldir upp á Miklubrautinni í Reykjavík og eru óvanir hringtorgum er rétt að geta þess að lögregla og ökukennarar gefa allar upplýsingar um hvernig haga skuli akstri á hringtorginu," sagði Gunnar. Dalvíkurskóli Yfirkennari Staða yfirkennara við Dalvíkurskóla er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til 4. júlí 1989. Upplýsingar gefnar í símum 96-61380, 96-61162 og 96-61355. Skólanefnd Daivíkur. DALVIKURSKDLI Kaldbakur hf. á Grenivík: Kaupir fisk af Samherja Lánsfiskur frá Ólafsfirði unninn þessa viku FISKLAUST hefúr verið hjá frystihúsi Kaldbaks hf. á Grenivík tvær síðustu vikur, en í gær fengu þeir Kaldbaks- menn lánaðan fisk firá Ólafs- firði. I næstu viku er hins veg- ar útlit fyrir að næg vinna verði í húsinu, en Sjöfii ÞH hélt til veiða síðastliðinn fostu- dag og þá hefúr Kaldbakur gert samning við Samheija um kaup á fiski. Þorsteinn Pétursson fram- kvæmdastjóri Kaldbaks sagðist VEIÐI í Hrísatjörn við Dalvík hefúr gengið þokkalega í þá rúmu viku sem seld hafa verið leyfi í tjörninni. Fyrir skömmu voru um 400 bleikjum og um 200 löxum sleppt í Hrísatjörn, en það eru fjórir samhentir ungir menn á Dalvík sem standa fyrir sölu veiðileyfa í Hrísatjörn. Símon Ellertsson, einn af að- ■ standendum Afglapa hf. sem hefur með veiðina að gera, sagði að á næstunni yrði stórum hafbeitarlöx- um sleppt í tjörnina til viðbótar þeim fiskum sem þar eru. Þar er vona að bjartari tímar væru fram- undan, en síðustu tvær vikur hefur enginn fiskur komið til vinnslu í frystihúsinu. í gærmorgun voru fengin að láni um 20 tonn af fiski frá Ólafsfirði. „Við reynum að treina þau út vikuna,“ sagði Þor- steinn. Sjöfn ÞH fór í sína fyrstu veiði- ferð í höndum nýrra eigenda á föstudaginn og er von á henni inn í næstu viku. Þá hefur Kaldbakur einnig gert samning við útgerðar- fyrirtækið Samheija á Akuryeri um að ræða laxa sem eru að skila sér heim til Óslax hf. í Ólafsfirði. í fyrrasumar voru gerðir pallar við tjörnina sem sérstaklega eru ætlaðir fyrir hjólastóla og sagði Símon að um næstu mánaðamót vrði lokið við gerð fjögurra slíkar palla. Veiðin hefur gengið þokkalega það sem af er og sem dæmi náðust átta laxar úr tjörninni fyrir hádegi á laugardaginn var. „Fólk hefur verið áhugasamt um að veiða í tjörninni, en stærsti hluti þeirra sem hingað koma að veiða eru Akureyringar,“ sagði Símon. um kaup á fiski, nokkur hundruð tonnum, eins og Þorsteinn orðaði það. Það verður Hjalteyrin, nýj- asta skip Samheijamanna, sem mun leggja upp fisk á Grenivík í júlímánuði. Von er á Hjalteyrinni til Grenivíkur í næstu viku. „Það verður eflaust mikill hamagangur hérna hjá okkur í næstu viku,“ sagði Þorsteinn. Akureyrarbær: Samið við hjúkrunar- fræðinga SAMNINGAR á milli Akur- eyrarbæjar og Hjúkrunarfélags íslands annars vegar og Félags háskólamenntaðra hjúkrunar- lræðinga hins vegar voru undir- ritaðir fyrir skömmu. Þóra Sigurðardóttir formaður Norðurlandsdeildar Hjúkrunarfé- lags íslands sagði að samningur- inn væri á sömu nótum og hjá þeim aðilum sem þegar hafa skrif- að undir samninga. Samningurinn er afturvirkur til 1. apríl síðastlið- inn og rennur hann út í lok janúar á næsta ári. Hjúkrunarfræðingar á Akureyri hafa verið einum launaflokki hærri en hjúkrunar- fræðingar hjá ríki og Reykjavíkur- borg og er það óbreytt í nýja samn- ingnum. Afglapar á Dalvík: Hafbeitarlöxum sleppt í Hrísatjörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.