Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.06.1989, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 271 iJÚNÍ 11989 m oftar en ekki bauð hún okkur inn í íbúð sína sem bjó yfir leyndardóm- um veraldar sem eitt sinn var, og fræddi okkur á lifandi máta um menn og málefni sem aðrir höfðu gleymt. Og alltaf var hún söm; bros- andi, hlý, hjálpsöm. Stundum á síðkvöldum settist Edith við píanóið, og seiðmagnaðir tónar hljóðfærisins bárust upp í íbúðina okkar, hljómfallinu verður ekki lýst með orðum né heldur ná prentaðir stafir yfir þá dulúð og sálarorku sem fólst í píanótónum Edithar. Þessa músík höfðum við aldrei heyrt áður og munum aldrei heyra framar. Byrðunum er misskipt á menn- ina, og svo fór að þær byrðar voru lagðar á Edith sem hún megnaði ekki að standa undir. Og nú er síðasti frumbyggi hússins á Ránar- götu horfinn, hlý og björt nærvera Edithar á brott og píanóið hennar þagnað. Eftir stendur húsið sem hún og Jónas byggðu og mun veita kom- andi kynslóðum hlýju, skjól og yl. Við vottum ættingjum og að- standendum Edithar Guðmundsson dýpstu hluttekningu okkar. Ingólfúr, Jóhanna, Halla Björg og Jónas Margeir Edith Guðmundsson lést á Landakotsspítala 19. júní sl. Hún hét fullu nafni Edith Kamilla Kaar- bye og var borin og barnfædd í Björgvin í Noregi. Faðir hennar, Isak Kaarbye, ætt- aður frá Vandsö í Norður-Noregi, var þekktur listmálari þar í landi. Hann lést af slysförum 1944. Anna Rennemoen hét móðir hennar, kom- in af kunnri ætt í Guðbrandsdal. Hún lést í hárri elli 1965. Árið 1930 réð Edith sig til fram- reiðslustarfa á farþegaskipinu Lyru sem sigldi til íslands. Skömmu áður hafði spákona nokkur sagt henni að brátt færi hún til framandi lands og myndi giftast fyrsta manninum sem hún sæi þar. Þessi spásögn rættist eftirminnilega því fyrsti Is- lendingurinn sem hún leit augum, er Lyra lagðist við festar á ytri höfninni í Reykjavík, var Jónas Guðmundsson, ungur og vörpulegur tollvörður. Á þeirri stundu voru örlög þeirra ráðin, því þetta var ást við fyrstu sýn. Þau gengu í hjónaband 20. desember 1930 og bjuggu fyrst á Skólavörðustíg 4 en fluttu að Rán- argötu 22 árið 1932. Foreldrar Jónasar — Guðmundur Stefánsson, skútuskipstjóri og síðar lögregluþjónn, og kona hans Vigdís Vigfúsdóttir — byggðu þar reisulegt þriggja hæða hús ásamt börnum sínum og tengdabörnum. Þetta framtak á kreppuárunum er Ijós vottur um dugnað og sam- heldni þessarar fjölskyldu sem kaus að búa öll undir sama þaki þótt systkinin væru komin á fullorðins- aldur og tvö þeirra gengin í hjóna- band árið 1932 er þau fluttu í húsið. Elsta systirin, Þórunn, var gift Jóni Kristóferssyni, skipstjóra, en yngri systurnar, Sigríður og Anna, héldu heimili með foreldrum sínum meðan þeir lifðu. Húsið var í þjóðbraut. Þangað lögðu margir leið sína, frændur, vinir og venslamenn, ungir sem aldnir. Þar var því löngum gest- kvæmt. Frændrækni var mikil, frændgarðurinn stór og ekki skorti gestrisni. Allir voru þar aufúsugest- ir. Fimm ættliðir hafa búið í þessu húsi og sá fjórði — börn undirritaðs og Rannveigar Jónsdóttur Kristó- ferssonar og Þórunnar systur Jón- asar — er nú vaxinn úr grasi. Edith sómdi sér vel í þessari fjöl- skyldu. Hún var ágætiskona, greind, fróðleiksfús og forkur dug- legur. Hún starfaði árum saman í kvennaklúbbnum Vinahjálp, saum- aði út og gaf ótal fagra hluti, svo sem dúka, dregla, veggteppi og klukkustrengi sem voru seldir á árlegum mörkuðum félagsins en ágóðanum er varið til líknarmála. Mörg seinustu árin starfaði hún einnig sem sjálfboðaliði á vegum Rauða krossins við sjúkrahúsin í Reykjavík. Edith var listræn og listhneigð eins og hún átti kyn til. Margir fagrir munir gerðir af meistara- höndum hennar prýða heimilið sem var orðlagt fyrir rausn og myndar- skap. Hún keypti sér slaghörpu er hún var komin hátt á sjötugsaldur, fór í spilatíma og lék oft sér til ánægju. Edith átti góðan þátt í samheldni ijölskyldunnar. Veislurnar sem hún hélt fyrir hana svo og vini og kunn- ingja voru rómaðar og eftirsóttar, ekki síst af yngstu kynslóðinni enda var matargerð hennar við brugðið. Jafnan var glatt á hjalla í þessum samkvæmum. Á heimili þeirra Jónasar var margt merkra bóka. Þegar tal barst að fjarlægum löndum og þjóðum komu menn ekki að tómum kofan- um hjá húsmóðurinni á Ránargöt- unni. Augljóst var að hún lét bækur um þetta efni ekki rykfalla í bóka- skápnum en sat yfir þeim á síðkvöldum, einkum í skammdeg- inu. Þetta vissu fáir og því kom þekking hennar iðulega á óvart. Edith og Jónas áttu eina dóttur barna sem var yndi þeirra og eftir- læti, Önnu tungumálakennara. Hún var gift Heimi Áskelssyni, dósent í ensku við Háskóla íslands. Anna varð stúdent frá MR árið 1950 og lauk prófi í þýskri og enskri tungu frá Háskóla Islands 1965 og aflaði sér einnig framhaldsmenntunar er- lendis. Hún andaðist um aldur fram 15. janúar sl. aðeins 57 ára gömul og varð öllum ættingjum, vinum og venslamönnum harmdauði. Einkum fékk andlátið mikið á móðurina er syrgði hana sárt enda hafði samband þeirra alla tíð verið mjög náið. Nú hittast þær mæðgur aftur í hásölum hjá því almætti sem öllu ræður. Við sem bjuggum á Ránargötu 22 áratugum saman söknum títtnefndrar fjölskyldu, söknum hvers og eins er við kynntumst þar. Edith var sú síðasta er kvaddi þetta hús sem geymir svo margar ljúfar minningar frá liðnum árum. Stofurnar hennar á Ránargötunni standa nú auðar og þögnin ríkir þar ein. Edith er ógleymanleg öllum er kynntust henni. Hún skilaði dijúgu lífsstarfi og kvaddi þennan heim södd lífdaga. Á skilnaðarstundinni þökkum við Rannveig og bömin okkar, Jón, Þóra og Þorkell, sem og fjölskyldan öll, liðnar samverustundir á Ránar- götu 22 og sendum Heimi Áskels- syni, tengdasjmi hinnar Iátnu, inni- legar samúðarkveðjur. Ingólfúr A. Þorkelsson rrrnn!i STERKA RYKSUGAN SEM ENDIST LENGUR nú met.) nýjum 1000 w. mótor SÉRTILBOD stórlœkkad verð, nií aðeins 14^730 (stgr. 13.999,-) iFOnix HATÚNI 6A SÍMI (91)24420 t PÁLLPÁLSSON, Hákotsvör 2, Bessastaðahreppi, lést í St. Jósepsspítala, Hafnarfirði 13. júní. Jarðarförin hefur farið fram. Aðstandendur. t Eiginkona mín, GUÐLAUG BJÖRNSDÓTTIR, Hlemmiskeiði, Skeiðum, lést í Landspítalanum laugardaginn 24. júní. Sigurður Bjarnason. t Útför ÓLAFAR ÓLAFSDÓTTUR frá Breiðuvik, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. júní kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar B. Guðmundsson. RYMINGARSALA Hankook, kóreskir vðrubílahjfilbarðar Frábær gædadekk - Frábært verð t Bróðir okkar, KRISTJÁN THORBERG GUÐMUNDSSON, lést sunnudaginn 25. júní. Systkini hins látna. t Eiginmaður minn, GUÐJÓN ÁRNASON frá Ráðagerði, Akranesi, lést 25. júní. Hrafnhildur Ólafsdóttir. t 1100R20 Radial með slöngu frá kr 18.800,- \ 1200R20 Radial með slöngu fró kr 22.500,- 112R22,5 Radial frá kr 17.800,- 1 1000x20 Nylon Pneumant kr 13.800,- 112R22,5 Radial Pneumant kr 15.800,- í 1100x20 notuð herdekk kr 3.500,- 1100x20 notuð Conti/Dunlop kr. 7.500,- BARÐINN HF. Skútuvogi 2 - Símar 30501 og 84844. Blómastofa FriÖfinns Suöuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytíngar við öll tilefni. Gjafavörur. m 0DEXION léttir ykkur störfin APTON-smíöakerfið leysir vandann • Svörtstálrör • Grá stálrör • Krómuð stálrör • Álrör - falleg áferð • Allar gerðir tengja Við sníðum niður eftir máli LANDSSMIÐJAN HF. Verslun: Sölvhólsgötu 13 Sími (91)20680 \ferbatim Verbatim hágæða TEFLON disklingar ★ 3,5“, 2S/2D og 2S/HD ★ 5V4“, 2S/2D og 2S/HD ★ TEFLOIM vörn gegn kaffi, ryki og öðrum óhöppum ★ Forsniðnir ★ Hagkvæmustu kaupin Verbatim, einu disklingarnir með TEFLON vörn. ÞÓRf SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.