Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 41

Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 41
varð til þess að mitt í erilsömu prestsstarfi í Reykjavík tókst hon- um á nokkrum árum að skrifa heila bók um Nýja testamentið (Humour and Irony in the New Testament: Illuminated by parallels from Talmud and Midrash) þar sem hann greindi tvö fagurfræðileg hugtök, ironie, sem oft er rangþýtt háð, en merkir í raun vissa fjarlægð og afskiptaleysi, stundum biturt, en þarf alls ekki að vera það, og hum- or, sem eiginlega er ekki glettni, eins og oft er sagt, heldur viss létt- ieiki frásagnar sem byggir á nálægð og umhyggju. Mér sárnar að ég gat ekki sýnt séra Jakob ritgerð sem ég birti í erlendu tímariti um þessi hugtök og kom út einmitt 17. júní, á dánardægri hans. Það sem einkennir rannsókn Biblíunnar innan guðfræðinnar og hlutverk hennar á þeim vettvangi er einkum tvennt: Söguleg rann- sókn og viðleitni til þess að komast að kenningum Biblíunnar. Hér skipa því bókmenntalegar rann- sóknir oft lágan ef nokkurn sess. Þetta er í samræmi við það hve bókmenntirnar hafa orðið útundan í hefðbundinni guðfræðimenntun í Norður-Evrópu. Því má skjóta inn að undantekingu frá þessu er að finna á fyrstu árum díalektísku guðfræðinnar á meginlandinu. E. Thurneysen leiddi Dostojefskí til sætis í guðfræðirannsókn, en þaðan varð hann að víkja síðar. En stefna þessi komst á veg í Bandaríkjunum fyrir fjórum áratugum, og síðan m.a. hér og í nokkrum mæli annars staðar í Evrópu. Það er með hlið- sjón af þessu sem skilja ber áhuga séra Jakobs á rýni Nýja testament- isins á grundvelli fagurfræða. Hann var alla tíð áhugamaður um bók- menntir, einkum leikbókmenntir, og samdi fjölda leikrita samhliða prestsstarfinu. Þennan áhuga höfðu margir jafnaldarar hans, séra Síðla árs 1924 lýkur útgerðarþætti Ingjalds með því að vél skipsins verður ónýt. Þá býðst Ingjaldi staða fyrsta stýrimanns á togaranum Leifi heppna. Ingjaldur tekur boði þessu en verður lengur en hann ætlaði að ganga frá málum sínum er vörðuðu útgerð og fleira og nær því ekki að komast um borð í Leif heppna er hann heldur á veiðar upp úr áramót- um 1925. Varð það honum til lífs því skömmu síðar fórst Leifur heppni í aftaka veðri á Halamiðum með allri áhöfn, 33 mönnum. Ingjaldur gerist nú skipstjóri á síldveiðiskipi Ingvars Guðjónssonar og aflaði vel. Ingjaidur er ekki sátt- ur við þa'stefnu er sjómennska hans hafði tekið. Hann gengur því í land alkominn af sjó og ræðst í hús- byggingar. Þetta leiðir til þess að um 1933 skilar hann fullgerðum pallstiga sem sveinsstykki sínu. Bráðlega eftir það verður hann hús- asmíðameistari og verktaki. Hann stundar síðan vinnu sína af kappi og með vandvirkni til starfsloka um áttrætt. Ingjaldur bjó víða í borginni á MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJU[>AGUR 371.^lj3»jlr)-,989 41 Gunnar Árnason þýddi bók Dostoj- efskís, Bræðurna Karamazov (en hluti handritsins týndist hjá útgef- enda, og varð ekki af útgáfu). Séra Jakob var að eðlisfari glett- inn og gamansamur í alvörunni, en háð og neikvæð umíjöllun var hon- um víðs fjarri. Hann var óvenjuleg- ur maður, en einhvern veginn fór það svo að prestar sýndu honum aldrei verðskuldaða virðingu, skildu hann kannski ekki, sumir hverjir. Honum sárnaði oft deyfð hins and- lega og fræðilega lífs, en athygli vakti hann með þjóðinni sjálfri og telst enda til hennar fremstu sona. Séra Jakob er meðal sérstæðustu manna sem ég hef kynnst. Við vor- um ekki alltaf sama sinnis, en fé- lagsskapurinn um nýjar hugmyndir og rýni samtíðar var, held ég, báð- um mikils virði. Frú Þóra Einarsdóttir má nú í heilsuleysi sínu sjá á bak lífsföru- naut sínum eftir 61 árs farsælt hjónaband. Við hittumst í síðasta sinn 17. maí sl. á 85 ára afmæli öðlingsins dr. Björns Magnússonar fyiTv. pró- fessors, samstúdent hans og félaga úr guðfræðideild og úr hópnum sem kenndur er við tímaritið „Strauma", og lék séra Jakob þar á als oddi og sagði frá nýjum hugmyndum að leikþáttum. Hann var fullur sköpun- arkraftar allt til siðasta dags er hann skyldi flytja ávarp á Djúpa- vogi. Það eru góð örlög og fagur dauðdagi að njóta óskertrar anda- giftar til hinsta dags eftir ríkuleg og mörg ár. Og þar lauk hann ævi sinni sem hann hóf prestsstarfið, því að hann vígðist sem aðstoðar- prestur föður síns til þjónustu að Djúpavogi 22. júlí 1928. Lífið var honum Kristur. Ég hygg að hann hefði talið dauðann ávinning. — R.P. Reykjavík, 20. júní 1989, Þórir Kr. Þórðarson næstu áratugum. Þar á meðal á Silfurteig 6, Rauðalæk 2 og 13. Hann missti Kristjönu konu sína 19. júní 1940 (42 ára) frá fjórum börn- um. Þau erú eftirtalin: Guðrún, ekkja Eiðs Gíslasonar húsvarðar, Margrét, ekkja Hjálmars S. Thom- sen, múrara síðast í Grindavik, Þuríður gift Valdimar Auðunssyni frá Dalsseli, nú bónda að Grens- tanga í A-Landeyjum og Jón húsa- smiður í Reykjavík kvæntur Hrafn- hildi Magnúsdóttur. Ingjaldur giftist seinni konu sinni Soffíu Ólafsdóttur 1944 en hún lest 1980. Þeirra synir eiu: Ólafur Við- ar, matsveinn í Reykjavík, kvæntur Ragnhildi ísleifsdóttur og Guð- mann, húsasmiður í Reykjavík, kvæntur Eygló Guðmundsdóttur. Ég kynntist Ingjaldi fyrir um 38 árum þegar ég varð mágur Valdi- mars frá Dalsseli, tengdasonar Ingj- alds. Sú kynning var einkum tengd fjölskyldusamkomum af ýmsum til- efnum. Var þa'sýnt að Ingjaldur var mikinn persónuleika og í viðræð- um við hann kom greinilega í ljós skoðanafesta og góð greind. Þá Hinn 17. júní sl. lést afi okkar, sr. Jakob Jónsson, 85 ára að aldri. Okkur brá mjög er við fréttum skyndilegt fráfall hans, svo fjörmik- ill hafði hann verið allt til þeirrar stundar. Þróttur hans og hrífandi viðmót villtu um, svo að ekki lá í augum uppi að heilsu hans fór hrak- andi. Fijór í anda var hann gjöfull í okkar garð og virtist hafa margt á pijónunum. í næsta mánuði hugð- ist hann sækja vísindalega ráð- stefnu erlendis í sérgrein sinni. Nýlega voru frumfluttir leikþættir eftir hann og ný ljóð birtust iðulega. Er við ólumst upp erlendis var það eitt helsta tilhlökkunarefnið að sjá á ný ömmu okkar og afa. Afi sýndi okkur margt, en efst í minni eru heimsóknir með honum í Hall- grímskirkju. Gekk Hallgrímskirkja undir nafninu „kirkjan hans afa“. Ekki var óvanalegt að hitta fólk sem hann hafði skírt, fermt eða gift. Við erum stolt af að eiga afa sem okkur finnst hafa verið þjóðfélaginu jafnmikils virði og okkur sjálfum. Síðustu ár hefur hann verið okk- ur vinur sem afi. Alla tíð hafði hann mikinn og einlægan áhuga á viðleitni okkar og framförum. Stöð- ugt stóð hans mikla þekking til boða, stuðningur og holl ráð. í okk- ar augum var hann ævinlega bjart- sýnn, bar aldrei illan hug til neins manns og virti annarra manna skoðanir. Hann var í senn víðsýnn, skarpur og góðhjartaður. Afi hafði djúptæk áhrif á okkur. Við undirrituð vorum samofin lífi hans stuttan tíma úr langri ævi. Engu að síður lét hann okkur skilja að tilvist okkar væri honum megin- þáttur. Við eru þakklát fyrir það sem hann gaf okkur- í veganesti. Vésteinn Þórsson, Þóra Þórsdóttir, Jens Rothen- borg, Jórunn Rothenborg. varð maður oft vitni að því að hann var mikill húsfaðir sem naut þess að hafa börn sín, tengdabörn • og barnabörn í næstu nánd við sig, einkum á hátíðisdögum. Það var þó ekki fyrr en ég hafði átt langa viðræðu við hann 93 ára, þá vistmann á Hrafnistu í Reykjavík, að mér varð ljóst hve sterkri manngerð hann var upp- byggður andlega og líkamlega. Ekki síst með tilliti til þess að hann hafði að baki þá reynslu að hafa orðið tvisvar ekkjumaður og orðinn mjög sjóndapur. Ég minnist þess ekki að hafa átt svo langt og lifandi samtal við svo háaldraðan mann enn með hljóm- sterka rödd, sem þó var svo hlý og mjúk, kryddað glettni í mikilli frá- sagnargleði. Ég er innilega þakklát- ur fyrir það að hann leyfði mér að vera með í för um litrík minningar- lönd sín. Megi hann njóta blessun- arríkrar heimkomu eftir langan og strangan lífsdag í nafni hins mikla og volduga, sem var, er og verður. Konráð Bjamason, Öldutúni 18, Hafnarfirði. Þriðjudagstónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20.30 Friðrik Karlsson, Maarten van der Valk, Reynir Sigurðsson og Richard Korn verða með jazz- prógramm. Kaffistofan verður opin. Aðgöngumiðar á kr. 350,- fást við innganginn. A undan timanum i 100 ár. fyrir .... ... ... steinsteypu. Léttir meöfærilegir viðhaldslitlir. Ávallt fyrirliggjandi. Þ. ÞQRGRIMSSQN & C0 Armúla 29, sími 38640 FYRIRLIG6JANDI: GÓLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR STEYPUSAGIR - HRJERIVÉLAR - SAGARBLQÐ - Vflnfluð Iramlfliðsla. - 6000 - aukaspurningar fyrir Trivial Pursuitá hálfvirði. Fæst í öllum bóka- og leikfangaverslunum um land allt. Afturrúðugrindur á stórlækkudu verði. Mikið úrval. MEÐ TÓMA BUDDU Á EFTIRLA UNAÁRUNUMt Þó að fólk láti af störfiun ogsetjist í helgan stein verður ekkert ódýrara að lifa. Eftir sem áður þarf að kaupa mat, borga Jiita, rafmagn og síma, gefa bamabönnuium gjafir - og njóta lífsins. Æ fleiri gera sér því ljóst að það er ekki nóg að greiða hluta launanna í lífeyrissjóð og leggja fyrir aukalega upp á eigin spýtur. Þá skiptir meginmáli að spamaðurinn sé ömggur og ávaxtist vel. Tökum dæmi af hjónum sem leggja fyrir auka- lega 10.000 krónur á mánuði í 20 ár áður en þau fara á eftirlaun. Þannig gætu safnast tun 4 milljónir og hjónin gætu því haft um 44 þúsund krónur á mánuði í 10 ár í viðbótarlífeyri. VIÐBÓTARLÍFEYRIR EFTIR 20 ÁRA _________________SPARNAÐ______________________ Sþamahur Eign eflir 20 ár: Vibbótar lífeyrir á mánubi: á mánuði: 5.000,- 2.029.000,- 21.900,- lO.OOO,- 4.058.000,- 43.800,- Miðað er vii) að vextir haldist fastir 5 % yjir verðbólgu allan tímann ogaðgengiðséjafnt ogþétt á höfuðstólinn á 10 árum. Allarfjárliceðir eru í krónum og á mígildandi verðlagi. Aðalsmerld VIB er góð þjónusta og traust verðbréf sem gefa góða ávöxtun. Komdu við í Armúla 7 og kynntu þér leiðir til að safna góðum eftirlaunasjóði á þægilegan og fyrirhafnarlítinn hátt. Þú getur líka hringt í sírna 681530. VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.