Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 42
42
MQfiGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JUNI 1989
fclk í
fréttum
STEIGEN SAGASPIL
Færðu borg-
borgarstjóra
gjof
Hér var nýlega á ferð norskur
leikhópur sem kallar sig
Steigen Sagaspil. í hópnum eru
áhugaleikarar frá smábænum
Steigen í Norður-Noregi. Þeir fluttu
leikverk eftir sögunni um Hagbarð
og Signýju á Mikiatúni sunnudag-
inn 18. júní. Sýningin þótti takast
vel þó veðurguðimir væru henni
ekki sérlega hliðhollir.
í lok dvalarinnar færðu leikar-
arnir Davíð Oddssyni, borgarstjóra
Reykjavíkur, mynd að gjöf.
Gauti Kristmannsson, formaður félags FSÞ, afhendir Brian Holt
heiðursskjal.
SJONVARPSÞYÐENDUR
Brian Holt kjör-
inn heiðursfélagi
Félag sjónvarpsþýðenda hjá
]
Ríkisútvarpinu hélt á dögunum
COSPER
lOPIB
.Hl
II/.
COSPER 10877
aðalfund sinn. Á fundinum var kjör-
inn fyrsti heiðursfélagi félagsins,
Brian Holt, fyrrverandi ræðismaður
Breta á íslandi. Sjónvarpsþýðendur
kusu hann heiðursfélaga vegna
þeirrar miklu og óeigingjörnu að-
stoðar sem hann hefur veitt þýðend-
um alveg frá því Sjónvarpið tók til
starfa fyrir rúmum tveimur áratug-
um. Brian Holt hefur alltaf verið
boðinn og búinn að hjálpa þeim sem
til hans hafa leitað og hefur ófár
skjátextinn verið rétt þýddur fyrir
hans tilhlutan. Kjör hans er því
örlítill þakklætisvottur félagsins
fyrir hans mikla og merka framlag.
- Hvers vegna hélstu þér ekki í húninn?
UPPBOÐ
Góðir gripir til sölu
Bentley-bifreið, sem í eina tíð
var í eigu bresku Bítlanna, var
boðin upp á uppboði í New York á
dögunum. Eigandinn hafði krafist
a.m.k. 800.000 Bandarikjadala (um
17 milljóna ísl. kr.) fyrir gripinn en
svo undarlega vildi til að enginn
hafði áhuga á ökutækinu. Fyrir-
fram höfðu menn búist við því að
slegist yrði um bílinn því hann þyk-
ir einn merkilegasti minjagripurinn
um Bítlaæðið sem gagntók ung-
menni í Evrópu og Bandaríkjunum
á sjöunda áratugnum.
Búningur sem leikkonan Marilyn
Monroe skrýddist er hún lék í kvik-
myndinni „Bus Stop“ þótti á hinn
bóginn eftirsóknarverður. Gífurleg
spenna ríkti í sölum uppboðsfyrir-
tækisins Christie’s er sýningar-
stúlka í gervi Marilyn Monroe ark-
aði um salinn og menn tóku strax
að bjóða. Sá sem hreppti búninginn
þurfti að reiða fram tæplega 21.000
dali (um 1,2 milljónir kr.) og þóttist
heppinn.
Mesta athygli vakti þó handrit
Hermans J. Mankiewicz að kvik-
myndinni „Citizen Kane“. Fyrirtæki
eitt í _ New York-borg greiddi
Sýningarstúlka í gervi Marilyn
Monroe sýnir viðstöddum bún-
inginn sem leikkonan dáða
skrýddist er hún lék í kvikmynd-
inni „Bus Stop“.
232.000 dali (um 13,2 milljónir
króna) fyrir handritið. Orson Wells,
einn almagnaðasti snillingur kvik-
myndasögunnar, lék aðalhlutverkið
EDDUHÓTEL
Samráðsfímdur um sumarið
Eflaust eiga margir, sem
leggja leið sína um landið í
sumar, eftir að koma við á Hótel
Eddu og þiggja veitingar og gist-
ingu.
Sextán Edduhótel verða starf-
andi í sumar.
Að ofan má sjá Kjartan Lárus-
son, forstjóra Ferðaskrifstofu Is-
lands, í hópi vaskra hótelstjóra
Hótel Eddu.
Myndin er tekin eftir samráðs-
fund um Eddusumarið ’89 sem
haldinn var helgina 11.- 12. júní
síðastliðinn.
ekkibara heppni
Morgunblaðið/Þorkell
Við afhendingu gjafarinnar til borgarstjóra. Unni Gylseth, Björn
Stemland, Davíð Oddsson, Marit Stemland, Ásmund Gylseth og Hal-
vard Helgesen.
HVERVANN?
Vinningsröðin 24. júní:
122 - X21 -112-111
Heildarvinningsupphæð: 436.528 kr.
12 réttir = 349.992 kr.
18 voru með 12 rétta - og fær hver í sinn hlut 19.444 kr.
11 réttir = 86.536 kr.
232 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut 373 kr.
Steindár Sendibílar