Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 49

Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 49 Morgunblaðið/Sverrir Henning Christophersen, varaforseti framkvæmdanefndar EB, Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, og Birgir Árnason, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, á fréttamannafundi í gær. ísland og EB: Astæða til að ræða við- skiptin í víðara samhengi - segir Henning Christophersen, varaforseti framkvæmdaneftidar Evrópubandalagsins HENNING Christophersen, varaforseti framkvæmdane&idar Evr- ópubandalagsins (EB), segir að grundvallarafstaða bandalagsins sé enn sem fyrr sú að óheftur aðgangur að mörkuðum bandalags- ins með fiskafurðir fáist ekki nema í skiptum fyrir veiðiréttindi. Á fundi með fréttamönnum í gær sagðist hann hins vegar ekki sjá neitt þvi til fyrirstöðu að ræða viðskipti íslands og EB í viðara samhengi enverið hefur. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, gest- gjafí Christophersens hérlendis, minnti á að sumar hliðar fisk- veiðimála væru alþjóðlegar í eðli sínu og ekkert því til fyrirstöðu að vinna með Evrópubandalaginu að slíkum málum. Nefiidi hann einkum mengunarvarnir í því sambandi og eftirlit með flökkustofh- um. Á sameiginlegum fréttamanna- fundi Christophersens og Jóns Sigurðssonar kom fram að þeir litu svo á að viðræður væru hafn- ar um viðskipti íslands og EB til dæmis með heimsókn Christop- hersens hingað til lands. Einnig stæði til að Manuel Marin, sem fer með sjávarútvegsmál innan framkvæmdanefndar EB, kæmi hingað til viðræðna við Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra. Viðræður Fríverslunarsam- taka Evrópu (EFTA) og EB sem íslendingar munu leiða frá og með 1. júlí myndu einnig snúast um hvaða mál væri best fyrir íslend- inga að ræða í samstarfi við önn- ur EFTA-ríki og hvaða atriði væri nær að ræða af hálfu hvers ríkis fyrir sig. Jón Sigurðsson sagðist bjartsýnn á að ákvæði í yfírlýsingu leiðtogafundar EFTA í Ósló í Noregi í mars síðastliðnum um fríverslun með fisk yrði tekið upp í hugsanlegum samningi EFTA og EB. Þegar Henning Christophersen var spurður hvernig fram- kvæmdanefndin sæi fyrir sér eft- irlit með framkvæmd slíks sam- komulags EFTA og EB svaraði hann því til að Evrópubandalagið * hefði nú þegar dómstól sem .reyndist vel, Evrópudómstólinn í Lúxemborg. • Jón Sigurðsson afhenti Henn- ing Christophersen. starfsáætlun sem norræna ráðherranefndin samþykkti nýverið um Norðurlönd og Evrópu 1989-92. Áætluninni er ætlað að tengja norrænt sam- starf hinum fyrirhugaða innri markaði Evrópubandalagsins. Þar er gerð grein fyrir 80 verkefnum sem norrænu ríkisstjórnirnar fímm hafa samþykkt sem mark- mið norræns samstarfs á þessu sviði á næstu árum. Eitt af mark- miðum starfsáætlunarinnar er að auka verulega kynningu á Norð- urlöndum og norrænu samstarfí í Vestur-Evrópu, einkum í stofn- unum Evrópubandalagsins. Kvennalistinn ítrekar mótmæli við heræfing’um Kvennalistinn hefiir ítrekað mótmæli sín við æfíngar varaliðs á Miðnesheiði. í fréttatilkynn- ingu segir að Kvennalistakonur hafi á fundi með fiilltrúum þátt- takenda í heræfingunum aflient þeim yfirlýsingu þar sem æfing- unum er mótmælt. I yfirlýsingunni segir að ísland sé einn möskvinn í hernaðameti stórveldanna og að á undanfömum ámm hafí íslendingar flækst fastar í það net. Kvennalistinn vill að allar hernaðarframkvæmdir verði stöðv- aðar hér á landi og lýsir sig andvíg- an hugarfari hermennskunnar. Kvennalistinn telur heræfingar hér á landi í hrópandi andstöðu við bætta sambúð þjóða í heiminum. Því séu heræfíngar á íslandi tíma- skekkja 44 ámm eftir að heims- styrjöldinni síðari lauk. Morgunblaðið/ Ami Johnsen. xxutei x'unsiun a deiiossi sem nú tilheyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands og verður heima- vist 25 nemenda. Svavar Gestsson menntamála- ráðherra afhendir Þór Vig- fússyni skólameistara lykilinn að Þóristúni. Selfoss: Fj ölbrautaskólinn fær Hótel Þóristún fyrir heimavist Svavar Gestsson menntamála- ráðherra hefiir afhent Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Sel- fossi Hótel Þóristún á Selfossi sem heimavistarhúsnæði. Þar verður heimavistaraðstaða fyrir 25 nemendur, en igölbrautaskól- inn hefiir ekki haft heimavistar- aðstöðu hingað til þótt þörf sé á heimavist fyrir 80-90 manns. Ríkissjóður keypti Hótel Þóris- tún á 17 milljónir króna. Þór Vigfiísson skólameistari veitti húsinu viðtöku í hófi sem fram fór í heimavistarhúsinu. Á sumrin verður Þóristún leigt út sem hótel, og í sumar er það tengt hótelþjónustu Hótels Selfoss. í vetur stunduðu 528 nemendur nám í fjölbrautaskólanum auk 150 í kvöldskóla og 23 í Skógum. Sumarbúðir á Núpi Nupi. SUMARBÚÐIR barna og unglinga verða haldnar á Núpi í sumar eins og undanfarin ár. Héraðssamband Vestur-ísfirðinga (HVÍ) ásamt Æskulýðsfélagi VestQarða standa að búðunum. Haldin verða tvö námskeið fyrir böm 7-10 ára, 22.-29. júní og 12.-19. júlí. Eitt námskeið fyrir. ll-13ára, 1.-10. júlí, og eitt unglinganámskeið fyrir 14-16 ára 21.-23. júlí ef næg þátttaka fæst. Leiðbeinendur eru allir vel hæft fólk með menntun og reynslu á þessu sviði. Mikið er lagt upp úr íþróttum og útivist á námskeiðunum auk kristilegrar fræðslu, kvöldvökur eru haldnar o.fl. Námskeið þessi eru mjög vinsæl og hafa verið nær fullbókuð siðustu árin. Góð aðstaða er á Núpi til sumar- búðahalds, íþróttasalur, lítil sund- laug, fagurt umhverfi, fjölbreytt lífríki, sjór og skemmtileg sandfjara. Innritun fer fram hjá séra Magnúsi milli klukkan 17 og 19 virka daga og hjá forstöðumanni, Kára Jóns- syni, klukkan 10-12 virka daga. - Kári HRINGFERÐ ÍSLENDINGA UM ÍSLAND 22. JÚLÍ FERDASKRIFSTOFA ÍSLAND5 Skógarhlíð 18 101 Reykjavík sínu 91-25855 Skoðaðu ísland í skemmtilegri tíu daga hringferð. Brottför frá Reykjavík 22. júlí. Stansað er á fallegum útsýnisstöðum, þekkt náttúrufyrirbæri og sögustaðir skoðaðir. Ferðin er þægileg og sérlega fróðleg. Þessi ferð kostar 53.500 kr. og innifalinn er morgunverður, kvöldverður og gisting í tveggja manna herbergi á Reykjum í Hrútafirði, Siglufirði, Akureyri, Laugum, Eiðum, Hornafirði, Kirkjubæjar- klaustri og Skógum. Leiðsögumaður -er: Guðmundur Guðbrandsson. Pantaðu sæti strax í dag. Visa og Euro greiðslukjör. Ellilífeyrisþegar fá 1Ö% afslátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.