Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 50

Morgunblaðið - 27.06.1989, Page 50
50______ Selfoss MOftGUNBLAÐlÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1989 Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp álykta: Opinbert ráð gæti laga- legra réttinda fatlaðra Á sameiginlegum fiindi Ör- yrkjabandalags Islands og Landssamtakanna Þroskahjálp- ar var samþykkt ályktun þar sem því er beint til samstarfsnenfdar samtakanna að hún kanni mögu- leika á því að komið verði á fót opinberu ráði sem gæti lagalegra réttinda fatlaðra. í fréttatilkynningu segir að slíkt ráð gæti aukið réttindagæslu fatl- aðra. Ráðið þyrfti að vera ráðgef- andi um réttindamál fatlaðra, tæki við kærum, rannsakaði mál og reyndi að koma á sáttum á milli deiluaðila. Að öðrum kosti höfðaði það mál fyrir dómstólum. Samvinna Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabanda- lagsins hefur aukist undanfarin misseri. Félögin hafa haldið fundi þar sem rætt hefur verið hvernig betur megi ná árangri í hagsmuna- baráttu fatlaðra. Fyrir stuttu héldu félögin málþing sem bar yfirskrift- ina „Réttur okkar til að hafa áhrif á eigið líf“. Málþingið er liður í norrænu samstarfi sem miðar að því að.auka áhrif þroskaheftra á eigið líf. Morgunblaðið/Árni Helgason Grásleppan hangir i trönunum og bíður síns tíma. Ölfusá yggldi sig fyrsta veiðidaginn Selfossi. FYRSTI laxveiðidagurinn í Olf- usá við Selfoss var 21. júní, á stöng og í net. Áin var ekki gjöf- ul þennan fyrsta dag og enginn lax kom á land. • • Oxarfjörður: • • Okumaður slapp, en bifreiðin gjörónýt Skinnastað. ALVARLEGT umferðaró- happ varð við brúna á Naustá í Núpasveit í Norður-Þing- eyjarsýslu sunnudaginn 25. júní. Okumaður ók á brúar- handrið og reif það af. Öku- maðurinn sem var einn í bílnum slapp en bíllin er gjör- ónýtur. Það var á sunnudagsmorgun sem óhappið varð, ökumaður- inn reif með sér 7-8 metra langt brúarhandrið úr málmi og steypu í gegnum allan hægri helming bilsins og tætti hann í sundur og stóð handriðið langt aftur úr skottinu. Ökumaður komst út úr flak- inu og höfðu vefarendur snöggvast tal af honum, en síðan hvarf hann upp í heiði. Umferð á heiðinni stöðvaðist í rúmar 2 klukkustundir uns lög- regla kom á staðinn. Ókumaðurinn fannst á sveitabæ í grenndinni og var fluttur í sjúkrahúsið á Húsavik. - Sigurvin Einn ræðumanna í púltí á mál- þingi Þroskahjálpar og Öryrkja- bandalagsins um rétt þroska- heftra tíl áhrifa á eigið líf. Ölfusá yggldi sig þennan fyrsta dag með miklu og köldu vatns- magni. Stangveiðimenn reyndu til þrautar en höfðu frekar litla trú á veiðiskapnum enda sást enginn lax bylta sér hvað þá að hann gæfi agninu gaum. Sama var hvort reynt var á Efsta svæði, Miðsvæði eða í Vikinni. Selfossbændur fóru á vélknúnum gúmmíbát að vitja neta þar sem ófært var að netunum á annan hátt. Með minnkandi vatni í ánni búast veiðimenn við þokkalegu sumri. — Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurdur Jónsson. Klara Sælan rennir fyrir lax í Víkinni. Þátttakendur á ráðstefiiu um þróun námshugbúnaðar. Ráðsteftia um gagnavinnslu: Rætt um þróun námshugbúnaðar RÁÐSTEFNA alþjóðasamtaka um gagnavinnslu var haldin í Reykjavík í síðustu viku. Að sögn Önnu Kristjánsdóttur, dósents við KHÍ, var einkum fjallað um þróun námshugbúnaðar fyrir börn og unglinga á aldrinum 11 tíl 20 ára á ráðstefnunni. Til ráðstefnunnar var boðið 60 ára, jafnt innan skóla sem utan. Morgunblaðið/Bjami útlendingum frá fleiri en 20 þjóð- um, auk 20 Islendinga. Á ráð- stefnunni voru flutt yfir 20 erindi og einnig unnu þátttakendur í vinnuhópum. Fjallað var um þró- un námshugbúnaðar fyrir börn og unglinga á aldrinum 11 til 20 Þátttakendur á ráðstefnunni gegna ýmsum störfum innan menntakerfsins, vinna m.a. að þróun stórra hugbúnaðarverkefna og að sérverkefnum með kennur- um. Einn fyrirlesara á ráðstefiiunni var Frakkinn Jacques Heben- streit. Jarðgöng undir Hvalíj örð skipta Akumesinga miklu Akranesi. BÆJARRÁÐ Akraness fagnar því frumkvæði, sem Sementsverk- smiðja ríkisins og Islenska járnblendifélagið hf. hafa haft um gerð jarðganga undir HvalQörð og telur að áform þeirra um rannsóknir, framkvæmdir og rekstur mannvirkis séu sveitarfélögum og ríkinu ákaflega hagkvæmar. smiðju ríkisins þar sem fram- kvæmdastjórar fyrirtækisins skýrðu fyrir honum hugmyndir sínar og útreikninga. Ólafur mun hafa haft á orði að þessi heimsókn hafi sýnt honun hve vestlendingar tækju þetta mál alvarlega og væru augljóslega búnir að skoða það vel. - JG Þetta kemur m.a. fram í bókun sem gerð var á bæjarráðsfundi á Akranesi fyrir skömmu. I bókuninni er þeirri áskorun eindregið beint til samgöngumálaráðherra að tekin verði sem fyrst jákvæð afstaða til erindis fyrirtækjanna þannig að ljúka megi nauðsynlegum rann- sóknum og hefja framkvæmdir eins fljótt og kostur er, enda um að ræða hagkvæma framkvæmd og gífurlega samgöngubót. Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akra- nesi sagði í samtali við Morgun- blaðið að Akumesíngar teldu jarð- gangagerð undir Hvalijörð skipta þá verulegu máli. Slík framkvæmd hefur mikið að segja fyrir byggða- þróun á svæðinu og frekari tenging við Reykjavíkursvæðið er okkur mikilvæg. Gísli sagði það nýlundu hér á landi að fyrirtæki beittu sér fyrir framkvæði í slíkum fram- kvæmdum og því væri ástæða til að samgöngumálaráðuneytið taki einnig við sér. Aðspurður um þá skoðun ráðherra að sveitarfélög og ríkisvald þurfí að hafa framkvæði og samstarf um slíka framkvæmd við Hvalfjörð sagði Gísli það skóta nokkuð skökku við afstöðu til ann- arra jarðgangagerða í landinu. Þetta á fyrst og fremst að vera framkvæmd á vegum ríkisins og ef einhveijir aðilar vilja koma þar nærri og hafa áhrif á framkvæmdir er það af hinu góða, sagði Gísli að lokum. Þess má geta að Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra var í kynnisferð á Akranesi á dögunum fór m.a. í heimsókn í Sementsverk- Stykkishólmur: Minni bátunum fj ölgar Stykkishóimi. ÞEIM fjölgar minni bátunum í Hólminum. Bæði er það að báta þarf að nota í eyjaferðir, tíl að huga að varpi og öðru sem þar skiptír máli og svo fyrir tveimur árum var alveg ágæt grásleppu- vertíð og afúrðin í háu verði. Þá réðst Finnur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Bjargar hf., ásamt hluthöfúm í að koma sér upp kavíarverksmiðju tíl að vinna grásleppuhrogn. í fyrra var minna um grásleppu- veiði hér, en í vor virtist betur horfa. í fyrra gerði storma sem fylltu netin af ýmsum óhroða, sem varð til þess að menn áttu erfitt með að ná netum úr sjó. Vonandi verður betra sumar nú. - Ámi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.