Morgunblaðið - 27.06.1989, Side 52
ffgunfybiMfe
ÞRIÐJUDAGUR 27. JUNI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
Birgðir aukast 1
Bandar íkj unum
Verð á þessum afurðum talið vera stöðugt
MJÖG rólegt er nú yfir viðskiptum með fisk í Bandaríkjunum. Birgðir
fara vaxandi vestra og bendir það ekki til þess að verðhækkana megi
vænta á næstunni. Mánaðarritið The Erkins Seafood Letter segir að
sala sjávarafúrða dragist nú saman meðan viðskipti á öðrum sviðum
fari vaxandi. Ritið hefúr það eftir ónafngreindum frammámanni í grein-
inni að staðan sé sú versta sem hann hafi kynnzt á 30 ára starfsferli
sinum. Stjómendur íslenzku fisksölufyrirtækjanna vestra taka ekki svo
djúpt í árinni, en segja að sumarið sé ætíð rólegur tími og sala þeirra sé
á svipuðu róli og á sama tíma í fyrra, sem reyndar var slakt ár.
The Erkins Seafood Letter segir
að sjávarafurðir hafi tapað markaðs-
hlutdeild, bæði á matvöruverzlunum
og þjónustu: „Markaðshlutdeild sjáv-
arafúrða dróst saman, bæði í verzl-
unum og á veitingahúsum 1988 og
enn dregst hún saman. Árið 1988
minnkaði neyzla sjávarafurða á
mann úr 15,4 pundum í 15.“ Birgðir
þorskflaka fara nú vaxandi, en eru
þrátt fyrir það mun minni en á sama
tíma í fyrra. Birgðir í maímánuði
voru taldar nema um 12.800 tonnum,
en í sama mánuði í 'fyrra voru þær
15.600 tonn. Á síðustu árum hafa
birgðir aldrei verið meiri í maí og
júní en í fyrra. Um áramót voru
birgðirnar um 10.000 tonn en fóru
í febrúar niður í tæp 7.000. Svipaða
sögu er að segja um birgðir af þorsk-
• blokk. í maí nú voru þær 8.700 tonn,
en í fyrra 15.700. Um áramót voru
birgðir rúm 10.000 tonn, en fóru
lægst í febrúar í 6.350. Frá áramót-
um hefur nokkuð gengið á birgðir
af Alaska-ufsablokk. 8.250 tonn voru
í birgðum um áramót, en eru nú
6.700 tonn. í maímánuði í fyrra voru
birgðimar aðeins 3.500 tonn og hef-
ur ekki síðustu ár verið meira í birgð-
um en um þessar mundir.
Pétur Másson, upplýsingastjóri
Coldwater, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að hjá fyrirtækinu væri
sala af unnum afurðum svipuð og á
síðasta ári, en flakasala hefði aukizt.
Að vísu yrði að taka það fram að
síðasta ár hefði verið afleitt. Lítið
væri að gerast í sölu matvæla og
birgðir af fiski færu vaxandi, enda
sumarið venjulega rólegur tími.
„Sumir spá verðhækkunum á næst-
unni vegna væntanlegs fiskskorts
með haustinu. Aðrir segja verðið
hafa náð eðlilegu hámarki. Hvort er
rétt vil ég ekki segja, framtíðin ein
leiðir það í ljós,“ sagði Pétur Másson.
Magnús _Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood, sagði
samanburð milli þessa árs og síðasta
erfiðan og kannski lítt marktækan
vegna slæms gengis í fyrra. Sala
unninna afurða hjá fyrirtækinu hefði
dregizt saman fyrstu þrjá mánuði
ársins, en færi vaxandi á ný þó jöfn-
uði við síðasta ár væri enn ekki náð.
Hins vegar hefði flakasalan aukizt.
Hann sagðist tregur til að spá um
framhaldið, en verð á flökum hefði
verið stöðugt í 2,30 dollurum á pund-
ið og blokkarverðið í 1,55. Vaxandi
birgðir bentu til stöðugleika í verði
svo fremi sem þær .yrðu ekki langt
umfram eftirspurn. Því mætti ætla
að verð á þessum afurðum okkar
héldist stöðugt.
Morgunblaðið/BB
Harri Holkeri, forsætisráðherra Finna, og eiginkona hans, Liisa, komu í gær til Iandsins í opin-
bera heimsókn. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og kona hans, frú Edda Guðmunds-
dóttir, tóku á móti þeim við komuna til Keflavíkurflugvallar.
Forsætisráðherra Finna í heimsókn
HARRI Holkeri, forsætisráð-
herra Finna, kom í opinbera
heimsókn til Islands í gær. Ráð-
herrann dvelst hér fram á
fimmtudag.
Finnski forsætisráðherrann,
eiginkona hans Liisa og fylgdarlið
komu til landsins síðdegis í gær
og í gærkvöldi sátu þau veislu í
Súlnasal Hótels Sögu í boði
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra og konu hans, frú
Eddu Guðmundsdóttur. Ráðherr-
ann mun eiga fund með
Steingrími Hermannssyni í ráð-
herrabústaðnum fyrir hádegi í dag
og síðan snæða hádegisverð _ á
Bessastöðum í boði forseta ís-
lands, frú Vigdísar Finnbogadótt-
ur.
Á morgun munu finnsku for-
sætisráðherrahjónin snæða há-
degisverð í forsætisráðherrabú-
staðnum á Þingvöllum en eftir
hádegi fara þau að Gullfossi og
Geysi. Annað kvöld bjóða þau svo
til kvöldverðar í Átthagasal á
Hótel Sögu. Heimsókninni Iýkur
á fimmtudaginn.
Sjá viðtal við Harri Holkeri
á blaðsíðu 20.
Borgardómur Reykjavíkur:
Magnús Thoroddsen víki úr
embætti hæstaréttardómara
BORGARDÓMUR Reykjavíkur
hefúr komist að þeirri niðurstöðu
að Magnús Thoroddsen skuli
víkja úr embætti hæstaréttar-
Við vinnu í Hljómskálagarðinum. Morgunblaðið/Þorkell
Yinnuskólinn:
1600 imgmenni fá vinnu
UM 1.600 unglingar starfa í sumar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur
í 84 flokkum. Leiðbeinendur og stjórnendur flokkanna eru lið-
lega 100.
Að sögn Arnfinns Jónssonar,
skólastjóra Vinnuskólans, starfa
flestir unglingarnir við hreinsun,
snyrtingu og minni háttar viðhald
á lóðum skóla og barnaheimila í
borginni. Þeir starfa einnig að
gróðursetningu í Heiðmörk og 12
vinnuflokkar, um 180 manns,
starfa við uppgræðslu á Nesjavöll-
um. Auk þessa er ellilífeyris-
þegum boðin aðstoð við garðvinnu
og einn flokkur smíðar yfir sumar-
ið vinnuskúra til notkunar á næsta
ári.
dómara þar sem hann hafi með
kaupum á 2.160 flösEum af áfengi
á kostnaðarverði árin 1987 og
1988, rýrt svo álit sitt siðferði-
lega að hann megi ekki gegna
embætti. Hins vegar telur dóm-
urinn að ráðherra hafi ekki verið
heimilt að víkja Magnúsi úr emb-
ætti um stundarsakir og skerða
Iaun hans um helming meðan
dóms var beðið. Var ríkissjóður
því dæmdur til að greiða Magn-
úsi þau laun sem hann hefúr
misst frá brottvikningu, 388 þús-
und krónur auk vaxta. Magnús
Thoroddsen hefúr þegar ákveðið
að áfrýja málinu til Hæstaréttar.
í niðurstöðum dómsins segir að
reglur um áfengiskaup á kostnaðar-
verði hafi verið þess efnis og þann-
ig framkvæmdar um langt árabil
að þeim sem þær náðu til hafi ver-
ið heimil kaup á áfengi til einka-
nota. Þá segir að áfengiskaup á
kostnaðarverði séu forréttindi sem
fáir njóti og slík forréttindi séu
ætíð vandmeðfarin. Þeim sem
þeirra njóti beri að gæta hófsemi
og velsæmis við meðferð þessara
forréttinda og hafa í huga virðingu
þeirra stofnana ríkisins sem þeir
séu í forsvari fyrir. Ekki verði talið
að við nákvæmari viðmiðanir hafi
verið að styðjast.
Þá er rakið að fyrir hvern þann
mánuð, sem Magnús Thoroddsen
gegndi embætti forseta Hæstarétt-
ar, hafi mismunur á kostnaðarverði
og útsöluverði þess áfengis sem
hann keypti numið 112.058 krón-
um, alls rúmum 2,5 milljónum
króna. Telja verði að með þessum
áfengiskaupum hafi hann rýrt svo
mjög álit sitt siðferðilega að hann
megi ekki lengur gegna dómara-
embætti.
Magnús Thoroddsen sagði við
Morgunblaðið, að með þessum dómi
hefði í bæjarþingi Reykjavíkur verið
sniðgengin sú grundvallarregia í
réttarfari, að uppfylli málsaðili ekki
sönnunarskyldu sína verði að leggja
fullyrðingar gagnaðila til grundvall-
ar. Magnús sagðist hafa haldið því
-fram í málinu að sér hefði verið
heimilt að kaupa áfengi til einka-
nota og engin takmörk um magn
hafi verið finnanleg í reglum. Þetta
hafi dómurinn fallist á.
Magnús sagðist ennfremur hafa
haldið því fram að áfengiskaup sín
hefðu verið í samræmi við það sem
aðrir þeir sem nutu sömu kjara
hefðu tíðkað. Hann hefði óskað eft-
ir upplýsingum frá dómsmálaráð-
herra um það hvernig slíkum
kaupum hefði verið háttað síðustu
áratugi, og því hefði ráðherra neit-
að. Þar með hefði ráðherra ekki
fullnægt sönnunarskyldu sinni.
Halldór Ásgrímsson dómsmála-
ráðherra sagði að með dóminum
væri í meginatriðum fallist á kröfur
ríkisvaldsins. Hann sagði að beðið
yrði álits Hæstaréttar á hæfi dóm-
ara réttarins til að fjalla um mál
þetta áður en ákveðið yrði hvernig
ætti að standa að skipun dómara
til að fjalla um málið í Hæstarétti.
Sjá dómsniðurstöður, yfirlýs-
ingu Magnúsar Thoroddsen og
ummæli dómsmálaráðherra á
bls. 16 og 17.
Japanir vilja kaupa
hlut í íslandslaxi
JAPANSKUR aðili mun hafa áhuga á því að kaupa hlut í íslands-
laxi hf. Fyrirtækið býr nú við mikinn rekstrarvanda og hefúr
fengið greiðslustöðvun til þriggja mánaða. Axel Gíslason sljórnar-
formaður Islandslax segir að til greina komi að taka nýjan eigna-
raðila, hugsaniega japanskan, inn í fyrirtækið og sé þetta einn
af þeim möguleikum sem skoðaðir verða meðan á greiðslustöðvun-
inni stendur.
„Fyrirtækið hefur nú fengið
greiðslustöðvun og við erum að
leita leiða til að koma rekstrinum
í viðunandi horf,“ segir Axel Gísla-
son. „Eitt af því sem til greina
kemur er nýr eignaraðili en spurn-
ingin er hvort núverandi eigendur
viIji selja hlut sinn í fyrirtækinu."
íslandslax hf. er f eigu Sam-
bandsins, tveggja dótturfyrirtækja
þess, og norska fyrirtækisins
Noraqua sem á 49% hlutafjár.