Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 7
h:-...«í WftWmHétn'MlAVTU
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JULI 1989
I.tlí. M/il !)IC
7
Óvenju mikið er af
vargi á Suðumesjum
Vog^uin.
SAMBAND sveitarfélaga á Suður-
nesjum veitir veiðisljóra eitt-
Reykjavík:
Hannes ráðinn
liafnarstjóri
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu hafnarstjómar um að Hannes
Jón Valdimarsson aðstoðar hafn-
arstjóri, verði ráðinn hafharstjóri
í Reylyavík frá og með 1. ágúst
næstkomandi.
Hannes hóf störf hjá Reykjavíkur-
höfn, sem verkfræðingur árið 1967
og síðar yfirverkfræðingur en var
ráðinn aðstoðar hafnarstjóri árið
1986. Hann tekur við af Gunnar B.
Guðmundsson hafnarstjóra, sem
gengt hefur embættinu frá árinu
1965 og lætur nú af störfum að eig-
in ósk. ____ _ _______
Garðabær:
Traust jQárhags-
staða bæjarsjóðs
ÁRSREIKNINGAR bæjarsjóðs
Garðabæjar fyrir árið 1988 hafa
verið samþykktir í bæjarstjóm.
Þar kemur fram að veltufjárhlut-
fáll sjóðsins var 1,7 í árslok en var
1,1 árið á undan. Hreinar tekjur
að frádregnum vöxtum vom rúm-
ar 158,1 miHjón króna, en vom
rúmar 99,6 milljónir króna árið
1987.
„Það er óhætt að fullyrða að af-
koma bæjarins batnað til muna árið
1988. “ sagði Ingimundur Sigurpáls-
son bæjarstjóri. „Fjárhagsstaða bæj-
arins er mjög traust, þar sem tekist
hefur að ná þeim markmiðum síðustu
ára, að lagfæra greiðslustöðu bæjar-
ins.“
Samkvæmt ársreikningi hækkaði
hreint veltufé bæjarsjóðs um rúma
73,7 milljónir árið 1988. Heildar
eignir bæjarfélagsins jukust um rúm-
ar 500 milljónir, úr rúmum 1,5 millj-
arði í rúma 2 milljarða. Heildarskuld-
ir bæjarsjóðs voru í árslok rúmar
303,4 milljónir, en voru rúmar 207,7
árið 1987.
Viðbótarlán fískeldis:
Fyrstu lánin af-
greidd í vikunni
BÚIST er við að fyrstu fiskeld-
isstöðvarnar fái viðbótarafurðalán
út á greiðslutryggingar Trygg-
ingasjóðs fiskeldislána í Lands-
bankanum í þessari viku. Fram-
kvæmdasjóður hefúr samþykkt
ábyrð til bankans á fyrstu fyrir-
tækjunum, að sögn Snorra Tómas-
sonar hagfræðings hjá Fram-
kvæmdasjóði og er málið í vinnslu
í Landsbankanum.
Til að fá þessi viðbótarlán þurfa
fiskeldisstöðvarnar að greiða Trygg-
ingasjóðnum um 6% ábyrgðargjald
og Framkvæmdasjóði /«%, fyrir utan
afurðalánavexti bankans.
hundrað þúsund króna styrk til
að fækka vargfúgli á Suðurnesj-
um. Guðjón Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri SSS segir að varg-
fúgl hafi sjaldan eða aldrei verið
jafnmikill á Suðurnesjum og nú
og að fúglarnir hafi sótt mikið inn
í byggðarlögin, sem hefði ýtt á
sambandið til aðgerða í málinu.
Guðjón segir að sambandið hafi
skorað á veiðistjóra að gera eitthvað
til að fækka vargfugli, en veiðistjóri
hafi sagt að það væri lítið fé til og
óskað eftir því að sambandið styrkti
verkefnið sem var samþykkt. Fjár-
munirnir verða notaðir til kaupa á
skotum. Guðjón sagði að jafnframt
Hagvirki:
Innheimtuað-
gerðir heflast
Sýslumannsembættið í Rangár-
vallasýslu hefúr á ný hafið inn-
heimtuaðgerðir gagnvart verk-
takafyrirtækinu Hagvirki, en
Rikisskattanefnd úrskurðaði í
síðastliðinni viku að fyrirtækinu
væri skylt að greiða um 108 millj-
óna króna söluskattsskuld vegna
verka sem það hefúr unnið við
virkjanaframkvæmdir.
Samkvæmt upplýsingum frá
sýslumannsembættinu í Rangár-
vallasýslu verður eðlilegum inn-
heimtuaðgerðum framhaldið, nema
Hagvirki láti verða af þeim áætlun-
um að útkljá málið fyrir dómstólum.
Þá þarf fyrirtækið að leggja fram
bankatryggingu fyrir hinni meintu
skuld,'og innheimtuaðgerðir stöðvast
meðan á málsmeðferð stendur.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefúr styrkt sérstaklega átak
til fækkunar vargfúgls á Suðurnesjum.
hafi verið haft samband við yfirvöld
á Keflavíkurflugvelli og þær upplýs-
ingar fengist að þar væru menn í
þessu árið um kring.
Páll Hersteinsson veiðistjóri segir
að engar tölur séu til um fjölda varg-
fugls í landinu (sílamávs, silfurmávs
og svartbaks). Hann segir að vegna
íjárskorts sé engin herferð í gangi
gegn vargi og málið því í höndum
sveitarstjórna og einstaklinga á
hveijum stað en á vegum veiðimála-
stjóra eru sjálfboðaliðar sem skjóta
fugla og á Keflavíkurflugvelli sjá
slökkviliðið og herinn um málið, en
þar hefur varp sílamávs minnkað við
flugbrautir eftir að aðgerðir hófust
árið 1987.
Vaktmaður hjá Vogalaxi í Vogum
sagði í samtali við fréttaritara Morg-
unblaðsins að fuglafjöldinn skipti
þúsundum þegar mest er þegar
seiðasleppingar fara fram. Hann seg-
ir að það sé eins og allir mávar á
Suðurnesjum komi saman við
Vogavíkina. Þegar þetta ástand
stendur yfir er gripið til þess ráðs
að skjóta á fuglana og veija seiðin.
- E.G.
Það er fátt sem kemur í veg fyrir
að Renault 19 verði mikíls metinn á íslandi.
Hann keppir við þá vinsælustu
í sínum flokki.
Samkeppnin á markaðnum
Hönnun og þróun Renault 19 miöaö-
ist strax í upphafi viö samkeppni frá
Evrópskum og Japönskum bílum.
Kröfur bilkaupenda aukast jafnt og
þétt, þess vegna er þörfin fyrir
Renault 19 til staðar.
Tæknilegur tímamótabill
Renault 19 GTS, er með nýja 80
hestafla „Energy" vél, með 2ja hólfa
blöndungi. Vélin er 1390 cc, 4ra
strokka og smíðuð til að standast
ströngustu kröfur um mengunarvarnir
í Evrópu og Bandaríkjunum. Spar-
neytnin er ótrúleg, bensíneyðslan er
milli 5 og 6 lítrar á hundað kílómetr-
um. Hámarkshraði er 173 km/klst.
Fjöðrunin er sérstaklega styrkt til að
gefa bílnum góða aksturseiginleika,
jafnt í innanbæjarakstri sem á malar-
vegum.
Gírkassinn er 5 gíra og er gírskipting-
in eins og best gerist í dýrari bílum.
Gírkassi og drif hafa sérstakt smur-
olíukerfi sem aldrei þarf að bæta á
eða skipta um olíu.
Renault 19 GTS
kostar frá
799.399.-
Óbreytt kynningarverö
Þrátt fyrir gengisbreytingu að undan-
förnu, verður Renault 19 enn um
sinn á óbreyttu kynningarverði.
Einfalt mál að semja
Þú semur um þau kjör sem henta
þér best. Við tökum notaða bila í
góðu ástandi sem greiðslu upp í nýj-
an Renault 19.
Greiðslukjörin eru til allt að 24 mán-
aða.
Engin áhætta
Þú tekur enga áhættu þegar þú
kaupir Renault 19. Bílinn kaupir þú
með 30 daga skilarétti, sem þú getur
notað til að kynnast bílnum nánar.
Sértu ekki ánægð(ur) með kaupin
getur þú einfaldlega skilað bílnum
innan 30 daga frá kaupdegi. Nánari
upplýsingar um skilaréttinn á Renault
19 færðu hjá sölumönnum.
Bflaumboðið hf
Krokhálsi 1, Reykjavík, sirni 686633
Renault 19 er meö 6 ára ryðvarnarábyrgö
ULT19