Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 44
FÉLAG FÓLKSINS Vega HANDBOKIN Traust leiðsögn um land allt ÖRN OG ÖRLYGUR MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Áhrif helmings fækkunar á sei; Auka mætti árlegan þorsk- kvóta um nálægt 64.000 tonn Aflaverðmætið úr sjó rúmir 2,5 milljarðar króna Stakfell ÞH á veiðar á ný STAKFELL ÞH, frystitogari Út- gerðarfélags Norður-Þingeyinga á Þórshölh, heldur væntanlega á veiðar í kvöld eftir að hafa verið bundið við bryggju og innsiglað þrjár undanfarnar vikur á Þórs- höfti. Skipið var innsiglað fyrir þremur vikum vegna skattaskulda er það kom inn til löndunar á Þórshöfn og síðan þá hefur verið unnið í því að leysa málið, að sögn Grétars Frið- rikssonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins. Grétar segir að verið sé að vinna að milliuppgjöri fyrir sex fyrstu mánuði ársins og í framhaldi af því yrði send umsókn til Atvinnutrygg- ingasjóðs sem að öllum líkindum yrði tekin fyrir á fyrsta fundi sjóðsstjórn- ar eftir sumarfrí 8. ágúst. Skákþing Norðurlanda: Keppendur óánægðir með skipulagningu KEPPENDUR á Skákþingi Norð- urlanda, sem hefjast á klukkan 15 í dag I Finnlandi, eru mjög óán- 4^ ægðir yfir skipulagningu mótsins. Fjórtán skákmenn taka þátt í mótinu, þar af níu stórmeistarar. Aðeins stendur til að tefla ellefu umferðir, en þær hefðu þurft að vera þrettán miðað við fjölda keppenda. Fundur var haldinn í gærkvöldi á meðal keppenda og skipuleggjenda mótsins og þar reynt að finna lausn á málinu. Keppendur voru allir tilbúnir að tefla þrettán umferðir á þrettán dögum og vinna nú skipuleggjend- ur í að fá mótinu framlengt. Ann- ar fúndur hefúr verið boðaður með keppendum í dag kl. 11. „Þetta er skásti kosturinn, sem fram hefur komið þó lágmark sé að fá tvo til þijá frídaga á svona mót- ► um. Ef þessi lausn getur ekki geng- ið, er mótið algjört klúður og svo gæti farið að einhveijir kynnu að hætta við þátttöku," sagði Margeir Pétursson, í samtali við Morgun- blaðið. „Ljóst er að þetta mót verður sterkasta Norðurlandamót frá upp- hafi, þar að auki svæðamót og liður í heimsmeistarakeppninni. Mönnum finnst þess vegna hart að mótið geti ekki farið sómasamlega fram,“ sagði Margeir. Stórmeistaramir, sem þátt taka í mótinu, eru þeir Margeir Pétursson, Jón L. Árnason og Helgi Ólafsson frá íslandi, Hansen og Larsen frá Danmörku, Agdestein frá Noregi, Shussler og Karlsson frá Svíþjóð og ^ Westerinen frá Finnlandi. ERLINGUR Hauksson sjávarlíf- fræðingur hefúr kannað neyslu sela á nytjafiski hér við land og áhrif hennar á fiskafla. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að yrði selum fækkað um helming mætti auka þorskafla um 64.000 tonn. Ufsaaflann mætti auka um sama magn og afla annarra nytjafiska verulega. Þessar upplýsingar er að finna í grein sem Erlingur skrifar í nýjasta tölublað Ægis. Gefa má sér að kílóið af þorski úr sjó sé 40 krónur að meðaltali. Þá er verð- mæti 64.000 tonna rúmir 2,5 milljarðar króna. Erlingur segir í samtali við Morgunblaðið að alls éti selir við landið um 36 þúsund tonn af nytja- fiski fyrir utan 11 þúsund tonn af annarri fæðu. Þá éti selirnir meira af lúðu og hrognkelsi en aflist af þessum tegundum á ári ef miðað er við afla 1987. Saman- lagt éti selirnir um þriðjung steinbítsaflans, 16% ufsaaflans, um 6% skarkolaaflans og um 3% þorskaflans. „Árlega éta selir um 112 millj- ónir þorska, að mestu 0 til 4 ára. Áhrifa neyslu þeirra gætir því mest á nýliðun þorskstofnsins," segir Erlingur. I máli hans kemur fram að ef selir ætu ekkert af fiski mætti auka þorskveiðar um 30% eða 127 þúsund tonn miðað við afla 1987. Hann tekur fram að þessir útreikn- ingar séu ekki nákvæmir upp á tonn en gefi vísbendingu um hve mikið sé í húfi. „Heildaráhrif fiskáts selanna nema því um 290 þúsund tonnum, sem eru um 17% af heildarafla umræddra nytjafiska árið 1987. í þessari heildartölu vega ufsi og þorskur þyngst,“ segir Erlingur. „Ef engir væru selirnir, mætti veiða allt að 127 þúsund tonnum meira af þorski — sem svarar þorskveiðum allra línu- og neta- báta 1987.“ Byggðastofhun: Þörfá 1.100 íbúðum á höfíið- borgarsvæðinu BYGGÐASTOFNUN gerir ráð lyrir því að byggja þurfi árlega 1.440 íbúðir í landinu næstu fimm árin, þar af rúmlega 1.100 á höfuð- borgarsvæðinu og rúmlega 300 utan þess. Þetta kemur fram í íbúðaspá stofnunarinnar. Fram kemur að á síðastliðnu ári fluttu 1.560 manns frá landsbyggð- inni til höfuðborgarsvæðisins um- fram þá sem fluttust frá höfuðborg- arsvæðinu til landsbyggðarinnar. Ef tekið er meðaltal áranna 1983-1986 eru burtfluttir af landsbyggð, um- fram aðflutta, rétt rúmlega 1.000 einstaklingar. íbúðaspá stofnunar- innar gerir ráð fyrir hliðstæðu fólks- streymi til höfuðborgarsvæðisins næstu ár og er því komist að þeirri niðurstöðu að þörf sé á nærri fjór- fald meiri íbúðabyggingum á höfuð- borgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Sjá nánar á miðopnu. Áætluð sjófiysting 150.0001 ÁÆTLAÐ er að í ár verði sjófryst um 150 þúsund tonn af heildar- botnfiskafla íslendinga og að á næsta ári nemi þetta magn 250 þúsund tonnum. Sjófrysting er sú grein sjávarútvegs sem mestur vöxtur hefúr verið i á undanförnum árum. Hefúr hún vaxið úr engu 1981 upp í 12% af heildarbotnfiskaflanum í fyrra. Hefúr meðalársvöxtur þessarar greinar því verið 67% á þessu tímabili. Þetta kemur fram í ritinu „Útvegur 1988“ sem hagdeild Fiskifé- lags Islands gefúr út. A árinu 1988 voru 85 þúsund tonn af botnfiskaflanum sjófryst á hafi úti en árið þar á undan nam þetta magn 50 þúsund tonnum. Auk þess voru um 10 þúsund tonn af rækju fryst um borð bæði árin. Tölumar um magn sjófrystingar í ár og á næsta ári eru fengnar með því að framreikna meðalárs- vöxtinn. í ritinu „Útvegur 1988“ kemur fram að þótt framvinda af þessu tagi sé ekki ómöguleg, miðað við að heildarbotnfiskaflinn í fyrra nam 410 þúsund tonnum, séu engu að síður líkur á að breyting- ar verði hægari í framtíðinni. Kemur þar hvort tveggja til að rekstrarafkoma frystiskipa hefur versnað til muna og þau skip sem ekki hafa þegar verið búin frysti- tækjum eru fastar bundin við landvinnslu en þau sem breytt hefur verið. Ef litið er á einstakar tegundir botnfisks kemur í ljós að aukning sjófrystingar á þeim er mjög mis- munandi. Þannig hefur sjófryst magn af þorski aukist milli áranna 1987 og 1988 úr 28.421 tonni í 36.848 tonn. Magn af karfa hefur aukist á sama tíma úr 4.020 tonn- um í 17.674 tonn. Magn grálúðu hefur aukist úr 12.873 tonnum í 16.345 og magn ýsu úr 999 tonn- um í 3.293 tonn svo dæmi séu tekin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.