Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
Lýðræðið er okkar
dýrmætasta eign
Tveir til viðbótár
teknir af lífi í Kín;
Til Velvakanda.
Nú er þess minnst að 200 ár eru
liðin frá frönsku byltingunni en til
hennar er rakin lýðræðishugsjónin
sem orðið hefur vestrænum löndum
leiðarljós allar götur síðan. Lýðræðis-
legir stjórnarhættir hafa þó ekki náð
að skjóta rótum nema hjá tiltölulega
fáum þjóðum og jafnan er fast að
lýðræðinu sótt af einræðisöflum,
hvort sem þau kenna sig við kommún-
isma eða eitthvað annað. Þeir at-
burðir sem átt hafa sér stað í Kína
að undanförnu minna okkur óþyrmi-
lega á hvers konar þjóðfélagsástand
hefur þróast þar á síðustu áratugum.
Árum saman hafa vinstrimenn
reynt að telja okkur trú um að í Kína
væri framkvæmdur fyrirmyndar só-
síalismi og þar væri fullkomið lýð-
ræði, svokallað alræði öreiganna. Nú
Peking. Reuter.
i TVEIR menn sem tóku þátt í mótmælaaðgerðum gegn kínverskum
|stjórnvöldum í vor voru teknir af lífi 8. júlí síðastliðinn. Kemur
dietta fram í dagblaði sem gefið er út í Sichuan-héraði í vestur-
fcluta Kína og barst ekki til Peking fyrr en í gær. Yfirvöld í Kína
pgja að 12 manns samtals hafi verið líflátnir frá því mótmæli
' msmanna voru kveðin niður 4. júní en andófsmenn te\ja að sú
i sé of lág.
hefur sannleikurinn komið áþreifan-
lega í ljós og það þarf enginn að vera
í vafa um hvílíkt ógnarástand ríkir í
Við stækkum
í tilefiii þess að við opnum nýja,
betri og bjartari verslun í Skeifunni
17 höfiim við fengið sérstaka send-
ingu af Tulip tölvum sem boðnar eru
á einstöku tilboðsverði. Um er að
ræða nokkurt magn af PC, XT og
AT tölvum með 20 og 40 Mb diskum.
Tulip tölvurnar hafa fengið góðar
móttökur hjá íslenskum kaupendum
enda eru hér á ferðinni vandaðar
vélar á viðráðanlegu verði.
Verið velkomin til ÖRTÖLVU-
TÆKNI, nú í Skeifuna 17 (FORD-
húsið), og gerið góð kaup í TULIP
tölvum.
tn
01
Verðdæmi:
Venjulegt
verð:
Tilboðs-
verð:
íPs
Tulip PC ............. 89.565,- 69.900,-
^JSulip XT-20 ..........116i754r ....... Oð.OOfr?
Tulip AT-20 ..........174.365,- 135.300,-
ipsv
3iulip AT-40 .............4.................. ■...
‘Verð eru miðuð við einlitan skjá og gengi USD 14. júlí
Vinsamlegast athugið að um takmarkað magn er að ræða.
Leiðandi á sínu sviði.
mmmmmmmmmMmmammmmmmmm
ÖRTÖLVUTÆKNI
.Ci-’SU'
Tölvukaup hf, Skeifúnni 17,108 Reykjavík
Sími 687220, Fax 687260.
þessu stóra landi. Þetta er líka áminn-
ing til okkar sem búum við lýðræði
að meta það meira en við gerum.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur og sannleikurinn er sá
að lýðræðið er okkar dýrmætasta
eign. Aðeins örlítið brot jarðarbúa á
því láni að fagna að hafa þessi sjálf-
sögðu mannréttindi.
Kunningi minn einn sagði við mig,
er við ræddum þessi mál, að þjóðir
eins og Rússar og Kínveijar væru
einræðinu svo vanar, því þær þekktu
ekki annað en einræði og hefðu aldr-
ei kynnst lýðræðislegum stjórnar-
háttum. Þessar þjóðir sættu sig því
vel við einræði og hefðu jafnvel ekki
þroska til að koma upp hjá sér lýð-
ræðislegu stjórnarfari.
Þessi röksemd virðist mér hæpin.
Mannsandinn virðist eins meðal allra
þjóða, maðurinn vill ráða eigin lífi
og rís gegn kúgun hið innra með sér
í hvaða formi sem hún birtist. En það
er sjálfsagt rétt að fólk sem ekki
þekkir til lýðræðis sættir sig fremur
við einræðisstjórn. Engu að síður
hlýtur einræði ávalt að vera kvalræði
fyrir þá sem við það búa. Námsmenn-
imir í Kína sem hættu lífi sínu í
mótmælum á Torgi hins himneska
friðar fyrir skömmu sanna þetta.
Þessar þjóðhetjur eru nú líflátnar og
hundeltar í heimalandi sínu fyrir að
krefjast sjálfsagðra mannréttinda.
Lesandi
Skrafþing
Til Velvakanda.
Undirritaður telur fremur óvið-
eigandi að nota nafnið „Á Alþingi"
á umræddan veitingastað. Ef eig-
andinn vill endilega nota orðið
„þing“ mætti t.d. nota nöfnin Skraf-
þing, Hrafnaþing eða Skarfaþing.
Mæla má þó sérstaklega með nafn-
inu Skrafþing.
Þá væri ekki úr vegi að benda á
að mikill hluti þjóðarinnar myndi
trúlega fagna því að sjónvarps-
stöðvarnar felldu niður svo sem einn
sjónvarpsdag í viku a.m.k. yfir
sumarið þannig að þjóðin hefði
tækifæri til að tala saman svona
stöku sinnum og jafnvel bregða sér
á skrafstaði.
Jón Gunnarsson,
Þverá
Greiðasta leiðin til að örva
og styrkja mál ungra barna
er að tala mikið við þau,
jafnvel þótt þau skilji ekki
nema sumt af því sem sagt
er. Það eru mannréttindi
barna að komasttil þroska.
V