Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.07.1989, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 Morgunblaðið/Einar Falur Frá blaðamannafiindinum í gærmorgun. Forsætisráðherra Grænhöfðaeyja, Pedro Pires, er næst á mynd- inni, þá Steingrímur Hermannsson og Björn Dagbjartsson forstöðumaður Þróunarsamvinnustofnunar Islands. * Forsætisráðherra Grænhöfðaeyja á Islandi: Þróunaraðstoð á sviði stjórnsýslu og skatta FORSÆTISRÁÐHERRA Græn- höfðaeyja, Pedro Verona Rodr- igues Pires hershöfðingi, er staddur hér á landi tU að ræða við íslenska ráðamenn um framtíð þróunaraðstoðar Is- lendinga við íbúa eyjanna. Á blaðamannafúndi sem Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hélt með starfs- bróður sínum í gærmorgun köm fram ánægja beggja aðila með árangur þróunaraðstoðarinnar hingað til, svo og áhugi á frek- ari samvinnu. Var meðal annars minnst á aðstoð á sviði stjórn- sýslu og skattheimtu í því sam- bandi. Steingrímur sagði, að kominn væri tími til að leiða aðstoð Islend- inga við íbúa Grænhöfðaeyja inn á nýjar brautir, þó svo að byggja yrði á þeim verkefnum sem þegar hafa verið unnin. Þróunaraðstoð íslendinga við Grænhöfðaeyjar hefur staðið í um 10 ár samfleytt, en ásamt þróunarsamvinnu við íslendinga þiggja eyjarnar aðstoð frá velflestum Evrópuríkjum, Bandaríkjamönnum og nokkrum ríkjum Asíu og Afríku. Þróunaraðstoð sú, sem við höf- um veitt íbúum Grænhöfðaeyja hingað til hefur að mestu verið bundin við fiskveiðar og kunnáttu á sviði sjávarútvegs. Meðal annars hefur fiskveiðiskipið Fengur verið að veiðum við eyjarnar undanfarin ár, og einnig hefur verið leitast fyrir um markaðssetningu afurða þeirra er skipveijar hafa dregið úr sjó. Sögðu ráðherramir að nokkur árangur hefði náðst á því sviði, en þó yrði að kanna vand- lega næstu skref í þeim efnum. Þá hefur verið kannað hvaða fiski- tegundir leynast í hafinu umhverf- is eyjamar, og hvernig eyjaskeggj- ar geti nýtt sér þær á komandi árum. í viðræðum ráðherranna var tæpt á nýjum þáttum í aðstoð ís- lendinga við íbúa eyjanna. Steingrímur sagði, að meðal ann- ars hefði verið samþykkt að íslenskur sérfræðingur á sviði skattheimtu héldi til Grænhöfða- eyja. Einnig kom aðstoð tengd jarðhita á eyjunum upp á borðið í viðræðunum. Þá lýsti forsætis- ráðherra Grænhöfðaeyja yfir áhuga á þ’ví að eyjaskeggjar fengju að kynna sér íslenskt stjórnkerfi og stjórnarhætti. TE spilar á Hótel Borg Hljómsveitin TE heldur sína síðustu tónleika á íslandi þar til sein í ágúst á Hótel Borg miðviku- dagskvöldið 19. júlí. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. (Frcttatilkynning) Fjögurra tíma vinna I Morgunblaðinu sl. föstudag er farið rangt með vinnutíma þroskaheftra og líkamlega fatl- aðra í Hljómskálagarðinum. Hið rétta er að unnið er eftir hádegi að jafnaði frá kl. 13.00 til 17.00, en ekki 13.00 til 15.00, eins og fram kom. Morg- unblaðið biðst velvirðingar á þessu. Fiskverö á uppboðsmörkuðum 18. júii. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 58,50 46,30 56,89 15,446 878.780 Þorskur(smár) 28,00 28,00 28,00 0,450 12.600 Ýsa 76,00 32,00 68,42 16,635 1.138.227 Karfi 27,00 15,00 19,87 59,003 1.172.809 Ufsi 40,00 15,00 39,49 10,441 412.338 Ufsi(smár) 29,00 15,00 23,01 0,173 3.981 Steinbítur 52,00 48,00 50,44 2,916 147.114 Langa 37,00 30,00 36,19 1,769 64.933 Lúða 190,00 80,00 124,72 0,151 18.902 Koli 56,00 25,00 52,30 0,396 20,725 Skata 45,00 45,00 45,00 0,032 1.472 Skötuselur Samtals 160,00 160,00 160,00 0,109 36,22 107,549 17.552 3.894.933 Selt var úr Otri HF, Stálvík Sl og bátum. bátafiskur. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík 1 dag verður seldur Þorskursl. 70,00 54,00 59,57 22,242 1.324.886 Þorskur(smár) 34,00 34,00 34,00 1,393 47.362 Ýsa 90,00 40,00 62,12 19,873 1.234.484 Karfi 28,00 19,00 24,12 64,188 1.548.477 Ufsi 38,00 24,00 34,85 4,449 155.058 Steinbítur 42,00 37,00 39,77 0,692 25.013 Langa 31,00 27,00 28,92 1,222 35.342 Blandað 15,00 15,00 15,00 0,051 765 Lúða(stór) 150,00 150,00 150,00 0,065 9 750 Lúða(milli) 215,00 170,00 202,63 0,080 16.210 Skarkoli 15,00 15,00 15,00 0,422 6.330 Skötuselur Samtals 320,00 150,00 301,59 35,76 0,157 114,771 47,350 4.451.027 Selt var úr Smáey VE og Skipaskaga VE bátafiskur. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. . i dag verður seldur Þorskur 59,00 49,00 51,22 1,838 94.140 Öfugkj. 15,00 15,00 15,00 1.032 15.480 Ýsa 64,00 15,00 33,69 1,087 36.641 Karfi 28,50 9,50 18,17 10,727 194.888 Ufsi 30,00 27,00 28,91 3,464 100.145 Steinbítur 49,50 45,00 48,30 \ 1,398 67.522 Langa 29,00 26,00 26,76 0,723 19.374 Lúða 140,00 50,00 92,59 0,256 23.750 Solkoli 46,00 46,00 46,00 0,019 874 Skarkoli 35,00 16,00 33,88 1,061 35.965 Grálúða 15,00 15,00 15,00 0,037 555 Skata 40,00 40,00 40,00 0,033 1.320 Skötuselur 450,00 430,00 437,82 0,089 39.185 Hlýri 22,00 22,00 22,00 2,528 55.626 Samtals 28,21 24,295 685.438 Selt var úr Gnúpi GK og bátum. í dag verður seldur bátafiskur. Listsýning í Ólafsvík GALLERÍ Borg opnar sýningu í samvinnu við Lista- og menningar- málaneftid Olafsvíkur fimmtudaginn 20. júlí nk. Á sýningunni, sem er sölusýn- ing, eru grafíkmyndir, vatnslita-, krítar- og pastelmyndir, olíumál- verk og verk unnin í leir. Eftirtaldir listamenn eiga verk á sýningunni: Bryndís Jónsdóttir, Daði Harðarson, Daði Guðbjörns- son, Guðný Magnúsdóttir, Jón Reykdal, Jóhannes Geir, Hringur Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson. Sigrún Eldjárn og Þórður Hall. Sýningin verður opin föstudag- inn 21. júlí frá kl. 16.00 til 22.00, laugardaginn 22. júlí kl. 14.00- 22.00 og sunnudaginn 23. júlí kl. 12.00-16.00. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. (Frcttatilkyiming) Eru þeir að fá 'ann "? Nú eru skoðanir manna skiptar um það hvort laxveiði- vertíðin fari batnandi, eða þá að hún verði ein hin lélegasta mörg ár. Einstaka stanga- veiðimenn halda því nú fram, að veiðin til þessa beri allan keim af því að búið sé að eyði- leggja laxveiðiámar með óhóf- legri sókn bæði stangaveiði- manna svo og bænda sem fá síðan leyfi til að veiða í klak á haustin, en grisja árnar hressi- lega í leiðinni. Þeir em hins vegar fleiri sem vilja halda í bjartsýnina og benda á óvenju- lega erfitt árferði, snjóbráð í ám og flóð langt fram á sumar og óhjákvæmilegan vatnskulda samhliða því. Langvarandi vestanvindar vestanlands hafa einnig haft sitt að segja en þeir gmgga upp gmnna flóa og leir- ur sem margar árnar renna út í. Er alkunna meðal veiði- manna, að vestanáttin er einn höfúðóvinur þeirra. Sigurður Guðjónsson deildar- stjóri hjá Veiðimálastofnun sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði fylgst grannt með Elliðaánum í sumar og þær bæru þess glögg merki þessa dagana að vera að koma til og verða eins og þær eiga að sér að sumarlagi. Átti hann þar ekki síst við vax- andi laxagöngur. Lítum svo á nokkrar nýjar tölur. Líflegt á Hvítár- og Ölfusársvæðinu Talsverðar laxagöngur hafa verið upp Ölfusá og víða í ánni, svo og á neðri svæðunum í Hvítá hefur verið nokkuð góð veiði, að minnsta kosti á köflum. Um 100 laxar hafa til dæmis verið dregnir úr Ölfusá hjá Selfossi og álíka í Langholti, mikill meðalþungi, en þeir stærstu til þessa 18 og 19 punda. Þá hefur einnig veiðst nokkuð hjá Snæfoksstöðum, Gíslastöðum og meira að segja í Kiðjabergi. Þá hafa nokkrir veiðst á Iðunni, þar á meðal 21 punds fiskur. Nokkrir í Stóru-Laxá, Brú- ará og um 70 laxar í Soginu eftir því sem síðustu fregnir hermdu. Þar hefur gengið best í Ásgarði og Bíldsfelli. Glæðist verulega í Leirvogsá Loks er að glæðast í Leirvogsá og má segja að það gerist á hefð- bundnum tíma fyrir hana, en veið- in hefur tekið við sér óvenjulega snemma hin síðari sumur. Milli 80 og 90 laxar eru nú komnir á land og er það að mestu smálax sem hefur bæst í aflann síðustu dagana. Samt hafa veiðst óvenju stórir fiskar í ánni í sumar, allt að 18 punda. Viðunandi í HaÉQarðará Hátt í þrjú hundruð laxar eru komnir úr Haffjarðará og þar hefur glæðst frekar en hitt síðustu daga. Eingöngu er veitt á flugu í ánni og sjá útlendingar nú um veiðiskapinn og una sér vel. Með- alþunginn er góður, þó ívíð minnk- andi upp á síðkastið sem og víðar. Fá þá Iúsuga í Norðurá „Hann er að ganga fram ána og það er engin lygi, menn eru að fá þá lúsuga og það er vax- andi veiði milli fossa. Það er líka aðeins farið að veiðast frammi á dal,“ sagði Ari kokkur í Norðurá í samtali við Morgunblaðið. Þá voru komnir 420 laxar af aðal svæðinu og 100 til viðbótar af Munaðarnesveiðunum, alls 520 stykki. Ari sagði það ekki allt smáfisk sem kæmi á land þessa dagana, mikið væri til dæmis af 9 og 10 punda fiskum, einnig 6 punda fiskum sem væru yfirleitt fáséðir í Norðurárafla. Enginn hefur þó vegið meira en 15 pund, en tveir slíkir fiskar hafa veiðst. Ari hafði einnig eftir Halldóri veiðiverði, að það væru aðeins fimm dagar síðan að áin náði 10 gráðu hita, það hefur því naum- ast verið hægt að tala um sumar- vatn í Norðurá til þessa. Morgunblaðið/Ami Sæberg Bandaríkjamaður þenur sig með fluguna í Þingnesstrengjum Grímsá fyrir sköminu. Lax stökk um allt, en tók illa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.