Morgunblaðið - 19.07.1989, Page 36

Morgunblaðið - 19.07.1989, Page 36
félk í fréttum Martin Sheen. Martin Sheen, sjálfsmynd. „Eftir mikið basl tókst mér að koma Janet á sjúkrahús. Á leiðinni heim frétti ég að Jackie Kennedy hefði eignast dreng. Tveimur dögum seinna dó hann. Ég man enn hve innilega ég fann til með foreldrum hans. Sonur minn hafði lifað af afar frumstæðar aðstæður en þrátt fyrir fullkomnustu lækinshjálp sem völ var á hafði ekki tekist að bjarga drengn- um þeirra." Að lokum er Martin spurður út í leiklistina. „Leikurum gefst tækifæri til að kynnast ólíkum hliðum á sjálf- um sér,“ segir Martin. „í því fellst ákveðin frelsun eða lausn. Leiklist er fyrst og fremst andleg. Auðvitað er ekki verra að fá borgað fyrir starf sitt. Ég hef þegið peninga fyrir vinnu mína og ég skammast mín ekki fyrir það. Samt sem áður leik ég aðallega til þess að öðlast andlegan þroska." Kim Öasinger og Ron Britton höfðu verið gift í sjö ár þegar hann yfirgaf hana. Ron er 13 árum eldri en Kim. KIM BASINGER Kynþokka- fyllsta leik- kona í heimi! Hvort ég sé kynþokka- a full! Það getur þú bölv- "ð* þér uppá. Ég er fallegasta og kynþokkafyllsta leikkona í heirni," segir Kim Basinger í við- tali við blaðamann danska tíma- ritsins Se og Her fyrir skömmu. Kim sparar ekki stóru orðin fremur en gert er á heimaslóðum hennar í Georgíu. Kim öðlaðist heimsfrægð þeg- ar hún lék á móti Mickey Rourke í kvikmyndinni 914 vika. í nýju myndinni um Batman leikur Kim m.a. á móti Jack Nicholson og Richard Gere. „Jack er eini karl- maðurinn sem getur fengið fæ- turna til að titra undir mér,“ segir Kim. „Því miður er hann upptekinn. Aðrir karlmenn, þ. á m. Richard Gere, komast ekki í hálfkvisti við hann.“ Kim hefur verið ein á báti síðan eiginmaður hennar yfirgaf hana fyrir rúmu ári. Kim Basin- ger segist vera kyn- þokkafyllsta leikkona í heimi. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 Diego Maradona Pjölgun í fjölskyldunni Diego Maradona og Claudíu, heitkonu hans, fæddist dóttir fyrir skömmu. Sú litla hefur verið skýrð Yania. Eldri dótt- ir þeirra, Dalma, er tveggja ára. Maradona og Claudía eru ekki gift en Maradona hefur tilkynnt fjölmiðlum að nú líði ekki á löngu þar til þau gangi í það heilaga. ZOROPTIMISTAR Eigin- mönnum boðið í Viðey Mánudaginn 12. júní buðu Zorop- timistakonur á Seltjarn- amesi eiginmönnum sínum í Viðeyjarferð. Þegar út í eyju kom fór fólk til kirkju og hlýddi á erindi um sögu staðar- ins. Á eftir var grillað og rölt um eyna. Perðir sem þessar eru árlegur viðburður hjá Zoroptimistakonum á Seltjamarnesi, í fyrra var farið út á Gróttu. Um fjörtíu manns tóku þátt í ferðinni sem þótti takast vel. MYNDLIST Framúrsteftia á Flórída Ekki alls fyrir Iöngu birtist í bandaríska tímaritinu Central Florida grein sem nefnist „í leit að framúrstefnu". í greininni er minnst á tvo íslenska myndlistarmenn, Jóhann og Kristínu Eyfells, og tekið fram að þau séu meðal fremstu framúrstefnu listamanna á Flórída. Jóhann er myndhöggvari og kennari við háskólann í Orlando, en Kristín er þekkt fyrir stór málverk í anda framúrstefnu. Jóhann og Kristín hafa búið á Flórída í tuttugu ár. Þau tóku þátt í myndlistarsýningu á vegum Listahát- íðar árið 1984 og Jóhann sýndi verk sín á Listahátíð í fyrrasumar. Að ofan má sjá Kristínu Eyfells við eitt verka sinna. Martin Sheen hefur leikið í ýmsum stórmyndum að und- anfömu. Þeirra á meðal eru kvik- myndirnar, Gandhi, Wall Street, Apocalypse Now og Badlands. En Martin hefur haft fleira fyrir stafni en kvikmyndaleik. Hann hefur tekið þátt í stjómmálastarfi og er virkur meðlimur í kaþólsku kirkjunni. Mart- in segir m.a. frá þessum áhugamál- um sínum í viðtali sem birtist í banda- ríska tímaritinu Journal fyrir skömmu. „Ég fór að heiman 18 ára,“ segir Martin, „og ætlaði að gera það gott í New York. Síðan hefur gengið á ýmsu. Fyrir tíu árum, á meðan á tökum á Apocalypse Now stóð, gekk ég í gegnum erfitt tímabil. Ég yfir- gaf Jane og fór að drekka. Þá var það sem trúin kom mér til bjargar. Samtímis fór ég að hafa áhuga á stjórnmálum." Martin hefur tekið þátt i mótmæl- um gegn stefnu Bandaríkjamanna gagnvart Nicaragua og E1 Salvador og hann kemur reglulega á framfæri mótmælum gegn tilraunum landa sinna með kjarnorkuvopn i Nevada- eyðimörkinni. Það er trúin á Guð sem veitir Sheen styrk til að hafa afskipti af stjórnmálum. „Innra líf fólks og umhverfið sem það lifir í eru óaðskiljanlegir hlutir," segir Sheen. „Það er stutt síðan ég Morgunblaðið/Jóhann F. Guðmundsson hætti að reykja og þess vegna hef ég ekki rétt til að gagnrýna aðra fyrir að menga andrúmsloftið." Martin hefur ekki mikið álit á Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.„Reagan þjónaði að- eins þeim ríku,“ segir Martin.„Hann var neyddur ýil að koma til móts við Gorbatsjov. Ég hef meiri trú á stjórn Bush. Ékki vegna forsetans heldur Barböru, eiginkonu hans. Barbara er aðdáunarverð kona, raunsæ og mikill mannvinur." Martin á fjóra syni með Jane konu sinni. Þeir heita Ramon, Emilio (Morgunverðarklúbburinn), Charlie (Wall Street) og Renée. Allir hafa þeir fetað í fótspor föð'ur síns. „Strákarnir vita að starfínu fylgja bæði góðar og vondar hliðar," segir Martin. „Þeir eru metnaðarfullir og góðir leikarar. Það gleður mig.“ Martin á fjögur bamaböm sem hann reynir að sinna eins og hann getur. „Eg sé eftir að hafa ekki eign- ast fleiri börn sjálfur," segir hann.„Ég var komungur þegar við eignuðumst strákana og nú er ég orðinn afi. Pabbi var 42 ára þegar ég fæddist en ég var 43 þegar ég varð afí.“ Martin fór í pabbatíma með Carey Smalley, kærustu Charlie, þegar hún var ólétt. Það var þó ekki í fyrsta sinn sem Martin var viðriðinn barns- fæðingar því hann tók sjálfur á móti í Viðeyjarkirkju. Hugað að kolunum. Ramon syni sínum. Einu hjálpar- gögnin sem hann hafði við fæðing- una var eintak af New York Times og flaska af áfengi. Hvort áfengið var notað til sótthreinsunar við fæð- inguna eða til þess að styrkja Martin vill hann ekki láta uppi. „Ég held ég hafi aldrei orðið hræddari á ævinni,“ segir Martin. MARTIN SHEEN Hefiir mikla trú á Barböru Bush

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.