Morgunblaðið - 19.07.1989, Síða 16

Morgunblaðið - 19.07.1989, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 ÓlafúrM. Ólafs- son, menntaskóla- kennari—Minning Fæddur 16. júní 1916 Dáinn 7. júlí 1989 Vinur minn og samverkamaður megnið af minni starfsævi, Ólafur M. Ólafsson menntaskólakennari, lézt skyndilega og öllum að óvörum í Þýzkalandi 7. júlí sl., nýlega orð- inn 73 ára. Ekki óraði mig fýrir því er hann kom í skólann til að kveðja tveimur dögum fyrir brott- för, að það yrði okkar síðasti fund- ur. Við göntuðumst og hlógum góða stund, eins og venjulega, og ég lét þess líka getið, eins og venjulega, að mér þættu utanlandsfarir og þá einkum Þýzkalandsfarir allsendis óþarfar. Ólafi hlotnuðust ekki mörg ár eftir að hann létti af sér byrðum kennarastarfsins, en nýtti tímann vel, eins og hann hafði alla tíð gert. Um fræðistörf hans skrifa vafalaust aðrir mér dómbærari, en um kennslu hans við Menntaskólann í Reykjavík, alúð hans og nákvæmni við kennsluna, vil ég fara nokkrum orðum. Við hófum saman kennslu við Menntaskólann haustið 1951, svo að samveran var orðin nokkuð löng. Ólafur kenndi íslenzku og þýzku við skólann til sjötugs, árið 1986, greinar, sem framar öðrum kreijast nákvæmni og samvizkusemi, en þeir eiginleikar voru einmitt einn snarasti þátturinn í allri gerð Ólafs. Ólafur gerði miklar kröfur til sjálfs sín og nemenda sinna, því að hann vildi sjá árangur af starfí sínu. Sá kennari, sem er sama um árang- ur kennslunnar og bjargar sér á flótta með því að gefa háar ein- kunnir, bregst ekki aðeins nemend- um sínum heldur sjálfum sér líka. Kröfuharka í garð nemenda er að sjálfsögðu ekki mjög vænleg.til vin- sælda hjá löturn nemendum, en hin- ir kunna þeim mun betur að meta hana, einkum er frá líður. Þessi afstaða kann að þykja undarleg á þessum tímum endalauss vinsælda- kapphlaups, en hún ber vissulega vott um karakterstyrk, sem er að verða ískyggilega fágætur í þjóð- félaginu. Fyrir hönd Menntaskólans í Reykjavík og okkar hjóna þakka ég Ólafí löng og dygg störf og ákaf- lega skemmtilega viðkynningu og sendi frú Önnu og bömum og bamabömum samúðarkveðjur vegna fráfalls drengskaparmanns. Guðni Guðmundsson Vinur okkar, Ölafur M. Ólafsson, fyrrverandi menntaskólakennari, er til moldar borinn í dag. Hann varð bráðkvaddur í Þýskalandi, staddur á ráðstefnu í Giessen, þar sem hann var nýbúinn að flytja ávarp. Slíkan dauðdaga ber snögglega að, en hann hlýtur þó að vera af guðum gefínn. Við það verðum við að sætta okkur, þó að þungbær sé sú hugs- un, að Olafur sé ekki lengur meðal okkar. Við hjónin kynntumst Ólafi á ólíkan hátt, annars vegar sem sam- kennara í 20 ár við Menntaskólann í Reykjavík, hins vegar sem manna fróðastan um fombókmenntir og sögu Jslendinga, og þá sem leið- beinanda. Ólafur var skarpvitur maður og afar sjálfstæður í hugsun og skoðunum. Hann þorði að vera hann sjálfur, standa við sínar skoð- anir, sem er sjaldgæft nú á dögum. Áreiðanleiki, réttlætiskennd, prúð- mennska og fáguð framkoma í hvívetna voru aðalsmerki Ólafs M. Ólafssonar. En hann gerði miklar kröfur — til sjálfs sín, til kennara, til nemenda — og frá þeim kröfum var ekki vikið, því meðalmennska var ef til vill það eina í mannlegu fari sem Ólafur gat ekki þolað og um það gat hann verið mjög berorð- ur. Þessir eiginleikar voru leiðarljós lífs hans, hann bar þá með sér eins og skjöld, og margur maðurinn fór þess á mis að sjá þá þætti manns- ins, sem héldu þessum skildi uppi: Djúpur skilningur, ljúfmennska, hlýleiki og síðast en ekki síst rík kímnigáfa. Á kennarastofunni í MR áttum við, eftir því sem árin liðu, fastasæti hlið við hlið við sama borð. Við þetta borð var hlegið manna mest. Það voru góð ár. Enginn þekkti Ólaf, sem einung- is kynntist honum af fræðistörfum eða í hlutverki hans sem kennara. Við hjónin höfum orðið þeirrar gæfu aðnjótandi, að vera oft boðin heim til þeirra Ólafs og Önnu. Gest- risni þeirra og rausn var slík, að sambærilegt er einungis finnanlegt í fornum sögum. Á heimili þeirra fundu menn hvor annan í anda Hávamála: Veiztu, ef þú vin átt, þann er þú vel trúir, og vilt af honum gott geta, geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Til er orðtak á þýsku sem segir, að dæma skal manninn eftir þeirri konu sem hann er giftur. Það þarf ekki að orðlengja það, að slíkur dómur fellur Ólafi meira en svo í vil, þar sem Anna Hansen á í hlut. Fjölskyldan var einnig óvenju sam- rýnd, samband foreldra og bama fallegt og kærleiksríkt. Að leiðarlokum hrannast upp minningar, minningar um góðan dreng og traustan vin, sem ekki munu gleymast. Það hefur verið ómetanleg lífsreynsla að fá að kynnast Olafi M. Ólafssyni og fjöl- skyldu hans. Okkur er í dag efst í huga þakklæti fyrir þær stundir, sem við áttum saman. Mikill öðlingur, höfðingi, íslend- ingur og heimsmaður í senn er nú fallinn í valinn. Mikill er sá missir. Við vottum Önnu, Óla, Guðrúnu Bimu, fyölskyldu hennar og öðrum aðstandendum okkar dýpstu sam- úð. Megi orð höfuðskáldsins Goethe upphefja þessi fátækleg orð okkar: Und hinter ihm in wesenlosem Scheine Lag, was uns alle bándigt, das Gemeine. Coletta Biirling Kjartan R. Gíslason Mig setti hljóðan er mér bámst þau óvæntu tíðindi að Ólafur M. Ólafsson, fyrrverandi menntaskóla- kennari, hefði látist í Giessen í Þýskalandi þann 7. júlí sl. 73 ára að aldri. Ég minnist Ólafs fyrst frá ungl- ingsámm mínum. Hann tengdist fjölskyldu minni á þann hátt að föðurbróðir minn Óskar Jónasson reiðhjólasmiður var mágur hans. Leiðir okkar áttu eftir að liggja saman síðar. Persónuleg kynni okk- ar Ólafs hófust þegar eiginkona hans Anna Hansen hóf kennslu við Tónlistarskóla Kópavogs fyrir rúm- um 20 ámm og munu kynni mín af Ólafi ætíð verða mér minnisstæð. Ólafur var einlægur, hjálpsamur og fullur af lífskrafí. Hann var ein- stakur höfðingi heim að sækja og minnumst við hjónin allra þeirra stunda er við áttum á heimili þeirra Önnu og Ólafs, þeirra ógleyman- legu gleðistunda sem vom orðnar að föstum lið í tilvemnni. Ólafur hafði tekið að sér próf- arkalestur fyrir Tónlistarskólann og aðeins em örfáir dagar síðan hann ræddi við mig á skrifstofu skólans. Hann hafði ánægju af þessu verki, sýndi því mikinn áhuga og breytti stöðluðum texta í lifandi mál. Ólaf- ur minntist á að hann gerði sér æ betur grein fyrir þeirri gífurlegu vinnu er lægi að baki tónlistar- námi. Þegar ég þakkaði honum fyr- ir aðstoðina kvaðst hann setja það sem skilyrði að ég leitaði til sín ef á þyrfti að halda. Þannig kvaddi hann mig og kveðjuorðin lýsa vel vini mínum Ólafi. Við hjónin vottum Önnu og fyöl- skyldu hennar okkar dýpstu samúð. Fjölnir Stefánsson Ekki gmnaði mig, þegar Ólafur vinur minn Ólafsson kom og kvaddi mig, áður en þau hjónin lögðu af stað í stutta ferð til Þýzkalands um daginn, að ég ætti ekki eftir að sjá hann aftur lifandi. Maður undraðist það alltaf mest, hvað hann hélt sér vel og var léttur í spori, rétt eins og aldurinn ynni ekki á honum. Það er margs að minnast frá löngum kynnum. Ólafur var vissulega ekki allra, en þeim sem hann tók reynd- ist hann tryggðatröll, fór oft að finna þá eða bauð þeim heim og hélt þeim góða veizlu. Og í öllu þessu vom þau Anna samtaka og samvalin. Ólafur Markús varð 73 ára í sl. mánuði, fæddist í Reykjavík 16. júní 1916, sonur Ólafs Magnússon- ar kaupmanns í Fálkanum og Þrúð- ar Guðrúnar Jónsdóttur. Ólafur brautskráðist úr Verzlun- arskóla íslands 1935, en las síðan til stúdentsprófs, er hann lauk við Menntaskólann í Reykjavík vorið 1941. Hugur hans stóð til náms í íslenzkum fræðum, og lauk hann cand. mag. prófí 1946. Hann varð brátt handgenginn dr. Bimi Guð- finnssyni, er varð lektor við Háskól- ann 1941 og kenndi hljóðfræði, en hann fékkst einkum við rannsóknir á framburði íslendinga. Þeir Björn og Ólafur ferðuðust saman víða um land til þeirra rannsókna, og var gaman að heyra Ólaf segja frá þeim ferðum. Ólafur kenndi íslenzka hljóðfræði við Háskóla íslands 1947-1949, og eftir fráfall Björns vann hann úr gögnum hans ásamt Óskari Halldórssyni og bjó til prent- unar undir heitinu Mállýzkur II, Reykjavík 1964. Ólafur flutti á öðm námsári sínu í Háskólanum, á rannsóknaræfingu hjá Sigurði Nordal 9. febrúar 1943, erindi um nafnafelurnar í Bósa rímum, og vakti úrlausn Ólafs þá mikla athygli. Hann endurskoðaði erindi sitt rúmum 30 ámm síðar, og birtist sú endurskoðun í Andvara 1975 og nefndist Huldumál. Ólafi vom alla tíð slíkar þrautir hugfólgnar, og því var það, að hann að loknu háskólanámi sínu tók að vinna að ritgerð um fyrirbrigði það í fomum kveðskap, sem ofljóst er kallað, sbr. orð Snorra í lokum Skáldskaparmála í Eddu hans: „Fár er reiði. Far er skip. Þvílík orðtök hafa menn mjög til þess að yrkja fólgið, og er það kallað mjög ofljóst. Olafur réðst sannarlega ekki á garðinn, þar sem hann var lægstur, heldur lagði nú til atlögu við ýmsa erfiðustu staði í hinum foma kveð- skap, þar sem hann taldi, að ort væri fólgið. Ólafur sendi Háskólanum að lok- um ritgerð um þetta efni, er hann óskaði að fá að veija sem doktors- ritgerð. En fræðimenn þeir, er um ritgerðina fjölluðu, höfnuðu henni, kváðust ekki sjá, hverja nauðsyn bæri til að skýra ýmsa hina torræðu staði á þann veg, er Ólafur gerði. Ég tel, að í ritgerð Ólafs hafí verið nægilega margar snjallar skýring- ar, til þess að hann hlyti fyrir þær maklega viðurkenningu. Þeim skýr- ingum, sem menn vom ekki sáttir við, gátu hinir lærðu menn, þegar til andmælanna kæmi, risið gegn eða kveðið niður. Háskólinn á ekki aðeins að vera dómstóll í slíkum málum, heldur og vettvangur, þar sem tekizt er á um kenningar og úrlausnir. Ólafur bætti ráð sitt á þrettánd- anum 1951 og gekk að eiga hina beztu konu, Önnu Christiane, dóttur Rudolfs Theil Hansens klæðskera í Reykjavík og konu hans, Margrétar Finnbjömsdóttur frá Hnífsdal. Hann hóf síðar kennslu við Menntaskólann í Reykjavík um haustið þetta sama ár og var skip- aður fastur kennari 1954. Kennslu- gTeinar hans vom íslenzka og þýzka. Ólafur dvaldist við nám í Þýzkalandi 1955-57. í íslenzku- kennslunni kom hann enn að hinum foma kveðskap, svo sem kvæðum Egils Skalla-Grímssonar og Völu- spá. Ég þykist vita, að sínar beztu stundir sem kennari hafí hann átt við skýringar slíkra kvæða, honum hafi þar tekizt að hrífa nemendur með sér, svo hugfólginn sem hinn fomi kveðskapur var honum. Þá var hann og snjall málfræðikenn- ari. Ólafur ritaði tvær rækilegar greinar um Völuspá, hina fyrri um Völuspá Konungsbókar og hina síðari um endurskoðun Völuspár eða Hauksbókargerð hennar. Þá ritaði hann um Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Völuspárgrein- arnar birtust í Árbók Landsbóka- safns 1965 og 1966, en Sonator- reksgreinin kom í Andvara 1968. Ólafur hefur freistað nýrra skýr- inga á mörgum stöðum þessara kvæða og tvímælalaust þokað þar ýmsu áleiðis. Þessi kveðskapur verður ekki skýrður í eitt skipti fyrir öll, heldur verða þar margir að leggja saman. Það var synd, að Ólafur fékk ekki helgað þessum fræðum alla krafta sína, en auðvit- að naut hann þekkingar sinnar og yfírsýnar í kennslu þeirra og þeim skrifum um þau, er hér hafa verið nefnd. Ég spái því, að framlag Ólafs M. Olafssonar til þessara mála eigi eftir að njóta vaxandi viðurkenning- ar. Mér var kunnugt um, að Ólafur vann um langt árabil að mjög örð- ugu rannsóknarverkefni og hann hlakkaði til að geta einbeitt sér að því, þegar hann léti fyrir aldurs sakir af kennslustarfi sínu. Ég vissi líka að úr verki því var að byija að rakna og að því drægi, að hann gæti farið að gera grein fyrir því. En við hið óvænta fráfall hans hverfur það sennilega með honum, verður „rúnir þær, sem ráðast hinu- megin", eins og þar stendur. Við, sem þekktum Ólaf gerst, söknum góðs vinar, er okkur öllum þótti vænt um vegna mannkosta hans og glaðværðar. Hann var ekki hálfur í neinu, sem hann tók sér fyrir hendur, né heldur í vináttu sinni og ræktarsemi. Ég votta Önnu kona hans og bömum þeirra tveimur, Ólafí yngra og Guðrúnu Birnu, innilega samúð í hinum mikla missi þeirrá. En minningin um góðan dreng lifir og veitir þeim líkn með þraut. , Finnbogi Guðmundsson Það var síðla dags þann 7. júlí að Ólafur yngri Olafsson, vinur okkar, hringdi í mig í vinnuna. Hann hafði tilkynnt þeim er svaraði í símann að það væri mjög áríðandi að hann næði tali af mér. Þar sem ég veit að ærin ástæða er til að hann leiti fólk uppi á vinnutíma fór á sekúndubroti um huga minn hugs- unin „hvað hefur gerst?“. Án nokk- urs umvafs, klökkt en hispurslaust tjáði hann mér lát föður síns þá um morguninn. Mér var illa brugðið. Það var eins og köld hönd gripi um hjarta mitt. „Það getur ekki verið!“ „Ekki hann Óli okkar.“ Hann sem virtist stálhraustur og hafði ekki kennt sér neins meins. Ég átti erf- itt með að trúa því að þessi elsku- legi einstaki maður hafi verið hrif- inn brott svo fyrirvaralaust. Mér varð fyrst hugsað til Önnu, elsku- legrar eiginkonu hans, og vonaði innilega að hún hefði vini sér við hlið. Hún og Ólafur voru á ferða- lagi í Þýskalandi þegar kallið kom. Ólafur hafði verið beðinn um að halda fyrirlestur á árlegri ráðstefnu Intemational Colloqium í Giessen í Þýskalandi. Voru þar saman komn- ir fræðimenn og vinir þeirra hjóna frá mörgum löndum. Olafur hafði einmitt lokið sínum fyrirlestri, fróð- legum en skemmtilegum og glettn- um eins og hans var ætíð vísa, þeg- ar hann kvaddi þennan heim, ánægður og með bros á vör. Var hann á meðal vina á fallegum stað í landi sem hann hafði sterkar taug- ar til, upptekinn af því hugðarefni sem hann hafði mestar mætur á og með eiginkonu sína sér við hlið. Við sem nú horfum á eftir Ólafi vitum að þannig hefði hann kosið að fara og þökkum að svo varð um leið og vjð syrgjum þennan einstak- lega mæta og elskulega mann, sem við töldum eiga eftir mörg ham- ingjusöm ár enn. Olafur Markús Ólafsson, fyrrum menntaskólakennari, fæddur _ 16. júní 1916, var sonur hjónanna Ólafs Magnússonar, kaupmanns í Fálkan- um, og Þrúðar Guðrúnar Jónsdóttur konu hans. Þau áttu níu böm og af þeim eru nú aðeins þijú eftirlif- andi. Eiginkona Ólafs er Anna Christine Hansen dóttir Margrétar og Rudolf Hansen, sem nú em bæði látin. Ólafur og Anna eignuð- ust tvö börn, þau Guðrúnu Birnu og Ólaf Magnús. Guðrún Birna er gift Kristni Grétarssyni og eiga þau tvö börn, þau Önnu Björgu og Grét- ar Geir. — Ólafur Markús stundaði nám í íslenskum fræðum í Háskóla íslands og síðar í þýsku og mál- vísindum í Þýskalandi. Hann var lengst af kennari í íslensku og þýsku í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann var afskaplega mikill nákvæmnismaður og lagði mikla áherslu á að nemendur hans tækju nám sitt alvarlega og legðu sig fram um að ná tökum á náms- efni sínu. Hann þótti strangur en var dáður og virtur af fjölda nem- enda sem mátu einmitt þetta og rækt hans við kennsluna mikils. Ég kynntist Önnu og Ólafi fyrst árið 1962 er ég var að hefja nám í Menntaskólanum í Reykjavík. Þau tóku mig inn á heimili sitt, en ég kom utan af landi, og bjó ég þar öll mín menntaskólaár. Frá því fyrsta var mér tekið sem einni af fjölskyldunni og hef ég alla tíð síðan litið á þau hjón og böm þeirra sem mína aðra fjölskyldu. Einstök hlýja, innileiki og létt lund einkenndu þau hjón. Óteljandi eru þær samveru- stundir okkar þar sem gert var að gamni sínu, sagðar hnyttnar sögur, sungið og leikið á hljóðfæri. Ólafur var manna hnyttnastur þeirra sem ég hef kynnst. Ógrynni kunni hann af skemmtilegum sögum og skrýtl- um og efa ég að á nokkurs annars færi sé að segja þær á skemmti- legri hátt en hann gerði. Oft hef ég óskað þess að ég hefði verið svo forsjál að skrifa hjá mér brandarana hans Óla, þeir voru óborganlegir og ertu hláturstaugar áheyrenda svo aumar urðu. Anna er gædd miklum tónlistargáfum og leikur á gítar og píanó jafnt klassíska tón- list sem aðra. Á þessum samveru- stundum hafa þessi hljóðfæri verið óspart notuð til mikillar ánægju viðstaddra. Vom þau hjón hrókar alls fagnaðar hvar sem þau komu. Voru þau ætíð mjög samhent um allt er lausnar þarfnast í hinu dag- lega fjöiskyldulífi. Börnum sínum og barnabörnum hafði Ólafur mikið dálæti á og fjölskyldan einstaklega samrýnd. Er Önnu, börnum og barnabömum mikill missir að Ólafi, eins og öllum vinum hans og ætt- ingjum. Við hjónin og dætur okkar þökk- um fyrir að hafa fengið að kynnast Ólafi og hans yndislegu fjölskyldu og fyrir allar okkar góðu samveru- stundir og geymum í hjörtum okkar minningu um elskulegan, fágaðan og óviðjafnanlega skemmtilegan mann. Við biðjum Guð að varðveita Ólalf 1 eilífu ríki sínu. Elsku Anna, Guðrún Bima, Ólaf- ur Magnús, Kiddi, Anna Björg og Grétar Geir, við biðjum Guð að styrkja ykkur og blessa á þessum erfiðu tímamótum og sendum ykkur öllum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Freyja Matthíasdóttir Frisbæk og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.