Morgunblaðið - 19.07.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JULI 1989
21
Sofíð á Markúsartorgi
Unglingar sem sóttu tónleika Pink Floyd í Feneyjum á laugardagskvöld urðu að sofa undir beru
lofti og gistu margir á Markúsartorgi. Myndin var tekin á sunnudagsmorgni og voru nokkrir enn
í fastasvefni á torginu þótt bjart væri orðið. Um 150 þúsund manns fylgdust með tónleikunum.
Umdeilt tónleikahald í Feneyjum:
Borgar stj órnin
vill ekki segja af sér
Feneyjum. Reuter.
Borgarstjórnin í Feneyjum baðst í gær afsökunar á að hafa leift
rokkhljómsveitinni Pink Floyd að halda tónleika í borginni sl. laugar-
dag. Sljórnin neitaði að segja af sér eins og háværar kröfur höfðu
komið fram um. Hins vegar lofaði hún betrumbót og hét því að leyfa
ekki tónleikahald af þessu tagi aftur.
Borgarstjórnin sat á fundum næt-
urlangt til þess að ræða viðbrögð
sín við tónleikahaldinu. Um 150
þúsund aðdaendur hljómsveitarinnar
lögðu leið sína til borgarinnar til
þess að hlýða á hana.
Urðu þeir m.a. að klifra upp á
fornar hallir og kirkjur til þess að
geta fylgst með goðunum, sem kom-
ið var fyrir á risastórum fleka
skammt frá Markúsartorgi. Varð
mikill troðningur meðfram síkjun-
um.
Tónleikahaldið mætti andstöðu
íbúa Feneyja. Eigendur veitinga- og
gistihúsa lokuðu krám og hótelum í
mótmælaskyni og neyddust tón-
leikagestir því til þess að sofa úti
undir beru lofti, m.a. á Markúsart-
orgi.
Líktist miðborgin frekar ösku-
haug morguninn eftir tónleikana.
Margir íbúar tóku upp hanskann
fyrir ungu tónleikagestina og kröfð-
ust afsagnar borgarstjórnarinnar
fyrir að stefna 150 þúsund ungling-
um til borgarinnar en gera engar
ráðstafanir til þess að þeir gætu
hallað höfði, fengið sér matarbita
eða gengið örna sinna.
ERLENT
Grikkland:
Símhleranastöð
sósíalista fínnst
AJjenu. Reuter.
GRISKA ríkisstjómin tilkynnti
í gær, að fúndist hefði leynileg
símhlerunarstöð, sem sósíalista-
stjórn Andreasar Papandreous
hefði notað til þess að hlera
Lúxemborg:
Gamla sljómin
heldur velli
Lúxemborg. Frá Kristófer Má Kristins-
syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
KRISTILEGIR demókratar og só-
síalistar í Lúxemborg hafa end-
umýjað stjórnarsáttmála sinn eft-
ir mánaðarlangar þreifingar.
Þingkosningar fóru fram 15. júní
sl. samhliða kosningum til Evrópu-
þingsins. Þá töpuðu stjórnarflokk-
amir samtals sex þingsætum.
Kristilegir demókratar höfðu 25
þingsæti en fengu 22 í kosningunum.
Sósíalistar höfðu 21 þingmann en
fengu 18 nú. Sigurvegarar kosning-
anna voru smáflokkamir. Græningj-
ar bættu við sig tveimur þingmönn-
um og fengu 4 og flokkur sem kallar
sig „5/6 í eftirlaun" hlaut 4 þing-
menn kjörna. Flokkurinn berst fyrir
því að allir íbúar Lúxemborgar njóti
sömu eftirlaunaréttinda og opinberir
starfsmenn, fái í eftirlaun 5/6 af
þeim launum sem síðast voru greidd.
Jacques Santer, leiðtogi kristilegra
demókrata, verður áfram forsætis-
ráðherra Lúxemborgar eins og und-
anfarin fimm ár.
einkasamtöl, án réttarheimild-
ar. Að sögn talsmanns sljórnar-
innar, Athanassios Kanellopou-
los, er rannsókn málsins þegar
hafin, en umfang þess er enn
óljóst.
Samsteypustjórn íhaldsmanna
(Nýs lýðræðis) og kommúnista
komst til valda 2. júlí og hefur það
eitt "að hlutverki að rannsaka til
hlítar meinta spillingu Papandreo-
us og undirsáta hans.
Fram eru komnar ásakanir um
fjárdrátt, mútur, pólitíska greiða
og víðtæka spillingu aðra og er
hermt að jafnvirði hundruða millj-
óna Bandaríkjadala hafi runnið
ofan í djúpa vasa flokksgæðinga
sósíalista.
Fyrirhugað er að svipta fyrrver-
andi ráðherra sósíalistastjórnar-
innar friðhelgi, svo unnt sé að
rannsaka mál þeirra með eðlileg-
um hætti. Sóíalistastjórn Pap-
andreous sat í átta ár.
í dag mun þingið ganga til at-
kvæða um hvort rannsaka eigi
hlutdeild forsætisráðherrans fyrr-
verandi vegna bankafjárdráttar,
en þar gufuðu upp 200 milljónir
Bandaríkjadala. Talið er að leyfið
verði veitt málalengingalaust.
Fari svo verður rannsóknar-
nefnd þingsins að skila skýrslu
sinni innan tveggja mánaða og
mun sameinað þing síðan ákveða
í leynilegri atkvæðagreiðslu hvort
hefja eigi málsókn gegn honum.
Reuter
Áfangi ígeim vörnum
Fyrsta tilraun með geislavopn í geimnum var gerð af Bandaríkjaher í gær og þótti hún heppnast vel.
í tilrauninni var beitt nýrri tegund geislabyssu, sem skýtur nevtrónuöreindageisla. Til þess að til-
raunin bryti ekki í bága við gagnflaugasáttmála stórveldanna (ABM) var ekkert skotmark í tilraun-
inni, svo ekki fékkst reynsla á nákvæmni geislabyssunnar. Þessi nýja tegund geisla er ólik leysi-
geislanum að því leyti, að hún ferðast á hálfiim (jóshraða og er mun öflugri. Á myndinni hér fyrir
ofan sést bandarískur herforingi halda álplötu á lofti, en í gegnum hana var skotið öreindageisla
á jörðu niðri. í geimnum yrði geislabyssan öflugari og nákvæmari, þar sem andrúmsloftið hefur
áhrif á geislann. Gert er ráð fyrir því samkvæmt geimvamaáætlun Bandaríkjamanna að geislabyss-
unni yrði beint gegn kjarnorkueldflaugum í meira en 115 km hæð, en Bandaríkjaher telur að slíkt
vamarkerfi gegn kjarnorkuárás geti verið tilbúið efltir 15 ár.
Sandinistar tíu ár
við völd
Fyrir tíu árum hröktu vinstrisinnaðir
skæruliðar sandinista í Nicaragua ein-
ræðisherra landsins, Anastasio Somoza,
úr landi og er afinælinu fagnað með
ýmsum hætti í landinu. Marxistastjómin
hefur náð góðum árangri í baráttunni
gegn ólæsi og heilsugæsla hefiir batnað
mjög en eftiahagsleg vandamál, einkum
óðaverðbólga og gjaldeyrisskortur, eru
yfirþyrmandi. Viðskiptabann Banda-
ríkjamanna og stríðið gegn kontra-
skæmliðum hafa reynst þung í skauti
en andstæðingar stjórnvalda segja mið-
stýringaráráttu, úreltar hagfræðikenn-
ingar og spillingu aðalorsakir eymdar-
innar. Á myndinni em ungir þátttakend-
ur í fegurðarsamkeppni meyja sem fædd-
ust byltingarárið 1979.
Reuter
Argentína:
Ráðherra
eftirlýstur
Caracas. Reuter.
NESTOR Rapanelli, sem skipað-
ur var efiiahagsmálaráðherra
Argentínu á laugardag, er eftir-
lýstur í Venezuela.
Er ráðherrann meðal annars
sakaður um smygl ,ög fleira í
tengslum við kornsölu fyrirtækis
hans til Venezuela á árunum
1983-88. Var handtökuskipunin
gefin út 26. maí s.l.