Morgunblaðið - 19.07.1989, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
Minning:
Þóroddur Jóhanns-
son Ytri-Reistará
Fæddur 3. júlí 1932
Dáinn 1. júlí 1989
í minni vitund er bjart yfir þeim
dögum er Johann og Asta á Skriðu-
landi fluttu að Ytri-Reistará. Þar
með voru þau komin með barnahóp-
inn í næsta nágrenni við okkur
heima í Pálmholti. í þessum hópi
voru bræðurnir Gunnar, Baldvin,
Þóroddur og Aðalsteinn. Systurnar
voru: Sigrún, Snjólaug, Áslaug og
Bryndís. Elsti sonurinn Sæmundur
var farinn tii Akureyrar að læra
múraraiðn. Baldvin dó á unglings-
árum. Hin voru öll heima i gamla
torfbænum fyrstu árin. Svo var
nýtt hús reist.
Stórir torfbæir voru ævintýra-
heimar. Myrk skúmaskot útfrá
göngum og eldur í ofnum og elda-
vélum og olíulampar í baðstofu. Þá
var ekki rafmagnið. Þessu kynnt-
umst við Þóroddur í æsku og síðan
þeirri tæknibyltingu sem hefur orð-
ið hér og breytt flestum aðstæðum.
Við höfum lifað mestu umbyltingar
Islandssögunnar. Við höfum einnig
lifað miklar breytingar á öðrum
sviðum. Ríkidæmi þekktum við
ekki. Allt snerist um að komast af.
En á þessum tíma áttum við
annað, sem nú sýnist mjög skorta
hér á íandi. Við áttum bjarta fram-
tíðarsýn. Þegar við gengum eða
hiupum um þýfð túnin og móana,
sáum við fyrir okkur slétta nýrækt
framtíðarinnar. Verkefni framtíðar
t
MINNINGARKORT
var ræktun lands og lýðs. Þessu
viðhorfi kynntumst við ekki síst í
skólanum hjá Áma kennara. Við
gengum snemma í ungmennafélag-
ið og Þóroddur varð fljótt forystu-
maður þar. Hann var það síðan alla
tíð til hinsta dags. M.a. var hann
lengi framkvæmdastjóri UMSE og
um skeið varaformaður UMFI.
Hann var alla tíð trúr þeim hugsjón-
um er mótuðu okkur í æsku.
Við skyndilegt og ótímabært frá-
fall Þórodds Jóhannssonar riijast
upp leikir æskuáranna og gamlir
draumar. Margt fór öðruvísi en við
ætluðum, en stundir, upprifjana
voru enn ekki komnar er hann
skyndilega fór. Nú bærast ekki
lengur strá á torfþekju. Enginn rist-
ir lengur torf. Ekki þarf lengur að
aka mjólkinni í hjólbörum í veg
fyrir bílinn. Ljáirnir eru ekki iengur
brýndir og heybaggar ekki lengur
bundnir. En lífið heldur áfram þrátt
fyrir það, með leiki sína og störf,
þótt hvort tveggja hafi breyst.
Þóroddur giftist ungur ágætri
konu úr sveitinni, Margréti Magn-
úsdóttur frá Björgum. Þau eignuð-
ustþrjú börn, sem nú eru uppkom-
in. Missir þeirra er auðvitað mikill,
en vonandi er það til huggunar að
hvar sem Þóroddur var fór óvenju
traustur og vammlaús maður sem
átti sér hugsjónir. Hans er því gott
að minnast.
Jón frá Pálmholti
_______ . - - - r " - -. . ; ' ' ' ' " .
Ekkert kvikasilfur -
engin umhverfísmengun
Nýju Wonder rafhlöðurnar,
Green Power, eru algerlega
kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar
„hreinni" orku og valda engri
umhverfismengun. Þess vegna má að
skaðlausu henda þeim að notkun lokinni.
Lífrænt efni hefur nú komið í stað v
kvikasilfurs.
Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og
endast lengur en venjulegar rafhlöður.
Stuðlum að hreinu umhverfi - notum
Green Power rafhlöður.
Heildsala og smásala:
Olíufélagið hf
SUÐURLANDSBRAUT 18
SlMI 681100
.
622 620 623 626 607
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Útilíf, Sportval, Sportbúflin, Sparta, Iþróttabúflin, Búsport, Últíma, Hólasport. AKRANES: Akrasport, Óðinn. BORGARNES: Borgarsport. STYKKISHÓLMUR: Litlibær. PATREKSFJÖRÐUR: Verslun Ara Jónssonar.
TÁLKNAFJÖRÐUR: Bjarnabuð. BOLUNGARVÍK: Einar Guðfinnsson hf. ÍSAFJÖRDUR: Sporthlaðan. HVAMMSTANGI: Kaupfélag V-Húnvetninga. BLÖNDUÓS: Versl. Visir. SAUÐARKRÓKUR: Kaupfélag Skagfirðinga. DALVÍK:
Vers|unin Sogn. SIGLUFJÖRDUR: Gestur Fanndal. ÓLAFSFJÖRÐUR: Valberg. AKUREYRI: Sporthúsið. HÚSAVÍK: Kaupfélag Þingeyinga. VOPNAFJÖRÐUR: Versl. VSV. SEYDISFJÖRÐUR: Verslunin Aldan. NESKAUPSTADUR:
Verslunin SÚN. ESKIFJÖRÐUR: Hákon Sófusson. REYÐARFJÖRDUR: Kaupfélag Héraðsbúa. EQILSSTAÐIR: Verslunin Skógar. FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Fjarðarnesti. DJÚPIVOGUR: B.H. búðin. HÖFN: Versl. Þingey. VESTMANNA-
EYJAR: Steini og Stjáni. SELFOSS: Skóbúð Selfoss. HVERAGERÐI: Hverasport. SANDGERÐI: Versl. Aldan. KEFLAVÍK: Sportbúð Óskars. HAFNARFJÖRÐUR: Múslk og sport.