Morgunblaðið - 24.09.1989, Side 8
e rj
8—e-
686 r
.MÖR'
MÍSi^WIANNLÍFSáMttillA^N
TÆKNI//ívv eru svörin vib
spumingunni
Hvaða gagn er að
geimferðum, pabbi?“
FYRIRSOGNIN gæti verið lögð í munn þröngsýns manns, sem er ein-
skorðaður við hagnýti hlutanna. Reyndar heyrðist þessi spurning oft á
fyrstu árum geimferðanna og heyrist enn, þó svo að nú orðið hafí hver
Vesturlandabúi daglega gagn af geimferðum og tæknibúnað úti í geimn-
um.
Gagninu má í fljótu bragði skipta
í tvennt, semsé tæknilega nýt-
ingu, svo sem fjarskipti, staðsetningu
hluta, athuganir á ástandi náttúru
og umhverfis frá degi til dag og hins-
vegar gildi vísinda-
legra rannsókna,
sem hafa ekki alltaf
auðsæilegt hagnýtt
gildi að séð verður
sem stendur.
Vísindalegar
grunnrannsóknir
eftir Egil eru oft þess eðlis
Egilsson að með þeim er leit-
að þekkingar þekkingarinnar vegna,
en ekki með tilliti til hagnýts gildis,
nema þá e.t.v. einhvern tímann þegar
fram í sækir. Þeim er haldið við
meðal stórra þjóða sem smárra,
vegna þeirrar reynslu mannkynsins,
að oft opni þær leið til stórstígustu
framfara mannkyns. Nægir þar að-
eins að benda á hagnýtingu kjarnorku
(að svo miklu leyti sem hún hefur
verið notuð skynsamlega) og á tilurð
tölvutækninnar. Hér verður hins veg-
ar einblínt á beina hagnýta notkun
geimferða og geimtækni, eins og Kún
er orðin og eins og hún verður innan
fyrirsjáanlegrar framtíðar. Ég ætlar
mér ekki þá dul að þessi greinargerð
sé tæmandi, en aðeins er tekið það
helsta sem upp kemur við myndun
fljótlegs yfirlits.
1 Fjarskipti
Þarna er um að ræða eina elstu
og helstu hagnýtingu geimtækninn-
ar. Greinarhöfundur minnist fyrstu
sjónvarpsútsendingar með gervi-
tungli yfir Atlantshafið frá jarðarför
Kennedys forseta haustið 1963, í
svart/hvítu vitaskuld. Myndin var
vægast sagt óskýr. Sjónvarpsefni er
það sem leikmenn hafa hvað mest
af að segja af þessari grein. En íjar-
skipti eru vitaskuld margrar annarrar
gerðar, í tengslum við samgöngur
skipa, flugvéla o.fl. Innan sjónmáls
er að hver bíll geti verið í íjarskipta-
sambandi við gervitungl og fái sífeilt
upplýsingar um legu sína á henttinr
um.
2 Könnun
Hér má til teljast landfræðileg
könnun þeirra svæða sem eru enn
ekki fullkönnuð. Einnig að það er
fylgst er með jarðfræðiiegum, jarð-
eðlisfræðilegum og öðrum náttúru-
farslegum þáttum jarðarkringlunnar,
Innan sjónmáls
er að hver bíll
geti verið í fjar-
skiptasambandi
við gervitungl
og fái sífellt
upplýsingar um
Iegu sína á
hnettinum.
svo sem breytilegu (og því miður oft-
ast hnignandi) gróðurfari, veðurskil-
yrðum, útbreiðslu íss, og skilyrðum
hafsins almennt. Veðurspár nútímans
byggjast á þessum athugunum. Þær
eru orsök þess að hægt er að gera
sæmilega áreiðanlega nokkkurra
daga spá nú orðið, í stað sólarhrings
spár fyrir nokkrum áratugum.
3 Umhverfisþættir
Þekktustu og umtöluðustu atriðin
sem varða áhrif mannsins á um-
hverfi jarðarkringlunnar eru eyðing
ósonlagsins, súra regnið, sem eyðir
skógum á norðurhveli jarðar og eyð-
ing regnskóga hitabeltisins og (skylt
því) gróðurhúsaáhrifin, sem stafa af
of mikilli brennslu kolefnis meðal
mannkyns. Við öll þessi atriði nýtist
geimtæknin til athugana á efnafræði-
legu ástandi andrúmslofts og ástandi
gróðurs. Þetta er mikilvægt fyrir það
að þarna eru á meðal atriði sem geta
ráðið úrslitum um það hvort mannin-
um verði á að vinna óbætanlegan
skaða á umhverfi sínu.
4 Geimtækni
Innan fyrirsjáanlegrar framtíðar
ryður sér til rúms ný tækni, sem er
aðeins framkvæmanleg í þyngdar-
leysi úti í geimnum. Einkum er hér
um að ræða efnis- og málmtækni.
En þyngdarleysið gerir kleift að búa
til efni með annars konar kristallag-
erð, og þar með aðra eiginleika en
efni unnið á jörðu niðri. Einkum eru
Japanir langt á veg komnir með slík
áform.
5 Hráefhi
Þegar lengra er litið fram og geim-
ferðir verða ódýrari verða tiltæk efni
úti í sólkerfinu sem fyrirfinnast í
miklu ríkari mæli en á jörðunni. Eink-
um má nefna ýmsar gerðir vetnis,
sem mætti t.d. sækja til reikistjörn-
unnar Júpíters. En margt annað
mætti nefna, svo sem málma. Varla
þarf að taka fram að atriði no. 5 er
miklu lengra undan en hin fyrr-
nefndu.
Hér er aðeins stiklað á stóru og
ekki hefur verið minnst á afar veiga-
mikla hlið umsvifanna í geimnum.
Það er hernaðarbröltið. Því hefur
verið sleppt, þar sem fyrirsögnin gef-
ur tilefni til að einskorða sig við gagn-
semi.
SWATON
MATGERÐ KEISARANS
FÍNA í KÍNA
MATSEÐILL
Fiskisúpa Keisárans í Kína
Humar fyrir hermanninn að austan
Kjúklingur Swaton steiktur við múrinn.
Hörpudiskur pönnusteiktur m/lauk
Lambakjöt í súrsætri sósu Shanghai
Krabbakjöt með sveppum og Swatonsoði
Cha Chi Kai: kjúklingur létt steiktur
Nautakjöt: woksteikt í mildu kryddi
TILBOÐ FYRIR TVO
Fiskisúpa • Humar • S watonkj úklingur
Krabbi meö sveppum»Nautakjöt»Kaffi
1190 kr. pr.mann
faldri samsetningu réttana. Swaton héraðið er þekktfyrir góða matgerð
og matreiðslumeistarar Kínversku keisaranna voru ævinlega frá Swaton
en þar er heimspekingurinn Konfúsíus fæddur.
Næstu vikur verður Swaton matur á matseðilinum á veitinga
húsinu Shanghai og Ijóst og dökkt Tsing tao öl frá Kína .
Kínverska veitingahúsið
Laugavegi 28b • Sími 16513
SÁLARFRÆÐI/G^to aórir svarab því
hver mabur er?__
Vanmetakennd
Þetta. er eitt af þeim hugtökum
úr klínískri sálarfræði sem
löngu er orðið almenningseign,
enda er kvilli sá sem það lýsir al-
gengur. Það er oftast kennt við
austuríska geð-
lækninn Alfred
Adler, sem notaði
það sem einn af
hornsteinum
kenninga sinna,
hvort sem hann
hefur búið þetta
hugtak til eða
ekki.
eftir Sigurjón
Björnsson
Eins og orðið segir er hér um
það að ræða að viðkomandi van-
metur sjálfan sig, hæfileika sína,
skapgerð, líkamsútlit eða hvað það
nú kann að vera. Oftar en hitt er
vanmatið nokkuð almennt og tekur
til margs. Þá eru einatt notuð orð
eins og lágt sjálfsmat eða neikvæð
sjálfsmynd, sem eru víst amrískir
bastarðar.
Einstaklingurinn
vantreystir getu sinni,
andlegri og/eða
líkamlegri. Honum
hættir til að verða hik-
andi, hlédrægur,
kjarklaus, óöruggur
og lítt upplitsdjarfur í
návist annarra. Líðan
hans er sjaldnast góð.
Stundum kann að brá
af honum og getur þá
borið á steigurlæti,
jafnvel að því er virð-
ist nokkrum hroka og
hann getur átt það til
að taka mikið upp í
sig. En það sem er þó
líklega mest einkenn-
andi er að hann virðist
ekki hafa getað gert
sér mælikvarða til að
dýpra en flesta aðra. Hann þarf
mjög á því að halda og leitar oft
fast eftir því, þó að hann þori sjaldn-
ast að trúa hrósyrðum. Túlkanir
hans á framkomu annarra eru oft
afar huglægar og eiga lítið skylt
við raunveruleikann. Einmitt vegna
þess hve hann er háður mati ann-
arra, er hann í raun alltaf að spyrja
aðra hver hann sé og fær að vonum
sundurleit svör. Hið endanlega svar
við spurningunni hlýtur að koma
frá manni sjálfum.
Ollum þeim sem haldnir eru van-
metakennd að einhvetju marki er í
rauninni illa við sjálfa sig. Þeir fyr-
irlíta sig fyrir aumingjaskapinn og
ósjálfstæðið. En þeim er líka yfír-
leitt illa við aðra vegna þess hve
mikið vald þeir telja að þeir hafi
yfir þeim. Þannig er viðkomandi
læstur inni í slæmum vítahring, sem
hann kann sjaldnast ráð til að losna
úr.
Orsakir þessarar persónuleika-
Öllum þeim sem haldnir eru vanmetakennd
að einhverju marki er í rauninni illa við sjálfa
sig. Þeir fyrirlíta sig fyrir aumingjaskapinn
og ósjálfstæðið. En þeim er líka yfirleitt illa
við aðra vegna þess hve mikið vald þeir telja
að þeir hafi yfir þeim.
meta sjálfan sig rétt. Þar af leið-
andi er eins og hann viti aldrei
hver hann er, hvað hann getur eða
hvernig hann er. Hann sveiflast
milli öfga, sem hann treystir þó
aldrei. Við þessar aðstæður leggur
sá sem haldinn er vanmetakennd
óhóflega mikla áherslu á mat ann-
arra á sjálfum sér. Hann verður úr
hófi viðkvæmur fyrir því sem aðrir
segja um hann eða við hann eða
láta í ljós með öðrum hætti, t.a.m.
augnatilliti eða svipmóti. Hin
minnsta gagnrýni eða það sem hann
telur gagnrýni sárnar honum mjög
eða hann reiðist. Hrós snertir hann
truflunar eða þroskamisfellu, sem
verið getur' á mjög mismunandi háu
stigi, eru margvíslegar og margt
fléttast þar einatt saman. En venju-
legast hafa þó einstaklingar sem
svo háttar um átt erfiða bérnsku
eða eitthvað hefur gengið úrskeiðis
snemma á ævinni.
í mjög mörgum tilvikum er unnt
að ráða verulega bót á vanmeta-
kennd með viðeigandi meðferð. En
batahorfur ráðast þó af mörgu:
heildarpersónuleika, greind, innsæi,
andlegum þrótti og raunverulegum
vilja og löngun til að leita orsak-
anna hjá sjálfutn sér.