Morgunblaðið - 24.09.1989, Blaðsíða 24
24: O
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Skuggar sálarlífsins
Opinberlega er ekki fjallað
mikið um skugga sálarlífsins
og þá neikvæðu eiginleika
sem búa innra með okkur.
Umræða er reyndar einhver
en lítið er gert af því að reyna
að skoða rætur neikvæðninn-
ar og upplýsa einhveijar hlið-
ar hennar.
íeigin brjósti
Að mínu mati má skoða nei-
kvæðni frá nokkrum sjónar-
hólum og þá meðal annars
með tilliti til umhverfisþátta.
í sumum tilvikum býr nei-
kvæðnin fyrst og fremst í eig-
in bijósti en er yfirfærð á
umhverfið og í öðrum tilvikum
má í raun og veru rekja hana
til umhverfis okkar, þó það
sé mín skoðun að bakvið flest
vandamál mannlegs samfé-
lags sé mannlegur vanþroski.
Yfirfœrsla
Það hvernig við yfirfærum
okkar eigin neikvæðni á um-
hverfið má t.d. sjá í hegðun
Öfgafullra trúmanna. Þetta er
áberandi í sögum af munkum
fyrri tíma sem sáu djöfulinn
í umhverfinu, t.d. í formi fag-
urra kvenna og sáu sig fyrir
vikið knúna til að fordæma
marga góða konuna.
Innra óþol
Margt af því sem við afneitum
í eigin bijósti þolum við ekki
í fari annarra. Maður sem
blessar hreinlífi og afneitar
kynlífi, en finnur samt fyrir
þrá og iöngun, á það á hættu
að þola ekki eðlilegt ástaiíf
annarra. Pyrir slíka menn
verður ástríðumikil kona að
hóru og þeir sem leika sér og
eru léttir í lund óguðlegir og
illa innrættir. Margs konar
sakiaust athæfi verður illt, af
því að viðkomandi býr til
illsku í umhverfmu og notar
eigin bælingu sem efnivið.
Þekkingarleysi
Það er ekki ætlun mín að
dæma alla illsku heimsins út-
frá fyrrgreindu. Við búum
ekki sjálf til allt hið illa á
þennan hátt. Það er rétt að
sumir sjá glæpi í sakleysi en
aðrir fremja raunveruleg
fólskuverk. Orsök þess að til
eru glæpir tel ég að m.a.
megi rekja til erfiðra um-
hverfisaðstæðna og til van-
þekkingar á eigin kröftum, til
þess að fólk skilur ekki og
ræður ekki við þá orku sem
það býr yfir.
Umhverfi
Af hveiju lætur ungur og efni-
legur maður sem elst upp í
fátækrahverfi New York-
borgar leiðast út í glæpi? Ein
ástæða er sú að hann ber
enga virðingu fyrir lögum sem
einungis hygla þeim ríku og
önnur einfaldlega sú að hon:
um bjóðast engin tækifæri. í
síðara tilvikinu safnast fyrir
orka, reiði, vonbrigði og van-
máttarkennd sem hleðst upp
innra með og að lokum brest-
ur stíflan.
Sálfrœöi
Eg tel að ef við viljum ráðast
gegn því illa í heiminum verð-
um við að einbeita okkur að
tveimur atriðum, okkur sjálf-
um og umhverfinu. í fyrsta
lagi ættum við að líta í eigin
barm og takast á við það sem
þar er, en ekki setja eigin
illsku á umhverfið. Samfara
þessu getum við reynt að
bæta umhverfi okkar og
hjálpa þeim sem eiga við erfið-
leika að stríða. Við getum t.d.
reynt að skilja orsök illskunn-
ar, það að afbrot manna eiga
oft rætur að rekja til sjúk-
dóma sem má rekja til van-
þekkingar. I stað þess að
dæma getum við hjálpað, ekki
síst með því að stuðla að auk-
inhi þekkingu á sálfræðileg-
um málefnum.
MQiRGUNBiiAÐIBi MYNPASÖGUR suNNupÁgiM-tfffflffWPSStótfg
GARPUR
S\Z/*r?TVÆhjGaVfZN/IR. þlNAIg
/yiuNo /tL Dns-i j/g'/sj e/uee e
JiEie/tfiLEQUAi &Afe&/>GA ■'
GRETTIR
BRENDA STARR
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMAFOLK
Herra, ég hélt að þú hefðir sagt að Það ér rétt, Magga, ég held ég sjái
við ættum að hitta leiðsögumann. hann núna. Heyrðu, komdu hingað!
Ert þú leiðsögumaður okkar?
Hver heldurðu að ég sé, James
Bond?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vestur spilar út laufáttu gegn
sex tíglum suðurs. Suður hafði
opnað á sterku grandi og norður
yfirfært í tígul.
Vestur
♦ D3
V D65
♦ 962
♦ 87543
Slemman er auðvitað fyrir
neðan allar hellur. Jafnvel þótt
trompdrottningin skili sér fyrir-
hafnarlaust, eru 11 slagir há-
markið með bestu vörn.
En reyndur sagnhafi reiknar
ekki alltaf með bestu vörn. Hann
sér vissa möguleika á kastþröng
í hálitunum takist honum að ein-
angra hjartavaldið með spaða-
lengdinni. Hann tekur tígulkóng
og fer inn á borð á tromp. Spil-
ar svo hjarta á níuna heima.
Vestur drepur á drottninguna,
og er svo „heppinn" að eiga
tromp til að spila.
Og nú er allt klárt. Laufslag-
irnir eru teknir og spaði tromp-
aður. Síðan er trompi spilað í
botn og austur þvingast í spaða
og hjarta.
Kannski er ekki hægt að ætl-
ast til að vestur bijóti upp sam-
ganginn fyrir þvingunina með
því að spila hjarta til baka. Vill-
an liggur frekar hjá austri. Út-
spilið segir- honum að sagnhafi
eigi ÁKD í laufi. Hann horfir á
6 tígulslagi í borðinu og spaðaás-
inn. Sagnhafi á örugglega
hjartaásinn, og ef hann er líka
með drottninguna fær hann 12
siagi með svíningu. Því getur
aldrei kostað neitt að stinga upp
kóng eða gosa og taka völdin
af makker.
Norður
♦ Á7
¥10432
♦ Á108754
♦ 2
Austur
♦ KG842
V KG8
♦ D
♦ G1096
Suður
♦ 10965
▼ Á97
♦ KG3
♦ ÁKD
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Tel-Aviv í
ísrael í vor kom þessi staða upp
i skák stórmeistarans Glenns Fle-
ars (2.500), Englandi og Mikh-
ails Gurevichs (2.590), Sovétríkj-
unum, sem hafði svart og átti leik.
24. — Re3! og hvítur gafst upp,
því hann tapar drottningunni eða
verður mát á g2. Gurevich sigraði
með gífurlegum yfirburðum á
mótinu, hlaut ÍÖA v. af 11 mögu-
iegum. Næstur varð v-þýski stór-
meistarinn Ilickl með T/z v. Þessi
stórsigur Gurevichs varð til þess
að hann stökk alla leið upp í sjö-
unda sætið á alþjóðlega stigalist-
anum 1. júlí með 2.640 stig.