Morgunblaðið - 24.09.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 24.09.1989, Síða 14
i4 8 —A .; MOUGlÍSELiÍDID SUÁMU kiiósð HOM A TONLEIKUM ICENTRAL PARK Takturinn Indoda Mahlathini; „Maðurinn“ Mahlathini. Dægurtónlist eftirÁma Matthíasson SUÐUR-afrísk tónlist hefur sótt í sig veðrið á Vesturlöndum í seinni tíð og þá sérstaklega eftir að samskiptabann vestrænna útgefenda og tónlistarmanna hætti að ná til litra íbúa landsins. Einn af þeim sem átti mikinn þátt í að Iosa um hömlurnar var Poul Simon, en plata hans, Graceland, sem hann vann í samvinnu við s-afríska tónlistarmenn, seldist í milljónum eintaka um heim allan. Frægustu tónlistar- menn S-Afríku eru án efa Myriam Makeba, Hugh Masakela og Dollar Brand, sem öll hafa starfað í Banda- ríkjunum í áratugi. Síðustu ár hefur söng- flokkurinn Ladysmith Black Mambazo notið vaxandi vinsælda á Vesturlöndum í kjölfar samstarfsins við Paul Simon og Simon Nkab- inde, sem náð hefur mikilli hylli í Bretlandi og Frakklandi, virðist ætla að leika sama leikinn í Banda- ríkjunum. Simon Nkabinde, sem líklega er þekktari undir nafninu Mahlathini, hefur sungið mbaqanga, suður- afríska popptónlist, síðan á sjötta áratugnum. Fremsta mbaqanga- sveit S-Afríku er tvímælalaust Makgona Tsole-sveitin, sem Mahl- athini hefur sungið með frá því sveitin var sett á stofn 1965. Nafn Iv. hljómsveitarinnar þýðir „hljóm- sveitin sem veit allt“, en hana stofn- uðu West Nkosi, Marks Mankwane, Joseph Makwela, Lucky Monama og Vivian Ngubane. Þrjár söng- konur sem kallast Mahotella drottn- ingarnar, hafa einnig sungið með sveitinni í svipaðan tíma. Mbaqanga-tónlist verður trauðla lýst nema sem einskonar blöndu af jass, rytmablús, þjóðlegri afrískri tónlist og rokki. Mbaqanga varð til sem rafmögnuð kwela-tónlist sem naut mikillar hylli uppúr 1950, en kwela er stórborgatónlist með sterkar rætur í þjóðlegri hefð og mbaqanga hefur sama yfirbragð. Mbaqanga-afbrigðið sem Makgona Tsole-sveitin leikur með Mahlathini og Mahotella drottningunum kalla þau mgqashiyo; taktinn ódauðlega, og í sumar ferðaðist sveitin um Bandaríkin til að fylgja eftir fyrstu plötu sveitarinnar sem gefin er út í Bandaríkjunum. í þeirri för lék Mahlathini dansar. Mahlathini og Ma- hotella drottning- sveitin meðal annars á tónleikum í Central Park. Strigabassi eða geitarödd Áhorfendabekkir voru þéttskip- aðir í Central Park og líklega hafa áheyrendur verið eitthvað á annað þúsund. Makgona Tsole-sveitin hóf leikinn og lék éitt lag áður en Ma- hotella drottningarnar komu á svið þjóðlegum búningi. Þær sungu eitt lag og loks kom Mahlathini upp á svið- ið. Hann var þjóð- lega klædd- ur á svipað- an hátt og þær • og kemur víst ætíð þannig fram. Söngur í mbaq- anga-tón- list byggist mikið á samspili þéttra kvenradda og karl- raddar sem kalla má striga- bassa. Karlsöngv- ari sem syngur með þannig rödd kallast „groaner" uppá ensku í S-Afríku, eða er sagður vera með „geita“rödd. Mahlathini er með slíka rödd og það svo dimma að glös hristast á veitingastöðum þegar hann fer hvað lengst niður. Mahlathini er kominn á sextugs- aldur, en ekki var það að merkja á sviðsframkomunni, því hann var ótrúlega líflegur á sviðinu og dans- aði og stökk sem hann ætti lífið að leysa. Lét hann það lítið á sig fá þó annar fóturinn væri vafinn upp á mitt læri vegna einhverra meiðsla. Mahotella drottningarnar létu ekki sitt eftir liggja og dönsuðu honum til samlætis. Það fór ekki á milli mála að dansarnir tengdust textum laganna og auðveldaði það áheyrendum skilninginn, því sungið var á zulumáli. Viðstaddir virtust kunna hið besta við tónlistina, því ekki var sveitin búin að leika mörg lög, þeg- ar þorri áheyrenda þusti að grind- unum frama við sviðið til að dansa og láta ýmsum látum. Alls lék sveit- in í tvær og hálfa klukkustund, þar á meðal nær öll lögin af plötunni nýju, Thokozile, og einnig lög af eldri plötum. Það brá einnig fyrir nokkrum lögum af plötunni Paris Soweto, sem gefin var út í Frakk- landi snemma á þessu ári. Það fer ekki á milli mála að Mahlathini og sveit hans eru vel í stakk búin til að leggja undir sig Bandaríkin og velgengnin í Bret- landi og Frakklandi bendir til þess að það verði ekki á brattann að sækja. Undirtektir áheyrenda í Central Park þennan sumardag sýndu svo ekki verður um villst að mbaqanga nær til áheyrenda hvar sem er. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.