Morgunblaðið - 24.09.1989, Síða 25
O 2&
jMINNING AR0E^%ík@IÆ}É8\ft)P®BM8aR' tóssn/
Júlíana Krisljáns-
dóttir - Minning
Fædd 1. júlí 1901
Dáin 14. septeinber 1989
Júlíana Kristjánsdóttir fæddist í
Bolungai’vík, dóttir Margrétar Þor-
láksdóttur og Kristjáns Hjálmars-
sonar, en alin upp á Blámýrum við
ísafjarðardjúp hjá fósturforeldrum
sínum, þeim Andrési Jóhannessyni
og síðari konu hans, Þorbjörgu
Ólafsdóttur.
Ung að árum fluttist Júlíana til
ísafjarðarkaupstaðar, þar sem hún
þjónaði í heimahúsum svo sem gerð-
ist um ungar stúlkur á þeim tíma.
Síðan fluttist hún til Reykjavíkur og
gerðist þjónustustúlka hjá frú Auði
Gísladóttur í Miðstræti. Taldi hún
það mikla gæfu að hafa fengið að
dveljast á því mikla menningar-
heimili og bar þeirri fjölskyldu ætíð
besta orð.
Nokkrum árum eftir komuna til
Reykjavíkur giftist hún Kristni Á.
Sigurðssyni, sem var sjómaðuip á
farskipum hjá Eimskipafélagi ís-
lands. Kristinn slasaðist um borð í
einu skipanna og eftir það stundaði
hann ýmis störf í landi. Kristinn var
einstakt snyrtimenni og góðum list-
rænum hæfileikum gæddur. Júlíana
og Kristinn bjuggu á ýmsum stöðum
í Reykjavík uns þau fluttu í eigið
húsnæði að Hringbraut 74, rétt fyr-
ir síðari heimsstyijöldina, þar sem
heimili þeirra var æ síðan.
Þau eignuðust 5 börn, en þau
eru: Eggert, kvæntur Ragnheiði
Björnsdóttur, Kristín, gift Guðlaugi
Þorvaldssyni, Esther, gift Þóri Þor-
geirssyni, Ólöf, gift Jóhannesi
Oskarssyni, og Kristinn, giftur
Hrönn Árnadóttur. Esther býr á
Laugarvatni og Kristinn í Grindavík,
en hin börnin búa í Reykjavík. Júlí-
ana átti einn son áður en hún gift-
ist, Friðrik Ottósson, sem er kvænt-
ur Elínborgu Sigurðardóttur og þau
búa á Seltjarnarnesi. Júliana á stór-
an hóp barna og barnabarna.
Júlíana missti eiginmann sinn á
nýársdag 1964. Hátt á annan áratug
eftir það vann Júlíana utan heimilis
Kveðjuorð:
Ingibjörg
Jónsdóttir
Fædd 2. janúar 1917
Dáinll. september 1989
' Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja,
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú íylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Já, kallið er komið, og nú skal
ástvin kveðja, með trega, en full-
vissa þess að veikindum hennar sé
nú loks Iokið, létta ögn sárasta sökn-
uðinn. Hún fær nú að hvíla hjá Ás-
geiri syni sínum, sem hún saknaði
svo'sárt, en hann lést í janúar 1983,
tæplega 35 ára.
lnga og Kiddi hafa alla tíð reynst
mér góðir tengdaforeldrar, líka eftir
að við Ásgeir slitum hjúskap og vil
ég þakka Ingu mörg falleg og góð
orð hennar til mín sem ég mun
geyma í hjarta mínu.
Inga og Kiddi áttu fjögur börn,
þau Þórð, Eddu, Ásgeir og Erlu, og
sex barnabörn.
Elsku Kiddi afi, við sendum þér,
börrium þínum og fjölskyldum þeirra
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Guð styrki þig og blessi.
Sigrún Guðgeirsdóttir,
Vilhjálmur Geir og
Ásdís Ásgeirsbörn.
og bjó alltaf á sama stað, uns hún
fluttist á Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund fyrir nokkrum árum.
Vinnustaðir Júlíönu utan heimilis
voru Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund, Hótel Saga og ísbjörninn.
Ávallt bar hún húsbændum sínum
og samstarfsfólki vel söguna og
sannfærður er ég um það, að störf
sín hefur hún innt af hendi af ein-
stakri samviskusemi og dugnaði.
Minningin um tengdamóður mína
er mér afar kær. Hún var mikil
sómakona til orða og verka, myndar-
leg húsmóðir og henni tókst að gera
heimili sitt og umhverfi hátíðlegt og
aðlaðandi. Þótt aldrei væri þar auður
í garði var það nánast sem að sitja
jólaboð hvert sinn sem komið var á
Hringbraut 74. Eitt hið fyrsta, sem
ég tók eftir er ég tengdist fjölskyldu
Júlíönu, var það hve annt henni var
um að klæða börn sín vel og smekk-
lega. Kristinn var ekki eftirbátur
hennar í þeim efnum, slíkt snyrti-
menni sem hann var.
Ef ég ætti að lýsa tengdamóður
minni, eins og ég þekkti hana, með
einu orði, þá væri það húsbóndaholl-
usta, en þó án alls undirlægjuhátt-
ar, því að hún var líka stolt kona
og mátti ekki va'mm sitt vita. í þessu
sambandi koma mér oft í huga um-
mæli hennar um Gísla Sigurbjörns-
son á Grund, sem hún mat mikils
sem húsbónda og bar jafnan gott
orð við hvert tækifæri sem gafst.
Órökstudda gagnrýni og fullyrðing-
ar út í loftið, sem okkur Islendingum
hættir um of til, þoldi hún ekki og
lét engan komast upp með í skiptum
sínum við hana.
Síðustu árin, sem Júlíana lifði, bjó
hún á EIli- og hjúkrunarheimilinu
Grund. Þar naut hún góðrar umönn-
unar starfsfólks og hlýleika sam-
vistarfólksins. Fyrir það vil ég og
fjölskylda mín þakka sérstaklega.
Um leið færi ég Gísla Sigurbjörns-
syni, fjölskyldu hans og starfsfólki
á Grund síðbúnar alúðarþakkir fyrir
allan viðurgerning og vinsemd við
foreldra mína, sem eru látin fyrir
meira en áratug, en þau voru Stef-
anía Tómasdóttir og Þorvaldur
Klemensson frá Grindavík. Þau
dvöldust á Grund á annan áratug.
Júlíana Kristjánsdóttir var svo til
alla ævi heilsuhraust kona, vinnu-
söm, nægjusöm og glaðsinna. Ég
kveð tengdamóður mína með inni-
legu þakklæti fyrir allt sem hún var
mér í þau 45 ár, er ég þekkti hana,
og með mikilli virðingu fyrir henni
og hennar lífsviðhorfum.
Guðlaugur Þorvaldsson
Aðfaranótt miðvikudagsins 14.
september yfirgaf hún amma Júl
þetta líf og hvarf til hins betra.
Þær eru margar ljúfar minning-
arnar sem koma upp í huga manns,
en þá sérstaklega þar sem hún amma
sat á rúmstokknum og pijónaði hos-
ur eða vettlinga á einhvern úr fjöl-
skyldunni og alltaf hafði hún áhyggj-
ur af þvi hvort þetta væri of stórt
eða of lítið. En því miður fór sjónin
að dofna og þar af leiðandi gat hún
ekki pijónað sl. fimm til sex ár.
Hún amma var kristin og góð
kona og voru það áfáar bænirnar
sem maður lærði við eldhúsborðið
með mjólkurglas og kex sér við hönd.
Ég veit að hún amma er nú vel
sett í hinu lífinu hjá ástkærum eigin-
manni sínum sem lést fyrir 26 árum,
en lengi og oft hefur hún amma
talað um það' hversu tilbúin hún
væri til að fara, en hún var alda-
mótabarn og því orðin 89 ára.
Hryggðarspor þín herra minn,
í himnaríki mig leiða inn.
I næturmyrkrum lá neyð á þér; 7
náðar og dýrðar ljós gafst mér.
Vinir þér öngva veittu stoð,
svo vinskap fengi ég við sjálfan guð.
(H. Pétursson)
Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir
t
Faðir minn, tengdafaðir og vinur,
ÁMUNDI K.J.ÍSFELD,
Uesturgötu 16 b,
lést í Borgarspítalanum 22. september.
Sigurður Ámundason,
Eugenia Nilsen.
Jóhanna Óskarsdóttir,
t
Móðir okkar,
GUÐRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
Hraunbrún 38,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, fimmtudaginn 21. sept-
ember.
Sigríður Jósefsdóttir,
Sigurbjörn Jósefsson,
Markús Jósefsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
HALLGRÍMUR FR. HALLGRÍMSSON
fyrrverandi forstjóri,
Vesturbrún 22,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 26. september
kl. 13.30.
Margrét Hallgrímsson,
Þóra Hallgrímsson, Björgólfur Guðmundsson,
Elína B. Hallgrímsson, Ragnar B. Guðmundsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÚLÍANA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hringbraut 74,
Reykjavík,
sem lést 14. september sl. verður jarðsungin frá Dómkirkjunni i
Reykjavík næstkomandi mánudag, 25. september kl. 13.30.
Friðrik Ottósson,
Eggert Kristinsson,
Kristfn H. Kristinsdóttir,
Esther M. Kristinsdóttir,
Ólöf E. Kristinsdóttir,
Kristinn B. Kristinsson,
Elínborg Sigurðardóttir,
Ragnheiður Bl. Björnsdóttir,
Guðlaugur Þorvaldsson,
Þórir Þorgeirsson,
Jóhannes Ö. Óskarsson,
Hrönn Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur hlýhug og sam-
úð við andlát og jarðarför
SIGURBJÖRNS KRISTJÁNSSONAR
frá Kárastöðum,
Skagaströnd.
Guð blessi ykkur.
Systkini og aðstandendur.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar og tengdamóður,
ÞÓRÖNNU RÓSU SIGURÐARDÓTTUR,
Droplaugarstöðum.
Sigurður Guðmundsson, Þórunn Ólafsdóttir,
Guðmundur J. Kristjánsson, Þórlaug S. Guðnadóttir,
Sigurbjörg Kristjánsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR MAGNÚS JÓNSSON,
Grýtubakka 20,
lést 19. september á Landsspítalum. Jarðsungið verður í Foss-
vogskirkju, þriðjudaginn 26. september, kl. 13.30.
Torfhildur Þorleifsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall föður
okkar, tengdaföður, bróður og afa,
SVEINS GÍSLASONAR
flugstjóra.
Hildur Sveinsdóttir, Helgi Viborg,
Einar Sveinsson, Guðný Elfsabet Óladóttir,
Astrid Sveinsdóttir, Javier Fernandes,
Sigriður Gísladóttir, Guðlaug Gísladóttir,
Eva, Ásthildur, Þóra og Sunna.
t
Útför ástkærar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
HERBORGAR KRISJÁNSDÓTTUR,
kennara,
Vesturbrún 6,
fer fram frá Áskirkju, þriðjudaginn 26. sept. kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Þórir Sigurðsson,
Ágústa Rósa Þórisdóttir, HjörvarGarðarsson,
Ingiríður Þórisdóttir,
Þóra Björg Þórisdóttir,
Guðrún Þórisdóttir,
Sigurður Kristján Þórisson,
og barnabörn.
Ingvar Einarsson,
Ámundi Sigurðsson,
Jón Ingvar Pálsson,
Ingibjörg Stefánsdóttir
t
Þökkum innilega öllum þeim, er auð-
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför, móður okkar, systur,
mágkonu, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR ÞORLEIFSDÓTTUR,
Sigtún 39,
Reykjavík.
Sigríður Þórðardóttir, Björgvin Vilmundsson,
Svala Þórðardóttir, Gísli Sveinsson,
Sjöfn Þórðardóttir, Árni J. Sigurðsson,
Gunnar Þorleifsson, Hildur Kristinsdóttir,
og barnabörn.