Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
*
-'l
UPPLYSINGAR: SIMSVARI
Athugasemd
frá Bifreiðastjórafélaginu Frama
eftir IngólfM.
Ingólfsson
í Morgunblaðið 28. nóvember sl.
skrifar Bjarni Sigtryggsson gi'ein
þar sem honum þykir hlýða að
senda leigubílstjórum kaldar kveðj-
ur í máli sem mér sýnist hann lítið
hafa kynnt sér, nema þá af sögu-
sögnum eða röngum upplýsingum.
Bjarni telur í grein sinni að
leigubílstjórar og forsvarsmenn
þeirra misskilji eðli þjónustunnar,
einkum og sér í lagi vegna þess að
þijár stærstu bifreiðastöðvarnar
hafi ekki viljað taka þátt í útboði
Flugleiða á akstri „forgangsfar-
þega“ þeirra sem ferðast á Saga
Class.
Bjarni Sigtryggsson segir að
Frami hafi komið í veg fyrir að
stöðvarnar byðu í aksturinn. Þetta
Kirkjudagur
Grensássóknar
Næstkomandi sunnudagur er
Kirkjudagur Grensássóknar. Þá
v.erður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11,
þar serrf kór Hvassaleitisskóla kemur
í heimsókn. Söngvar eru léttir og1
formið fijálslegt.
Hátíðarmessa dagsins verður kl.
2. Þar prédikar sr. Halldór S. Grönd-
al og sr. Gylfi Jónsson þjónar fyrir
altari. Einsöng syngur Matthildur
Matthíasdóttir. Eftir messu verður
kirkjukaffi í Grensási kynnt kirkju-
gestum og öllum boðnar veitingar.
Um kvöldið verður aðventusam-
koma kl. 20.30. Þar flytur dr. Hjalti
Hugason ræðu, Kristján Þ. Stephen-
sen leikur á óbó, Sigurður Björnsson
syngur einsöng og organistinn okkar
Ami Arinbjarnarson leikur á orgelið.
Samkomunni lýkur með helgistund
og almennum söng.
Sóknarnefiidin
„Fullyrðingar um að
Frami hafí komið í veg
fyrir samkomulag eru
út í hött og er þeim
fullyrðingum vísað til
sinna foðurhúsa.“
er ekki rétt. Aftur á móti voru tvö
atriði sem urðu til þess að stöðvarn-
ar töldu sér það ekki fært. En þau
eru:
1. Kröfur þær sem Flugleiðir
gerðu í útboðinu voru þess eðlis að
engin ein stöð taldi sig geta borið
ábyrgð á að geta staðið við slíkt
ef um einhvern umtalsverðan akst-
ur væri að ræða. Þess vegna buðu
stöðvarnar upp á sameiginlegar við-
ræður til að finna lausn á málinu.
Það hafa Flugleiðamenn ekki þegið
og eru það leigubílstjórum von-
brigði.
2. Bifreiðastöðvarnar eru ekki
samningsaðili um kaup og kjör
bílstjóranna, þar sem þær hvorki
eiga né reka bílanna, heldur leigja
aðstöðu.
Það er skoðun stjórnar Frama
að eðlilegt sé að veita afslátt ef um
aukningu á vinnu er að ræða. Þess
vegna var boðið upp á að haldinn
yrði fundur aðila og reynt að kom-
ast að samkomulagi.
Af þessu má sjá að fullyrðingar
um að Frami hafi komið í veg fyrir
samkomulag eru út í hött og er
þeim fullyrðingum vísað til sinna
föðurhúsa. Það er aftur ekki gott
mál ef þessir aðilar, Flugleiðir og
leigubílstjórar, sem átt hafa gott
samstarf gegnum árin, það ég best
veit, vinna ekki saman að eðlilegri
þróun og þjónustu við flugfarþega
sem aðra.
Höfundur er formaður
Bifreiðastjórafélagsins Frama.
Neskirkja:
Ljósamessa á aðventu
EINS OG venjan hefur verið á
síðastiiðnum árum er mikið um
að vera á fyrsta sunnudegi í að-
ventu sem nú er 3. desember.
Barnasamkoma er kl. 11 árdegis
en klukkan 2 annast fermingar-
börnin væntanlegu ljósamessu
með ritningarlestri við kertaljós,
flytja ávarp og lesa sögu á milli
þess sem sungnir verða gamal-
kunnir sálmar, sem ætlast er til
að allir kirkjugestir taki undir.
Að lokinni guðsþjónustu selja
ungmennin í æskulýðsfélaginu
kaffiveitingar til Ijáröflunar fyrir
starfsemi sína.
Klukkan 5 síðdegis hefst svo
aðventustundin. Prófessor Guð-
mundur Magnússon formaður sókn-
arnefndar flytur ávarp. Kór Mela-
skóla syngur undir stjórn Helgu
Gunnarsdóttur. Óli Þ. Guðbjartsson
kirkjumálaráðherra flytur hugleið-
ingu. Fríða Kristinsdóttir og Heiða
Fríkirkjan
Sunnudaginn 3. desember, fyrsta
sunnudag í aðventu, eru liðin 90
ár frá fyrstu guðsþjónustu
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík í
Goodtemplarahúsinu. Þessa verður
minnst sérstaklega við guðsþjón-
ustur sunnudagsins.
Klukkan 11.00 verður barna-
guðsþjónusta. I guðsþjónustunni
eru sungnir barnasálmar, farið í
hreyfijeiki, biblíuorð dagsins út-
skýrt' í máli og myndum og beðnar
bænir. Að guðsþjónustunni lokinni
verður ungum sem öldnum kirkju-
gestum boðin hressing í tilefni
dagsins.
Klukkan 14.00 verður almenn
hátíðarguðsþjónusta. Þar mun not-
aður fyrsta sinni nýr hátíðahökull,
gjöf frá kvenfélagi safnaðarins.
Dögg Jónsdóttir leika á þverflautur
og Sigrún. Hjálmtýsdóttir syngur
einsöng. Þá mun kirkjukórinn
syngja undir stjórn Reynis Jónas-
sonar organista.
Frank M. Halldórsson.
í Reykjavík
Hökullinn er hannaður og gerður
af listamanninum Hólmfríði Árna-
dóttur, kennara við Kennarahá-
skóla Islands en henni til aðstoðar
við sauma var Laufey Kristjáns-
dóttir. Við gerð hökulsins hefur
verið leitað samræmis við altaris-
áklæði kirkjunnar.
í guðsþjónustunni mun Hjálmtýr
Hjálmtýsson syngja einsöng. Áð
guðsþjónustunni lokinni verður
kirkjugestum boðið til samsætis í
tilefni tímamótanna. Þar munu fé-
lagar úr kór kirkjunnar sjá um
söngdagskrá við undit'leik organist-
ans Paveí Smid, auk annars. Til
guðsþjónustunnar þennan dag eru
allir velkomnir sem endranær.
Sr. Cecil Haraldsson