Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
Vlfl STÆKKUM
OG AUKUM ÞJÓNUSTUNA
OPNUM í DAG NÝJA VERSLUN í SKEIFUNNI 3e
í STÆKKUÐU OG ENDURBÆTTU HÚSNÆÐI
Viðurkennd þýsk gæðamerki sem fagmennirnir þekkja
FEIN
rafmagnshandverkfæri
í miklu úrvali, fyrir
iðnaðarmenn og aðra
handlagna.
Fein - öryggi og nákvæmni.
BOGE
loftpressur
Áreiðanleg gæðasmíði af
öllum gerðum og stærðum.
KÁRCHER
háþrýstidælur og ryksugur
Afkastamiklar
og handhægar.
Höfum einnig Kárscher
heitavatns- og gufuhreinsara.
KAFFIVEITINGAR í TILEFNI DAGSINS
ALLIR VELKOMNIR
ENDRESS
rafstöðvar
Sparneytnar og endingargóðar.
Fjölmargar stærðir og getðir.
KRUPS
heímilistæki
Þýsk verðlaunahönnun.
Brauðristar • Expressóvélar •
Kaffivélar • Hrærivélar o.fl.
SKEIFTJNNI 3e, SÍMAR 82415 & 82117
ALHLIÐA VIÐGERÐAR- OG VIÐHALDSÞJÓNUSTA,
VÉLAVIÐGERÐIR OG MÓTORVINDINGAR.
TÖKUM AÐ OKKUR RAFLAGNIR OG NÝLAGNIR.
■V-Al-V rl' I * i
SKRIFSTOFA vb»VsJ=.V L'lL
®k.’A
tSáXÍ
Aðventu-
kvöld í
Askirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu, 3.
desember, verður aðventusam-
koma í Áskirkju kl. 20.30.
Ræðu flytur sr. Grímur
Grímsson, fyrrum sóknarprestur í
Ásprestakalli. Bryndís Pálsdóttir
fiðluleikari leikur við undirleik
Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
Ingibjörg Marteinsdóttir syngur
einsöng og ásamt kirkjukór Ás-
kirkju aðventu- og jólasöngva, en
söngstjóri er Kristján Sigtryggsson
organisti. Ennfremur verður al-
mennur söngur, en samkomunni
lýkur með ávarpi sóknarprests og
bæn.
Bifreið mun flytja íbúa dvalar-
heimila og annarra stærstu bygg-
inga sóknarinnar að og frá kirkju.
Vona ég að líkt og undanfarin
ár leggi margur leið sína til Ás-
kirkju til að njóta þess sem flutt
verður á aðventusamkomunni.
Hugþekkur blær þessara stunda við
upphaf jólaföstu hefur reynst mörg-
um eldri og ekki síður yngri dýr-
mætur og hollur undirbúningur þess
að j)iggja birtu og frið komandi jóla.
Árni Bergur Sigurbjörnsson
Hátíð á
aðventu í
Haukadal
og Skálholti
Skálholti.
JÓLAFASTA verður með veg-
legra móti í Biskupstungum í
vetur.
Fyrsta sunnudag í aðventu, 3.
desember, heijast hátíðahöld í
Haukadalskirkju kl. 13.30 með
messu. Þar munu þær Eijna Guð-
mundsdóttir, söngkona; Ólöf Sess-
elja Óskarsdóttir, sellóleikari og
Helga Ingólfsdóttir, semballeikari
leggja sitt til messunnar, en kór
heimamanna mun syngja. Organ-
isti verður Jónína Guðmundsdóttir.
Fermingarbörn munu aðstoða
sóknarprestinn við þjónustuna.
Loks mun svo sóknarnefnd bjóða
til messukaffis.
Kl. 17 síðdegis, sama dag, hefst
síðan aðventustund í Skálholts-
kirkju. Þar mun Þorkell Sigur-
björnsson, tónskáld, flytja hugleið-
ingu um nokkur gömul íslensk lög.
Þá munu listakonurnar þijár, þær
Erna, Ólöf Sesseljaog Helga, frum-
flytja útsetningar Þorkels á tveim-
ur gömlum íslenskum sálmalögum.
Þær flytja og jóla- og aðventu-
söngva eftir fleiri islensk tónskáld
auk tónverka frá 17. og 18. öld
eftir erlenda höfunda.
Erna Guðmundsdóttir er nýkom-
in frá söngnámi erlendis og hefur
þegar vakið athygli. Ekki síst á
sumartónleikum í Skálholti. Ólöf
Sesselja leikur á gömbu (sem er
gamalt barokkhljóðfæri) á tónleik-
unum. Helga Ingólfsdóttir leikur á
nýjan sembal sem keyptur hefur
verið til nota í Skálholti. Semballinn
þykir gersemi, enda er hann
smíðaður af einum fremsta sembal-
smið sem nú er uppi, Willem Kroes-
berdn. Aðventustundinni lýkur með
hugvekju sóknarprestsins séra
Guðmundar Óla Ólafssonar en
fermingarbörn verða honum til að-
stoðar.
Sunnudaginn 10. desember
verða aðventustundir í Torfastaða-
kirkju og Bræðrabungukirkju en
helgiieikur barna í Biskupstungum
verður í Skálholtskirkju 17. desem-
ber.
- Björn
fl
I
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
fl
H