Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Fiskurinn
Fiskurinn (19. febrúar —
19. mars) er næmur og til-
finningaríkur og fljótur að
grípa tilfinningar úr um-
hverfinu og gera þær að
sínum eigin. Hánn á því
erfitt með að vera í kring-
um fólk sem er reitt, þungt
eða á einhvern hátt
óánægt. Það dregur hann
niður eða treður sínu skap-
lagi á hann. Þessu fylgir
að það er auðvelt fyrir aðra
að særa Fiskinn. Hann
bregst oft við þessu með
því að draga sig í hlé eða
neita að umgangast ákveð-
ið fólk.
Skilur aöra
Fiskurinn er fljótari til tára
en -önnur merki, þó hann
reyni að halda aftur af sér,
og þá sérstaklega karlmenn
í merkinu. Þessi næmleiki
er ekki alltaf slæmur, þó
ekki sé hann alltaf þægileg-
ur. Það jákvæða við hann
er að Fiskurinn hefur hæfi-
leika til að setja sig í spor
fólks og á sérlega auðvelt
með að skilja þarfir ann-
arra. Honum er illa við að
særa aðra, því hann veit
sjálfur hvernig það er að
verða fyrir sárum. Hann
réyriir því að hjálpa öðrum,
hvenær sem slíkt er mögu-
legt. Hjálpsemi færir hon-
um vellíðan.
Einkaveröld
Fiskurinn hefur gaman af
því að dvelja í eigin
draumaheimi, búa til sögur
og skapa sína eigin veröld,
sem aðrir hafa ekki aðgang
að. Hann talar hins vegar
sjaldan um þennan einka-
heim, því hann veit sem er,
að fæstir myndu skilja
hann. Hann þarf á því að
halda að lifa í eigin heimi,
a.m.k. á tímabilum, en þarf
einungis að gæta þess að
tapa ekki sjónum á því sem
er að gerast í umhverfinu.
Feimni
Fiskurinn er oft feiminn,
því honum finnst að hann
þurfi að þekkja fólk vel
áður en hann getur treyst
því. Vegna næmleika síns
og viðkvæmni reynir hann
að gera einungis þá að vin-
um sem munu ekki særa
hann. Hann þarf hins vegar
á öðrum að halda eins og
allir, því annars yrði hann
einmana, jafnvel í einka-
heimi sínum.
Útilokunaraöferö
Framangreint er ein hlið á
upplagi Fisksins. Þó hann
sé viðkvæmur og hafi ekki
þykka skel til að veija sig
með, lærir hann eins og
aðrir að sjá um sjálfan sig.
Ein varnaraðferð hans er
sú að draga sig í hlé og
umgangast einungis fáa og
útvalda. Önnur er sú að
fínna ákveðinn málstað eða
markmið, einblína á það,
en horfa framhjá öðru. Það
getur til dæmis verið það
að hella sér út í vinnu, eða
beijast af krafti fyrir
stjómmála- eða líknar-
hreyfingu. Hann lokar
síðan á önnur mál og lætur
sem þau komi honum ekki
við. Einn af hæfileikum
Fisksins er sá að geta úti-
lokað það sem hann vill
ekki horfa á. Hann getur
því stundum virst harður
og kaldur karl, en er í raun
ekki harður, heldur einfald-
lega neitar að horfa á það
sem hann kærir sig ekki
um í lífi sínu.
e~L ADDI 1 D
OMKrUn
<//«/;/ i//i&iliþs. A/oefiweeyw
' LI7TUA
BJOFtTU HuOAeWUZ
VOPNJ, H/tRTROM
EK L'KLESA ÞH£>
BESTA-
I l/OPNl! L lBSfOTJNG?/tfZ
iPEo rmim/te gengu l>r.
\^~^Nú/yium FyRjK yí/top
í- ~\~n/0, OS p!D
I EKVÐ EHN
I AÐH//iRjAjf >-'■
JH/At/U! EFþem
eruhíþ/li liðs-
FOR/NSJ/\HN/{
/ýi lansar /yus
EkM /tÐSTAHVeeN
Þö EKT ALPE/L-
/S í 60ÐU SK/tP/.
06 T/tNÞ/R
SENO/R ÞÉR
BESTUCSH/P,
omsata;
u Fpp'i l... ii, i—i 1
GRETTIR
BRENDA STARR
UÓSKA
Fagrir vellir míla.
SMÁFÓLK
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Spegill er eitthvert ófrumleg-
asta fyrirbæri sem til er: hann
apar allt eftir fyrirmyndinni —
gefur ekkert svigrúm fyrir sköp-
un. Sama má seja um spegil-
skiptingu í brids. Möguleikarnir
til að skapa slagi eru hverfandi.
Austur gefur; allir á hættu:
Norður
♦ Á742
VK5
♦ 10764
+ Á95
Vestur
VAG7432
♦ 2
+ 7643
Suður
Austur
♦ DG106
V 986
♦ 853
♦ 1082
♦ K85
VD10
♦ ÁKDG9
+ KDG
Speglunin er ekki alger í NS,
en nógu mikil til þess að útiloka
alla möguleika á 12. slagnum.
Styrkurinn og tígulsamlegan
gera það þó að verkum að erfitt
er að sleppa slemmunni. Spilið
kom upp í leik fslands og Tyrk-
lands í Brighton 1987 og þar
fóru bæði pörin í sex tígla. Hið
sama gerðist á æfingu í lands-
liðshópi um daginn, þar sem
þessi leikur var endurspilaður.
Spil NS henta eðlilegum kerf-
um illa. Suður opnar á tveimur
gröndum (eða MULTI tveimur
tíglum) og norður freistast til
að keyra í slemmu með tvo ása
og kóng. Skiptingin kemur aldr-
ei í ljós. Biðsagnakerfi, sem
byggist á spurningum um skipt-
ingu, kontról og styrk, gæti
sneitt hjá slemmunrii. Suður
opnar á sterku laufi og fær upp-
gefið með tímanum að norður á
4-2-4-3 og 5 kontról. Hann sér
á sínum spilum að norður á
svörtu ásana og hartakóng og
hafnar því slemmunni. Síðan
kemur norður upp með spaðago-
sann til viðbótar og drottningin
liggur fyrir svíningu!
Brids
Amór Ragnarsson
Hreyfill — Bæjarleiðir
Lokið er fimm umferðum í
aðalsveitakeppninni og er staða
efstu sveita nú þessi:
Tómas Sigurðsson 114
CyrusHjartarson 104
Ólafur Jakobsson 87
Jón Sigurðsson 84
Næsta umferð verður spiluð
nk. mánudagskvöld kl. 19,30 í
Hreyfilshúsinu.
Bridsdeild
Barðstrendinga-
félagsins
Keppnin í hraðsveitakeppn-
inni er enn jafn skemmtileg.
Staðan:
Ragnar Björnsson 2139
Pétur Sigurðsson 2126
Sigrún Jónsdóttir 2111
Þórarinn Árnason 2107
Hæsta skor í síðustu umferð:
Gunnar Pétursson 557
Sigrún Jónsdóttir 546
Edda Thorlacíus 536
yikar Davíðsson 531
Ólafur Jónsson 529
Bridsdeild
Skagfirðinga
Eftir 4 umferðir í aðalsveita-
keppni félagsins, er staða sveit-
anna orðin þessi:
Sveit Sigfúsar Amar Árnasonar 74
Sveit Amar Scheving 71
Sveit Lámsar Hermannssonar 69
Sveit Helga Hermannssonar 59
SveitHildarHelgadóttur 55
Sveit Hjálmars S. Páissonar 54
Sveit Ragnars Hjálmarssonar 42
SveitGeirlaugarMagnúsdóttur 40
og einn leik til góða.
Sveit Sigmars Jónssonar 38
og einn leik til góða.
Sveit Málmeyjar 38
og 2 leiki til góða.
Spilamennsku verður fram-
haldið næsta þriðjudag.