Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
Signrður Hallgrímsson veitir verðlaunum sínum viðtöku úr hendi
danska menningamálaráðherrans, Ole Vig Jensen.
íslenskur arkitekt hlýt-
ur verðlaun í Danmörku
ÍSLENSKUR arkitekt, Sigurður Hallgrímsson, hlaut í desember
dönsku Icopal-verðlaunin fyrir Iokaverkefhi sitt við Arkitektaskóla
Listaakademíunnar í Kaupmannahöfh; hús undir sýningarsali og
vinnustofur í Reylqavik.
45 arkítektúrstúdentar tóku þátt
í samkeppni til verðlaunanna, sem
Villadsen’s-verksmiðjunnar veita.
Verðlaunin skal veita verki þar sem
sýnt er fram á mikilvægi þaks fyr-
ir arkitektúr húss. Verðlaunaféð
nemur 30 þúsund dönskum krón-
um. Dómnefnd var einhuga um að
veita Sigurði verðlaunin.
Afkoma frystingarinnar:
Um tíunda hvert hús er rek-
ið með nokkrum hagnaði
UM TÍUNDI hluti fyrirtækja í frystingu, miðað við fjölda, er rekinn
með um 10% betri afkomu en meðaltalið. Miðað við mat Sambands
fiskvinnslustöðva er frystingin að meðaltali rekin með 4% tapi nú í
upphafi árs. Beztu fyrirtækin eru því rekin með um 6% hagnaði af
tekjum, en á sama hátt er tap þess flokks, sem verst er settur um
14%. Skiptingin er svipuð í söltun, en þar er þó meiri munur á af-
komu hinna beztu og þeirra lökustu. Afkoma söltunar er að meðal-
tali mun lakari en í frystingunni. '
Samkvæmt útreikningum Þjóð-
hagsstofnunar á afkomu frysting-
arinnar árið 1988 og dreifingu fyr-
irtækjanna eftir afkomu, má gera
ráð fyrir því að fyrirtæki með um
fimmtung af veltu frystingarinnar,
alls tíundi hluti miðað við fjölda,
sé rekinn með um eða yfir 10%
betri afkomu en meðaltalið. Svipað-
ur hluti er svo jafnmikíð fyrir neðan
það. Þetta bendir til þess að í þeim
hópi, sem bezt er rekinn, séu frem-
ur fá en stór frystihús svo og ein-
hver af smærra taginu. Svo virðist
sem rekstur frystihúsa af miðlungs
stærð sé erfiður og að bilið milli
vel rekinna húsa og slakra fari vax-
andi.
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa íslands
/ (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 4. JANUAR.
YFIRLIT ( GÆR: Skammt suður af Hvarfi er viðáttumikil 945 mb
lægð sem þokast austnorðaustur.
SPÁ: Suðaustanátt, stinningskaldi með rigningu austan til á landinu
fram eftir degi en léttir síðan til norðan- og norðaustanlands. Um
sunnan- og vestanvert landið verður sunnangola eða kaldi og skúr-
ir. Hiti 4—7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Fremur hæg suðaust-
læg átt. Bjart veður og sums staðar vægt frost á Norðurlandi en
skúrir eða slydduél og 2—5 stiga hiti sunnanlands.
TÁKN:
Heiðskirt
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu.og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
f f f
* / *
/ * / * Slydda
f * f
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—{- Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +1 léttskýjað Reykjavík 5 alskýjað
Bergen vantar
Helsinki +12 léttskýjað
Kaupmannah. 0 súld á síð. klst.
Narssarssuaq 4 úrk. í grennd
i Nuuk 4 alskýjað
Ósló +7 kornsnjór
Stokkhólmur +4 súld á sið. klst.
Þórshöfn 6 skúr á sið. klst.
Algarve 12 skýjað
Amsterdam 2 þokumóða
Barcelona 9 þokumóða
Berlín 1 mistur
Chicago 1 neiðskírt
Feneyjar 5 heiðskirt
Frankfurt 0 alskýjað
Qlasgow 5 rígning
Hamborg 0 skýjað
Las Palmas 18 súld
London 5 alskýjað
Los Angeles 9 heiðskírt
Lúxemborg +1 skýjað
Madríd 8 alskýjað
Malaga 13 alskýjað
Mallorca 16 alskýjað
Montreal +1 alskýjað
New York 3 skýjað
Orlando 13 skýjað
París 1 skýjað
Róm 10 þokumóða
Vin +1 snjók. síð. klst.
Washington +1 skýjað
Winnipeg +13 snjókoma
Uppgjör fyrir einstök hús fyrir
þetta ár liggur ekki fyrir og Þjóð-
hagsstofnun gefur ekki upp hvaða
hús séu í hópi þeirra bezt reknu.
Miðað við afkomuna árið 1988 má
áætla að í þessum hópi geti verið
einhver eftirtalinna húsa: Hólanes
á Skagaströnd, Útgerðarfélag Ak-
ureyringa, Jökull á Raufarhöfn,
Hraðfrystihúsið á Fáskrúðsfirði,
Fiskiðjuver KASK á Homafirði,
Haraldur Böðvarsson og Co. á
Akranesi og þau hús á Vestfjörðum
sem bezt standa. Þama gætu einn-
ig verið einhver smærri hús. Þá
mun rekstur frystihúsanna í Nes-
kaupstað og á Eskifirði hafa geng-
ið vel undanfarin misseri og svo á
reyndar við um mörg önnur.
Námskeið Heilsuverndarstöðvarinnar:
Tilraimir að heijast með
nefuða gegn reykingum
ÞATTTAKENDUM á námskeið-
um Heilsuverndarstöðvarinnar
gegn reykingum verður á nýja
árinu gefinn kostur á að prófa
notagildi nikótín-nefúða við að
hætta að reykja. Sambærilegar
prófanir fara nú fram í Banda-
ríkjunum og Svíþjóð. Að sögn
Þorsteins Blöndal læknis, sem
hefur umsjón með námskeiðun-
um og prófununum, er vonast
til að úðinn geti skilað enn betri
árangri en nikótín-tyggigúm-
míið sem margir hafa notað við
að hætta að reykja.
40-45% þeirra sem notað hafa
tyggigúmmíið hafa náð að hætta
reykingum lengur en í eitt ár og
batnar árangrinn eftir því sem lyf-
ið er meira notað. Að sögn Þor-
steins rís nikótín-magn í blóðinu
hraðar þegar úðinn er notaður og
líkara því sem er við reykingar.
Því er vonast til að notkun hans
skili meiri árangri.
Fyrsta námskeiðið á nýja árinu
hefst næstkomandi mánudag en
önnur námskeið verða h^ldin í
byijun febrúar, mars og apríl.
Þátttakendur fá nikótín-úðann til
ókeypis nota í allt að eitt ár. Nán-
ari upplýsingar eru veittar á
Heilsuverndarstöðinni. Þar fer inn-
ritun einnig fram.
VÍðræður ASI, VSI
og VMS;
Stífari
fundahöld
undirbúin
FYRSTI fundur aðila vinnu-
markaðarins á nýju ári um
nýja kjarasamninga var hald-
inn í gær í húsnæði Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna
við Kirkjusand. Annar fundur
hefiir verið ákveðinn seinni-
partinn á morgun í húsnæði
Alþýðusambands íslands við
Grensásveg.
Á fundinum í gær var farið
yfir stöðu mála og hvað komið
hefði fram á fundum samtakanna
fyrir jól og milli jóla og nýárs.
Gert er ráð fyrir að meiri kraftur
komist nú á viðræðurnar og fund-
ir verði tíðari.
Hækkun á gjaldskrá
sundstaða í Reykjavík
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
hækkun á gjaldskrá sundstaða
frá og með 1. janúar.
Einstakur miði fullorðinna kostar
nú kr. 100 en kostaði kr. 90, ein-
stakur miði barna kostar kr. 50 en
kostaði kr. 45. Hækkunin er ll,l%.,
Tíu miðar fullorðinna kosta kr. 900
en kostuðu kr. 810, tíu miðar bama
kosta kr. 290 en kostuðu kr. 260
og þijátíu miðar fullorðinna kosta
kr. 2.200 en kostuðu kr. 2.000.
Einstakir miðar í gufubað kosta
kr. 210 en kostuðu kr. 190, tíu
miðar í gufubað kosta kr. 1.820 en
kostuðu kr. 1.650 og leiga á hand-
klæðum og sundfötum hækkar úr
kr. 130 í kr. 150. Árskort fullorð-
inna hækkar í kr. 13.000 en kost-
aði kr. 11.700, árskort fyrir börn
kostar kr. 4.800 en kostaði kr.
4.400, fyrirtækjakort hækka í kr.
2.200 en kostaði kr. 2.000. Gjald í
vatnsrennibrautir sem var kr. 100
er fellt niður.'
Landsbankinn lækkaði
nafiivexti um áramótin
LANDSBANKI íslands lækkaði nafnvexti um áramótin af hluta útlána
og innlána. Forvextir af víxlum lækkuðu úr 27,5% í 25,5% og vextir
af yfirdráttarlánum lækkuðu úr 32,5% í 30,5%. Þá varð lækkun á vöxt-
um af almennum tékkareikninguni úr 2% í 1%, vextir af sértékkareikn-
ingum lækkuðu úr 10% í 8% og vextir af sparisjóðsbókum lækkuðu
úr 11% í 9%.
Aðrir bankar og sparisjóðir
breyttu ekki nafnvöxtum af útlánum
og eru þeir nú að jafnaði hærri en
vextir Landsbankans. Þannig eru
vextir af víxlum annarra banka og
sparisjóðanna 27,5% og vextir af
yfirdráttarlánum eru á bilinu
32,5-35%. Algengustu vextir af verð-
tryggðum og óverðtryggðum skulda-
bréfum eru jafnháir nú hjá Lands-
banka og búnaðarbanka eða 7,5%
og 31,5%. Hjá öðrum bankastofnun-
um eru algengustu vextir af óverð-
tryggðum skuldabréfum 31,75-
32,75% og af verðtryggðum skulda-
bréfum eru þeir á bilinu 7,75-8,25%.