Morgunblaðið - 04.01.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.01.1990, Blaðsíða 7
7 ; >1 i/ MORGUNBLAÐIÐ .FIMMTUDAGUK 4. JANÚAR 199o' Þjóðleikhúsið: Gunnar Þprð- arson semur lög við Spaug- stofiirevíuna GUNNAR Þórðarson tónlistar- maður heftir verið fenginn til að semja Iög fyrir revíu sem Spaugstofan er að semja fyrir Þjóðleikhúsið. Revían sem Spaugstofumenn eru að semja verður síðasta verkið á yfirstandandi starfsári Þjóðleik- hússins. Sýningar hefjast í apríl. Þá verður búið að loka Þjóðleik- húsinu vegna viðgerða og koma þá tveir salir til greina, Gamla bíó og Háskólabíó, að sögn Gísla Al- freðssonar þjóðleikhússtjJóra. Lendingar- gjöld flug- véla hækkuð LENDINGARGJÖLD flugvéla voru hækkuð 1. janúar. Meðal- hækkun gjalda í innanlandsflugi er um 10%, en gjöldin er misjöfii eftir flugvélastærðum. Sam- gönguráðuneytið hefiir tilkynnt Flugmálastjóm þessa hækkun. Hækkun verður i stærri flokk- unum. 16-17% hækkun er á lend- ingargjöldum flugvéla sem eru níu tonn og þyngri. Til dæmis hækkar lengingargjald Fokker-flugvéla Flugleiða, 44 sæta, úr 3.000 krón- um í 3.500 krónur. Lengingargjöld minni flugvéla lækka aftur á móti. Gjöld átta til níu sæta flugvéla lækka úr 600 krónum í 550 krónur og átján til nítján sæta flugvéla úr 900 krónum i 810 krónur. Skiptaráðandinn i Reykjavík: Gjaldþrotabeiðn- um fjölgaði um 978 en úrskurð- um um 56 Skiptaráðandanum í Reykja- vík bárust á liðnu ári 2.305 beiðnir um gjaldþrotaskipti. Beiðnunum fjölgaði um 978 fi-á 1988. Þessar beiðnir leiddu til þess að 510 bú voru tekin til gjaldþrotaskipta, það er 56 bú- um fleira en 1988. Munurinn á fjölda beiðna og gjaldþrotaúrskurða skýrist meðal annars af því að í mörgum tilvikum koma fram fleiri en ein beiðni á hendur sama aðila og er hver beiðni skráð sem nýtt mál. í tilkynningu frá skiptaráðanda segir að mun meira hafi verið um það 1989 en áður að fram kæmu margar beiðn- ir á hendur sama aðilanum. Fram komu 618 beiðnir á hend- ur lögaðilum og 1.687 beiðnir á hendur einstaklingum, 1.299 körl- um og 388 konum. Bú 176 lögað- ila og 334 einstaklinga, 251 karls og 83 kvenna voru tekin til gjald- þrotaskipta. Gjaldþrotabeiðnum og gjald- þrotaúrskurðum hefur fjölgað ár frá ári, aílt frá 1984 er 527 beiðn- ir bárust og 167 bú voru tekin til gjaldþrotaskipta. ymrnmrn steinsteypu. •afer® Léttir meöfærilegir viöhaldsiitlir. ^Avrtlt lyrirlifloiandi. ' L.w Góö varahlutaþjónusta. co Þ. ÞDBGRIMSSON & C0 Armúlo 29, simi 38G40 íiiniKCiuiit ctimlritliu - upni hoppii - iuiii sutriisiiii - niiitíiii ■ suunti - tuui iininisu. HENDINNI AF HEPPNINNI! Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans, því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum mánuði og 25 milljónir í desember. Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til! HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.