Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 16

Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1990 NEYTENDAMAL EGG í fjölmiðlum hefur því verið haldið iram af eggjaframleiðend- um, að neytendur sniðgangi egg í bökkum úr endurunnum pappir, þeir vilji fremur egg í hvítum plastbökkum. Viðmælendur Neyt- endasíðunnar vilja ekki kannast við þetta. Aftur á móti fór ekki fram hjá neinum þeim, sem notar egg til matargerðar, að eggin sem voru á markaði hér fyrir eggjaútsöluna í haust voru vægast sagt misjöfti að gæðum og í sumum tilfellum varla neysluhæf. Eggin voru oft bragðvond og hvítan, sem á að vera hlaupkennd við rauðu, var oft orðin sem fljót- andi gutl. Eggin voru einfaldlega orðin of gömul - fyrir okkar smekk, enda þýddi ekki að bjóða þau heimilisfólki til matar. Það er aðeins í Kína sem fagurkerar matargerðarlistar vilja gömul og „þroskuð“ egg. Við hér á Vesturl- öndum kunnum best að meta þau nánast nýorpin. Þar sem mjög lítið hefur verið gert til að kynna gæði og með- ferð eggja hér á landi munum við leiða lesendur í allan sannleika um þetta litla næringarríka forða- búr. Ný egg Þeim mun nýrra sem eggið er þeim mun fyllra er það. Tvær ein- faldar aðferðir eru notaðar til að kanna ferskleikann. Önnur er sú, að lyfta eggi og halda því lóðréttu að sterku Ijósi og reyna að sjá hvort holrúm hefur myndast við toppinn og hve stórt það er. Hin aðferðin er að leggja eggið lárétt í nægjanlega mikið kalt vatn þannig að fljóti vel yfir. Ef eggið liggur lárétt, þá er það nýtt og ferskt; ef annar endi eggsins lyft- ist örlítið, þá er í lagi að steikja það; en ef eggið reisír sig upp lóðrétt þá er það ekki talið neyslu- hæft. Egg sem flýtur á þennan hátt hefur dregið til sín óeðlilega mikið loft í gegnum skurnina. Eggið og meðferð eggja Skurn á eggi er alþakin smá götum. Þegar eggið kemur frá hænunni er það þakið einskonar þynnu sem fer burtu þegar það er þvegið. Eggið verður sérstak- lega gljúpt eftir þvott. Það nær þá ekki aðeins að draga til sín loft heldur einnig sterka lykt úr umhverfinu, t.d. ef þau liggja nálægt bragðsterkum mat. Fyrir þá, sem eru svo fyrir- hyggjusamir að eiga eigin hænur, er besta geymsluaðferðin að geyma eggin óþvegin á köldum stað eða í kæli. Ráðlegast er fyrir þá sem kaupa egg í verslun að nota þau strax, þar sem vísast er að þau hafi þegar legið þar nógu Iengi. Hér á landi virðast engar reglur gilda um meðferð eggja í verslunum. Eggin eru víða látin standa þar í rekkum á gólfi, við stofuhita, þar til síðasti eggja- bakkinn er seldur, rétt eins og um niðursuðuvörur væri að ræða. Egg eru kælivara í haust var komið inn í mat- vöruverslun hér í borg þar sem til staðar er mjög rúmgóður kælir fyrir mjólkurvörur og álegg. Egg- in voru aftur á móti geymd í rekka rétt utan við kælinn. Nærstaddur starfsmaður var spurður hvers- vegna eggin, sem eru kælivara, væru ekki geymd inni í kælinum. Hann tók upp einn eggjabakkann og sagði: „Hér stendur hvergi að eggin séu kælivara, ef það kæmi fram á umbúðunum, þá væru þau að sjálfsögðu geymd í kælinum.“ A seinni árum hafa komið upp fjölmörg matareitrunartilfelli, bæði í Bretlandi og í austurhluta Bandaríkjanna, sem rakin hafa verið beint til salmonellugerla í eggjum. Salmonellugerlar hafa greininlega náð fótfestu hér á landi í innlendu fiðurfé, svo nauð- synlegt er að gæta varkárni í meðferð eggja sem annarra kjúkl- ingaafurða. Notkun eggja Þegar nota á egg sem geymd hafa verið í kæliskáp er gott ráð að láta heitt vatn renna yfir þau fyrir notkun. Köld egg geta sprungið ef þau eru sett beint í kalt vatn, köld egg geta einnig valdið því að eggjakaka skreppur saman í steikingu. Þeyttar eggja- hvítur sem notaðar eru í bakstur verða mun léttari og gera bakstur- inn léttri í sér ef þær eru volgar fremur en kaldar. Hin almenna regla er að sjóða eða steikja egg við fremur vægan hita. Egg á aldrei að sjóða nema í skurninni annars geta þau aðskilist. Þó mikilvægt sé að eggin séu ný, þá er ekki talið heppilegt að nota til matargerðar nýrri egg en þriggja daga gömul, þ.e. til bakst- urs, til að þeyta eða harðsoðin. Þar sem þessi egg ná ekki að þeytast nægjanlega vel, getur það haft áhrif á lyftinguna á bakstrin- um. Harðsoðin egg geta aftur á móti orðið grænleit og þau losna illa frá skurni. Ath. 1. Ef egg springa í suðu er ráð að hella salti yfir eggin í pottin- um, saltið hleypir hvítuna og stöðvar leka úr egginu. 2. Notið aldrei til matargerðar eða í bakstur vafasöm egg eða sprungin eða egg sem hafa orðið fyrir litabreytingum. M. Þorv. Súkkulaði Við kaup á dökku íslensku súkkulaði nú fyrir jólin er ljóst að nauðsynlegt er að setja fram- leiðsludagsetningu á umbúðirn- ar. Þegar þurrkur kemur fram í góðgætinu, er það vísbending um að þar sé um gamla framleiðslu að ræða. Sökin þarf ekki að vera framleiðandans, súkkulaðið get- ur hafa legið óeðlilega lengi í verslunum. Þó ekki séu til í reglugerð ákvæði um að setja þurfi framleiðsludag á umbúð- irnar myndi slíkt framtak auka traust neytenda á þessari íslensku framleiðslu. Umbúða- merkingar Nú um áramót eru fallnar úr gildi allar undanþágur hvað varðar innihaldslýsingar á mat- vörum, þar á meðal á brauðum. Við vekjum athygli á þessum þætti, m.a. vegna þess að fram á síðasta dag ársins 1989 skorti innihaldslýsingar á umbúðir sumra brauðtegunda sem hér voru á markaði. Speki dagsins Betra er mikið víst, en mikið óvíst. Landbúnaðarvör- nmar og jólin eftir Kristínu Gestsdóttur Það er nú svo, að íslenska lambakjötið heíúr alltaf verið í miklu uppáhaldi á mínu heimili. Á nýafstöðnum jólum ætluðum við hjónin að gæða okkur á því eins og sönnum íslendingum sæmir, kjötinu sem íslendingar í ár og aldir hafa borðað um jólin. Þetta átti að vera lærissteik, enda að okkar mati ljúffengasta steik sem völ er á. Við blésum á auglýsingar um hamborgar- hryggi, kalkúna og slíkt. Lamba- lqöt skyldi það vera. Lærið keypt nokkrum dögum fyrir jól, látið þiðna hægt í kæliskápnum og síðan sett við eldhúshita í klukku- tíma fyrir matreiðslu, steikin átti að heppnast vel. Svo var farið að útbúa steikina. Það hékk afskorinn hækill við lærið og við hann hékk miði frá dýra- lækni. Á honum stóð september 1988. Steikin var sem sagt 15 mánaða gömul. Mér var ekki selt kjötið sem útsölukjöt. Hvað var til ráða? 15 mánaða kjöt er ekki gott, það vita allir. Aðfangadag bar upp á sunnudag að þessu sinni og verslunin, sem kjötið var keypt í, ekki opin. Til- hlökkun til jólanna rann af mér og reiðin sauð í mér. Mér var næst skapi að hringja heim til kaup- mannsms, en nei, manm var mn- rætt í æsku að allir ættu að vera góðir á jólunum. Hann varð að fá að borða kalkúninn sinn í friði. Hans jólagleði mátti ekki spilla. Steikinni var stungið í ofninn og eftir tilskilinn tíma var hún borin á borð. Hún var vita bragðlaus. Mér datt í hug hryggurinn, sem ég borð- aði í byrjun desember, hann var líka bragðlítill, og þetta litla bragð var auk þess vont. Hann var ekki held- ur á útsölu. Jólagleðina tókum við svo ekki fyrr en farið var að opna pakkana síðar um kvöldið. En þetta var ekki eina áfallið við matartijbúning jólamatarins. Þegar ég á aðfangadagsmorgun ætlaði að fara að þeyta ijómann í frómasið, þeyttist hann bara ekki neitt. Hann hafði þó staðið í kæliskápnum í sólarhring, hrærivélarskálin og þeytarinn voru líka búin að kólna í kæliskápnum og rafmagnið í besta lagi í henni Reykjavík. En ijóminn þijóskaðist við, hann var lapþunnur þótt þeytarinn væri búinn að ham- ast meira en vindurinn sem hamað- ist fyrir utan gluggann. Ég smakk- aði ijómann, hann var eins og ijómablandið, sem maður fékk út á sveskjugrautinn á sunnudögum í æsku. Var þetta kaffiijómi? Ég veit það ekki, en fullfeitur ijómi var það ekki, þótt það stæði á lítrafern- unni sem ég hafði keypt. En sagan er ekki sögð enn. Á jóladag er mín aðalmáltíð og því ástæða til að kætast, hún hlaut að vera í lagi. Alls konar kaldar krásir á hlaðborði. Smjörið hafði verið keypt daginn áður og sett nálægt frystinum í kæliskápnum, svo að það væri vel stíft og gott að móta úr því kúlur, sem tækju sig vel út á jólaborðinu. Og ekki spillti það gleðinni að pakkinn var allur skreyttur með brosandi jólasvein- um. Líklega voru þarna allir ráða- menn Osta- og smjörsölunnar með tölu komnir utan á pakkann með jólasveinahúfur og skegg. Þeir voru skemmtilegir, og full ástæða til að kætast. En hvað var þetta, smjörið var Iinara en nokkur smjörvi og bragðið alls ekki eins og af ómenguðu íslensku smjöri. Voru þetta þá hrekkjóttir jólasvein- ar utan á pakkanum, jólasveinar frá því í gamla daga? Þessir menn muna væntanlega eftir þeirra hrekkjabrögðum. Má ég þá heldur biðja um þá góðu, sem gefa börnum í skóinn. Smjörinu var skellt á disk' í bók- staílegri merkingu og þar sat það eins og kúadella í sveitinni í gamla daga. Allt má sætta sig við á jólum, og með jákvæðu hugarfari skellti ég steinseljugrein í toppinn ogþetta tók sig bara vel út á borðinu. Síðan fór ég að lesa utan á pakkann, sem á stóð stórum stöfum: Fyrstaflokks íslenskt SMJÖR. Og fyrir neðan stóð: íslenskt smjör er undir ströngu, opinberu gæðaeftirliti. Kristín Gestsdóttir „Þetta er ekki skemmti- leg jólahugvekja, en hvert orð er satt og sannleikann megið þið, herrar mínir, heyra.“ Síðan Ias ég áfram. Fita 81,5 g Fjölómettaðar fitusýrur 3 g Mettaðar fitusýrur 48 g Einómettaðar f itusýrur 30 g Þetta var þá ekki fyrsta flokks íslenskt smjör, eins og stóð á pakk- anum, það var bætt í það f itusýrum. Má ég biðja um að fá bara hreint, ómengað smjör. Ég get keypt smjörva eða sólbóma ef ég vil lint viðbit. Það heitir heldur ekki smjör. En þegar ég kaupi smjör, vil ég fá smjör og ekkert annað. Af hverju þurfa einhveijir menn að ákveða fyrir mig Hvað mér á að finnast gott á jólunum? Mér datt nú svona í leiðinni í hug, að fyrir nokkrum árum var ánægjunni af sýrða ijómanum sto- lið frá manni. Þeir uppgötvuðu nefnilega blessaðir, að sumum geðj- aðist ekki að mysunni, sem mynd- ast í sýrða ijómanum, svo að þeir skelltu bará bindiefni út í. Og nú er sýrði tjóminn bara svipur hjá sjón, ef svo má að orði komast. Þetta er ekki skemmtileg jóla- hugvekja, en hvert orð er satt og sannleikann megið þið, herrar mínir, heyra. Svona sölumennska er ekki af hinu góða. Þama eru allir sem einn, Osta- og smjörsalan, Mjólkursamsalan og kaupmaður- inn. íslendingar eru því miður hættir að borða lambakjöt, og þeir kaupa það ekki oftar, ef farið er að seja gamla kjötið saman við hitt svo að við vitum ekki, hvað við erum að kaupa. Dagstimpillinn hangir ekki alltaf við kjötið. Líklega eru það verslunareigendur eða verslunar- stjórar sem gera þetta? Þessar tvær steikur, sem ég gat um, voru keypt- ar í tveimur verslunum. Okkur hættir að finnast lambakjöt gott, þegar okkur er selt svona gamalt kjöt sem fyrsta flokks vara. Líklega hefur jólasteikin mín verið dýrasta steik, sem ég hefi borðað, geymslu- kostnaður í 15 mánuði ofan á kjöt- verðið. Eitthvað verður að gera. Við hjónin erum ekki ein um að finnast gott lambakjöt besta kjöt í heimi. Af hveiju er þetta svona? Af hveiju er verið að eyðileggja íslenskar landbúnaðarvörur? Ekki er það verk bóndans, svo mikið er víst. Ég er ekki búin að ákveða, hvað verður í jólamatinn hjá mér næsta ár, en eitt er vfst. — að óbreyttu ástandi verður það ekki lambakjöt. Gleðilegt nýtt ár. Höfundur er matreiðslukennari og matreiðslubókarhöfundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.