Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 17

Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1990 17 Morgunblaðið/Ingvar Ók á brunahana og valt Snemma nýársdagsmorguns var Skoda-bíl ekið upp á gangstétt og á brunahana við Jaðarsel í Breiðholti. Bíllinn valt, ökumaðurinn slasaðist nokkuð og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl, en brunahaninn brotn- aði og vant flóði um götuna. Myndin var tekin á slysstaðnum. Viöskiptaskólinn býður nú upp á sérhæft nám fyrir þá sem hafa áhuga á stjórnunar störfum á hótelum og veitingahúsum. Námið er ætlað þeim er hyggjast starfa á hótel- um og veitingahúsum í framtíðinni og þeim sem starfa þar nú þegar, en vilja þæta við þekkingu sína. Vaxandi umfang ferðaþjónustunnar á (slandi undanfarin ár, fjölgun veitinga- og gisti- húsa og aukin samkeppni þeirra kallar í auknum mæli á hæft fólk í stjórnunarstöður. NÁMSGREINAR: • starfsemi hótela og veitingahúsa • hótelbókanir og bókunarkerfi • fjármál hótela og veitingahúsa • hótelstjórnun • markaðsfræðí • vettvangsheim- sóknir og fleira og fleira. Námið tekur alls 140 klst. og stendur yfir í 10 vikur. Kennarar á námskeiðinu eru allir sérfræðingar á sínu sviði og hafa reynslu af stjórnun hótela- og veitingahúsa. Hringdu I okkur og við sendum þér bækling með nánari upplýsingum. Ath.: Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Viðskiptaskólinn BORGARTÚNI 24 • SÍMI 626655 AÐ MISNOTA FRELSI eftir Odd Sigurðsson í Morgunblaðinu 14. desember sl. birtist grein eftir Hólmfríði Jóns- dóttur BA í íslensku frá Háskóla Islands. Við Hólpifríður erum á önd- verðri skoðun um þróun móðurmáls- ins og srhekkur okkar á málinu fer ekki heldur saman. Hólmfríður telur það mál steinrun- nið sem ekkj getur haft safnheiti eins og frelsi í fleirtölu og vifnar máli sínu til stuðnings í grein eftir prófessor í íslenskri málfræði. Hnökrar eru á þeim málf lutningi því dæmin sem tekin eru um keppni annarsvegar og frelsi hinsvegar eru ekki jöfn. í máli margra getur keppni merkt kappleik eða annað slíkt ein- stakt fyrirbrigði, en frelsi er eftir sem áður huglægt ástand til hvers svo sem það er notað. Hægt er að búa til fleirtölumynd af orðinu frelsi, en þar með er ekki sagt, að hugtakið geti tekið á sig þá mynd. Vatn er sem kunnugt er safnheiti, en engum dettur í hug að tala um vötn í húsum nútímafólks þótt þar sé hvort tveggja heitt vatn og kalt. Hitt er jafn ljóst að vötn eru víða á landinu, bæði renn- andi og kyrrstæð, „en nú falla vötn öll til Dýrafjarðar.. stendur á gamalli bók. Rétt finnst mér að halda í heiðri þá reglu að hafa safnheiti ekki í fleirtölu og helst ekki að nota hana þar sem komist verður af með eintölu með góðu móti. Tekið er til þess í grein Hólmfríðar að verið sé að þýða úr ensku „four freedoms“. Þjóðabandalagið sáluga markaði stefnu sína í viðskiptum með þessum slagorðum fyrr á öldinni og hefur Evrópubandalagið vakið þau í tengslum við samningsbundinn rétt manna, sem eiga heima innan vé- banda þess. Það er án efa ekki vanda- laust að snara þessu hugtaki og víst verður aldrei fundin nein ein og end- anleg samsvörun við það á íslensku. Það má þó e.t.v. þýða með: „hið fjór- Oddur Sigurðsson „Ekki tel ég, að megin- vandi íslenskrar tungu sé fólginn í frjálslegri noktun safiiheita í fleir- tölu, en þarflaust er að fólk með háskólapróf í íslensku taki sig til og verji slíkt í blöðum. Engin nauðsyn er á að laga íslensku að þörfum nútímans í þeim skiln- ingi að breyta reglun- um.“ greinda frelsi“, „hornsteinar frelsis" eða jafnvel „hið fereina frelsi" og er þá alls ekki sama, hvort verið er að skrifa almennan texta eða smíða slagorð. Ailt þetta bliknar þó, þegar ljóst er að átt er við viðskiptaréttindi sem nokkrar þjóðir hafa orðið ásátt- ar um. Hugtakinu réttur ætti ekki að rugla saman við frelsi. Eigi þeir sem um viðskiptalíf fjalla erfitt með að koma hugsun sinni frá sér án þess að grípa til hugtaka svo sem verðs og frelsis í fleirtölu, þá er ekki við íslenskt mál að sakast. A íslensku má orða þetta allt vel og snyrtilega án þess að grípa til mála- ienginga, málskrúðs eða erlendra orða, og án þess að btjóta reglur íslensks máls, skráðar sem óskráðar. Reglurnat' eru ekki grundvöllur tungumálsins heldur er því öfugt farið. Ekki tel ég, að meginvandi íslenskrar tungu sé fólginn í ftjáls- legri noktun safnheita í fleirtölu, en þarflaust er að fólk með háskólapróf í íslensku taki sig til og vetji slíkt í blöðum. Engin nauðsyn er á að laga íslensku að þörfum nútímans í þeim skilningi að breyta reglunum. Málið er nógu þjált, annars væri það löngu dautt. Breytist tungutak þjóðarinnar verður reglunum hnikað til samræm- is en vonandi verður þar fleira til að letja en hvetja. Mér þykir það ekki úrelt eða staðn- að mál, sem hvergi víkur frá því að hafa huglæg safnheiti í eintölu. Og víst vona ég að „frelsisins lind“ fái að renna óáreitt og ekki streymi yfir • okkur „frelsanna lind“, runnin upp í innra markaði Evrópubandalagsins. Höfundur erjarðfræðingur. Leikfimi Nú er að hefjast hin vinsæla þrek- og teygjuleikfimi í Breiðagerðisskóla. Mætum hress á nýju ári. Upplýsingar í síma 46301 eftir kl. 19.00. Rósa Ólafsdóttir íþróttakennari. Innilegar þakkir til sveitunga minna, sem heiðruðu mig með samsœti í félagsheimilinu á Flúðum á 80 ára afmœli mínu, 23.12. ’89. Einnig þakka ég öðrum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum. Mínar innilegustu nýársóskir til ykkar allra. Þakka gömlu árin. Lifið heil. Daníel Guðmundsson, Efra-Seli, Hrunamannahreppi. P1 ■ I ■ I I I I ■ I I I ■ I I I I ■ I I I I I I I I I I ii! PC Byrjenda- námskeið líHll í( 11 LtíSf'/' Skemmtilegt og gagnlegt nám- __irr__________i skeið fyrir þá sem eru að byrja að fást við tölvur. Tími: 9., 11., 16. og 18. jan. kl. 20-23. BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína til.þátttöku á námskeiðunum. Leiðbeinandi: Stefán Magnússon. TÖLVUFRÆÐSLAN Borgartúni 28, sími 687590 ubPilóiV 'ijsv imnii íTíin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.