Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 20

Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 20
20 MORGUWBLAÐIÐ FIMMTUDAÖUR 4j JAÍS-ÚAR 1990 Sjómannasambandið: Minnst borgað fyrir fisk á Austfjörðum Sjómannasambandið telur að á Austfjörðum sé minnst um að sjómenn fái meira greitt fyrir fískinn en gert er ráð fyrir í Iág- marksverði Verðlagsráðs sjávarútvegsins, hinu svokallaða lands- sambandsverði. Segja má að ferns konar fiskverð sé í gildi á landinu, lágmarksverðið, yfírborganir af ýmsu tagi á það, verð á innlendu fískmörkuðunum og loks verð á fískmörkuðum erlendis. Brúttóverð fyrir þorsk erlendis er nálægt því að vera að meðal- tali tvöfalt hærra en Iágmarksverð hér heima. Frá afhendingu styrksins, en á myndinni eru talið frá vinstri: Valgarð Briem, Vala Thoroddsen, Benta Briem, Ólafía Hrönn Jónsdóttir ásamt syni sínum og Davíð Oddsson, borgarstjóri. Styrkur úr Minningar- sjóði Gunnars Thoroddsen FÖSTUDAGINN 29. desember siðastliðinn fór fram í Ijórða sinn styrkveiting úr Minningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Sjóðurinn var stofíiaður af hjónunum Bentu og Valgarði Briem 29. desember 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er i vörslu borgarstjórans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við frú Völu Thoroddsen. Hólmgeir Jónsson, hagfræðing- ur Sjómannasambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið, að deila þessi væri sambandinu óviðkom- andi sem slík, en fulltrúar þess væru engu að síður tilbúnir til að aðstoða félaga sína hvar sem væri á landinu, væri þess óskað. Hann sagði, að því miður hefði samband- ið ekki tæmandi upplýsingar um það hvað væri greitt fyrir fiskinn í hverjum landshluta, en sér virtist það öruggt að minnst væri borgað fyrir hann á_ Austfjörðum og á Norðurlandi. í nágrenni fiskmark- aðanna, á svæðinu frá Þorlákshöfn vestur um upp á Snæfellsnes, mið- Átján árekstrar á 4 tímum ÁTJÁN árekstrar voru tilkynnt- ir til Iögreglunnar í Reykjavík frá klukkan hálftíu í gærmorg- un til klukkan hálftvö síðdegis. í nokkrum tilfella varð talsvert eignaljón en ekki var vitað til að nokkur hefði meiðst alvar- lega. aðist verð almennt mikið við verð á mörkuðunum. Landssambands- verð þekkist reyndar á Suðumesj- um, en algengt væri að greitt væri fast verð fyrir fiskinn, sem væri einhvers staðar á milli mark- aðsverðsins og landsbandsverðs- ins. Á Vestfjörðum væri oftast talað um nálægt 10% yfirborgun á aflann, á Norðurlandi virtist mun minna um yfirborganir. í ein- hveijum tilfellum væri um fasta yfirborgun að ræða og einhverjum væri ákveðinn hluti aflans, kannski 10%, greiddur á sama verði og fengist fyrir sambærileg- an fisk seldan úr gámum erlendis. Líkast til mætti segja að norðan- lands væri yfirborgun um 7% eða minna. Síðan drægi úr yfirborgun- um er kæmi austur á firði og víðast hvar væru engar yfirborg- anir. Til að gefa mynd af því hve verð fyrir aflann er mismunandi eftir ráðstöfun hans má benda á að eftir fyrstu 7 mánuði þessa árs var meðalverð þorsks i beinni sölu innan lands tæpar 47 krónur á kíló, 47 til 56 á fiskmörkuðunum hér heima og 76 til 79 erlendis. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga eða veita verð- laun eða lán í sambandi við rann- sóknir, tilraunir eða skylda starf- semi á sviði mannúðarmála, heil- brigðismála eða menningarmála, sem Gunnar Thoroddsen lét sér- staklega til sín taka sem borgar- stjóri. Styrkþegi er að þessu sinni Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona. Ólafía lauk prófi frá Leiklistarskóla ís- lands árið 1987 og hefur síðan leik- ið með ýmsum leikhópum. Hjá Leik- félagi Reykjavíkur hefur hún m.a. leikið í leikritunum „Síldin kemur - síldin fer“, „Þar sem Djöflaeyjan rís“ og fer nú með hlutverk Magnínu í „Ljósi heimsins", sem sýnt er á litla sviðinu í Borgarleik- húsinu. Frú Vala Thoroddsen afhenti styrkinn, sem að þessu sinni var að fjárhæð kr. 200.000. Athöfnin fór fram í Höfða. (Fréttatilkynning;) Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra: Raungengi krónunnar má ekki hækka Hvort lækkun er nauðsynleg ræðst meðal annars af verði sjávarafurða erlendis Að sögn Gylfa Jónssonar lög- reglufulltrúa í slysarannsókna- deild lögreglunnar var nokkur hálka víða á götum borgarinnar í gærmorgun. Alls var lögreglunni kunnugt um 41 umferðaróhapp á nýja árinu þegar þriðji dagur þess var rúmlega hálfnaður. RAUNGENGI íslenzku krónunn- ar má ekki hækka firá því, sem var í lok ársins, en hvort það kann að þurfa að lækka enn frek- ar, er undir ýmsu komið, meðal annars afurðaverði erlendis að mati sjávarútvegsráðherra. For- maður Sambands fískvinnslu- stöðva telur frystinguna nú rekna með 4% tapi af tekjum og segist ekki sjá aðra lausn til aukningar tekna en lækkun gengis eftir að verðbætur á fryst- an fisk hafa verið felldar niður. Sjávarútvegsráðherra telur mögulegt að verðhækkanir er- lendis geti vegið upp á móti nið- urfellingu verðbótanna, en af- koma vinnslunnar hljóti að ráð- ast að miklu leyti af framvindu mála á næstu vikum. „Það var um það talað við gerð kjarasamninga síðastliðið vor, að stjómvöld stuðluðu að viðunandi rekstrarskilyrðum fyrir fiskvinnsl- una,“ sagði Halldór Ásgrímsson í samtali við Morgunblaðið. „Við það hefur gengið á ýmsu, en staðan batnaði verulega er leið á árið. Vegna verðhækkana erlendis á af- urðum vinnslunnar, meðal annars, lækkuðu verðbætumar smám sam- an. Þær vom í desember síðastliðn- um 2% en vom 5% í upphafi. Á síðasta ári var verulegt gengissig, en þá á ég ekki við að það hafi verið um of, og lagaði það stöðuna verulega. Þjóðhagsstofnun er nú að meta stöðu vinnslunnar í upp- hafi árs. Þar verður að taka tillit til niðurfellingar verðbóta á frystan fisk, áhrifa virðisaukaskattsins, samdráttar í afla á þessu ári og fleiri þátta. Ég geri mér einnig vonir um að um einhveijar verð- hækkanir verði erlendis, og full ástæða er til að ætla að þær geti vegið upp verðbætumar. Þær vora upphaflega rökstuddar með því að þær væru aðeins tímabundnar og verðhækkanir i nánustu framtíð taldar líklegar. Svigrúm innan sjávarútvegsins í upphafi þessa árs er afar lítið. Það raungengi krónunnar, sem gilti í Iok desember, má ekki hækka, en hvort það þarf að lækka fer meðal ann- ars eftir afurðaverðinu. Þá era ýmsar kröfur gerðar til sjávarút- vegsins um þessar mundir. Krafizt er hærri launa og hærra fiskverðs og ýmsar stofnanir vilja taka meira til sín en áður, meðal annars í formi orkuverðshækkana, en undir slíkum hlutum er útveginum ómögulegt að standa. Hvað gerast kann veltur því mikið á framvindunni næstu vikumar,“ sagði Halldór Ásgríms- son. Lögreglan leitar vitna Slysarannsóknadeild lögregl- unnar i Reykjavík óskar eftir að ná tali af vitnum að árekstri sem varð á mótum Hverfisgötu og Klapparstígs þann 22. síðasta mánaðar um klukkan tvö síðdeg- is. Tveir fólksbílar, gulur Daihatsu og Ford Cortina, rákust saman þeg- ar Cortinunni var bakkað úr stæði en Daihatsunum ekið suður Klapp- arstíg. Lýst eftir stolnum bíl ■ Lýst er eftir bifreiðinni R-54261, sem er hvít fólksbifreið af gerðinni Skoda, árgerð 1986. Henni var stol- ið frá Snorrabraut 69 á nýársnótt. Þeir sem geta upplýst hvar bifreið- in er nú niður komin era beðnir að láta lögreglu vita. Veður á síðasta ári: Jaftimikil úrkoma ekki mælst í Reykjavík írá 1959 ÓVENJU mikil úrkoma mæld; ist á landinu á árinu 1989. I Reykjavík mældist úrkoma 1.060 mm og heftir ekki verið jafiimikil í Reykjavík frá 1959. Þá mældist úrkoma á Akureyri 750 mm og hefur aldrei mælst jafnmikil úrkoma þar á einu ári frá því mælingar hófust 1927. í Stykkishólmi mældist úrkoma um 980 mm, hið mesta frá 1972. Meðalhiti á landinu var lítillega undir meðallagi áranna 1951- 1980. Síðastliðinn vetur var óvenju umhleypingasamur og snjóþyngsli víða um land, einkum þó í febrúar og mars. Febrúar var hinn þriðji kaldasti á öldinni í Reykjavík en í öðrum landshlutum yf irleitt hinn kaldasti frá 1969 eða 1973. Meðalhiti í Reykjavík reyndist 3,8°C sem er 0,8°C undir meðal- lagi. Á Akureyri var meðalhiti 3,3°C eða 0,1°C undir meðallagi. Vorið var kalt og óvenju vot- viðrasamt, einkum um sunnan- og vestanvert landið. Samfelldar úrkomumælingar hófust í Reykjavík 1920 og á þeim tíma Hámarks- og lágmarkshiti í Reykjavík 1989 Hámarks- og lágmarkshiti í Reykjavík 1989. hefur aldrei mælst jafmikil úr- koma samanlagt í apríl og maí. Þetta votviðrasama vor olli því að snjór var mun lengur til fjalla en venjulegt er. Snjór sat jafnvel í sköflum í lágsveitum vestan- lands fram á sumar. Ekki hafa jafnfáar sólarstundir mælst í Reykjavík í júlí síðan sam- felldar mælingar hófust þar 1923. Um austanvert landið var mun betra veðurlag mestallan júlí. Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík var 15,6° sem er óvenju lágt. Á Akureyri varð hiti hæstur 23,0°. September var votviðrasamur og hefur ekki mælst jafnmikil úr- koma í Reykjavík í september frá 1960. Október reyndist hinn þurrasti á Akureyri frá 1960. Mikil hlýindi vora framan af desember en kuldakast gerði um og eftir miðj- an mánuð. Á aðfangadag gerði fárviðri við suðurströndina. Þá mældist vindur í snöggri hviðu 120 hnútar á Stórhöfða og er það jafnmikið og mest hefur mælst hérlendis áður, en það var á Þyrli í Hvalfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.