Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 04.01.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1990 23 Kontrar myrða bandaríska nunnu Kontra-skæruliðar, sem Bandaríkjastjóm styður í Nicaragua, myrtu banda- rísku nunnuna og trúboðann Maureen Courtney, ásamt annarri nunnu frá Nicaragua, Franciscu Colomer, og særðu þrjá aðra trúboða, þ. á m. banda- rískan biskup, í fyrirsát aðfaranótt þriðjudags. Courtney, sem var 45 ára gömul, af reglu Agnesar-systra, hafði búið ámm saman í landinu og kennt fátækum bændum að sá korni. Á níunda áratugnum hafa trúboðar æ oftar orðið fórnarlömb styrjaldaraðila í átökum í Mið-Ameríku og er skemmst að minnast morða á sex jesúítaprestum í E1 Salvador í nóvem- ber. Á myndinni sjást menn bera kistu með jarðneskum leifum Courtney (innfellda myndin). Norskir laxeldismenn: Uppkaupakerfí til að girða fyrir undirboð Eiga samt yfir höfði sér málshöfðun | NORÐMENN, sem framleiða um 60-70% af öllum eldislaxi í Evrópu, eru um þessar mundir að taka upp hjá sér nýtt kerfi, sem á að tryggja, að laxinn sé ekki seldur á niðursettu verði, að því er segir í breska blaðinu Financial Times. Er hér um að ræða viðbrögð við þeim ásökunum Breta og íra, að Norðmenn hafi stundað stórkostleg undirboð enda er talið líklegt, að framkvæmdastjórn Evrópubanda- lagsins (EB) muni steftia þeim fyrir. Þá hafa Bretar bannað innflutn- ing á óslægðum laxi og silungi til að koma í veg fyrir sjúkdóma, sem gert hafa mikinn usla í norsku laxeldisstöðvum. Ekki hefur enn verið tekin endan- leg ákvörðun um málshöfðun á hendur Norðmönnum en flest bend- ir til, að EB-nefndin, sem fjallar um undirboð, telji ásakanir bresku og írsku laxeldismannanna vera á rökum reistar. Ef til málshöfðunar kemur yrði það mikið áfall fyrir norsku stjórnina. Undirboð á fisk- mörkuðum eru fáheyrð — eina dæmið, sem um er vitað, varðar sardínur frá Chile — og rannsókn á slíku framferði væri sérstaklega neyðarleg nú þegar EB og EFTA hafa ákveðið að taka upp samninga um nánari tengsl. Ef Norðmenn verða fundnir sekir um undirboð verður refsingin líklega fólgin í nýjum innflutningsgjöldum á norskan lax. Stjómvöld og sölusamtök norskra laxeldismanna hafa brugð- ist við með því að koma á uppkaupa- kerfi, sem kaupir þann lax, sem ekki tekst að selja fyrir tilskilið lág- AFSLATTUR marksverð. Til að fjármagna kaupin verður lagt rúmlega 46 ísl. kr. auka- gjald á hvert selt kíló og er búist við, að viðmiðunarverðið verði þá nærri 390 ísl. kr. Talsmenn skoskra laxeldismanna hafa fagnað þessum ráðstöfunum Norðmanna og telja, að þær geti orðið til að lyfta verðinu á Evrópu- markaði upp í rúmar 160 ísl. kr. pundið eins og áður var. Jafnframt segja þeir, að með þessu hafi Norð- menn í raun viðurkennt undirboðin að undanförnu. Breska stjórnin ákvað nú um jól- in að banna innf lutning á óslægðum laxi og silungi og er það aðallega gert til að hindra, að skoskir laxeld- ismenn verði fyrir barðinu á sjúk- dómi, sem valdið hefur miklu tjóni í Noregi. Raunar hefur bann þessa ' efnis verið í gildi en Norðmenn, írar, Norður-Irar og Manarbúar hafa verið undanþegnir því. Þá hef- ur bann við seiðainnflutningi verið í gildi um nokkurn tíma. • v 0 w útsala í í hljómplötuverslun okkar. m m ^^.^áð^O^afsláttur! Nýir og eltfr^ wra»v^%f^H trófrokksins. Geisli allt öðru?í*i^1oÉuv«?luif # *• * • •-•"• • » j BEISLI HLJOMPLÖTUR SNORRABRAUT 29 (VIÐ LAUGAVEG) SfMI 626029 ÚTSALAN hefst í dag kl. 10 á Laugavegi 51 KRAPÍKAR Laugavegi 51

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.