Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 25

Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 25
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Að mæta erfið- leikunum Nú er að baki eitt erfiðasta ár, sem gengið hefur yfir í atvinnumálum þjóðarinnar í tvo áratugi. Einkenni þess hafa ver- ið atvinnuleysi, gjaldþrot og kjaraskerðing. Framundan er annað erfitt ár. Það er ekkert tilefni til þess að ætla, að ástand- ið batni verulega á hinu nýja ári. Fyrirsjáanlegt er, að sam- dráttur verður í afla og allt í óvissu um, hvort samningar tak- ast um nýtt stóriðjufyrirtæki. Þess vegna er í sjálfu sér ekki ástæða til sérstakrar bjartsýni - og þó. Ef við lítum á hinar jákvæðu hliðar þess samdráttar í atvinnu- lífi, sem varð á árinu 1989 er ljóst, að bæði fyrirtæki og ein- staklingar hafa brugðizt við mmnkandi umsvifum og kjara- skerðingu með skynsamlegum hætti. I einkalífi sínu hefur fólk dregið saman seglin og dregið úr eyðslu miðað við það sem áður var. Einstaklingar og fjöl- skyldur hafa mætt mikilli kjara- skerðingu með því að draga verulega úr útgjöldum og senni- lega hefur það gerzt eins og oft áður í kreppuástandi, að fólk hugar meira að sparnaði til þess að skapa sér öryggi á óvissutím- um. í atvinnulífinu hafa einkafyr- irtæki unnið markvisst að því síðustu 12-18 mánuði að skera niður kostnað og draga úr margvíslegum útgjöldum. Komið hefur í Ijós, að þetta var hægt að gera án þess að draga úr gæðum framleiðslu eða þjón- ustu. Niðurstaðan af þeim víðtæku aðgerðum í þessa átt, sem staðið hafa yfir í atvinnulíf- inu síðustu misseri er sennilega sú, að við þessi áramót er staða margra fyrirtækja betri en nokk- urn óraði fyrir í byijun ársins og líklega hafa mörg fyrirtæki náð því að komast hjá taprekstri og sýna jafnvel einhvem hagnað með því að draga mikið úr kostn- aði. í raun þýðir þetta, að atvinn- ulífið er betur í stakk búið til þess að takast á við erfiðleika og samdrátt á nýbyijuðu ári, heldur en þau voru í'ársbyijun 1989. Atvinnuvegirnir hafa mætt erfiðleikunum af festu, raunsæi og skynsemi og árang- urinn hefur ekki látið á sér standa. Ein af ástæðum þess, að tekizt hefur að draga úr út- gjöldum svo snögglega er sú, að yfirleitt hefur starfsfólk fyrir- tælqanna sýnt mikinn skilning á stöðu þeirra og tekið virkan þátt í því að aðlaga reksturinn breytt- um aðstæðum. Þessi skilningur starfsmanna hefur verið for- senda þess, að árangur hefur verið ótrúlega mikill í einkafyrir- tækjunum. Vissulega er það svo, að sam- drátturinn hefur leikið mörg fyr- irtæki illa, eins og gjaídþrotin sýna. Þar er hins vegar um að ræða fyrirtæki, sem hafa verið mjög illa undir það búin að mæta áföllum m.a. vegna þess, að ekki hefur verið staðið nægi- lega skynsamlega að rekstri þeirra í upphafi. Slík fyrirtæki hafa orðið undir en það þarf ekki endilega að vera neikvætt fyrir atvinnulífið í heild sinni, að slík grisjun verði í atvinnu- rekstrinum, þótt það valdi auð- vitað miklum sársauka hjá þeim, sem fyrir því verða. Takist fyrirtækjunum að halda kostnaði áfram í skefjum á þessu ári, sem fyrirsjáanlega verður erfitt, er full ástæða til að ætla, að atvinnuvegirnir komi sterkari út úr þessu samdráttar- skeiði en þeir voru við lok hins mikla uppgangstíma snemma á árinu 1988. Og þá skiptir auðvit- að máli, að menn gleymi erfið- leikunum ekki of fljótt og gæti að sér þegar ný uppsveif la hefst. Ríkið og sveitarfélög geta mikið af atvinnulífinu lært í þessum efnum. Ríkið hefur alls ekki náð sama árangri og at- vinnufyrirtækin í því að mæta erfiðleikunum með samdrætti í útgjöldum. Þetta kemur bezt fram í því, að á sama tíma og starfsfólki fækkar verulega í einkageiranum fjölgar þvi stór- lega í ríkiskerfinu. Sú skylda hvílir á opinberum aðilum, ríki og þeim sveitarfélögum, sem ekki hafa staðið sig að taka til hendi á nýbyijuðu ári. Það er raunar alger forsenda þess, að okkur takist að ná tökum á efna- hagsvanda þjóðarinnar og taum- lausri skuldasöfnun erlendis. Frumvarp þingmanna fjárveit- inganefndar um breytt vinnu- brögð varðandi fjárlagagerð, sem Morgunblaðið hefur áður gert að umtalsefni, getur átt mikinn þátt í því að betri tök náist á ríkisfjármálunum. Þau sveitarfélög, sem eru mjög skuldug og þau eru nokkur, ættu að nota tækifæriðl kjölfar sveit- arstjórnakosninganna í vor og draga verulega úr framkvæmd- um fyrri hluta næsta kjörtíma- bils en nota tekjumar í þess stað til þess að borga skuldir. Þótt slíkt geti valdið einhverri óánægju hjá kjósendum mun það skila sér í meiri framkvæmdum síðar. Virðisaukaskattur: Mikill erill hjá skattsljóra og í ritfangaverslunum Morgunblaðið/Sverrir Biðraðir voru í ritfangaverslunum í gær. Greinilegt var að mörg fyrirtæki höfðu dregið fram yfir áramót að gera innkaup á bókhaldsgögnum og nýja virðisaukaskattkerfið tafði afgreiðslu. Valur Páll Þórðarson er fremst á myndinni Virðisaukaskattur á matvæli: Ýsan á að lækka um tæp 9% Hrogn, lifur, gellur og kinnar hækka MIKILL erill hefur verið hjá ríkisskattstjóra vegna fyrir- spurna um virðisaukaskatts og var sleitulaust Ieitað þangað eft- ir upplýsingum í gær, annan daginn í röð. Jón Guðmundsson deildarstjóri tekjudeildar segir fyrirspurnarefhin hafa verið um nánast hvað eina viðkomandi skattinum, allt frá skatthlutfall- inu, 24,5%. í ritfangaverslunum var mikið að gera, í Pennanum við Hallarmúla þurfti að loka í hádeginu til að starfsfólk gæti varpað öndinni og var tíminn notaður til að fara yfir reynslu morgunsins. Hjá ríkisskattstjóra gekk síminn án afláts allan gærdaginn frá því opnað var þar til komið var að lok- un og fjölmargir komu á staðinn að leita ráða. Jón Guðmundsson nefnir meðal þess helsta sem spurt var um, að óvissa hafi verið meðal fisksala um hvernig reikna ætti fiskverðið, þar sem niðurgreiðslur koma á móti skattlagningunni. Þá hafi verið spurt um ýmsar skil- greiningar eins og hvað væri skatt- verð, jafnvel hafi menn ekki vitað skatthlutfallið eða hvort þeir væru skattskyldir eða ekki. í ritfangaverslunum var ös allan daginn. Valur Páll Þórðarson fjár- málastjóri Pennans segir að aug- ljóslega hafi fyrirtæki og aðrir skattskyldir aðilar verið að byrgja sig upp eftir að hafa dregið inn- kaup fyrir áramót. Ástæðan er sú, Síminn þagnaði ekki í gær hjá Jóni Guðmundssyni deildarstjóra tekjudeildar ríkisskattstjóra og starfsmönnum hans í gær. að innskatt af rekstrarvörum má draga frá, en það var ekki hægt með söluskatt. Valur Páll segir að meðai helstu breytinganna fyrir fyrirtæki, hvað varðar bókhaldsgögn, sé að nú þurfa öll eyðublöð, til dæmis reikn- ingar, að vera með nafni skattað- ila og númeri hans. Því sé liðin tíð, að hægt sé að selja stöðluð eyðublöð til slíkra þarfa. Til að auka enn á álagið, komu mestu annirnar einmitt á sama tíma og starfsfólk verslunarinnar er sjálft að venjast reikningsfærslunum. Til dæmis þarf að hafa nafn og kenni- tölu fyrirtækisins á staðgreiðslu- nótum, ef upphæðin fer yfir 4.680 krónur. „Mörgum hafði láðst að reikna með þeim þættinum og óneitanlega olli þessi viðleitni að, uppfylla ítrustu kröfur laganna, töfum á afgreiðslu frá því sem áður var,“ segir Valur Páll. ÝSUFLÖK eiga að lækka í verði um 8,8%, samkvæmt útreikning- um hagdeildar fjármálaráðuneyt- isins, eftir gildistöku virðisauka- skatts. Ástæðan er annars vegar niðurgreiðsla virðisaukaskatts, hins vegar sérstök niðurgreiðsla af verði fisks til fiskverslana, sam- tals er niðurgreiðslan 19,42% af innkaupsverði til heildsala. Hrogn, lifiir, gellur og kinnar eru hins vegar ekki niðurgreiddar tegundir, samkvæmt upptalningu í reglugerð, og því mun verð þeirra tegunda hækka. Guðmundur Óskarsson fisksali kveðst vera undrandi á tegundavali í reglugerðinni. Þar er kveðið á um niðurgreiðslu tegunda sem hann seg- ir alls ekki vera neyslufisk hér á landi, það er keilu og löngu. Enn- fremur skal karfinn niðurgreiddur, en Guðmundur segir ákaflega lítið vera selt af honum til neyslu innan- lands. Hann segir hitt þó vera meira undrunarefni, að hollustuvara eins og hrogn og lifur skuli ekki vera á listanum. „Það stefnir í að ekki verði hægt að selja þetta,“ segir hann. Samkvæmt útreikningum fjár- málaráðuneytisins myndi ýsuflak kosta 425,25 krónur kílóið út úr smásöluverslun ef óbreytt sölu- skattskerfi væri enn við lýði. Sú tala er miðuð við að ýsan sé keypt á fiskmarkaði á 95 krónur, nýtingar- hlutfall við flökun sé 40%, heild- söluálagning 30,5% og smásöluá- lagning 25%. Inni í verðinu er enn- fremur afsláttur frá söluskatti, eða niðurgreiðsla hans, sem samsvarar 10% söluskattsálagningu i endan- legu verði. Sömu útreikningar sýna, að í virð- isaukaskattskerfi kostar ýsuflakið 388,70 krónur. Mismunurinn er 37,55 krónur, eða 8,8%. Sömu for- sendur eru um innkaupsverð, nýting- arhlutfall og álagningarhlutföll. Með sömu reikningsaðferðum fæst, að hrogn myndu í söluskatts- kerfi kosta 448,60 krónur kílóið, en í virðisaukaskattskerfi án niður- greiðslu 507,70 krónur. Mismúnur- inn er 59,10 krónur, eða 13,2%. Miðað er við 250 króna innkaups- verð til heildsala og fulla nýtingu, sömu álagningartölur og í dæminu um ýsuna. Breytingar á logum um viðskiptabanka: Veigamikil frá- vik fráupp- haflegum lögum - segir forstöðumaður bankaeftirlits- ins - Bankaeftirlitið hefiir ekki af- skipti af eignarhaldsfélögum banka ÞÓRÐUR Ólafsson forstöðumaður bankaeftirlits Seðlabankans segir að á síðustu dögum fyrir jól hafi verið keyrðar í gegnum Alþingi breyting- ar á lögum um viðskiptabanka, sem séu veigamikil frávik frá upphafleg- um lögum. Þessar breytingar heimila meðal annars viðskiptabönkum, sem sameinast öðrum bönkum, að halda orðinu banki í nafni sínu sé orðinu eignarhaldsfélag bætt framan við nafii félagins. Þeir bankar sem keyptu Utvegs- bankann og sameinuðust í Islands- banka um áramótin hafa stofnað eignarhaldsfélög sem sjá um skuld- bindingar bankanna vegna hluta- bréfakaupanna. Þórður Ólafsson sagði við Morgunblaðið að bankaeft- irlitið hefði ekki eftirlit með eða af- skipti af þessum eignarhaldsfélög- um. „Það lúta engin lög að starfsemi eignarhaldsfélaga, mér er ókunnugt um samþykktir þeirra félaga sem stofnuð voru og veit ekki hvaða starfsemi þau mega stunda, að öðru leyti en því að þau fara með hlut fyrrverandi viðskiptabanka í samein- uðum íslandsbanka," sagði Þórður. í breytingunni á lögunum um við- skiptabanka, segir m.a. að viðskipta- banki, sem sameinað hafi banka- rekstur sinn rekstri annars við-^ skiptabanka og eigi áfram hlut í hinum sameinaða viðskiptabanka, megi halda orðinu banki í nafni sínu enda sé orðinu eignarhaldsfélag bætt framan við nafn félagsins. Ennfremur var samþykkt sú breyting á bankalögunum, að ákvæði um að atkvæðisréttur í hlut- aféglagsbanka væri takmarkaður við 20%, var breytt, þannig að ef hluthafi er ríkissjóður eða annar íslenskur viðskiptabanki sé atkvæð- isréttur þeirra í samræmi við hlutafj- ár eign. Þetta gildi jafnvel þótt sá banki hafi sameinað bankarekstur sinn rekstri viðkomandi viðskipta- banka og starfi sem eignarhalds- félag með aðild að sameiginlegum banka. Þórður Ólafsson sagði að þetta hefði í för með sér tvö mikilvæg frávik frá lögunum um viðskipta- banka. Þessar breytingar hefðu ver- ið keyrðar í gegnum Alþingi síðustu 2 daga fyrir jólaleyfi og bankaeftir- litið hefði ekki verið gefinn kostur á að tjá sig um efni þeirra enda væri slíkt ekki skilt. „Hins vegar er hér um að ræða veigamikil frávik frá fyrri ákvæðum viðskiptabankalaganna sem helgast af því að þau taka fyrst og fremst til sameiningar bankanna um ís- landsbanka,“ sagði Þórður Ólafsson. Breytt skipulag sjúkratrygginga: Tryggingastofiiun tekur við hlutverki sjúkrasamlaga Engin breyting verður á réttindum einstaklinga BREYTINGAR á skipulagi sjúkratrygginga innan almannatrygginga- kerfisins tóku gildi um áramót. Öll 40 sjúkrasamlög landsins voru Iögð niður og starfsemi þeirra falin Tryggingastofnun ríkisins. Sýslu- ménn og bæjarfógetar hafa því eftirleiðis með höndum umboð sjúkra- trygginga utan Reykjavíkur, en aðalskrifstofúr Tryggingastofhunar ríkisins, Laugavegi 114 og Tryggvagötu 28, munu annast sjúkratrygg- ingar Reykvíkinga. Engar breytingar verða á réttindum einstakl- inga, að sögn Kristjáns Guðjónssonar hjá Tryggingastofhun. Stefht er að því, að innan tveggja ára geti almenningur fengið greiddar hvers kyns sjúkrabætur í hvaða umboði sem er eða hjá aðalskrifstof- unni í Reykjavík. Kristján Guðjónsson deildarstjóri í sjúktatryggingadeild Trygginga- stofnunar segir meginregluna vera þá að það sem almenningur var vanur að sækja til Sjúkrasamlags Reykjavíkur í Tryggvagötu verði afgreitt þar áfram. Sama gildi um skrifstofu Tryggingastofnunar- á Laugavegi. „Þetta er talið vera bráðabirgðaástand," segir hann. Síðar munu skrifstofurnar í Reykjavík sameinast. „Við viljum vera undir sama_ þaki með alla þessa starfsemi. Úti á landi er af- greiðslan hjá fógetum og sýslu- mönnum.“ Misjáfnt er hvort starfsemin færist á milli húsa þegar út á land er komið. Svokölluð sýslusamlög hafa alltaf verið hjá sýslumönnum og verður engin breyting þar á. Sjúkrasamlög sem hafa verið í umsjá sveitarfélaga á nokkrum stöðum færast alfarið yfir til bæjar- fógeta og sýslumanna. Kristján segir að í aðalatriðum eigi umskipt- in ekki að hafa neinar breytingar í för með sér fyrir fólk hvað varðar þjónustuna. Þó eru undantekningar þar á. „Samkvæmt gömlu lögunum sem giltu til áramóta, átti sveitar- sjóður að greiða helming á móti ríkinu í tannlækningum skólabarna og þá var það víða þannig að fólk gat snúið sér til sveitarstjórnar- skrifstofunnar um endurgreiðsl- una. Núna er þetta úr sögunni.“ Hann nefndi Suður-Múlasýslu sem dæmi um óþægindi sem gætu skapast í kjölfar breytingarinnar, en þar eru vegalengdir Iangar og oft erfið færð á veturna. Sýslumað- urinn situr á Eskifirði. „Við erum með í huga að hægt sé að nýta lögreglustöðvar til að hafa milli- göngu um endurgreiðslurnar, þannig að þjónustan á þessu sviði stórversni ekki.“ Kristján segir engu breytt varð- andi réttindi almennings með færslu trygginganna til Trygginga- stofnunar og ekki þurfi að skipta um heimilislækni. Landsbyggðin Utan Reykjavíkur mun fólk því áfram sækja alla þá þjónustu sem það hefur hingað til sótt til sjúkra- samlags í umboð Tryggingastofn- unar hjá bæjarfógetum, sýslu- mönnum og mögulegum umboðum þeirra. Vegna húsnæðisskorts verða bæjarfógetar á nokkrum stöðum að nýta tímabundið hús- næði sjúkrasamlaganna fyrir hina nýju starfsemi. Það á við á Akra- nesi, Akureyri, í Hafnarfirði og Kópavogi. I umboðunum fer fram endur- greiðsla tannlæknareikninga sem ekki þarf að samþykkja sérstaklega af hálfu Tryggingastofnunar, af- greiðsla sjúkradagpeninga til sjúkl- inga með lögheimili á svæði um- boðsins, Greiðsla vegna endur- kræfs læknishjálparkostnaðar, greiðsla vegna endurkræfs sjúkra- flutningskostnaðar, greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga innanlands til þeirra sem eiga lögheimili á svæði umboðsins, útgáfa skírteina til örorku- og ellilífeyrisþega vegna 12 skipta hjá sérfræðingum, útgáfa réttindaskírteina sjúkratrygginga og milliganga gagnvart aðalskrif- stofunni á Laugavegi 114 í Reykjavík vegna starfsemi sem ein- göngu fer fram þar. Reykjavík í Reykjavík sækir fólk áfram á skrifstofuna í Tryggvagötu 28 þá þjónustu sem það hefur hingað til sótttil Sjúkrasamlags Reykjavíkur, nema afgreiðslu lyfjaskírteina og endurgreiðslu á erlendum sjúkra- kostnaði, sem hvort tveggja verður á Laugavegi 114. í Tryggvagötu fer því fram end- urgreiðsla tannlæknareikninga sem ekki þarf að samþykkja sér- staklega af hálfu Tryggingastofn- unar, afgreiðsla sjúkradagpeninga til Reykvíkinga, greiðsla vegna endurkræfs læknishjálparkostnað- ar, greiðsla vegna endurkræfs sjúkraflutningskostnaðar, greiðsla á ferðakostnaði sjúklinga innan- lands til Reykvíkinga, útgáfa skírteina til örorku- og ellilífeyris- þega vegna 12 skipta hjá sérfræð- ingum, útgáfa réttindaskírteina sjúkratrygginga og val og skráning hjá heimilislæknum í Reykjavík. Á Laugavegi 114 mun fólk sækja áfram þá þjónustu sem það hefur hingað til sótt til Tryggingastofn- unar ríkisins og auk þess af- greiðslu lyfjaskírteina og endur- greiðslu á erlendum sjúkrakostn- aði. Þar fer því fram afgreiðsla hjálpartækjaumsókna, afgreiðsla tannlæknareikninga sem þurfa sérstakt samþykki Tryggingastofn- unar til greiðslu, útgáfa lyfjaskír- teina og greiðsla vegna læknismeð- ferðar erlendis. Þessi starfsemi verður eingöngu á Laugavegi 114 fyrir allt landið. í fyrstu verða gömlu sjúkrasam- lagsskírteinin látin halda gildi sínu, þar til sérstök sjúkratryggingaskír- teini leysa þau af hólmi. Sama er að segja um lyfjaskírteini. Haftiarstjórn Reykjavíkur: 18% hækkun á þj ónustugj aldskrá HAFNARSTJÓRN Reykjavíkur hefur samþykkt að hækka þjón- ustugjaldskrá sína um 18% í samræmi við hækkun á al- mennri gjaldskrá hafna. Tillag- an var samþykkt með þremur atkvæðum í stjórninni, tveir sátu hjá. í tillögunni er bent á að í reglu- gerð um virðisaukaskatt er miðað við að hafnargjöld og þjónusta hafna verði skattlaus. Sama á við um húsaleigu og lóðaleigu. Hafnir geta því ekki hreinsað úr rekstri sínum áhrif innskatts, en með til- komu virðisaukaskatts mun kostn- aður við rekstur, viðhald og fram- kvæmdir aukast, þar sem virðis- aukaskattur leggst á fleiri þætti en söluskattur gerði áður. Miðað við forsendur fyrir rekstri hafnar- innar er áætlað að hækka þurfi tekjur hennar um 7% til að mæta auknum kostnaði vegna breytinga á sköttum, ef hann lendir að fullu á hafnarsjóði. Siguijón Pétursson lagði fram tillögu um að öllum öðrum hækk- unum en þeim, sem leiða af beinum hækkunum vegna virðisauka- skatts, yrði frestað um sinn í sam- ræmi við tilmæli aðila vinnumark- aðarins. Tillagan var felld með 3 atkvæðum gegn 2. í bókun þeirra Guðmundar Hall- varðssonar, Jónasar Elíassonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar segir að samgönguráðherra hafi þegar samþykkt 18% hækkun ágjaldskrá hafna og tók sú hækkun gildi 1. janúar. Þjónustugjaldskrá Reykjavíkurhafnar hafi ávallt fylgt þessari hækkun eins og gjaldskrár annarra hafna og er sú fjárhags- áætlun, sem þegar hefur verið samþykkt, byggð á þeirri forsendu. Kauptilboð borgarinnar er 1 alla jörðina Verði byggt á jörðinni þarf að kaupa þau hús sem nú eru á henni „KAUPTILBOÐ Reykjavíkur- borgar í Vatnscndaland er gert í alla jörðina, á því Icikur enginn vafi,“ sagði Hjörleifur Kvaran framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar, en hann heftir séð um tilboðsgerð fyrir hönd borgarinnar. Sagði hann að borgin vissi um þær kvaðir, sem hvíldu á jörðinni sam- kvæmt erfðarskrá en þar segir að eiganda jarðarinnar sé óheimilt að selja, veðsetja eða skipta jörðinni. í þrígang hefur þó verið gengið á landið og þá beitt eignarnámi. Fyrst þegar Póstur og sími eignaðist 108 hektara á Vatnsendahvarfi, seinna þegar gengið var frá friðlandi í Heið- mörk en hluti þess var í landi Vatn- senda og loks þegar gengið var frá mörkum lögsögu milli Kópavogs og Reykjavíkur árið 1973 en þá keypti borgin 41 hektara úr landinu. „I tilboðinu segir að boðið sé í alla jörðina að undanskildu 40 til 45 hektara svæði næst býlinu Vatn- senda og 8 til 9 hektara svæði, þar sem verið er að byggja hesthús á Kjóavöllum," sagði Hjörleifur. „Þetta er öll jörðin mínus minnst 40 hekt- ara en mest 54 hektarar, sem eigand- inn gæti haldið eftir. Þannig er til- boðið en það er gert með þeim fyrir- vara að á jörðinni séu engar veð- skuldir og að hún sé söluhæf. Þetta er full alvara og ég geri ráð fyrir að af þessum kaupum verði.“ Landið sem um er að ræða er um 550 hektara, þar af eru um 220 hektara taldir byggingarhæf ir og um 100 til 150 hektara eru í hrauninu ofan við Heiðmörk. Að sögn Hjör- leifs eru um 32 heilsárs sumarhús á framtíðar byggingarsvæði og þegar að því kemur að byggja það land þarf að kaupa upp þau hús. „Þetta er ekki slétt byggingarland heldur land með kvöðum sem koma til hækkunar á kaupverði þegar borgin ræðst í framkvæmdir,“ sagði hann. Gagntilboð hafði ekki borist frá selj- anda í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.