Morgunblaðið - 04.01.1990, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
ATVINNUA UGL YSINGAR
Baader-maður
Vanur sjómaður, sem lokið hefur Baader-
námskeiði fyrir frystitogara og hefur margra
ára reynslu sem vélstjóri, óskar eftir vinnu,
helst á frystitogara.
Nánari upplýsingar í síma 91-675801.
Frá Grunnskólanum í Hveragerði
Kennarar
Vegna veikindaforfalla vantar kennara við
Grunnskólann í Hveragerði.
Aðalkennslugreinar: íslenska, enska og
danska í 7. og 8. bekk.
Nánari upplýsingar gefa Guðjón Sigurðsson,
skólastjóri, í síma 98-34195 (98-34950) og
Pálína Snorradóttir, yfirkennari, í síma
98-34195 (98-34436).
Starfsfólk óskast
í aðhlynningu og ræstingar nú þegar. Vinnu-
tíminn er frá kl. 8.00 til 12.30 eða frá kl.
8.00 til 16.00. Einnig vantar fólk í aðhlynn-
ingu á kvöldvaktir kl. 20.00 til 24.00.
Upplýsingar í síma 26222 fyrir hádegi frá kl.
8.00 til 12.00 virka daga.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Menntamála ráðuneytið
Laus staða
Við námsbraut í hjúkrunarfræði í læknadeild
Háskóla íslands er laus til umsóknar staða
lektors (37%) í hjúkrunarfræði. Aðalkennslu-
grein er heilsugæsla. Gert er ráð fyrir að
staðan verði veitt til tveggja ára.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um náms-
feril, ritsmíðar, vísindastörf og kennslu og
hjúkrunarstörf umsækjenda, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1990.
Menntamáiaráðuneytið,
4. janúar 1990.
Stýrimaður
Stýrimann vantar á mb. Akurey, SF-122, frá
Hornafirði.
Upplýsingar í síma 97-81544.
Sölumaður
Sölumaður óskast strax til starfa hjá litlu
innflutningsfyrirtæki.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 11.
janúar merktar: „í - 9934“.
Skrifstofustarf
Endurskoðunarskrifstofa í Reykjavík óskar
sftir starfskrafti nú þegar til almennra skrif-
stofustarfa. Bókhalds- og vélritunarkunnátta
nauðsynleg.
Umsóknir um starfið óskast lagðar inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 9. janúar nk. merkt-
ar: „Endurskoðunarskrifstofa - 7184“.
Stýrimann
vantar á Ólaf GK-33, sem er á línuveiðum
frá Grindavík.
Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 92-68415.
Skrifstofustúlka
óskast til starfa við gerð innflutningsskjala,
verðútreikninga, símavörslu o.fl. Nokkur
kunnátta í meðferð tölvu nauðsynleg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf leggist inn á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „Skrifstofustarf -
979“.
Blindrabókasafn
íslands
Bókavörð vantar í heilt starf í útlánsdeild
Blindrabókasafns. Þarf að hafa áhuga og
þekkingu á bókum.
Upplýsingar í síma 686922.
Afgreiðslufólk
Óskum eftir vönu afgreiðslufólki í verslun
okkar í Skeifunni. Vinnutími frá kl. 13-18.
Upplýsingar á staðnum í dag og á morgun.
Skeifunni 8
Kennarar
Kennara vantar nú þegar í Álftanesskóla,
Bessastaðahreppi. Um er að ræða kennslu
yngri barna.
Upplýsingar veita skólastjóri, í síma 53662,
og formaður skólanefndar, í síma 50346.
Hjúkrunarfræðingar
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi, auglýsir hér
með eftir hjúkrunarfræðingi til starfa í febrúar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma
93-12500.
„Au pair“
„Au pair“ óskast til New York fylkis fyrir 1.
febrúar. Þarf að hafa bílpróf. Má ekki reykja.
Upplýsingar í síma 72363 milli kl. 19.00 og
23.00.
Breytir Borg
um svip
Við óskum eftir myndarlegu fólki til almennra
þjónustustarfa í sal, á bari og við dyravörslu.
Ef þú ert myndarleg(ur) og jákvæð(ur) og
hefur þjónustulund, komdu þá og fáðu þér
vinnu hjá okkur. Heilsdagsstörf eða hluta-
störf.
Upplýsingar gefa hótelstjóri og aðstoðar-
hótelstjóri.
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi
vantar kennara til að kenna eftirtaldar greinar:
Ferðamálagreinar (hlutastarf) og uppeldis-
og sálarfræði (hlutastarf).
Þá vantar námsráðgjafa í hlutastarf og bóka-
safnsfræðing í 3U hluta starfs.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 5.
janúar nk.
Menntamálaráðuneytið.
A UGL YSINGAR
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
^Jólatrésskemmtun
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jóla-
trésskemmtun fyrir börn félagsmanna sunnu-
daginn 7. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi,
Miðaverð fyrir börn kr. 500,- og fyrir full-
orðna kr. 200,-.
Miðar eru seldir á skrifstofu VR, Húsi verslun-
arinnar, 8. hæð.
Upplýsingar í síma 687100.
Verziunarmannaféiag Reykjavíkur.
TILBOÐ - UTBOÐ
HUSNÆÐIIBOÐI
Útboð - fólkslyftur
íþróttasamband íslands óskar eftir tilboði í
fólkslyftur í væntanlegt skrifstofuhúsnæði í
Laugardal. Um er að ræða tvær vökvalyftur
fyrir tvær hæðir og fjórar hæðir.
Utboðsgögn verða til sýnis á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf., Ármúla 4, en þar
verða þau afhent gegn 5.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu íþróttasam-
bands íslands, íþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal, 104 Reykjavík, fyrir kl. 11.00 þann 1.
febrúar 1990.
VERKFRÆÐISTOFA SIGUROAR THORODDSENI hl
ARMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Til leigu
385 fm iðnaðarhúsnæði við Eirhöfða. Tvenn-
ar innkeyrsludyr. Mikil lofthæð. Steypt, upp-
hituð plön. Laust strax.
Upplýsingar í síma 25775 eða 37581.
Toyota 4Runner til sölu
Toyota 4Runner V6, 1988. Ekinn 16.000
mílur, „Fuel injecton". Útvarp og segulband.
„Cruise control“. Sóllúga. Stál „underbody".
Allt rafdrifið. Fæst á skuldabréfi.
Upplýsingar í síma 689454 eða 623348.