Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
+ MARÍA TÓMASDÓTTIR lést í Landakotsspítalanum 3. janúar. Hörður Arinbjarnar, Ragnheiður Haraldsdóttir, Edda Arinbjarnar, Marfa Arinbjarnar.
t (slandsvinurinn REGINE DIIMSE, Islandhaus, lést í Seniorenhein Edelweiss St. Peter-Ording á nýársnótt. Vinir.
+ ÞRÖSTUR LEIFSSON, Þórufelli 16, Reykjavík, lést 1. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Leifur Guðmundsson, Sigríður Skúladóttir.
+ Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, DANÍEL VESTMANN, Álfhólsvegi 4, Kópavogi, sem andaðist 22. desember 1989, veröur jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 5. janúar kl.13.30. Lilja Vestmann, Svavar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
•
+ Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT EIRÍKSDÓTTIR fóstra, Kleppsvegi 120, Reykjavík, andaðist á gjörgæsludeild Borgarspítalans aðfaranótt 31. des- ember. Jarðsungið verður frá Áskirkju miðvikudaginn 10. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennarer bent á Þroskahjálp, Nóatúni 17. Fyrir hönd annarra vandamanna, Hermann Jónsson, Sigurður P. Sigurðsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Ósk, Dagbjört Ólöf, Kristín Edda Sigurðardætur.
Skrifstofutækninám
Viltu auka gildi þitt ?
Hjá okkur færðu einhveija þá bestu kennslu sem
völ er á í tölvu- og viðskiptagreinum.
Við kennum á tölvubúnað sem notaður er hjá
helstu fyrirtækjum landsins.
Einn nemandi um hverja tölvu og fámennir
hópar, tryggja hámarks árangur og tímanýtingu.
Betra verð og góð greiðslukjör.
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Kveðjuorð:
Sveinn Zoega
Hvað geta mennimir gert mér?
Hver mun gera oss viðskila við kærleika
Krists? Hvort þjáning? Eða þrenging? Eða
ofsókn? Eða hungur? Eða nekt? Eða háski?
Eða sverð?... I öllu þessu vinnum vér
meira en sigur fyrir hann, sem elskaði oss.
(Daglegt ljós, 8. október)
Góður Lionsfélagi, Sveinn Zoéga,
er látinn á 77. aldursári eftir lang-
varandi veikindi.
Við sem áttum því láni að fagna
að kynnast og þekkja Svein heitinn
búum að því lengi. Það eru 34 ár
síðan ég undirritaður kynntist þeim
mæta manni. Kona mín hafði á
menntaskólaárum sínum búið á
heimili þeirra hjóna og notið þar
umönnunar og ástúðar. Þegar við
giftum okkur heima á Staðastað þá
var hann svaramaður konu minnar.
Glæsileiki hans og reisn var slík að
hver karlmaður hefði verið stoltur
af. Ég naut þeirrar gæfu að um-
gangast hann, hans yndislegu konu
Sigríði og börn þeirra um árabil.
Um tíma var vík milli vina, en samt
sem áður eru tengsl við þá fjölskyldu
enn í dag.
Sveinn fékk strax í æsku áhuga
á félagsmálum. Það var sama hvað
hann tók sér fyrir hendur, hvort það
var á sviði félagsmála eða síðar í
þágu þjónustuklúbba, hjá honum var
alltaf sami baráttuandinn. Ungur
gekk hann í KFUM og þar af leiddi
knattspyrnufélagið Valur þar sem
hann var með frá byijun. Gegndi
hann þar ótal ábyrgðar- og trúnaðar-
störfum en um það hafa aðrir fjallað
af meiri kunnáttu en ég hef yfir að
ráða.
Þegar Lionshreyfingin barst til
Islands og fyrsti klúbburinn var
stofnaður 1951 hreifst Sveinn með.
Hann var einn af stofnendum Lions-
klúbbsins Þórs og var þriðji formað-
ur hans. Lionsmenn voru með í huga
miklar hugmyndir um líknarmál og
hjálp við einstaklinga, sem þurftu á
einhvem máta að leita sér dýrrar
læknishjálpar erlendis. Heilbrigðis-
þjónusta á íslandi væri varla sú sem
hún nú er, ef ýmsir þjónustuklúbbar
hefðu ekki hlaupið þar undir bagga.
Sveinn og aðrir af hans kynslóð
ruddu þar veginn og eiga þeir mikl-
ar þakkir skildar fyrir óeigingjarnt
starf.
Sveinn heitinn var heill og óskipt-
ur í sínum félagsmálum hvort sem
þau vörðuðu Val, Lions eða hvað
annað sem hann tók sér fyrir hendur.
Ég þakka Sveini Zoéga ómetan-
legt brautryðjendastarf í þágu Li-
onshreyfingarinnar og bið Sigríði og
afkomendum hennar Guðs blessun-
ar.
F.h. Lionsklúbbsins Þórs,
Þráinn Þorvaldsson.
Minning:
Herbert G. Jónsson
Fæddur 5. júlí 1915
Dáinn 21. desember 1989
Hann Hebbi, Herbert Georg Jóns-
son, er dáinn.
Að morgni 22. desember hringdi
móðir mín og færði mér þær fréttir
að Hebbi væri dáinn. Þessi frétt sló
okkur öll, við vorum alls ekki við-
búin þessari kveðjustund. En þannig
er og verður dauðinn, við erum hon-
um sjaldnast viðbúin.
Einhvern veginn fannst manni að
hann Hebbi yrði alltaf í Hólminum,
hann var svo fastur punktur í tilve-
runni. En nú þegar hann er farinn,
fara minningar um hann og sam-
verustundir okkar, sem voru ófáar,
að bijótast fram. Er ég hugsa aftur
til þess tíma er ég bjó í foreldrahús-
um, var Hebbi þar fastagestur á
fimmtudagskvöldum. Alltaf fannst
manni gott að fá hann smástund í
kaffi og spjall. Gaman var að hlusta
á Hebba segja frá uppvaxtarárum
sínum hér í Hólminum.
Ofariega er mér í huga sagan af
tveimur fyrstu útvarpstækjunum
sem komu hér í bæ. Annað var á
heimili Hebba. Farið var frá þessum
tveimur heimilum niður í miðbæ og
sagt það helsta úr fréttunum. Hebbi
glotti út í annað og sagði þær hefðu
nú ekki alltaf staðist á fréttirnar.
Hann var bæði kíminn og glettinn
karl en umfram allt góður. Skemmti-
legar minningar á ég frá þeim tíma
sem við Hebbi unnum saman á flóa-
bátnum Baldri. Um tíma áttum við
hús hér í bæ en bjuggum í Reykjavík.
Þá sá Hebbi um garðinn fyrir okk-
ur. Og var það ekki lítið verk að slá
túnið á Jaðri. Aldrei var vinargreiði
frá Hebba annað en sjálfsagt mál.
Hann þurfti ekki á borgun að halda.
Hann var einn af fáum mönnum í
dag sem átti nóg af peningum. Betra
var að fá heimabakaða köku.
Þegar ég flutti í Hólminn aftur
með fjölskyldu var Hebbi vinsæll
gestur á mínu heimili. í haust fylgdi
ég syni mínum í fyrsta sinn í
skólann. Þá reyndi ég eftir bestu
getu að fræða hann um skólastarfið
og fleira sem því viðkemur. Meðal
annars sagði ég honum að húsvörð-
urinn í skólanum væri bróðir Hebba.
Þá sagði stráksi: „Þá hlýtur hann
að vera góður maður.“ Þannig var
og er Hebbi í okkar huga, allt hlaut
að vera gott sem nálægt honum
var. I húsi foreldra minna er til skál
sem gengur undir nafninu Hebba-
skálin. Eins og fyrr segir kom Hebbi
á hveiju fimmtudagskvöldi og færði
þeim þá eitthvert góðgæti í skálina
til að gleðja barnabörnin með. Fyrir
^stuttu þurfti móðir mín að fara á
sjúkrahús í Reykjavík. Hebbi vissi
það og kom og færði henni ilmvatn.
Þannig var Hebbi, alltaf vildi hann
gleðja vini sína, sem reyndar voru
ófáir hér í bæ.
Með þessum orðum vil ég þakka
Hebba fyrir samfylgdina og allt og
allt. Við sjáumst síðar.
Hanna og allir hinir.
Minning:
_____O-
Signrður O. Sigurðs-
son stöðvarstjóri
Fæddur 25. júní 1922
Dáinn 21. desember 1989
í dag kveðjum við vin okkar og
samstarfsmann, Sigurð Odd Sig-
urðsson, st,öðvarstjóra Gufuafls-
stöðvarinnar við Elliðaár, sem lést
21. desember sl. eftir stutta sjúk-
dómslegu. Má segja að skammt sé
stórra högga á milli þar sem ekki
eru liðnir nema tæpir tveir mánuðir
frá því að við varastöðvarmenn
fylgdum öðrum vinnufélaga okkar,
Jóhannesi Jónssyni, vélfræðingi, til
grafar.
Sigurður Oddur Sigurðsson var
fæddur 1922t.og því 67 ára þegar
hann lést. Hann hóf störf hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur árið 1949
og varð stöðvarstjóri Gufuaflsstöðv-
arinnar 1966 um svipað leyti og
Landsvirkjun tók við rekstri stöðvar-
innar og gegndi því starfi til dauða-
dags.
Sigurður Oddur var afar þægileg-
ur yfirmaður og vel metinn af sam-
starfsmönnum sínum, Hann var
mjög vel fær í sínu starfi og manna
fróðastur um eimtúrbínur og eim-
katla og fylgdist vel með á því sviði.
Sigurður Oddur hafði samstarf við
flesta af starfsmönnum Landsvirkj-
unar þar sem hann sá á tímabili um
bílakost fyrirtækisins, auk þess sem
hann var virkur í starfsmannafélag-
inu.
Sigurður Oddur var dagfarsprúð-
ur maður og ávallt viðræðugóður,
sama hvort um var að ræða starfið
eða almer.n málefni. Hjálpsamur var
hann og greiðvikinn hver sem í hlut
átti.
Áhugamál Sigurðar Odds lágu á
ýmsum sviðum. Hann hafði m.a.
gaman af ljósmyndun og var áhuga-
samur um skotveiði. Hann átti góðar
byssur og las erlend tímarit um skot-
veiðar, auk þess sem hann var um
tíma virkur meðlimur í Skofyeiðifé-
lagi íslands. Eigum við þeir af félög-
um hans sem skotveiðar stunda góð-
ar minningar um skemmtilegan
veiðifélaga.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
Odds er Herdís Siguijónsdóttir. Áttu
þau fjögur börn sem öll eru á lífi
og uppkomin og eru barnabörnin
orðin sjö.
Við vottum eiginkonu og fjöl-
skyldu Sigurðar Odds okkar inni-
legustu samúð og kveðjum góðan
dreng og vinnufélaga.
Samstarfsmenn í Varastöð.