Morgunblaðið - 04.01.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 1990
41
Raðgreióslur
I7S4®
Félagar í FÍD og DÍ
Framtíðarkort fyrir næstu 12 mánuði bregður
upp mynd af því, hvort komandi ár verði ár
framkvæmda, umbyltinga og almennra breyt-
inga eða 'ár stöðugleika og lítilla breytinga.
Framtíðarkort er ekki spákort, heldur segir
frá orku næsta árs, bendir á hæðir og lægðir.
Erum umboðsaðilarfyrir
STJÖRNUKORT
frá Gunnlaugi Guðmundssyni.
* Persónulýsing
* Framtíðarkort
* Samskiptakort
Afgreiðum kortin meðan
beðið er eða tökum á
móti pöntunum í símum
(91) 623336 og 626265.
beuRy#ip
^Laugavegi 66,
símar 91-623336 og 626265.
Áskriftarsíminn er 83033
FJÁRAUSTUR
Yfirdrifin
kattarást
Söngkonan
dáða Whit-
ney Houston
hefur sjaldan
verið við karl-
mann kennd, en
þeim mun meira
við ketti. Hún er
margyfirlýstur Whitney Houston
kattavinur og þykir sumum nóg um.
Hún er þó hætt að sanka að sér
fjölda dýra, enda segja ættingjar
hennar og vinir að híbýli hennar
hafi lyktað svo af kattaþvagi að til
vandræða horfði um tíma.
Ungfrúin losaði sig því við katta-
hjörðina, en festi í stað kaup á
tveimur hreinræktuðum persnesk-
um kisum sem hún stjanar við hve-
nær sem færi gefst. Er sagt að
dýrin éti humar og rækjur í öll mál
og skoli niður með mjólk og ölkeldu-
vatni. Aðbúnaður þeirra sé slíkur
að hver maður væri fullsæmdur af.
Nýjustu vinarhót söngkonunnar við
ketti sína hafa gengið fram af
mörgum þótt ekki séu þau þeirra
mál. Hún hefur fest kaup á tveimur
ólum, alsettum demöntum og öðrum
eðalsteinum. Reiddi hún fram
320.000 krónur fyrir ólarnar og
þótti ekki of mikið.
N Yt DANÍSKOUNN
Takmarkaður fjöldi nemenda í
hverjum tíma
ar
Fjölskyldufyrirtækið, Connery,
HofBnan og Broderick. A inn-
feldu myndinni er Connery ásamt
hinni frönsku eiginkonu sinni
Micheline.
KYNÞOKKI
Nærri sextugt kyn
táknið fer hjá sér
A„gamals aldri“, 59 ára gam-
all, hefur skoski leikarinn Sean
Connery verið útnefndur kynþokka-
fyllsti núlifandi karlmaðurinn af
lesendum hins víðlesna bandaríska
tímarits People Magazine. í nýjasta
tölublaði blaðsins er greint frá
þessu og Connery sagður eldri,
sköllóttari og betri en nokkru sinni
fyrr!
Connery er nánast í öngum
sínum vegna þessa og roðnar und-
antekningalaust er á þetta er
minnst. „Ég botna ekkert í þessu,
vissulega er heiður að þessu, en
svona lagað má ekki taka of alvar-
lega,“ segir hann. Eiginkona Conn-
erys, hin franska Micheline, er sögð
stríða karli sínum daglega vegna
þessa og svo mjög að honum er
eigi skemmt. „Þetta gengur of
langt, hún stressar mig með
stríðninni, en ég skil hana vel, þetta
er ágætur brandari," segir fyrrum
James Bond.
Talið er að útnefning þessi eigi
sér fleiri ástæður heldur en útlit
karlsins, því að Connery hefur verið
afar mikið í sviðsljósinu eftir að
hlutverk hans í „The Untouchables“
færði honum hinn eftirsótta Óskar
árið 1987. Hann lék í þriðju mynd-
inni um Indiana Jones fornleifa-
fræðing og þótti stela senunni frá
Harrison Ford. Þá er hann í essinu
sínum í nýrri kvikmynd, „A Family
Business" þar sem úrvalsleikararnir
Dustin Hoffman og Matthew Brod-
erick mega hafa sig alla við til að
falla ekki í skugga hans. Loks er
Connery í aðalhlutverkum tveggja
stórmynda sem væntanlegar eru á
næstunni, „The Hunt for Red Oc-
tober“ og „Russia House“.
„Þetta er nú orðið einum of og
ég ætla að veija mestu af nýja ár-
inu í afslöppun," segir kyntröllið
Sean Connery.
HAFNARFJÖRÐUR
Kennum í nýju húsnæði
á Reykjavíkurvegi 72.
Sími 65-22-85
REYKJAVÍK
Kennum í Ármúla 17a.
Sími 38830
Barnadansakennsla
Gömludansakennsla
Innritun frá kl. 14.00-20.00 Samkvæmisdansakennsla
Kennsla hefst 8. janúar Standard
Suður-amerískir
Rokk/tjútt
Bjóóum einkatíma eftir samkomulagi.
Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra
hópa.