Morgunblaðið - 04.01.1990, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1990
ÍÞRÓTTAMAÐURÁRSINS 1989
Samtök íþrótta-
fréttamanna út-
nefna íþróttamann
ársins í 34. skipti
SAMTÖK íþróttafréttamanna, sem stofnuð voru 1956, standa
fyrir kjöri íþróttamanns ársins í 34. skipi að Hótel Loftleiðum
í kvöld. Tuttugu og tveir íþróttamenn hafa verið kjörnir frá
upphafi og var Vilhjálmur Einarsson frjálsíþróttamaður þess
heiðurs aðnjótandi fyrstur 1956. Hann hefur einnig oftast allra
verið útnefndur, eða fimm sinnum alls. Einar Vilhjálmsson
spjótkastari, sem var íþróttamaður ársins 1988, hefur þríveg-
is verið útnefndur og eins Hreinn Halldórsson kúluvarpari.
Kjörið fer nú fram með öðru
sniði en áður. Alls er 21 aðalfé-
lagi í Samtökum íþróttafrétta-
manna og hefur hver þeirra at-
kvæðisrétt. Hver íþróttafréttamað-
ur velur tíu íþróttamenn og fá þeir
stig eftir niðurröðun á atkvæðaseð-
il. Fyrsta sætið gefur 20 stig, ann-
að 15 stig, þriðja 10 stig, íjórða 7
stig og fimmta 6 stig og síðan koll
af kolli þannig að 10. sætið gefur
eitt stig. Mest getur íþróttamaður
fengið 420 stig, þ.e.a.s. ef hann er
í efsta sæti hjá öllum íþróttafrétta-
mönnum.
Atkvæði hafa verið talin hjá
Borgarfógeta, en ekki verður gefið
út hver hlýtur titilinn „íþróttamað-
ur ársins 1989“ fyrr en í hófinu að
Hótel Loftleiðum í kvöld um kl.
20.40. Nöfn 10 efstu íþróttamann-
anna í kjörinu, eins og kemur fram
annarstaðar á síðunni, hafa verið
tilkynnt og hlýtur einn þeirra hinn
eftirsótta titil.
Þeir sem hlotið hafa sæmdar-
heitið íþróttamaður ársins frá upp-
hafi eru eftitaldir:
1956 — Vilhjálmur Einarsson
1957 — Vilhjálmur Einarsson
1958 — Vilhjálmur Einarsson
1959 — Valbjörn Þorláksson
1960 — Vilhjálmur Einarsson
1961 — Vilhjálmur Einarsson
1962 — Guðmundur Gíslason
1963 — Jón Þ. Ólafsson
1964 — Sigríður Sigurðardóttir
Útnefning
í beinni
útsendingu
Sjónvarps
Ikvöld útnefna Samtök
íþróttafréttamanna íþrótta-
mann ársins 1989. Athöfnin fer
fram í sérstöku hófi á Hótel
Loftleiðum, sem hefst klukkan
19:30, en sýnt verður frá tilnefn-
ingu 10 efstu manna og kjöri
íþróttamanns ársins í beinni út-
sendingu Sjónvarps frá klukkan
20:35 til 20:55 og er það í fyrsta
sinn, sem sjónvarpað er beint
frá útnefningunni.
Að loknu borðhaldi verða 10
efstu íþróttamennirnir í kjörinu
kallaðir fram og þeir verðlaun-
aðir. Síðan verður sagt frá, hver
hafnaði í þriðja sæti í kjörinu,
þá greint frá nafni íþrótta-
mannsins í öðru sæti og loks
verður Iþróttamaður ársins út-
nefndur.
Samtök íþróttafréttamanna
standa að kjörinu í 34. sinn, en
Flugleiðir eru helsti styrktarað-
ili kjörsins.
1965 — Valbjörn Þorláksson
1966 — Kolbeinn Pálsson
1967 — Guðmundur Hermannsson
1968 — Geir Hallsteinsson
1969 — Guðmundur Gislason
1970 — Erlendur Valdimarsson
1971 — Hjalti Einarsson
1972 — Guðjón Guðmundsson
1973 — Guðni Kjartcinsson
1974 — Ásgeir Sigurvinsson
1975 — Jóhannes Eðvaldsson
1976 — Hreinn Halldórsson
1977 — Hreinn Halldórsson
1978 — Skúli Óskarsson
1979 — Hreinn Halldórsson
1980 — Skúli Óskarsson
1981 — Jón Páll Sigmarsson
1982 — Óskar Jakobsson
1983 — Einar Vilhjálmsson
1984 — Ásgeir Sigurvinsson
1985 — Einar Vilhjálmsson
1986 — Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 — Arnór Guðjohnsen
1988 — Einar Vilhjálmsson
1989 — ??????????
Einar Vilhjálmsson var kjörinn íþróttamaður ársins 1988. Hér tekur hann
við verðlaunagripnum sem sæmdarheitinu fylgir úr hendi föður síns, Vilhjálms
Einarssonar, sem oftast hefur verið kjörinn íþróttamaður ársins.
/
Hver verður íþróttamaður ársins 1989?
Nöfn tíu efstu íþróttamannanna í kjörinu hafa verið gefin upp.
Einn eftirtalinna íþróttamanna verður útnefndur íþróttamaður
ársins 1989 að Hótel Loftleiðum í kvöld. Þeir eru eftirtaldir.í sta-
frósröð:
Alfreð Gíslason, handknattleikur.
Arnór Guðjohnesn, knattspyrna.
Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrna.
Bjarni Friðriksson, júdó.
Einar Vilhjálmsson, frjálsíþróttir.
Kristján Arason, handknattleikur.
Ragnheiður Runólfsdóttir, sund.
Sigurður Einarsson, fijálsíþróttir.
Þorgils Ottar Mathiesen, handknattleikur.
Þorvaldur Orlygsson, knattspyma.
Bjarni
Einar
Kristján
Þorgils
Arnór
Þorvaldur
Ásgeir
Ragnheiður Sigurður
FRJÁLSAR ÍÞRÖTTIR
Reuter
Ben Johnson skeiðar í mark í 100 metra hlaupinu í Seoul. Carl Lewis fylg-
ist með stúrinn á svip. Þeir munu líklega mætast að nýju.
Carl Lewis tilbúinn að mæta Ben Johnson
„Hlaup aldarínn-
a r“ endurtekið?
Carl Lewis fær 360 milljónir króna fyrir sprettinn
Líklegt er að tveir fljótustu menn
heims, Carl Lewis og Ben John-
son, mætist í einvígi á hlaupabraut-
inni. Umboðsmaður Carl Lewis, Joe
Douglas, hefur staðið í samninga-
viðræðum við fulltrúa Johnsons og
nokkurra stórfyrirtækja og segir
hann að Lewis hafi verið boðnar
360 milljónir króna. Þess má geta
að Lewis fengi þannig um 36 millj-
ónir króna fyrir hverja sekúndu!
Ben Johnson sigraði Carl Lewis
í úrslitum í 100 metra hlaupi á
Ólympíuleikunum í Seoul 1988.
Einvígi þeirra var kallað hiaup ald-
arinnar enda féll heimsmetið í frá-
bæru hlaupi. En sigurgleði John-
sons stóð ekki lengi því hann féll á
lyfjaprófi, var sviptur heimsmetinu
og gullverðlaununum og dæmdur í
tveggja ára keppnisbann.
Ráðgert er að einvígið fari fram
í september í ár, er Johnson hefur
tekið út bannið en hann hefur æft
af kappi þrátt fyrir bannið.
Douglas segir að hlaupið muni
líklega fara fram í Bandaríkjunum
eða Japan og verði sýnt beint í sjón-
varpi um allan heim. Einvígið yrði
stærsta greinin á stóru móti sem
myndi velta milljónum dollara.
L EÍU'), i il.sl i>