Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 3

Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1990 3 3 $ Tilkynning um nýtt útboð spariskírteina ríkissjóðs Miðvikudagurinn 10. janúar er fyrsti söludagur á nýjum flokki spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.D 1990. Útgáfan ér byggð á heimild í lánsfjárlögum fyrir yfirstandandi ár. Um er að ræða eftirfarandi flokk spariskírteina: Flokkur Lánstími Innlausnardagur Raunvextir á ári Útboðs- fjárhæð l.fl.D 1990 5 ár 10. febrúar 1995 6,0% Innan ramma lánsfjárlaga Kjör þessa flokks eru í meginatriðum þessi: b) Lánstími skírteinanna er 5 ar en að þeim tíma liðnum getur a) Raunvextir eru 6,0% á ári og reiknast írá og með 10. janúar eigandi fengið andvirði þeirra útborgað ásamt auglýstum verð- 1990. Vextirnir eru fastir allan lánstímann. Grunnvísitala er bótum, vöxtum og vaxtavöxtum og fylgir því enginn kostnaður. lánskjaravísitala janúarmánaðar 1990, þ.e. 2771. c) Skírteinin eru gefin út í effirfarandi verðgildum: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1.000.000 krónur. Spariskírteini ríkissjóðs eru almennt skráð á Verðbréfaþingi íslands og gerir það eigendum þeirra kleift að selja þau fyrir gjalddaga með milligöngu aðila að Verðbréfaþinginu. Seðlabanki íslands er viðskiptavaki fyrir spariskírteini ríkissjóðs, sem eru skráð á þinginu, og tryggir hann að spariskírteini ríkissjóðs séu alltaf seljanleg á verði sem ákvarðast á Verðbréfaþinginu. Samkvæmt gildandi lögum um tekju- og eignarskatt kemur ekki undir neinum kringumstæðum til skattlagningar á höfuðstól og vaxta- og verðbótatekjur af skírteinum hjá fólki utan atvinnurekstrar. Samkvæmt nýsamþykktri breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt er mönnum heimilt að draga frá eignum sínum markaðsverðbréf sem gefin eru út af ríkissjóði, m.a. spariskírteini og ríkisvíxla, enda séu eignir þessar ekki tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Spariskírteinin skulu skráð á nafn og eru þau framtalsskyld. c) Binditími skírteinanna er 10 ár en að þeim tíma liðnum er eiganda með löglegri handhöfn í sjálfsvald sett hvenær hann fær skírteini innleyst ásamt auglýstum verðbótum, vöxtum og vaxta- vöxtum og því fylgir enginn aukakostnaður. d) Gjalddagi er einn á ári að binditíma loknum. Ef eigandi segir skírteininu ekki upp getur lánstíminn lengst verið 20 ár, þ.e. til 15. janúar 2010. e) Skírteinin eru gefin út í eftirfarandi verðgildum: 5.000, 10.000, 50.000, 100.000 og 1000.000 krónur. Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka Islands, í bönkum og sparisjóðum um land allt og hjá helstu verðbréfamiðlurum. Einnig er hægt að panta þau í síma 91-699600, greiða með C-gíróseðli og fá þau síðan send í ábyrgðarpósti. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS Sölu á 2.fl.A 1989, Tuttugutíu, verður haldið áfram fyrst um sinn. Kjör þess flokks eru í meginatriðum þessi: a) Nafnvextir eru 5% á ári og reiknast frá og með 10. október 1989. Vextirnir eru fastir allan lánstímann. Grunnvísitala er lánskjaravísitala októbermánaðar 1989, þ.e. 2640. b) Fyrst um sinn er þessi flokkur spariskírteina boðinn almenn- ingi með þeim kjörum að raunávöxtun er 6,0% á ári fyrstu 10 árin. .rwordsMrrs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.