Morgunblaðið - 10.01.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANUAR 1990
17
Mm
vægir u
unktar varðandi
bflastæði í miðborginni:
Gífurlegt átak hefur verið gert í bílastæðamálum
borgarinnar. í miðborg Reykjavíkur hafa á tiltölu-
lega skömmum tíma verið byggð og tekin í notkun
svokölluð bflastæðahús og einnig hefur almennum-
bflastæðum verið fjölgað verulega. Ökumenn eru
hvattir til að kynna sér þessi mál.
Á kortinu hér að neðan má sjá greinilega merkta
punkta, sem sýna hvar í miðbænum er helst að
finna aðgengileg og örugg bflastæði.
Starfsfólk í miðborginni er eindregið hvatt til að
leggja bflum sínum fjær, þannig að viðskiptavinir
komist með hægara móti sem næst þeirri þjónustu
sem þeir þurfa að sækja.
Sérstaklega er bent á í þessu sambandi gjaldtöku-
stæði merkt C og D og stæði merkt E og F, en í þau
er engin gjaldtaka.
□
Almennir stöðumælar í miðborginni eru 1200
talsins. Nýverið hefur hámarkstími á rúmlega 200
stöðumælum verið lengdur í 2 klukkustundir. Má
þar nefna stöðumæla við Túngötu, Kirkjutorg,
Kalkofnsveg, Ingólfsstræti norðan Hverfisgötu,
Vitastíg, Frakkastíg, Grettisgötu við BSRB og
Rauðarárstíg við Hótel Lind.
Hér að neðan eru leiðbeiningar um notkun á gjald-
tökubúnaði, sem tekinn hefur verið í notkun á
Bakkastæði og í bflastæðahúsum. Tekið er við
þremur myntstærðum, sem eru 5 krónur, 10 krónur
og 50 krónur og einnig er gefið til baka. Mánaðar-
kort fyrir alla staðina eru seld í varðskýli
Bakkastæðis.
Klippið út auglýsinguna og hafið meðferðis í bílnum
NOTKUN á GJALDTÖKUBÚNAÐl.
1 Komið að bílastæðahúsi:
Ýtið á hnapp við innkeyrsluhliðið, takið
við miða og geymið!
2. Bíllinn sóttur:
Gengið að miðaaflesara. Setjið miðann
í miðaraufina, uppsett gjald greitt, þú
færð miðann aftur. Þessi ferill gildir
jafnvel á þeim tímum dags og um
helgar, þegar ekki er gjaldtaka.
3 Ekið frá bflastæðahúsi:
Akið af stæði að útaksturshliði, setjið
miðann í miðaraufina, hliðið opnast.
A Bflastæðahús - Vesturgata 7 - 109 stæði
B Bflastæðahús - Bergstaðir - 153 stæði
C Bflastæðahús - Kolaport - 180 stæði
D Opin bflastæði - Bakkastæði - 350 stæði
E Opin bflastæði - milli Sætúns og Skúlagötu - 150 stæði
F Opin bflastæði - milli Vatnsstígs og Frakkastígs - 150 stæði
Bflastæðasjóður Reykjavíkur
Umferðarnefnd Reykjavíkur