Morgunblaðið - 10.01.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
„Það verður aldrei framar snú-
ið til kommúnisma í Rúmeníu“
Afleiðingar hel-
steftiunnar
Til Velvakanda.
Sannleikurinn mun gera yður
fijálsa, sagði Páll postuli. Þetta
sannast núna í Austur-Evrópu, þar
sem fólkið hristir af sér hlekki kúg-
unarinnar og helstefna kommúnis-
mans hefur kvalið í áratugi. Trú
Páls stendur enn, en trúin á komm-
únismann er dauð. Munurinn á
þessum trúarbrögðum er sá, að
kommúnisminn byggist á mannfyr-
irlitningu og alræðisvaldi. Nú er
hægt að sjá afleiðingarnar af hel-
stefnunni og nú loksins fær heimur-
inn að kynnast ómennskum kjörum
fólksins. Postular kommúnismans á
Vesturlöndum komu því til leiðar
að sannleikurinn um lífið í austur-
blokkinni var útilokaður. Fjöl-
miðlarnir voru í þeirra höndum og
öll gagnrýni á Stalínismann var hér
á landi kölluð Morgunblaðslýgi og
nasismi.
Út er komin bók í Rússlandi þar
sem sagt er frá griðasáttmálanum
sem þeir gerðu með sér Stalín og
Hitler, enda báðir handhafar sósíal-
ismans, bara sitthvor greinin á
sama meiði. Stalín lét í té olíu handa
Hitler svo hann gæti ráðist inn í
Vestur-Evrópu sem þeir skyldu svo
skipta á milli sín. Þetta fór svo að
Hitler fór inn í Rússland og Banda-
menn sigruðu og afmáðu nasis-
mann. En Stalín ætlaði svo með
hjálp Stalínistanna í Vestur-Evrópu
að leggja undir sig Evrópu. Þegar
hann stóð með pálmann í höndunum
eftir Jaltasamninginn var það
Truman sem sagði: „Hann er búinn
að fá nóg.“ Og NATÓ var stofnað.
Allir þekkja framhaldið, og það var
ekki ættjarðar- eða frelsisþrá sem
fékk íslendinga til að sgássera til
Keflavíkur og kyija Island úr
NATÓ, herinn burt. Það var áróður
Stalínistanna. Hvar sést heims-
valdastefna Bandaríkjanna? Þau
eiga ekki lönd en þau björguðu
Vestur-Berh'n. Nú er ekki lengur
hægt að hafa frjálshyggjuna fyrir
grýlu.
Getur Ríkisútvarpið lofað okkur
að heyra ævisögu Gralinu Vishev-
skayu, sem lýsir lífinu í Rússlandi
og er snilldarlega skrifuð. Eigum
við énn að hlusta á rauðu tjöruna.
Húsmóðir
Varist fals-
spámenn
Til Velvakanda.
Ég vil lýsa ánægju minni með
Reykjavíkurbréf á liðnum aðfanga-
degi. Það var sönn jólahugvekja.
Einnig vil ég þakka fyrir viðvörun-
ina sem birtist með stjömuspá Morg-
unblaðsins 3. janúar. Með þessu
skipar Morgunblaðið sér í röð fjölda
ábyrgra dagblaða, sem ýmist birta
alls ekki stjörnuspár eða láta viðvör-
un fylgja um að stjörnuspáin sé ekki
öruggt leiðarljós á lífsleiðinni.
Þvi miður hefur þjóð okkar í of
miklum mæli látið glepjast af spá-
sögnum falsspámanna, sem gjarnan
opinbera spádóma sína eftir að at-
burðir gerast. Má hér minna á frels-
isölduna í Austur-Evrópu sem fyrst
varð vart í stjömuspádómum þegar
múrarnir hrundu og hlekkirnir
bmstu. Þessir heimssögulegu at-
burðir sem skráðir verða stórum
stöfum í mannkynssögunni, rúmuð-
ust ekki heldur í kristalskúlum völ-
vanna er þær skyggndust eftir at-
burðum ársins 1989.
Spásagnir völva og stjörnukort
tölva reynast arðvænleg söluvara og
því er reynt að auglýsa þessa iðju
sem trúverðuga og helst „vísinda-
lega“. Auglýsingaherferðin hefur
borið þann árangur að meira að
segja einn landsfeðra byggir vonir
sínar um batnandi þjóðarhag á spá-
dómum ónefndra spámanna. Þá er
nú fokið í flest skjól fyrir viðkom-
andi.
I trúarlegum efnum hafa íslend-
ingar sótt vatnið yfir lækinn, þegar
þeir hafa leitað í spruhgna bmnna
trúarbragða og á vit falsspámanna,
í stað þess að teyga lifandi vatn
Jesú Krists. Spádómar hans hafa
reynst ábyggilegir og sannir. Það
er ástæða til að minna á viðvömn
þessa sanna spámanns: „Varist
falsspámenn. Þeir koma til yðar í
sauðarklæðum en innra em þeir
gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra
skuluð þérþekkjaþá." (Mt. 7:15-16).
Guðni Einarsson
Glugginn nuglýsir
Útsalan hefst í dag.
Stórkostleg verðlækkun.
Glugrginn,
Kúnsthúsinu, Laugavegi 40.
MYNDLISTA-
OG HA NDÍÐA SKÓLI
ÍSLANDS
Myndlistanámskeið á vormisseri.
KVÖLDNÁMSKEIÐ.
Teikning fyrir fulloröna.
(Aöaláhersla á módelteikningu)
Fyrir byrjendur:
Teikning I mánud. + fimmtud. kl. 17:30-19:30 Kennari: Kristín Arngrímsdóttir
Teikning I þriöjud. + föstud. kl. 17:30-19:30 Kennari: Eyþór Stefánsson
Teikning 1 þriöjud. + föstud. kl. 20:00-22:00 Kennari: Eyþór Stefánsson
Fyrir lengra komna:
Teikning II mánud. + fimmtud. kl. 20:00-22:00 Kennari: Kristín Arngrímsdóttir
Teikning II miövikudaga kl. 19:20-22:00 Kennari: Auður Ólafsdóttir
Námskeiðin hefjast mánudaginn 15. janúar n.k.
og standa til aprílloka.
Innritun á skrifstofu skólans næstu daga
frá kl. 10 -12 og 13 -15.
Skipholti 1, 105 Reykjavík, sími 19821.
I
I
I
BILATOfíG
BETRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 -SÍMI621033
MMC Pajero langur ’87
Díesel. Silfurgrár. Stærri dekk og
felgur. Skipti og skuldabréf. Ekinn
70 þús. Verð kr. 1.700 þús.
UILAIUHU
Mercedes Benz 190 E ’87
Gulur. Topplúga. Sportfelgur. Skipti
og skuldabréf.
Ekinn 17 þús. Verð kr. 1.700 þús.
Nissan Sunny ’87
Hvítur. Gullfallegur bíll. Skipti og
skuldabréf. Ekinn 27 þús.
Verö kr. 550 þús.
Toyota Corolla sp.ser. '87
Hvítur. Fallegur bíll. Ekinn 58 þús.
Verð kr. 600 þús.
Ford Econoliner XL 4X4 ’88
Silfurgrár. 7,3 I diesel. Læst drif.
Spil. Ekinn 18 þús.
Verð kr. 3.800 þús.
Volvo 740 GL st ’86
Gullsans. Sjálfskiptur. Ekinn 50
þús.
Verð kr. 1.150 þús.
Honda Civic GL ’88
Rauöur. Sjálfskiptur. Vökvastýri.
Ekinn 26 þús.
Verð kr. 790 þús.
BÍLATORG
Audi 80 18S ’87
Hvítur. Vökvastýri. Ekinn 42 þús.
VerÖ kr. 1.170 þús.
AMC Wagoneer LTD ’87
Einn með öllu. Skipti og skutda-
bréf. Ekinn 50 þús. Verð 1.950 þús.
MMC L300 4X4 ’88
Silfurgrár. Skipti og skuldabréf.
Ekinn 48 þús.
Verð kr. 1.380 þús.
Citroén AX 14 TRS '87
Silfurgrár. Ekinn 17 þús.
Verð kr. 450 þús.
Saab 900i ’88
Grænsans. Skuldabréf. Ekinn 34
þús. Verö kr. 1.170 þús.
AMC Cherkee ’87
Silfurgrár. Sportfelgur. Ekinn 32
þús. Verð kr. 1.750 þús.
Isuzu Trooper LS diesel '86
Blásans og silfur. Mjög gott eintak.
Ekinn 66 þús. Verð kr. 1.450 þús.
Gleðilegt nýtt ár
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum
BÍLATOfíG
BETRI BlLASALA
NÓATÚN 2 - SfMI 621033
Höfum kaupendur að
nýlegum SAAB- Citroén-
Subaru-bílum.
og