Morgunblaðið - 10.01.1990, Síða 44

Morgunblaðið - 10.01.1990, Síða 44
Stærsta alda Öldumælar í Surtsey og við Garðskaga mældu meðalöldu- hæð a.m.k. 14 metra (rúmlega 8 mannhæðir) sem segir að stæstu öldur náðu um 20 metra ölduhæð (11 mannhæðir) og hafa ekki áður mælst hærrC ______________mi'Gói Allt að tutt- ug’u metra háar öldur ÖLDUHÆÐ var að meðaltali 14 metrar við Surtsey og Garðsskaga í óveðrinu í fyrrinótt. Mesta öldu- hæð sem mælst hefur á þessum stöðum hingað til hefiir verið um 13 metrar. Þegar meðalölduhæð er 13-14 metrar eru hæstu öldurn- ar um og yíir 20 metrar. Hjá Vita- og hafnamálaskrifstof- unni fengust þær upplýsingar í gær, að í versta veðrinu hefði öldu- hæð við Surtsey og Garðsskaga mælst yfir 16 metrar að meðaltali. Þar sem hætta er á að mælar trufl- ist í svo miklu hvassviðri gætu þeir sýnt ölduhæðina meiri en hún raun- verulega er. Þó er víst að hún var um eða yfir 14 metrar. í slíku veðri gætu hæstu öldur náð um og yfir 20 metra hæð. Öldumælirinn við Surtsey var settur upp veturinn 1987, en mælir- inn við Garðsskaga hefur verið nokkuð lengur. Allt frá árinu 1973 hafa hins vegar verið settir upp öldumælar í skemmri tíma við hafn- ir, þegar kanna á aðstæður fyrir gerð öldubijóta. Þá er nú öldumæl- ir við Reykjavík, út af Akurey, og mældi hann um 4 '/2 metra ölduhæð i fyrrinótt og fram á gærdag. Frá brunanum í Sandgerði í fyrrinótt. Morgunbiaðið/RAX Sandgerði: Tugmilljóna Ijón þegar fískverkunarhús brann TVÆR sambyggðar fiskvinnslu- stöðvar brunnu til kaldra kola í Sandgerði í óveðrinu aðfaranótt þriðjudags og er talið að tjónið nemi um 20 milljónum króna a.m.k. Eldsins varð vart milli 2 og 3 um nóttina. Þijú slökkvilið börð- ust við eldinn í Sandgerði, efi neistaflug stóð yfirþluta bæjarins og mikill reykur. íbúum í nær- liggjandi húsum var gert viðvart, því hugsanlegt var að þeir yrðu að yfirgefa húsin meðan verst lét. Slökkviliðin frá Sandgerði, Keflavíkurflugvelli og Keflavík börðust við eldinn, en um tíma voru vandræði með vatn til slökkvistarfa. Fiskvinnsluhúsin voru hins vegar alelda þegar að var komið, en talsverð hætta var af neistafluginu og fokhætta af járnplötum utan af vinnsluhúsun- um, sem voru stálgrindahús járn- klædd. Neistaflugið stóð yfir nærliggj- andi trésmíðaverkstæði og íbúðar- hús. Voru nokkur þeirra rýmd og neglt fyrir glugga. Naut fólkið aðstoðar björgunarsveitarmanna við það verk. Sjá frásögn og myndir í miðopnu Þrír menn björguðust ÞRÍR menn björguðust úr sjáv- arháska í aftakaveðrinu í fyrri- nótt. Tveimur skipverjum á Arney KE var bjargað úr Sand- gerðishöfn og einn maður bjargaðist á fleka í Grindavík- urhöfn. Vilbogi Einarsson, skipveiji á Amey KE, var að binda land- festar skipsins sem höfðu losnað í öldurótinu þegar brot reið yfir bryggjuna og hann tók út. Félagi Vilboga, Þórhallur Óskarsson, náði honum upp á bryggjuna en þá reið annað brot yfir og tók þá báða út. Að sögn Sigurðar Frið- rikssonar, skipstjóra á Guðfinni KE, sem lá utan á Arney, var mesta mildi að mennirnir urðu ekki á milli skips og bryggju. Mennimir bárust frá bryggjunni í átt að Guðfinni KE og var alltaf hætta á að þeir yrðu á milli skip- anna, að sögn Sigurðar. Skip- veijar Ameyjar og Guðfinns náðu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafur Ágústsson við flekann sem hann bjargaði sér á í Grindavíkurhöfn í fyrrinótt. að bjarga þeim um borð og varð þeim ekki meint af volkinu. í Grindavík var Ólafur Ágústs- son, vélstjóri á Reyni GK, á leið til skips þegar mikil fylla reið yfir Eyjabakka þar sem skipið lá við festar. Útsogið hreif Ólaf með sér en það varð honum til bjargar að málningarfleki flaut hjá og náði Ólafur að komast upp á hann. Með flekanum barst Ólafur um 300 metra leið upp í fjöru og sak- aði hann ekki. Sjá frásögn í miðopnu. Búnaðarbankinn: Vextir af út- lámmi lækka um 3-3,5% BÚNAÐARBANKINN heíur ákveðið að lækka vexti af óverð- tryggðum útlánum um 3-3,5% og vexti af innlánum um 1-3%. Þann- ig munu vextir af almennum skuldabréfum lækka úr 31,5% í 28,5%. Vextir af víxlum lækka úr 27,5% í 24,5% og af yfirdráttarlán- um úr 32,5% í 29%. Vextir af tékka- reikningum lækka um 1% , vextir af almennum sparisjóðsbókum lækka um 2% og vextir af sér- kjarareikningum lækka um 3%. Landsbankinn lækkaði nafnvexti af útlánum og innlánum um síðustu áramót en á morgun tekur gildi 2% vaxtalækkun af almennum skulda- bréfum. Algengustu vextir lækka þannig úr 31,5% í 29,5%. Ennfremur er gert ráð fyrir nokkurri vaxtalækk- un hjá íslandsbanka nú og að sögn Tryggva Pálssonar, bankastjóra má vænta meiri lækkunar innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.