Morgunblaðið - 11.01.1990, Qupperneq 29
Oööt }IAU'/./vli -ff iI!JDAQUTMIír-l (3Ið/ti|0vtUOflOW
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990
go
29
Hörður Einarsson stjórnarformaður á hluthafafiindi Arnarflugs:
Sættum okkur ekki við þessa
mismunun á milli flugfélaga
FORSVARSMENN Arnarflugs gagnrýndu harðlega á hluthafa-
fundi félagsins á þriðjudagskvöld hvernig sljórnvöld hafa að þeirra
sögn mismunað íslensku flugfélögunum og hvernig Flugleiðir hafi
í skjóli þeirrar mismununar haft einokunaraðstöðu í millilandaflug-
inu og sýnt Arnarflugi yfirgang. „Fyrir þessum yfirgangi hafa
menn beygt sig hver af öðrum. Við þetta verður ekki lengur un-
að, við sættum okkur ekki við að þeir sem standa að Arnarflugi
séu álitnir annars flokks borgarar, við sættum okkur ekki við
þessa apartheid stefim í flugmálum," sagði Hörður Einarsson
sljórnarformaður félagsins.
Hörður bað fundarmenn að
koma ákveðnum skilaboðum á
framfæri við hvern og einn, þau
mundu um síðir berast til eyrna
stjórnmálamanna sem hlusta á
sína kjósendur. Hann brýndi menn
til að standa með félaginu í bar-
áttu þess. „Fljúgið með okkur,
standið með okkur í verki, ekki
aðeins í orði,“ sagði hann og vísaði
til Gallup-könnunar sem hann
sagði sýna að 80% þjóðarinnar
vildu að Amarflug starfaði áfram.
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri félagsins sagði það
hafa skaðað félagið að þotan, sem
ríkissjóður leysti til sín á síðasta
ári, hafi staðið ónotuð í langan
tíma. Þetta hafi leitt til 70 til 80
milljóna króna taps á rekstri fé-
lagsins í byrjun síðasta árs. Tekist
hafi að halda í horfinu eftir það
fram í september, en á síðasta
ársfjórðungi hafi verið tap á
rekstrinum og því hafi heildarupp-
hæð tapsins orðið hærri.
Tvennt nefndu þeir báðir að ylli
félaginu mestum erfiðleikum.
Annars vegar að ríkisstjómin hefði
ekki staðið við fyrirheit frá 17.
mars á síðasta ári um niðurfellingu
150 milljóna króna skuldar félags-
ins við rikissjóð, eða breytingu
þeirrar skuldar í víkjandi lán. Hins
vegar að félagið fengi ekki að
starfa á eðlilegum samkeppnis-
grundvelli. Hið síðarnefnda sagði
Kristinn vera mál málanna fyrir
félagið. „Stóra málið okkar er
aðstaðan til samkeppni á mark-
aðnum.“
Fram kom í máli beggja hörð
gagnrýni á Flugleiðir og sögðu
þeir félagið í skjóli stjómvalda
sýna mikinn yfirgang á markaðn-
um gagnvart Arnarflugi. „Alls
staðar þar sem Arnarflug hefur
flogið, þar koma flugleiðir líka,“
sagði Kristinn. Hann nefndi sem
dæmi að Flugleiðir hefðu sótt um
og fengið leyfi til áætlunarflugs
til Salzburg í Austurríki um leið
og Arnarflug fór að fljúga þang-
að. Þá hefðu Flugleiðir hafið frakt-
flug til Ostende í Belgíu, að því
er virtist án leyfis, i samkeppni
við Arnarflug á flugleiðinni til
Amsterdam.
Þeir vísuðu báðir á bug þeirri
röksemd ekki væri rúm fyrir tvö
flugfélög í millilandafluginu og
að_næg samkeppni komi frá er-
lendum félögum. Sameiginleg
markaðshlutdeild erlendra félaga
í flugi milli íslands og Evrópu sé
á bilinu 2-3%. Hins vegar sögðu
þeir engan vafa leika á að sam-
keppni milli Flugleiða og Arnar-
flugs hafi haldið fargjöldum niðri.
Tímabil stöðnunar
Kristinn sagði eitt skýrasta
dæmið um nauðsyn samkeppni í
flugrekstrinum vera fjölda er-
lendra ferðamanna sem koma til
landsins með flugvélum. Á tíma-
bilinu 1960 til 1973 hafi tvö flug-
félög verið hér starfandi í milli-
landafluginu, Flugfélag íslands og
Loftleiðir. Allan þann tíma hafi
fjöldi erlendra ferðamanna til
landsins vaxið jafnt og þétt, frá.
um 12 þúsundum 1960 í um 74
þúsund 1973. Þá hafi tekið við
tímabil stöðnunar þegar Flugleiðir
vár eitt félaga á markaðnum, er-
lendum ferðamönnum hafi ekkert
fjölgað allt til ársins 1982. Þá tek-
ur Arnarflug til starfa og síðan
hafi komið hingað fleiri ferða-
menn hvert ár og 1988 hafi þem
fjölgað í um 130 þúsund. Þetta
sagði Kristinn sýna, að samkeppn-
in tryggði betri skilyrði fyrir ferða-
þjónustuna í landinu og auknar
gjaldeyristekjur.
Hörður nefndi annað dæmi um
jákvæð áhrif samkeppni. Hann
sagði fulltrúa írska flugfélagsins
Aer Lingus hafa tjáð sér, að fyrir-
tækið hefði á sínum tíma barist
hart gegn samkeppni frá öðru og
minna írsku flugfélagi, RYAN-
AIR, einkum á flugleiðinni til Lon-
don. Nú viðurkenni Aer Lingus
að ákvörðun um að veita RYAN-
AIR leyfi á þessari leið hafi verið
rétt, árangur samkeppninnar hafi
verið lækkun verðs, betri þjónusta
og farþegum hafi fjölgað svo mik-
ið að bæði félögin hafi hagnast
verulega, auk hótela, verslana og
annarra sem hafa tekjur af ferða-
mönnum.
í fundarlok var samþykkt ein-
róma áskorun til ríkisstjórnarinnar
að leysa snarlega úr vandamálum
félagsins.
Guðmundur Jón Hákonarson
Áttræðisafmæii
í DAG 11. janúar er áttræður
Guðmundur Jón Hákonarson
frá Hnjóti í Rauðasandshreppi
við Petreksfjörð. Hann var
starfsmaður Kaupfélagsins
Örlygur þar í hreppnum í rúm
40 ár alls, þar af kaupfélags-
stjóri í 25 ár. Lét hann af störf-
um árið 1982. Það ár var Kaup-
félagið sameinað Kaupfélagi
Patreksfjarðar. Hann er að
heiman.
Hugmyndir um sameiginlegt framboð A-flokkann i Reykjavík:
Ekkí rætt milli félaga og
fiilltrúaráða flokkanna
- segir Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Abl.
O
INNLENT
HUGMYNDIR eru uppi um sam-
eiginlegt framboð Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Borgara-
flokks fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í Reykjavík. Sigurjón
Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalags segir að þessar hug-
myndir hafi ekki verið ræddar
milli félaga og fulltrúaráða þess-
ara fiokka í Reykjavík.
Alþýðubandalagsfélagið Birting
hefur undanfarna mánuði leitað
Áður óþekkt háhitasvæði
finnst austur af Grímsey
TALIÐ er að háhitasvæði sé að
finna um 11 sjómílur austur af
Grímsey, en þar hafa fimdist
gifsútfellingar, auk þess sem
haldið er að trolltóg rækjubáts-
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
10. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta ÍVIeðal- IVIagn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 103,00 88,00 95,05 11,348 1.078.648
Ýsa 116,00 98,00 110,96 6,341 703.584
Ufsi 47,00 47,00 47,00 0,249 11.703
Steinbítur 66,00 60,00 64,79 ‘ 0,471 30.514
Hlýri 60,00 60,00 60,00 0,058 11.703
Langa 41,00 41,00 41,00 0,016 636
Lúöa 440,00 295,00 364,63 0,147 53.418
Keila 35,00 35,00 35,00 0,062 2..170
Samtals 100,81 18,691 1.884.153
i dag verður selt óákveöið magn úr Stakkavík ÁR og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 97,00 97,00 97,00 0,432 41.904
Ýsa 135,00 135,00 135,00 0,433 ' 58.455
Karfi 59,00 59,00 59,00 0,211 12.449
Ufsi 53,00 50,00 52,07 2,469 128.536
Steinbítur 80,00 73,00 73,42 1,337 98.161
Langa 72,00 60,00 65,12 0,089 * 5.796
Lúða 300,00 300,00 300,00 0,149 44.700
Skarkoli 85,00 85,00 85,00 0,027 2.295
Samtals 76,23 5,147 392.296
i dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur(ósL) 83,00 83,00 83,00 6,600 547.800
Þorskur(ósl.2n) 46,00 46,00 46,00 1,650 75.900
Þorskur(ósl.4n) 41,00 41,00 41,00 2,500 102.500
Ýsa 132,00 110,00 123,78 3,350 414.650
Karfi 46,00 46,00 46,00 0,900 41.400
Ufsi(ósl.4n) 34,50 32,50 33,20 7,500 249.000
Steinbítur 59,00 59,00 59,00 0,250 14.750
Skötuselur 385,00 385,00 385,00 0,036 139
Samtals 63,57 22,750 1.446.139
Selt var úr Happasæli KE, Ægi Jóhannssyni GK, Hrungni GK og Þuríði
Halldórsdóttur GK. I dag verður selt óákveðið magn úr dagróðrabátum.
ins Þorleifs EA frá Grímsey
hafi slitnað af völdum hita í
sjónum á um 230 fáðma dýpi.
Að sögn Guðmundar Sigvalda-
sonar, jarðfræðings hjá Nor-
rænu eldfjallastöðinni, liggur
háhitasvæðið á þverbrotabelti,
sem liggur frá Tjörnesi og yfir
að Kolbeinseyjarhrygg, og ekki
komi á óvart að þarna sé jarð-
hita að finna.
Gylfi Þ. Gunnarsson, útgerðar-
maður í Grímsey, sagði að þegar
Þorleifur hefði verið að veiðum
austur af Grímsey síðastliðinn
laugardag hefði trollið festst, og
þegar það hafi verið híft um borð
hafi komið í ljós að tvö átján milli-
metra tóg sem liggja niður í troll-
ið voru í sundur. Sér hefði sýnst
á sárinu að það gæti ekki hafa
verið annað en hiti sem brætt hefði
tógin í sundur, og auk þess hafi
verið 3-400 kíló af útfellingum í
trollinu, sem komið hefði í ljós að
væru gifsútfellingar.
Guðmundur Sigvaldason jarð-
fræðingur sagði að þarna væri
greinilega um að ræða háhita-
svæði sem ekki var vitað um áð-
ur, en gifsútfellingarnar sem upp
hefðu komið gætu ekki myndast
við önnur skilyrði. Hann sagði allt
benda til þess að hiti hefði brætt
tógin, og líklegt væri að það hefði
átt sér stað við um 200 gráða hita.
Hann sagðist gera ráð fyrir að
svæði þetta yrði kannað nánar í
framtiðinni.
eftir samstarfi stjórnarandstöðu-
flokkanna í borgarstjórnarkosning-
unum. Margrét S. Bjömsdóttir
stjórnarmaður í Birtingu sagði við
Morgunblaðið, að sl. haust hafi
verið rætt við borgarmáláráð ailra
þessara flokka en fyrir lægi að
Framsóknarflokkur og Kvennalisti
hefðu tekið ákvörðun um að bjóða
fram sér. Hins vegar væri áhugi
innan Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags á samstarfi í kosningun-
um. Einnig kæmi til greina að Borg-
araflokkur tæki þátt í því sam-
starfi.
„Við teljum ekki útilokað að ef
samstaða næst milli þessara f lokka,
muni Framsóknarflokkur og
Kvennalisti hugsa ■ sig aftur um,“
sagði Margrét. Félagsfundur verður
í Birtingu í kvöld þar sem þessi
mál verða rædd.
Birgir Dýrfjörð formaður fulltrú-
aráðs Alþýðuflokksins sagði að
búið væri að tala við marga um
þetta og velta um ýmsum hugmynd-
um og flötum, mikið væri búið að
drekka af kaffi og þetta væri óskap-
legt álag á nýrun en ekkert lægi
fyrir sem hönd sé á festandi. „En
hugsanlega kemur eitthvað út úr
þessu,“ sagði Birgir.
Bjarni P. Magnússon borgarfull-
trúi Alþýðuflokksins lýsti því yfir
sl. vor, að hugmyndir um sameigin-
legt framboð minnihlutaflokkanna
væri úr sögunni eftir að mennta-
málaráðherra auglýsti stöðu skóla-
stjóra Ölduselsskóla lausa. Birgir
sagði um þetta að menn væru alltaf
tiibúnir að skoða nýja fleti og sjón-
armið.
Siguijón Pétursson borgarfull-
trúi sagði að engar viðræður hefðu
átt sér stað um þetta milli Alþýðu-
bandalagsfélagsins Alþýðuflokks-
félagsins í Reykjavík þannig að
þarna væri ekkert sameiginlegt á
ferðinni. „Er það ekki miklu heldur
að Alþýðuf lokkurinn ætlar að halda
opið prófkjör og bjóða öllum að
vera með og ná þannig í öll atkvæð-
in?“ sagði Sigurjón.
Siguijón sagðist heldur ekki vita
til þess að Birting hefði haft sér-
stakt samband við Alþýðubanda-
lagsfélagið í Reykjavík um þessar
hugmyndir.
Bankaráðsmaður Kvennalista:
Baukaeftirlitið
beðið um álit
GUÐRÚN Helgadóttir forseti Sameinaðs þings hefúr óskað umsagn-
ar bankaeftirlits Seðlabanka á kosningu fulltrúa Kvennalistans í
bankaráð Landsbankans. Er þetta gert að beiðni Kvennalistans.
Kristín Sigurðardóttir, fulltrúi
Kvennalistans í bankaráðinu, er
starfsmaður Kaupþings hf, og hefur
seta hennar í bankaráðinu verið
gagnrýnd með tilliti til hugsanlegra
hagsmunaárekstra.
Kvennalistinn fól forsetum Al-
þingis að láta kanna hvort seta
Kristínar í bankaráðinu bryti í bága
við reglur. Forsetar báðu Friðrik
Ólafsson skrifstofustóra Alþingis
um álit og komst hann að þeirri
niðurstöðu að seta Kristínar í ráðinu
væri ekki andstæð lögum en hins
vegar gæti orðið um hagsmuna-
árekstra að ræða. Kvennalistinn
óskaði síðan eftir því að einnig yrði
leitað álits bankaeftirlitsins og
Lagastofnunar Háskóia Islands.
Hafa forsetar nú leitað álits Sigurð-
ar Líndals lagaprófessors og banka-
eftirlitsins.
Guðrún Helgadóttir sagði við
Morgunblaðið forsetar þingsins
hefðu ekkert vald til að gera at-
hugasemdir við bankaráðskosning-
una. Það væri alfarið á valdi þing-
flokka hvaða menn þeir byðu fram
í kosningum á Alþingi til stjórna
og ráða.