Morgunblaðið - 11.01.1990, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990
fclk í
fréttum
HÁSPENNA
Chevi Chase í háspennu
Chevi Chase - slapp með skrekkinn.
Grínarinn Chevi Chase
lenti í óskemmtilegri
reynslu á dögnnum er
upptökur á farsanum
„National Lampoons
Christmas Holiday" stóðu
yfir. í einu atriðanna átti
Chase, sem leikur heimil-
isföðurinn, að skrejda
jólatréð, en flækjast
síð^n að sjálfsögðu í
snúrunum og falla um
síðir til jarðar og draga
tréð og allt heila dótið
ofan á sig. Það fór öðruv-
ísi og næstum á voveiflegan hátt.
Upptakan hófst og Chase fór að
skreyta. Er seríurnar gerðust flókn-
ar og flæktar, fór gamanið að
kárna. Áhorfendur héldu niðri í sér
hlátrinum er Chase tók að sprikla
og hljóða. Mikið fjári var maðurinn
góður! Chase barðist um hríð fram
og aftur um sviðið, veinandi ámát-
lega, snarf læktur í þremur mismun-
andi snúrum. Það var ekki fyrr en
hann hné niður meðvitundariaus og
menn sáu að þáð var farið að tjúka
úr fötum hans að uppi varð fótur
og fit. Chase hafði fengið raflost.
Tæknimenn brugðu hart við og
rufu strauminn og Chase var komið
undir læknishendur. Hann slapp
betur en á horfðist og gat mætt til
starfa örfáum dögum síðar. Hann
hafði svitnað aðeins við upptökuna
og það þurfti ekki meira til.
BREYTTIR TÍMAR
Stalín er ekki hér
KÆRULEYSI
Fortenski gerir
Liz Taylor gráhærða
Larry Fortenski, sambýlismaður
Elizabetar Taylor, er sagður
fremur kærulaus og þó nokkur
klaufi. Þannig týnir hann smáhlut-
um eða gleymir þeim, nema hvort
tveggja sé. Eitt helsta tómstunda-
gaman Elísabetar er að eyða fúlg-
um í piltinn, en hún hefur áhyggjur
af þessum göllum hans, dýrir hlutir
hafa horfið eða gleymst. Nú er svo
komið, að þetta er farið að fara í
taugamar á henni, því það er alveg
sama hvaða fortölum hún beitir,
henni reynist erfitt að kenna göml-
um hundi að sitja. Í seinni tíð hefur
hún brugðist þannig við þessu, að
hún hefur látið gera nákvæmar en
ódýrar eftirlíkingar af öllum dýru
djásnunum sem hún hefur mokað
í hann. Nú síðast voru það skyrtu-
hnappar úr gulli sem Elísabet reiddi
fram 50.000 krónur fyrir.
Það sauð upp úr vegna þessara
hnappa er hjónaleysin voru á
skemmtisiglingu á gruggugu stór-
fljóti í Tælandi fyrir nokkru. Larry
gekk allt í einu vandræðalegur til
Liz og sagðist hafa misst fyrst ann-
an skyrtuhnappinn og síðan hinn í
grugguga elfuna. „Það er allt í lagi,
við getum alltaf látið gera nýjar
eftirlíkingar," sagði þá Liz. Vand-
ræðaleg þögn ríkti um hríð en loks
stamaði Larry að þetta hefðu verið
ekta hnapparnir! Elísabet varð óð
af bræði og spurði hvers vegna
hann notaði ekki eftirlíkingarnar.
Jú, það var vegna þess að hann
týndi þeim í vikunni á undan er þau
voru á ferð á Ítalíu.
Annars er alltaf eitthvað að
frétta af Liz. Nú hafa menn áhyggj-
ur af því að hún sé farin að stunda
flöskuna og pilluglösin á nýjan leik
og aukin þyngd hennar sé til marks
um það. Fyrir skömmu hitti hún
gamlan vin, fyrrum eiginmann sinn,
öldungadeildarþingmanninn John
Warner, og bauð hann henni heim
í hádegisverð. Fór vel á með þeim,
en er Liz var farin tók Warner allt
í einu eftir því að „einhvur" hafði
krotað yfirskegg á allar myndirnar
af eiginkonu hans, Kate McGinnis!
/? n ára gamall Sovétmaður, ívan
U t Búshílo, kom nýlega til
heimabæjar síns, Bostyn, eftir að
hafa falið sig í skógi í Hvíta-Rússl-
andi í 42 ár, svo sem skýrt hefur
verið frá hér í blaðinu. Búshílo var
sæmdur orðu fyrir frækilega fram-
göngu í síðari heimsstyijöldinni og
barðist þar við hlið herforingja, sem
síðar féll í ónáð hjá Stalín. Búshílo
varði herforingjann og óttaðist að
sér yrði hegnt fyrir það. Þar sem
hann vildi ekki lenda í fangelsi í
Síberíu ákvað hann að taka staðfestu
í skýli í miðjum Polessje-skógi, þar
sem hann lifði aðallega á sveppum
og beijum, auk þess sem hann veiddi
dýr í gildru sér til matar. Á mynd-
inni situr hann í skýlinu og les dag-
blað, en þess skal getið að það var
ekki fyrr en honum voru færð dag-
blöð að hann sannfærðist um að
breytingar hefðu orðið í Sovétríkjun-
um frá stalínstímanum.
Brando...
grillinu, skipti engum togum að
neisti skoppaði kátlega í skyrtuna
og var hún þegar alelda. En Brando
var fljótur að hugsa og nú kom
sér vel að vera f lugrík kvikmynda-
stjarna. Þær eru nefnilega allar
með sundlaugar í garðinum hjá sér
og til allrar lukku var grillið aðeins
örfáa metra frá sundlaugarbarmin-
um. Brando fékk sér því hressilegt
bað í sundlauginni, fór síðan í nýja
flík og veislan hélt áfram. Hann
hafði sloppið með minni háttar
f leiður . ..
Beattie og Madonna.
NEY SLUR AUNIR
Aðgát skalhöfð í
nærveru matar
Sú einfalda athöfn að næra sig
getur tekið ýmsar stefnur og
skuggalegar á stundum, það hafa
þeir Warren Beattie og Marlon
Brando fengið að reyna nýverið.
Byijum á Beattie, leikarinn gam-
alkunni var sestur að rómantískum
kvöldverði með kærustunni, söng-
konunni Madonnu, og hafði hún
eldað eitthvað í líkingu við Lund-
únalamb. Beattie var hungraður
mjög eftir erfiðan dag og tók stóra
bita og tuggði illa. Allt í einu blán-
aði hann, staulaðist frá borðinu og
kúgaðist og hóstaði. Stóð sýnilega
í honum. Þar sem hann var bjargar-
laus á fjórum fótum á stofugólf-
inu, stökk Madonna til og rak hon-
um þvílíkt karatehögg í hryggjars-
úluna að hálftugginn kjötbitinn
þeyttist út úr Beattie og inn í
næsta herbergi. Eftir að Beattie
hafði jafnað sig, settust hjónaleysin
að snæðingi á ný og varð Beattie
tíðrætt um að Madonna hefði trú-
lega bjargað lífi sínu. En hann
væri slæmur í baki eftir meðferð-
ina!
Marlon Brando varð þess
áskýnja að umstang í kring um
mat getur verið stórhættulegt ef
aðgát er ekki höfð. Hann hafði
boðið all nokkrum vinum og kunn-
ingjum til grillveislu heima fyrir.
Brando er sagður 150 kg og föt
hans efnismikil eftir því. Við þetta
tækifæri skartaði hann risavaxinni
Hawaii-skyrtu, sjálfsagt úr bráð-
eldfimu efni, því eitt sinn er hann
teygði sig eftir einni steikinni á