Morgunblaðið - 11.01.1990, Page 52
Hækkun á
brauðum
Dómurinn kallar á breytingar í 19 lögsagnarumdæmum á landinu
aði nm 100
Morgunbladio/Svernr
Unnið að því að blóðga dauðan fisk í einu af eldiskerum Isþórs við Þorlákshöfn, en þar varð tugmilljóna tjón í óveðrinu.
Grerð verður ný áætlun um
uppbyggingu sj óvamargarða
STARFSMENN Hafnamálastofnunar munu gera nýja áætlun um sjó-
varnargarða við suðurströnd landsins í framhaldi af stormflóðunum
sem urðu í vikunni, en það eru mestu flóð sem þar hafa orðið í um
200 ár. Undanfarin þrjú ár hefur Hafnamálastofnun byggt nýja sjó-
varnargarða á Eyrarbakka og Stokkseyri, og telur Jón Leví Hilmars-
son, forstöðumaður tæknideildar stofnunarinnar, að kostnaður við
það sé orðinn um 10 milljónir króna, en heildarkostnaður við íiram-
kvæmdina er áætlaður verða rúmlega 125 milljónir króna.
„Það hafa orðið einhverjar
hækkanir hjá nokkrum bakaríum
og höfúm við ekki gert athuga-
scmdir við það, en þessar hækk-
anir hafa almennt verið á bilinu
5-10%. Við erum nú að kanna
verðið á mjög mörgum vöruteg-
undum sem við könnuðum fyrir
áramótin, og verður niðurstaða
þeirrar könnunar birt fljótlega,"
sagði Guðmundur Sigurðsson hjá
Verðlagsstofnun í samtali við
Morgunblaðið.
Guðmundur sagði, að nokkuð
hefði borist af athugasemdum frá
almenningi til Verðlagsstofnunar
vegna verðhækkana sem urðu um
áramótin, en stofnunin hefur ekki
talið ástæðu til að gera athuga-
semdir vegna þeirra hækkana.
Þjóðleikhúsið:
Havel boðið
á frumsýn-
ingu á End-
urbyggingu
VACLAV Havel, forseta
Tékkóslóvakíu, hefúr verið
boðið hingað til lands til að
vera viðstaddur frumsýn-
ingu á leikriti hans, Endur-
byggingu, í Þjóðleikhúsinu
8. febrúar næstkomandi.
Þjóðleikhúsið sendi Vaclav
Havel boð um að vera við-
staddur frumsýninguna í
gegnum sendiráð Tékkósló-
vakíu hér á landi nokkrum
dögum áður en ljóst var að
hann yrði forseti landsins.
Gísli Alfreðsson Þjóðleik-
hússtjóri sagði að enn hefði
ekki borist svar frá Havel.
Viðlagatrygging íslands mun
hvorki bæta það tjón sem varð á
sjóvarnargörðum né á þjóðvegum á
Eyrarbakka og Stokkseyri, en ekki
er fullljóst hvort hún nær til tjóns
á hafnarmannvirkjum. Ekki hefur
verið metið hve háar bótagreiðslur
falla á hana vegna tjóns sem varð
um suðvestanvert landið í storm-
flóðunum, en starfsmenn Viðlaga-
tryggingar meta í dag það tjón sem
varð í Grindavík. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins frá þeim
stöðum þar sem mest tjón varð í
óveðrinu er talið að heildartjón nemi
hundruðum milljóna króna.
Mikið tjón varð á mannvirkjum
fiskeldisstöðvarinnar Isþórs við
Þorlákshöfn og er áætlað að það
nemi tæplega 15 milljónum króna.
Um 50 tonn af laxi drápust í eldis-
kerum stöðvarinnar, og er það tjón
talið nema tugum milljóna króna.
Fiskurinn var allur tryggður, og
fæst hann bættur að undanskilinni
sjálfsábyrgð, sem nemur um 20%
af heildartjóninu. Fiskurinn hefur
að mestu verið seldur með 20% af-
föllum.
Sverrir Þórólfsson, stjórnarmað-
ur í ísþór sagði að mannvirki væru
ótryggð og þann skaða yrði fyrir-
tækið að bera nema viðlagatrygg-
ing kæmi til. „Við teljum áð viðlaga-
tryggingar hljóti að ná yfir
skemmdir á mannvirkjum hér eins
og á Stokkseyri og Eyrarbakka, hér
er um hreinar náttúruhamfarir að
ræða,“ sagði Sverrir.
Sjá nánar á bls. 20-21.
Fiskvinnslu-
húsum fækk-
Hæstiréttur í framhaldi af málarekstri iyrir Mannréttindanefiid Evrópu:
Sýslumenn vinni ekki jafiit sem
dómarar og lögregluslj órar
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr gildi dóm og alla dómsmeðferð saka-
dóms Arnessýslu í minniháttar sakamáli. Hæstiréttur telur að sýslu-
manninum í Árnessýslu og fulltrúa hans hafi borið að víkja sæti í
málinu, þar sem fulltrúinn hafi bæði mælt íyrir um lögreglurann-
sókn og kveðið upp dóm í málinu. Vitnar Hæstiréttur til þeirrar
niðurstöðu Mannréttindanefndar Evrópu i máli Jóns Kristinssonar á
Akureyri gegn íslenska ríkinu að almennt verði óhlutdrægni í dóms-
störfum ekki talin nægilega tryggð þegar sami maður vinni bæði
að þeim og lögreglustjórn og brjóti þessi skipan í bága við ákvæði
mannréttindasáttmála Evrópu.
Dómsmálaráðuneytið hefur þeg-
ar tilkynnt öllum sýslumanns- og
bæjarfógetaembættum í landinu
um þennan dóm Hæstaréttar. Að
sögn Þorsteins Geirssonar ráðu-
neytisstjóra verða á næstunni gefin
út fyrirmæli og Ieiðbeiningar um
hvernig bregðast skuli við dóminum
en þær breytingar hafa ekki verið
útfærðar enn.
Þorsteinn sagðist ekki álíta að
^jjessi dómur, sem sjö Hæstaréttar-
dómarar kváðu upp, hefði sjálfkrafa
í för með sér að mál sem komin
væru til dómsmeðferðar hjá fógeta-
og sýslumannsembættum yrðu
ómerkt. Hann sagði að í þeim sex
umdæmum utan Reykjavíkur þar
sem sérstakir héraðsdómarar, sem
ekki hafa jafnframt á hendi um-
boðsstörf, eru starfandi eigi ekki
að þurfa að koma til verulegra
breytinga. Sérstakir héraðsdómarar
starfa á Akureyri, í Vestmannaeyj-
um, Árnessýslu, Kef lavík, Kópavogi
o g Hafnarf irði. í öðrum umdæmum,
19 talsins, annast sýslumenn og
bæjarfógetar og fulltrúar þeirra
jöfnum höndum lögreglustjórn og
dómsstörf. Þorsteinn sagði að þar
yrði skilið á milli þessara starfa
fyrr en gert hafði verið ráð fyrir í
lögum um aðgreiningu dóms- og
umboðsvalds sem Alþingi hefur
samþykkt en taka eiga gildi 1. júlí
1992.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í nóv.ember siðastliðnum
hafa ríkisstjórn íslands og Jón
Kristinsson á Akureyri gert með sér
sátt um að endurgreiða Jóni sekt
og sakarkostnað vegna máls sem
staðið var að með hliðstæðum hætti
og að ofan greinir, lögfræðikostnað
fyrir Mannréttindanefnd Evrópu,
sem taldi fyrrgreinda skipan bijóta
gegn mannréttindasáttmála Evr-
ópu, og að þessi málalok yrðu færð
í sakaskrá. Á móti féll Jón frá sínum
kröfum og samþykkti að fallið yrði
frá málshöfðun fyrir hans hönd fyr-
ir Mannréttindadómstóli Evrópu,
féllist dómstóllinn á það.
í niðurstöðum Hæstaréttar er
vísað til þessarar sáttar og þeirrar
meðferðar sem mál Jóns hafi hlotið
hjá Mannréttindanefnd Evrópu.
Einnig er meðal annars vísað til
þess að í stjórnarskrá lýðveldisins
sé byggt á þeirri meginreglu að
ríkisvaldið sé þríþætt og sérstakir
dómarar fari með dómsvald; að þær
sérstöku sögulegu og landfræðilegu
aðstæður sem bjuggu að baki því
að láta sömu menn fara bæði með
stjórnsýslu og dómsstörf hafi nú
minni þýðingu en fyrr, meðal ann-
ars vegna greiðra samgangna; að
Alþingi hafi sett fyrrgreind lög um
aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds í héraði og að ísland hafi að
þjóðarrétti skuldbundið sig til að
virða mannréttindasáttmála Evr-
ópu.
„Fiskvinnsluhús voru um 450
talsins árið 1988. Þeim fækkaði
hins vegar um nær 100 í fyrra
og þar af voru uin 80 lítil hús
með saltfiskvinnslu," sagði Arn-
ar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, í
samtali við Morgunblaðið. Arnar
sagði að frystihúsin væru nú um
90 talsins.
Ég er hræddur um að menn neyð-
ist til að sameina fiskvinnsluhús.
Hins vegar er út í hött að sameina
þau ef það leiðir til byggðaröskun-
ar,“ sagði Arnar.
Hann sagði að Atvinnutrygging-
arsjóður hefði trúlega lánað sjávar-
útvegsfyrirtækjum um 5 milljarða
króna. „Ef mönnum verður haldið
áfram á núllinu verður erfitt að
borga af lánum Atvinnutryggingar-
sjóðs. Það eru um 6% raunvextir á
þessum lánum og hagnaður fyrir-
tækja þarf að vera 5-7% til að þau
geti borgað af þeim,“ sagði Arnar.